Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988. Utlönd Lætur ekki yta ser ut i kjarnorkuvopnasamninga vildi hann sjá slíkt samkomulag veröa aö yeruleika en hins vegar væri mikilvægara að ná góöum samningi heldur en að flýta sér að undirrita fljótfærnislegt skjal af ein- hverju tagi. Samningur um helmings fækkun langdrægra kjarnorkuvopna væri mun flóknara fyrirbæri en samningurinn um eyðingu meðal- drægra vopna, sem leiðtogarnir und- irrituðu í desembermánuði síðast- liðnum og tók gildi á Moskvufundin- um nú. Reagan fór í gær flugleiðis til Bret- lands þar sem hann stoppaði í einn sólarhring til þess að skýra Thatcher frá gangi mála á leiötogafundinum. í London hvatti Reagan Vesturlönd til þess að styðja við bakið á Mikhail Gorbatsjov aðalritara í viöleitni hans við að koma á úrbótum í sovéskum stjórnarháttum og hagkerfi. Sagði Reagan að áætlanir Gorbatsjovs fælu í sér möguleika fyrir Sovétmenn til þess aö öölast nýtt líf. Forsetinn sagði, í kvöldverðarboði sem Thatcher hélt honum og Nancy eiginkonu hans í gærkvöldi, að hann væri þess fullviss að sovésk alþýða sæi nú möguleika til betra lífs fram- undan. Sagði forsetinn að því meir sem Vesturlönd aðstoðuöu Sovétrík- in á þessu breytingaskeiði því meir myndu stjórnvöld þar í framtíðinni verða að lúta vilja fólksins. Um hádegisbihð í dag mun Reagan flytja ávarp þar sem hann mun rekja gang mála á leiðtogafundinum opin- berlega og greina frá viðhorfum sín- um gagnvart samskiptum austurs og vesturs í framtíðinni. Ávarp þetta verður jafnframt eins konar kveðjuræða hans til Evrópu- ríkja. Bandarískir embættismenn sögðu í gær að í ræðu sinni myndi Reagan leggja áherslu á samband Bretlands og Bandaríkjanna, skýra frá stöðu alþjóðamála frá sínum sjón- arhóli og rekja hvað áunnist hefur meðan hann hefur setið í forsetastóli. Fundur Reagans og Thatcher í gær var hinn nítjándi sem þau hafa átt á Reagan forseti umkringdur lífverði Bretadrottningar. Simamynd Reuter undanfórnum sjö árum. Ljóst er að þau munu hittast að minnsta kosti einu sinni enn, þar sem Reagan mun hafa boðið Thatcher að koma til Washington í haust, að afloknum for- setakosningum þar. Mun breski for- sætisráðherrann þegar hafa þegið boðið. Reagan átti í morgun að hitta No- boru -Takeshita, forsætisráðherra Japans, að máli í London, áður en hann heldur heimleiðis. Forsetinn með Margaret Thatcher, forsætisráherra Bretlands, í gær. Simamynd Reuter Forsetahjónin sátu í gær teboö Bretadrottningar og hér er forseta- frúin með drottningunni. Simamynd Reuter Ronald Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær, á fundi sínum með Marg- aret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, að hann myndi ekki láta ýta sér í einhveijum flýti út í undir- ritun samninga um gagnkvæma fækkun á langdrægum kjarnorku- vopnum stórveldanna tveggja, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, á þeim tíma sem hann á eftir í emb- ætti. Vonir höíðu staðið til að leið- togar stórveldanna, Reagan forseti og Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, næðu veru- legum árangri í viðræðum sínum um slíkan samning á leiðtogafundinum í Moskvu. Fundinum lauk hins yegar í gærmorgun án þess að þeim virðist hafa tekist að þoka málum neitt verulega áleiöis til þeirrar helmings fækkunar sem vonast er eftir. Reagan sagöi í gær að vissulega VERSLUNARMENN SÉRSTAKLEGA VELKOMNIR Dagskrá: Diskótekið, meiri háttar fjör Píanóbarinn, nýjung sem kemur á óvart. Snyrtivörukynning: Snyrtivörur frá Revlon. MORGUNINN EFTIR m .. sofið þið út m Wm FÖSTUDAGURINN 3 Brautarholti 20. Símar 23333 og 23335 Opið 10-3. Miðaverð kr. 500.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.