Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988. 9 UÚönd Enginn komst lífs Gizar Helgaaan, DV, Lubedc Allir námumennimir fimmtíu og sjö að tölu, sem 1 fyrradag lokuöust inni í brúnkolanámunni í bænum Borke, eru nú taldir af. Þijátíu og sex lík höfðu fundist í gærkvöldi og voru komin upp á yfirborö jaröar. Hin líkin voru sennilega á hinum ýmsu stööum í námunni á 50 öl 100 metra dýpi. í gær var talið aö dýnamítsend- ing, sem nýkomin var til námunn- ar, heföi sprungiö en nú er aftur á móti taliö öruggt aö sökum skorts á súrefhi í námunni hafi eldfimar gastegundir náö aö safhast saman í hættulegu magni og síöan sprung- iö. Þar hefur sennilega veriö um að ræða blöndu af metangasi og kolaryki. Allir námumennimir voru út- búnir með gasgrímur sem nota á í neyðartilfellum en súrefhisbugöir, er meö fylgja, eru aöeins til þriggja tíma. Frúr leiðtoganna hafa eldað grátt silfur allt frá því þær hittust fyrst. Simamynd Reuter Frúmar í brennidepli Bjami Hiniiksson, DV, Bordeaux: Viöræðum Reagans og Gorba- tsjovs í Moskvu hefur verið tekiö meö ró hér í Frakklandi. Fjölmiðlar hafa aö vísu íjallaö talsvert um fund- inn og hann jafhvel dregið nokkuö athyglina frá komandi þingkosning- um en umfjöllunin hefur ekki rist djúpt þar sem greinilegt er að engin stórtíöindi hafa átt sér staö í Moskvu og fundurinn fremur táknrænn en afdrifaríkur. Miklu frekar en að velta fyrir sér hjali stjómendanna tveggja hala franskir fréttamenn keppst viö aö skýra frönsku þjóðinni í smáatriöum frá daglegum samskiptum eigin- kvennanna, þeirra Nancyar og Raisu. Milli þeirra er víst oft gmnnt á því góða en þó virtist stundum eitt- hvað vera að rætast úr, a.m.k. túlk- uðu franskir stjómmálaskýrendur geröir kvennanna tveggja og klæða- burð, oröræöur og augnatillit, og komust að mismunandi niðurstöðu á hverjum degi. í lok ferðar Reagan- hjónanna virtist þó ljóst aö þíðan í samskiptum stórveldanna þýðir ekki að konumar séu miklir mátar en eig- inmennimir virtust hafa þekkst í áratugi."" Helmut Kohl mim fljótlega hitta Gorbatsjov en fyrir utan vestur- þýska kanslarann hafa stjórnendur aílra helstu ríkja Vesturlanda fundað meö sovéska leiðtoganum. OPIÐ UM HELGINA Laugardag 10-16 og sunnudag 13-16. Furuhúsgögn í miklu úrvali. Verö frá kr. 14.565, stgr. Sólstólar og bekkir, plaststólar. Reyrhúsgögn, hvít. Bamabekkur, kr. 1.475. Eyjaslóð 7, sími 62-17-80 Golfklúbburmn Keilir og B. Magnússon (Kays) tilkynna: Refsiaðgerð- imar þokast áftam í þinginu Ein af nefndum fulltrúadeildar bandaríska þingsins samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta, 34 at- kvæðum gegn 14, tillögur þær um refsiaðgerðir gegn stjómvöldum í Suður-Afríku, sem nú era til af- greiðslu á Bandaríkjaþingi. Aðgerðir þessar eiga að miða að því að fá sijómvöld í S-Afríku til að draga úr eða láta af kynþáttaaðskilnaðar- stefnu sinni. Utanríkismálanefnd fulltrúadeild- arinnar samþykkti sömu tillögur fyr- ir um mánuði en í þetta sinn var það bankamálanefnd deildarinnar sem hafði þær til umfjöllunar. Fjórar nefiidir deildarinnar til viðbótar verða að fjalla um tillögumar áður en þær verða teknar til umræðu á almennum deildarfundum. Tillögumar, sem Reagan forseti og ríkisstjóm hans hafa lýst sig alfarið á móti, fela í sér nær algera stöövim á viðskiptum milli Bandaríkjanna og Suður-Afríku og yrðu þær sam- þykktar yrði bandarískum fyrirtækj- um skylt að hætta allri starfsemi siirni þar í landi. Áður en bankamálanefndin af- greiddi tillögumar samþykkti hún að bæta við þær ákvæði sem repú- blikanar vildu fá inn, þar sem við- skiptabannið er styrkt með banni við innflutningi á öllum vörum sem hafa í sér einhveija hluta framleidda í Suður-Afríku. Með þessu ákvæði er ætlunin að loka þeim möguleika að Suður-Afríkumenn geti látið seija hluti saman annars staöar og síðan flytja þá á markað í Bandaríkjunum. KAYS - OPIÐ GOLFMÓT sunnudaginn 5. júní á Hvaleyrarvelli Ræst verður út frá kl. 8.30 Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur með/án forgjafar Vinningar: 2 golfsett 2 golfkerrur 2 golfpokar Aukaverðlaun á par 3 holum Sérstök aukaverðlaun eru fyrir 3 bestu skor hjá konum m/forgjöf Skráning í síma 53360 Kapplolkjanefnd §jt B.M AGNIJSSON DM HÓLSHRAUNI 2-SÍMl 52866-PÖSTHÓLF 410 HAFNARFIRDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.