Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Síða 1
Iistahátíð í
- umfangsmikil og fjölbreytileg
Eins og flestum er sjálfsagt kunn-
ugt hefst listahátíð í Reykjavík nú
um helgina. Setning listahátíðar fer
fram í Listasafni íslands á morgun,
laugardaginn 4. júní, kl. 14.00. Á
sama tíma verður sýning á verkum
Marc Chagall opnuð.
Fjölbreytt dagskrá
Að þessu sinni er Listahátíð mjög
umfangsmikil og fjölbreytileg. Til
marks um það má nefna að sjö
myndlistarsýningar verða í gangi.
Ennfremur verður handrita- og
bókasýning og sýning á byggingar-
list í Berlín.
Tónleikar og leiksýningar
Þrettán tónleikar verða á hátíð-
inni, íjórar brúðtdeiksýningar, auk
sýninga Brúðubílsins. Af tónleik-
um, sem fram fara nú um helgina,
má nefna Pólska sálumessu eftir
Penderecki í flutningi Fílharmón-
íuhljómsveitarinnar frá Poznan og
Fílharmóníukórsins frá Varsjá.
Höfundur stjórnar. Þjóðleikhúsið
frumsýnir verkið Marmara eftir
Guðmund Kamban og látbragðs-
leikarinn Yves Lebreton sýnir
verkið Ef ég væri þú.
Ballett og fyrirlestrar
íslenski dansflokkurinn sýnir
verðlaunaballettinn Af mönnum.
Og Black Ballett Jazz hópurinn frá
Bandaríkjunum sýnir sögu svert-
ingjadansa í 200 ár. Auk þess verða
fluttir fyrirlestrar um myndlist,
byggingarlist og bókmenntir.
Má þar sem dæmi nefna að Göran
Tunström verður með fyrirlestur
og upplestur úr eigin verkum í
Norræna húsinu. Þijár stuttar
kvikmyndir, sem gerðar voru eftir
verðlaunahandritum Listahátíðar,
verða frumsýndar.
Miðasala hafin
Miðasala á atriði listahátíðar
hófst síðastliðinn þriðjudag. Er fólk
hvatt til að kynna sér dagskrána
og tryggja sér miða tímanlega, þar
sem tónleikar vinsælla tónlistar-
manna eins og Cohens, franska
djassfiðlusnillingsins Stephane
Verkið Ferðalag eftir Borghildi Óskarsdóttur er merki Listahátíðar að
þessu sinni.
Grappelli og einleikstónleikar einu sinni og búast má við að færri
Vladimirs Ashkenazy verða aðeins komist að en vilja.
Sjómannadagur-
inn 50 ára
™ mdr§t 3.Ó §crdst 1 tilcfin dfmðclisms
Á þessu ári er haldið upp á sjó- Dagskráin í Reykjavík skipa inn á Rauðuvík við Reykja-
mannadaginn í fimmtugasta sinn í dag, fóstudaginn 3. júní, mun vík. Síðan mun vera hátíðarsam-
víðsvegarumlandið.Einsognærri forseti íslands, frú Vigdís Finn- koma í Laugarásbíói.
má geta er dagskráin óvepjuflöl- bogadóttir, heimsækja Hraöiistu í Á laugardag fer fram forkeppni í
breytt í tilefhi afmælisins og af Reykjavík. Að því búnu mun for- kappróðri í Reykjavíkurhöfn. Síð-
nógu að taka. setinn fylgjast með siglingu segl- an verður aðaldagskráin á sjálfan
sjómannadaginn, sunnudaginn 5.
júní. Hefst hún á því aö nýr minnis-
varði um óþekkta sjómanninn
verður vígður i Fossvogskirkju-
garði. ; Minningarguðsþjónusta
hefst í Dómkirkjunni kl. 11.00 þar
sem biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, predikar. Messunni
verður útvarpað beint á rás 1. Úti-
hátíðarhöld fara fram í Reykjavík-
urhöfn. Þar verður meðal annars á
dagskrá baujurall á vegum Snar-
fara og Siglingasambands íslands
og skemmtisigling iýrir aimenning
um Sundin. 50 ára afmælishátíð
sjómannadagsins lýkur með hófl á
: Hótel íslandi á sunnudagskvöld.
Akureyri
Á Akureyri hefst dagskrá sjó-
mannadagsins á laugardag með
kappróðri klukkan 15.00. Á sunnu-
dag verða hátíðarguðsþjónustur í
Akureyrarkirkju og Glerárkirkju
sem hefjast kl. 11. Aðaldagskráin
hefst síöan kl. 13.30 við sundlaug
bæjarins. Lúðrasveit leikur, ræður
verða fluttar og sjómenn heiðraðir.,
Að því búnu verður keppt í stakka-
sundi, bjorgunarsundi, roiptogi og
koddaslag.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
stendur fyrir kaffisölu í Hótel KEA
og verðúr það væntanlega stór-
veisla þvi konurmir hafa staðið i
mikluin kokubakstri að undanf-
Sjómannadagshátiðarhöld eru yfirleitt fjörugar uppákomur. örnu.
—
Maður-
inn í for-
grunni
- sjá bls. 29
ísland
við
nánari
athugun
- sjá bls. 19
Málfríð-
ar-þing
- sjá bls. 19