Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 6
30
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988.
David Hallyday og T.K. Carter I hlutverkum sínum I Hann er stúlkan mín.
Regnboginn
Hann er stúlkan mín
Hann er stúlkan mín (He’s My
Girl) er grínmynd sem Regnboginn
hefur nýlega hafiö sýningar á.
FjaUar myndin um Bryan Peters
sem vill verða frægur eða nánar
tiltekið rokkstjama. Hann hefur
duglegan umboðsmann sem kemur
honiun í sjónvarpskeppni í Holly-
wood. í sjónvarpskeppninni verður
tilvonandi rokkstjaman að hafa
með sér kvenmann. Umboðsmað-
.urinn klæðir sig því í kvenmanns-
fót og er tilbúinn í slaginn. Hér
byijar misskilningurinn og grínið
sem einkennir farsann.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir -'
Þrjú þekkt andlit úr Lögregluskólamyndunum. Bubba Smith, Marion
Ramsey og Leslie Easterbrook.
Háskólabíó
Einskis manns
Einskis manns land (No Mans
Land) er sakamálamynd sem gerist
í Los Angeles. Aðalpersónumar
eru tvær, lögreglumaðurinn Benjy
Taylor (D.B. Sweeney) og bílaþjóf-
urinn Ted Varrick (Charlie Sheen).
Vegna þekkingar sinnar á bílum
er Benjy plantað sem bifvélavirkja
á verkstaeði Varricks.
Vinátta tekst á milli þessara
tveggja manna þótt þeir líti ólíkum
augum á hlutina. Og ekki gerir það
starf Benjy auðveldara að hann
verður ástfanginn af systur
Varricks, Ann.
Benjy, sem ekki trúir öllu sem
sagt er um Varrick, kemst þó að
ýmsu ófögru um vin sinn og þegar
nær dregur að lokum er óumflýjan-
legt uppgjör á milli þeirra.
CharUe Sheen er sjálfsagt meðal
eftirsóttustu ungu leikara Holly-
wood þessa stundina. Getur hann
þakkað það tveimur myndum er
hann lék í undir stjórn Ohvers
Stone, Platoon og WaU Street. Hlut-
verk hans í Einskis manns land er
ólíkt fyrri hlutverkum að þvi leyt-
inu að nú leikur hann ekki góða
strákinn heldur þijótinn Ted
Varrick.
D.B. Sweeney er minna þekktur.
land
Hann hafði lengi leikið smáhlut-
verk í sjónvarpi þegar Francis
Coppola bauð honum hlutverk í
Garden of Stone. Þakkar hann
Coppola góða frammistöðu og það
að nú þarf hann ekki að hlaupa á
miUi umboðsmanna í leit að hlut-
verkum.
Leikstjórinn Peter Werner á að
baki glæsilegan ferU í sjónvarpi.
Hann stjómaði fyrstu þáttunum af
MoonUghting og meðad sjónvarps-
mynda hans má nefna mynd um
ævi Lyndon B. Johnson LBJ: The
Eearly Years.
HK.
Lögreglumaðurinn Benjy Tayior (D.B. Sweeney) vingast við Ted Varrick þótt sá síðarnefndi sé harðsnúinn
glæpamaður.
Charlie Sheen leikur þrjótinn Ted Varrick I Einskis manns landi.
Hér er ekki hægt að sjá betur en
lögreglukonurnar séu komar í dular-
gervi.
Bíóhöllin
Lögregluskólinn 5
Myndirnar um nemenduma í
Lögregluskólanum eru vinsælasta
gamanmyndasyrpa sem gerð hefur
verið. Gróðinn af myndunum er
hvorki meira né minna en 455 miUj-
ónir dollara og reyni nú hver sem
viU að reikna það út á nýja genginu
okkar. Það er því ekki að furða að
framleiðendur myndanna haldi
áfram þótt óneitanlega sé sögu-
þráðurinn farinn að þynnast.
I Lögregluskólanum, fimmta
hluta, fer liðið í sólina á Miami og
er ekki til friðs frekar en fyrri dag-
inn. Hinn sjarmerandi leikari,
Steve Guttenberg, hefur nú fengið
sig fullsaddan eftir að vera í aðal-
hlutverki í fjórum myndum. Allir
aðrir, sem kitlað hafa hláturtaugar-
áhorfenda, eru mættir eina ferðina
enn.
Sýningar
Listasafn Einars Jónssonar,
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagaröurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listasafn Háskóla islands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Frikirkjuvegi 7
Sýningin Norræn konkretlist 1907-1960
veröur opnuð á morgun. Hún er ffamlag
Listasafns íslands til hátíðarinnar að.
þessu sinni. Á sýningunni eru bæði mál-
verk og höggmyndir. Þá verður einnig
opnuð sýning á verkum hins heims-
.þekkta listamanns Marc Chagalls. Sýn-
ingamar veröa opnar alla daga nema,
mánudaga kl. 11-22, til loka Ustahátíðar
þann 19. júní en síðan eftir að listahátíð
lýkur kl. 11-17. Sýning Marc Chagalls
stendur til 14. ágúst og sýningin Norræn
Konkretlist til til 31. júlí. Kafflstofan er
opin á sama tima og sýiúngarsalimir.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg,
Nú stendur yfir á Mokkakaffi sýning á
um það 30 ljósmyndum eftir Davíð Þor-
steinsson. Myndimar em allar teknar
inni á Mokka af gestum kaffihússins og
starfsfólki. Sýningin er haldin í tilefni af
30 ára afmæli Mokkakaffis. Sýningin
stendur fram í júní.
Myntsafn Seðiabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning Textílfélagsins á
verkum félagsmanna og er sýningin liður
á Listahátíð. Á sýningunni em bæði stór
verk og smá (miniature) og em flest verk-
in til sölu. Heiðursfélagi Textílfélagsins,
Sigríður Haildórsdóttir, sýnir vefnað
unnin eftir sömu tækni og er á tveimur
spjaldofiium borðum á Þjóðminjasafni
íslands og varðveist hafa frá miðöldum.
Sýningamar em opnar daglega kl. 14-22.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Guðrún Kristjánsdóttir opnar málverka-
sýningu í Nýhöfn á morgun. Fyrstu
einkasýningu sína hélt Guörún á Kjarv-
alsstöðum 1986 en þetta er fiórða einka-
sýning hennar. Auk þess hefur hún tekið
þátt í samsýningum. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18
og frá kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur
19. júní.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Laugardaginn 4. júní verður opnuð í
safninu sýning á myndum eftir enska
fræðimanninn og málarann W.G. Coll-
ingwood, sem ferðaðist um landið árið
1897, og mim sú sýning standa til hausts-
ins. Safnið er opið alla daga vikunnar
nema mánudaga frá kl. 11-16.
Málverkasýning í anddyri
Landspítalans
Fánýtar stíiæfingar misskilinnar lista-
konu heitir málverkasýning sem Harpa
Karlsdóttir heldur í anddyri Landspítal-
ans (1. hæð gengið inn frá kringlu). Þetta
er fyrsta einkasýning Hörpu.
Hafnarborg,
Strandgötu 34,
Hafnarfírði,
Eiríktu- Smith hstmálari sýnir þar verk
sín. Sýningin er opin daglega kL 15-22 th
19. júní.
Málverkasýning í Viðeyjar-
nausti
Arrna Leós sýnir málverk í Viðeyjar-
nausti, Viðey. Ferðir út í Viðey eru virka
daga frá ki. 14 og frá kl. 13 um helgar.
Ljósmyndasýning í Eden
Michael Gunter, bandarískur ríkisborg-
ari búsettur á íslandi, sýnir ljósmyndir í
Eden, Hveragerði. Þetta er önnur einka-
sýning hans á þessu ári. Hann sýnir 30
svart/hvítar ljósmyndir og eru þær allar
til sölu. Sýningunni lýkur 13. júní.
Sýning í Gimli á Stokkseyri
Elfar Guðni sýnir í Gimh á Stokkseyri.
Þetta er þriðja sýning Elfars í þessu aldna
samkomuhúsi þeirra Stokkseyringa.
Myndimar eru viðs vegar af að landinu.
Meginefni myndanna eru hestar. Ahar
myndimar em málaðar með ohu á striga.
Þetta er 16 einkasýning Elfars. Hún er
opin um helgar kl. 14-22 og virka daga
kl. 20-22. Henni lýkur 5. júni.
Þrastalundur
í Þrastalundi stendur yfir sýning á verk-
um Ragnars Lár. Á sýningunni em 14
gvass- og vatnslitamyndir. Sýningin sem
hófst um hvitasunnuna stendur í þijár
vikur
Listkynning Alþýðubankans,
Akureyri,
Listkynning Menor og Alþýðubankans á
Akureyri kynna myndhstarmanninn
Samúel Jóhannsson. Samúel hefur hald-
ið fjórar einskasýningar, 3 á Akureyri
og 1 í Reykjavík. Hann hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum. Á hstkynning-
unni em 12 verk, 5 akrílverk unnin á
striga og 7 teikningar með bleki á pappír.
Verkin em öh unnin á ámnum 1987 og
1988. Kynningin er í Alþýðubankanum á
Akureyri og lýkur henni 1. júh.