Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. 9 Utlönd Hafnar gagniýni Bandaríkjanna 56 kfló af heróíni Lögreglan í Mílanó á Ítalíu geröi um síöustu helgi upptæk ömmtíu og sex kíió af heróíni og mikla fjár- muni í peningum. Þrettán manns voru handteknir vegna málsins, þar af tveir Júgóslavar, Austurrík- ismaöur og Tyrki. Handtökurnar voru afrakstur rannsóknar sem staöið hefur yfir í þrjá mánuði. Þetta er eitt mesta magn eitur- lylja sem ítalska lögreglan hefur náð frá einum og sömu aðilum. Lögreglumenn i Milanó með eitur- lyfin sem gerð voru upptæk . Simamynd Reuter Yitzhak Rabin, varnarmálaráðherra ísraels, mun í dag ræða við Reagan Bandaríkjaforseta i Washington. Ágreiningur er enn milli stjórna þeirra um aðferðir ísraelsmanna við að bæla niður uppreisnina á herteknu svæðunum. Símamynd Reuter Varnarmálaráöherra ísraels, Yitz- hak Rabin, vísar á bug gagnrýni Bandaríkjamanna á aöferðir ísraels- manna viö aö bæla niður uppreisn- ina á herteknu svæöunum. Rabin mun hitta Reagan Banda- ríkjaforseta að máli í dag en í gær átti hann viðræður við Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. Eftir þær viðræður sagði Rabin að löndin tvö greindi á um hvort alþjóöleg lög heimiluðu ísraelsmönnum að reka Palestínumenn af Vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Rabin sagði við fréttamenn aö aðal- vandamálið væri hvort ísraelsmenn ættu að láta undan ofbeldi og hefðu þeir valið að láta ekki undan. Þegar ofbeldinu lyki myndu ísraelsmenn hætta valdbeitingu og brottrekstri. Bandaríkin, sem eru einn helsti stuðningsaðih ísraels og veita árlega mikið fé til hemaðaraðstoðar í ísra- el, hafa sætt gagnrýni vegna aðferða ísraels viö að bæla niður uppreisnina á herteknu svæðunum. Bandaríkjastjórn er nú að setja saman áætlun um frið í Miðaustur- löndum þar sem gert er ráð fyrir aö ísrael afhendi hluta herteknu svæð- anna gegn því að friður komist á. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, telur áætlun þessa óaðgengi- lega. Réttarríkið eitt aðalkosningamálið uinfjöllun um málið fram yfir kosn- ingar á þeim forsendum að nú í miðri kosningabaráttunni myndi umfjöllun nefndarinnar um málið óhjákvæmilega taka á sig flokkspó- lítískan blæ. FuIItrúar stjórnarandstööunnar halda því hins vegar fram að það séu einmitt flokkshagsmunir sem ráða afstöðu meirihlutans, það er óttinn við að ríkisstjómin skaðist á því að rannsóknamefnd fjalli um málið fyrir kosningar. Guimlaugur A. Jónsson, DV, Lundi: „Ég held að kjósendur geri sér grein fyrir því að réttarríkið er í hættu. Þegar ráðherrar telja sig hafna yfir lögin eða sniðganga þau, eins og Anna-Greta Leijon gerði í Ebbe Carlsson-málinu, þá er óhjá- kvæmilegt að um það sé fjallað í kosningabaráttu. Eg tel því aug- ljóst að þessar kosningar muni að stórum hluta íjalla um lög og rétt og spurningar er tengjast réttarrík- inu,“ sagði Carl Bildt, formaður sænska Ihaldsflokksins, í gær. Sænska kosningabaráttan er nú hafin og Carl Bildt viröist að minnsta kosti ætla að leggja sitt af mörkum til þess að Ebbe Carlsson- málið gleymist ekki í þeirri baráttu. Stjómarandstaðan hefur gagnrýnt jafnaðarmenn mjög fyrir að koma í veg fyrir að rannsóknamefnd þingsins fjalli um Ebbe Carlsson- málið fyrir kosningar. Fulltrúar jafnaðarmanna í rann- sóknamefndinni hafa með stuðn- ingi fulltrúa kommúnista frestað Reyna að draga úr spennunni Stjómvöld í Kanada og Sovétríkj- unum reyna nú að slaka á spennu þeirri sem ríkt hefur milli ríkjanna undanfama daga eftir að upp komst um víðtækar njósnir Sovétmanna í Kanada. Lýstu fulltrúar beggja rikja þeirri von sinni í gær að málið færi nú að hægja á sér og gagnkvæmum brottrekstrum stjómarerindreka ríkjanna myndi linna. Joe Clark, utanríkisráðherra Kanada, kallaði í gær á sinn fund Alexei Rodionov, sendiherra Sovét- ríkjanna í Kanada. Áttu þeir með sér hálfrar klukkustundar fund og eftir hann lýstu þeir báðir þeirri von sinni að tengsl ríkjanna kæmust fljótlega í samt horf að nýju. Rodionov sagði að hann teldi að deilurnar væm nú að baki. Kanadamenn hafa rekið úr landi eða meinað landvist nítján sovéskum stórnarerindrekum. Sovétmenn hafa á sama veg skipað þrettán kanadísk- um stjórarerindrekum að koma sér úr landi í Sovétríkjunum eða bannað þeim að koma til Sovétríkjanna. Stjómvöld í Kanada hafa sakað Sovétmenn um víðtækar njósnir, þar á meðal um að hafa sóst eftir hernað- arlegum og viðskiptalegum leyndar- málum. Clark lagði á það áherslu í gær að hann vonaðist eftir góðum samskipt- um við Sovétmenn í framtíðinni á sama tíma og hann lagði áherslu á að njósnaathæfi þeirra yrði ekki þol- að. Clark sagði hins vegar að tafist gæti að afgreiða vegabréfsáritanir fyrir verkamenn sem ættu að starfa við byggingu nýs sovésks konsúlats í Montreal. Alexei Rodionov, sendiherra Sovétrikjanna í Kanada (til hægri), sem var kallaður fyrir Joe Clark, utanrikisráðherra Kanada, sagðist t gær vonast til þess að njósnadeilur rikjanna tveggja væru nú aö baki. Símainynd Reuter Leíta orsaka Páfi við komuna til skiðastökkvangsins í Innsbruck í gær. Simamynd Reuter Kurt Waldheim, forseti Austurrfkis, og eiginkona hans skýla sér fyrir sótinni viö messu páfa. Símamynd Reuter Um áttatíu þúsund manns sóttu messu sem Jóhannes Páll páfi II. söng á skíðastökkvanginum í Inns- bruck í Austurríki í gær. Messan var eins konar lokapunktur á opin- berri heimsókn páfatil Austurrikis því að hann hélt síðdegis í gær heim á leið eftir að hafa dvahð með Aust- urríkismönnum í fimm daga. Meöal þeirra sem sóttu messu- gjörð páfa í gær voru Kurt Wald- heim, forseti Austurrikis, og eigin- kona hans, Elisabeth. Heimsókn páfa til Austurríkis hefur verið umdeild vegna ásakana sem hvíla. á Waldheim um aðild hans að striösglæpum nasista í síð- ari heimsstyrjöldinni. ' Ní .. ■ >• i Flak Airbus þotunnar i skóglendi náiægt Habsheim Sérfræðingar framleiðenda Air- bus A 320 farþegaþotunnar, sem fórst við Habsheim í Frakklandi um siðustu helgi, vinna nú að því með rannsóknarmönnum flug- málayfirvalda aö finna orsakir þess að þotan hrapaði í skóglendi. Þrír raenn fórust meö þotunni og um fimmtíu aðrir raeiddust í slys- inu en þeir raunu nú flestir úr lífe- hættu. Meöal þeirra sem í gær komu á slysstað og skoðuðu brak þotunnar var flugmaðurinn sem var við stjórn hennar þegar slysið varð. Slys þetta þykir mikið áfall fyrir framleiðendur þotunnar en þeir hafa kynnt hana sem sérstaklega örugga. Sfmamynd Reuter Flugstjóri þotunnar skoðar brak hennar i gær. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.