Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988.
11
Utlönd
Þrjátíu og níu
létust í lestar-
slysi í París
Að minnsta kosti þrjátíu og níu
manns létust þegar neðanjarðarlest
ók á kyrrstæða lest á einni af í]öl-
fornustu brautarstöðvum Parísar-
borgar síðdegis í gær. Snemma í
morgun óttuðust björgunarmenn að
tíu manns væru enn lokaðir inni í
braki lestarinnar á Gare de Ly’on-
stöðinni. Þrjátíu og tveir slösuðust
við áreksturinn, þar af fimmtán al-
varlega.
Örsök slyssins er sögð vera hemla-
bilun í aðkomulestinni sem var á 60
kílómetra hraða. Þegar lestin, sem
var að koma frá Melun, átti eftir 500
metra ófarna að inngangi brautar-
stöðvarinnar áttaöi lestarstjórinn sig
á því aö ekki væri allt í lagi. Hann
æpti til farþeganna að þeir skyldu
hlaupa aftur í lestina. Skelfingu
lostnir lögðust farþegarnir á gólf lest-
arinnar sem þaut stjórnlaus áfram.
Að sögn björgunarmanna urðu hin
skjótu viðbrögð lestarstjórans til
þess að bjarga nokkrum mannslíf-
um.
Tveir lestarvagnar lögðust alveg
saman við áreksturinn. Báðar le-
Björgunarmenn unnu i alla nótt viö
að reyna að losa slasaða farþega
úr lestarbraki eftir slysið á Gare de
Lyon-stöðinni í Paris í gær.
Simamynd Reuter
stirnar voru fullar af farþegum.
Margir hinna slösuðu voru í kyrr-
stæðu lestinni sem var rétt ófarin frá
brautarstöðinni er slysiö átti sér
staö.
Forsætisráðherra Frakklands,
Michel Rocard, innanríkisráðher-
rann, Pierre Joxe, og samgöngu-
málaráðherrann, Louis Mermaz,
voru meðal þeirra embættismanna
sem flýttu sér á slysstaðinn. Lestar-
slysið í gær var það versta í Frakk-
landi frá árinu 1985 en þá létust sjö-
tíu og fjórir í tveimur lestarslysum
og tvö hundruð særðust.
Hundruð ættingja lestarfarþeg-
anna stóðu í gær álengdar og horfðu
á hjúkrunarfólk flytja hina slösuðu
um borð í þyrlur sem biðu fyrir utan
brautarstöðina. Neyðarskurðarborði
hafði verið komið fyrir á brautar-
stöðinni þar sem sumar aðgerðir
þoldu ekki biö. Taka þurfti báða fæt-
ur af einum farþeganum sem hafði
verið lokaður í brakinu í nokkrar
klukkustundir. Konu nokkurri var
bjargað óslasaðri eftir aö hafa verið
klemmd föst í tíu klukkustundir.
Snemma i morgun var óttast að tíu manns væru enn lokaðir inni i lestarbrakinu.
Simamynd Reuter
Danir flýja skattana
Gisair Hslgason, DV, Reexanæs:
Danir flýja sitt fósturland í ár
meira en nokkurn tíma áður. Tvær
ástæður liggja að baki, allmargir
sækja á hlýrri landsvæði en meiri-
hlutinn sest aö í löndum þar sem
skattaálagningin er ekkijafnóvæg-
in og í Danmörku. Fyrir valinu
verða oftast Spánn, England og
Frakkiand. í öðru lagi Portúgal,
.Bandaríkin og Ástralía.
Á fyrstu þremur mánuðum þessa
árs fluttust tæpir fimm þúsund
danskir ríkisborgarar til útlanda
og munu ekki hverfa til síns heima
í bráð. Á árinu 1987 fluttust alls
30.123 frá Danmörku og þar af voru
tæpir 20 þúsund danskir ríkis-
borgarar. Nú er talið aö Danmörk
og Sviþjóð séu þau lönd jaröarinn-
ar þar sem skattbyrðin er hvað
þyngst
Tugir farþega slösuðust í lestarslysinu, þar af fimmtán alvarlega.
Simamynd Reuter
Vinningstölurnar 25. júní 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.094.044,
1. vinningur var kr. 2.048.178,- Þar sem enginn
fékk fyrsta vinning færist hann yfir á fyrsta vinning
á laugardaginn kemur.
2. vinningur var kr. 614.128,- og skiptist hann á
293 vinningshafa, kr. 2.096,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.431.738,- og skiptist á 7.231
vinningshafa sem fá 198 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111