Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. 29 Ólafur Sigurðsson matvælafræðingur skrifar: Nýtt imdraefhi: Hvítlaukur læknar allt Enn eitt undraefniö er komið á markaðinn, nýtt frá Japan. Er það svo öflugt að ætla má að lækna- stéttin verði fljótlega atvinnulaus. Svo merkja megi að hér sé fariö með rétt mál er rétt að vitna í aug- lýsingabæklinginn um „alveg lykt- arlausa og bragðlausa hvítlaukinn Kyolic“. Þar stendur: „Þær tilraun- ir . . . sem mikið hefur verið skrifað um í læknaritum um allan heim síðastliöin 20 ár, hafa sannað {leturbr. höfundar] aö hvítlaukur hefiu- fyrirbyggjandi og/eða lækn- isfræðiiega eiginleika við meöferð ýmissa sjúkdóma.“. Er síðan fullyrt að hægt sé að lækna sjúkdóma eins og krabba- mein, seðkölkun, astma, ofnæmi, blóðsótt, berkla, hðagigt og margt margt fleira. Má segja að blóma- fijókornin komist varla með tæm- ar þar sem laukurinn hefur hæl- ana! Vísindalega sannað í bak og fyrir Að sjálfsögðu er vitnað í fjöldann allan af vísindamönnum og að minnsta kosti einn nóbelsverð- launahafa og Hippokrates (sem læknaeiðurinn er ne&idur eftir) „bara til að néfna nokkra“ eins og stendur í auglýsingabæklingnum. Einnig eru þar nefndir til leiks „margir af stærstu nööium samtíö- arinnar eins og Albert Schweitzer, Ragnar Berg, Wemer Zabel og Are Waerland". Þessir menn „notuðu hvítlauk til lækninga á öllu frá þarmasýkingum og meltingartrufl- unum tii of hás blóðþrýstings, efli- hrumieika og kynferðislegs getu- leysis“. En ekki era ástæðumar fyrir því , .hvemig og hvers vegna hann hríf- ur“ af verri endanum: * Allicin sem myndar hina sér- stöku iykt hvítiauksins (verst er að Kyolic á að vera lyktarlaus). * Allin (forveri þess fyrra) sem verkar eins og sýklalyf. * Gurwitch geislar. Upprunalegir orkuhvatageislar, hvorki meira né minna! * Frumefni sem gerir ótal margt (að sjálfsögðu skv. rannsóknum). * AJlithiamin, líflfræðileg virk sam- setning sem „hefur mikinn lækn- ingamátt". * Og að lokum annaö framefni, se- len!! sem er svo nauðsynlegt og merkilegt að það er eiginlega ómögulegt aö segja frá því hér. Það era þvi eindregin tilmæli til fólks aö lesa sjálfan bæklinginn sem nefnist „Sömi skýrsla um Kyolic" til að komast að hinu sanna. Siöar í bæklingnum er greint frá óvenjulegri vinnsluað- ferð, ströngum gæðakröfum í framleiðslunni, boði á Who ráð- stefnu o.fl. o.fl. Trúin flytur fjöil og selur hvítlauk Þar sem um mikið undraefni er að ræða er alls ekki rétt að greina frá því hér aö... * ítarleg tölvuleit erlendis hefur ekki staðfest „mikil skrif í lækna- rit um allan heim síðastliðin 20 ár“, að minnsta kosti ekki í við- urkenndum læknaritum. * Örfáar viðurkenndar rannsóknir hafa staðfest að stórir skamiptar af hráum hvitiauk og lauk lækki blóðfitu en ekki blóðkólesteról, sem lýsi getur þó gert mun betur og jafnframt lækkað bæði blóð- fitu og kólesteról. Svo þarf marg- falt minna magn af lýsi. * Heiftarleg ofnæmisviðbrögð eru algeng, td. þekkja ýmsir mat- reiðslumenn aö hendurnar geta hlaupið upp í exemi við að skera hvítiauk. * Ofneysla á hvítlauk geti stórskað- að magann. * Inntaka bama á lyfiablöndu (preparation) úr hvítlauk er hættuleg og eru dauðsföli þekkt. * Það eru ekki ný sannindi að lauk- ur og hvítlaukur innihalda efiú sem verka gegn bakteríum. Aftur á móti er afar hæpið aö treysta því að hvítiaukur geti læknaö ýmsa sjúkdóma af völdum sýkla. * Erlendir vísindamenn dragi stór- lega i efa virkni belgja meö af- lyktaöri hvitiauksolíu, aö minnsta kosti finnast engar við- urkenndar rannsóknir þar um. * Að orðiö „sannað“ er ekki til i orðaforða náttúravísindamanna, það er helst notað í stærðfræöi. * Selenskortur hefur ekki þekkst á íslandi. .... því ef fulllyrðingar þær sem birtast í bæklingnum góða væru dregnar í efa af „einhveijum út- lendum sérfræðingum“ gæti þaö orðið til þess að einhveijir raisstu trúna á hvitlaukinn og er þá hætt við að sá hinn sami raissti af lækn- ingunni. Þóknunarhrifin (placebo) eða trúin á lækningarmáttinn getur nefnilega gert ótrúlegustu hluti eða eins og einn ósvífinn vantrúandi dóni sagði um daginn: „Þetta eru ekki lengur skottulækningar, þetta er kukl.“ Heimilcllr: Martendale 26. útg. bls. 710. Tölvuleit Madline. J. Nut. Ed. vol 15, '83 og almenn skynsemt Hvað kosta náttúrulyfm? Kyohc hvítiauksperlur kosta á bil- inu 1200-1300 krónur. Er þá miöað viö glas með 200 stykkjum. Ef aftur er miöað við 90 stykki er verðið kr. 600-700. Algengur dagskammtur er 3 belgir. Lustis hvítiauksperlur kosta kr. 312 ef keypt era 100 stykki. Dag- skammtur er gjaman 3 perlur á dag. Ef keyptur er „súperhvítiaukur" kostar glas með 90 stykkjum kr. 586. Blómafijókom eru til af ótal gerö- um. Sú algengasta er High Desert. Séu keyptar 90 töflur er algengt verð kr. 600-700. Algengur dagskammtur er 3 töflur. Einnig er hægt að kaupa komin í lausu. Dós með þriggja mán- aöa skammti kostar 1.400-1.500 krón- ur. Pollen fijókorn kosta kr. 420 ef keyptar era 90 töflur. Þessi kom em einnig til í lausu og kosta 472-596 krónur. APP 99 töflur kosta kr. 292,30 töfl- ur. Dagskammtur er ein tafla á dag. Melbrosia er til sérvalið fyrir konur eða karla. 30 belgir fyrir konur kosta kr. 817 en 15 belgir fyrir karla kosta kr. 419. Tekinn er einn belgur á dag. Þetta er alls ekki tæmandi úttekt heldur er ætiunin aðeins að gefa hugmynd um verð og fiölbreytni náttúrulyfja. Upplýsingamar feng- ust í Heilsuhúsinu, Náttúrulækn- ingafélagsbúöinni og Frækominu. -PLP Lífsstffl Náttúrulyf: Sífellt meiri sölumennska Sölumennskan lýsir sér ekki hvað síst i augiýsingabæklingum sem gefnir eru út um einstök lyf. DV-mynd S Náttúrulyf taka til sín æ stærri hluta lyfjamarkaðarins. Eftir því sem salan eykst því meiri er gróða- vonin. Þetta skilar sér í auknu fram- boði og harðari sölutækni. Hlutir eins og hvítiaukur, blóma- fijókom og ginseng hafa fylgt mann- inum um árþúsundir sem lyf. Skiptar skoðanir eru um verkanir þessara lyfja en fátt hefur komið fram sem bendir til þess aö þau verki ekki eins og til er ætiast. Það sem læknavísindin hafa helst á móti þessum lyfjum er það að vegna þóknunarhrifa geti fólk fengiö ímyndaðan bata á krankleika sínum. Það er að fólk langi svo mikið til að lyfið verki að það telji sig hafa fengið bata. Það leitar því ekki læknis og sjúkdómurinn heldur áfram að búa um sig. Þegar víman er runnin af mönnum getur oft verið of seint að koma í veg fyrir heilsutjón. Lyfin gerð dýrari og dýrari Með aukinni sölu á þessum lyfjum hafa augu frameiðenda beinst að því hvemig hægt sé að auka arðsemi við sölu þeirra. I þvi skyni hafa streymt á markað alls kyns útfærslur lyfj- anna. Allar hafa þær nokkur sameiginleg einkenni. I fyrsta lagi eru þær dýrari og í öðra lagi eiga nútímavinnsluað- ferðir að hafa aukið virkni þeirra. Ef flett er auglýsingabæklingum kemur þetta berlega í ljós. Ákveðin tegund blómafijókoma á að vera betri en aðrar vegna þess að hún er unnin með „hátækni" sem fyrirtæk- ið hefur einkaleyfi á. Hvítiaukspillur eiga að taka hvítlauknum fram vegna þess aö þær eru lyktarlausar. Þá hefur lyktinni veriö eytt með vís- indalegum aðferðum. Samfara þessari „vísindalegu" vinnslu er svo undirstrikað hve var- an sé náttúruleg. Spumingin er bara: Hvað er náttúrulegt viö pillur? Fátt bendir til að slíkar aðferðir geri annað en að hækka verð vö- runnar. Hverjir kaupa lyfin? Ef kannað er hvéijir kaupa slík lyf kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Þetta er ýmist gamalt fólk, fólk sem gefist hefur upp á að leita sér hefö- bundinna lækninga eða fólk sem lifir Neytendur mjög óhollu lífi aö staðaldri. Einnig er talsvert um fólk sem hafnar ger- samlega vestrænni læknisfræði. Þessir hópar era hins vegar flestir mjög móttækilegir fyrir þóknunar- hrifum. Undantekning er þó síöast- - nefndi hópurinn. -PLP Auglýsingamennska eða kraftaverk? Gífurleg sala á blómafijókomum Blómafrjókom seldust fyrir 60 milljónir króna á síðasta ári. Þennan árangur má þakka gífurlegri auglýs- ingaherferð um ágæti þessa lyfs þar sem fjölyrt var um undraverða eigin- leika þess. Svo sterkur var auglýsingaáróöur- inn að fólk gein við efninu. Menn skrifuðu í blöð og lýstu því hvernig blómafijókom heföi umbylt lífi þeirra og læknað ótrúlegustu sjúk- dóma. Blómaftjókomaát varð trúar- brögöum líkast. Þegar trúarbríminn var í hámarki var haft eftir landlækni í DV að hans embætti heföi ekki fundið neitt það er benti til þess að blómafrjókom heföu nein undraáhrif. Síðan hafa aðrir riðið á vaðið og talað um slæm áhrif. Svæsnar aukaverkanir Ýmislegt bendir til mjög óæski- legra aukaverkana við neyslu efnis- ins. Era það sérstaklega ofnæm- issjúklingar sem verða fyrir barðinu á þessum áhrifum. Þetta hefur m.a. leitt til þess aö tveir sjúklingar hafa lent á gjörgæslu vegna heiftarlegs ofnæmis sem talið er aö rekja megi til neyslu blómafrjókoma. I grein hér á síöunni fyrir nokkru fjallar Ólafur Sigurðsson matvæla- fræðingur um þessi frjókom. I grein- inni kemur fram að engar sannanir hggi fyrir um aö þau auki þrek, auk þess sem varað er við aukaáhrifum þeirra. Er þar sérstaklega talað um ofnæmisáhrif og óæskilegar verkan- ir á fólk með þvagsýrugigt.' í nýútkominni lyíjabók er sérkafli um svokölluð náttúralyf. I umíjöllun um blómafrjókom er mjög tekið í sama streng og í áöumefndri grein Ólafs Sigurðssonar. Aukaverkanir era nefndar ofnæmi. Er staðhæft aö neysla efnisins hafi í nokkrum tilfell- um leitt til mjög alvarlegra ofnæm- istilfeha og jafnvel ofnæmislosts. Einnig stendur að neysla efnisins geti verið varasöm fyrir þá sem hafa háa þvagsýra í blóði eða þvagsýru- gigt. Sagt er að líkur bendi til að neysla efnisins sé óæskileg á með- göngutíma. Sterk auglýsingamennska Auglýsingaáróðurinn hefur ein- kennst af því aö nafnkenndir ein- staklingar eru fengnir til að lýsa þeim góöu áhrifum sem neysla efnis- ins hefur haft á heilsu þeirra og störf. Samfara auglýsingunum hefur inn- flytjandi útbúið bækhnga um efnið og áhrif þess. Þessum bækUngum hefur gjarnan verið dreift í stór- mörkuðum. Einnig var beitt nýstárlegri sölu- tækni í dreifingu lyfsins. Þannig var' félögum í Félagi eldri borgara send greinargerð um undraáhrif lyfsins. AUt þetta hefur gert það að verkum að fólk hneigist til aö kaupa efnið þótt verðið sé í hærra lagi. Villandi upplýsingar í auglýsingum? Þar sem niðurstöður vísindarann- sókna hafa ekki leitt neitt það í Ijós er skýrt gæti þau undraáhrif sem blómafrjókom eiga að hafa haft á þessa einstaklinga er spuming hvort ekki sé um vfflandi auglýsingar að ræða. DV sneri sér tfi Verðlagsstofn- unar og spurði Gísla ísleifsson, lög- fræðing stofnunarinnar, hvort ein- hver afskipti heföu verið höfö af þessari auglýsingaherferð: „Við förum yfirleitt ekki af staö nema einhver hafi kært. Ef einhver myndi kæra í þessu tilfeUi myndum við leita umsagnar landlæknisem- bættisins og heUbrigðisráðuneytis- ins.“ -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.