Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. 31 LífestOJ Fánahylling i Vatnaskógi. Ágúst Magnússon dregur niður fánann á meðan strákarnir syngja viðeigandi söng. flokki. Yfir hverjum flokki er svo einn fullorðinn foringi sem fylgir sín- um mönnum eftir í gegnum allt nám- skeiðið. AIls eru starfsmenn við sum- arbúðimar fjórtán talsins. „Ég hef mikla ánægju af starfinu hér enda hef ég verið viöloðandi Vatnaskóg í þrettán ár. Þá er ég í Árni Sigurðsson var sæll með dvöl- ina og hafði gaman af kvöldvökunni. stjóm Skógarmanna," sagði Guð- mundur. Hann bætti því viö að um átta hundmð strákar væm aö meðal- tali í sumarbúðunum á hverju sumri. Dvalargjöld fara eftir lengd nám- skeiðanna en átta daga dvöl með uppihaldi og rútuferðum kostar 9.580 krónur. Einn foringjanna í Vatnaskógi er Ágúst Magnússon. „Það er meiriháttar gaman aö vera hér með strákunum. Þeir eru svo jákvæðir og skemmtilegir. Strákarn- ir koma alls staðar af landinu og þekkjast fæstir þegar þeir koma hingað. En nánast allir aðlagast um- hverfinu fljótlega og félagsskapurinn og samheldnin er mikil og skemmti- leg enda koma flestir strákarnir aftur og aftur hingað," sagði Ágúst sem verður foringi í Vatnaskógi í allt sumar. -ATA Trausti Kristinsson, ívar Meyvants- son og Einar Jón Erlingsson voru saman í herbergi. Þeir skemmtu sér konunglega í sumarbúðunum. Vertu nú með uppí Vatnaskóg Dægradvöl Einar var á sama máli og ívar. Hann hafði aldrei komið áður í skóg- inn en líkaði vel. „íþróttahúsið er skemmtilegast og einnig að fara á báti út á vatnið - jafnvel að stökkva út í það. Það gerir ekkert til þótt vatnið sé kalt. Þá fáum við bara svo- lítið kvef sem batnar strax aftur.“ Nú voru komnir til strákanna nokkrir félagar þeirra úr næstu her- bergjum. Þar sem líða tók að kvöld- matartíma og búist var við hátíðar- mat barst taliö að eftirlætisréttun- um. Guðrún Guðmundsdóttir ráðskona og Linda Sjöfn Sigurðardóttir höfðu í nógu að snúast því þær þurftu að steikja 250 hamborgara. Eftirlætisrétturinn minn! „Hamborgarar meö frönskum og kokkteil," sagði einn, og annar bætti við: „Nei, kjúklingar!" Síðan komu uppástungur um lambalæri og pyls- ur í brauöi og margt fleira. Þegar maturinn var borinn fram í matsaln- um kom í ljós að þetta var eftirlæti meirihluta strákanna, hamborgarar. „Það er töluvert mál að steikja 250 hamborgara handa soltnum strák- um,“ sögðu þær Guðrún Guðmunds- dóttir ráðskona og aðstoðarmaöur hennar, Linda Sjöfn Sigurðardóttir. Þær stóðu kófsveittar yfir ofnunum og slengdu hamborgurum á bakka fyrir strákana sem virtust endalaust geta tekið á móti. Líka gaman á kvöldvökunni Eftir kvöldmat hófst síðan kvöld- vakan. Eftir kristnifræðslu hófst upplestur sem einn foringjanna, Andri Heide, sá um og náði fullkom- inni eftirtekt strákanna. „Mér finnst rosalega gaman hérna, líka á kvöldvökunum," sagði Árni Sigurðsson, „samt finnst mér skemmtilegast að spila fótbolta." Á eftir upplestrinum var fjölda- söngur og hefur áreiðanlega sjaldan heyrst eins vel tekið undir og þessa kvöldstund í Vatnaskógi þegar sung- ið var lagið: „Vertu nú með í Vatna- skóg, af fjöri og glaðlyndi þar færðu nóg!“ Nú leið að kvöldi og krakkar, jafnt sem foringjar og starfsmenn, voru greinilega orðnir úrvinda af þreytu. Ánægjulegur dagur í Vatnaskógi var að kvöldi kominn. -ATA Allir tóku vel undir i fjöldasöngnum á kvöldvökunni. Hér syngja strákarnir hátt og snjallt: Vatnaskóg/af fjöri og glaðlyndi þar færðu nóg ...“ ,Vertu nú með upp í DV-myndir ATA Vatnaskogur: Smnarbúðir í 65 ár Sumarbúðir KFUM-manna í Vatnaskógi hafa í sumar veriö starfræktar í 65 ár og virðast alltaf vera jafnvinsælar. Upppantað er í flesta dvalarflokka sumarsins en í hveijum dvalarflokki eru hátt í hundrað drengir. Þeir eru aðallega frá höfuðborgarsvæðinu en einnig víða af Vesturlandi og Suðumesj- um. Það tekur ekki nema um einn og hálfan tíma í bíl að komast upp í Lindarrjóður, höfuöstöðvar KFUM í Vatnaskógi í Svínadal. Þetta er þægileg, átakalitil og falleg leið. En svo hefur ekki alltaf verið. Tveggja daga stíf ganga Þegar séra Friðrik Friðriksson og aðrir forystumenn í KFUM fengu úthlutað landspildu í Vatna- skógi í árslok 1922 var saga bílsins í landinu ekki orðin löng og vegir voru fáir og flestir afleitir. Þegar fyrsti dvalarflokkurinn fór í Vatna- skóg í ágúst 1923, tuttugu manns alls, var hópnum skipt. Annar hóp- urinn fór með farangur og efni í skúr með vélbátnum Óðni sem lenti í fjörunni við Saurbæ. Þaðan var farangur og efni í skúrinn flutt á hestvögnum upp í Vatnaskóg. Hinn hópurinn fór með bifreið upp að Þverárkoti í Mosfellssveit og þaðan var gengið í Vatnaskóg. Þetta var tveggja daga stíf ganga og þurfti meðal annars að vaða yfir hluta Hvalfjarðar á fjöru, Mikil uppbygging Fyrstu árin var aðeins einn skúr í Vatnaskógi en Skógarmenn, eins og þeir hafa kallað sig frá byijun, gistu í tjöldum. Fyrsti skálinn var vígður á stríðsárunum. Húsakost- ur í Lindarrjóðri er nú gamli skál- inn, matskálinn, tveir svefnskálar, íþróttahús, bátaskýli og kapella. Flestar byggingarnar hafa verið reistar í sjálfboðavinnu. Skógarmenn skipta nú þúsund- um eða jafnvel tugþúsundum. Flestir eiga góðar minningar frá dvöl sinni í Lindarrjóðri og frá Eyrarvatni sem búðirnar standa við. Þarna hafa strákarnir í nógu aö snúast allan daginn. A morgn- ana eru þeir vaktir klukkan hálf- níu til að hylla fánann, borða morg- unverð og meðtaka andlega fræðslu í kapellunni. Þreyttir en ánægðir Síðan taka við leikir, bátsferðir, silungsveiðar og íþróttir allan dag- inn. Eftir kvöldverö er svo haldin kvöldvaka en inn í hana fléttast kristileg uppfræðsla, upplestur og leikir. Aö loknum hverjum degi eru strákarnir yfirleitt orönir þreyttir en ánægöir og þeir fullorðnu sjálf- sagt líka. Þeir sem eiga tíu til tólf ára stráka vita að það getur verið erfitt aö halda þeim viö efnið og halda jafnframt uppi aga. Hvað þá að vera með hundraö stykki! En starfsmennirnir kvarta ekki. Þeir njóta þess að umgangast strák- ana. Það hlýtur líka að vera sérlega jákvætt og gefandi starf að leið- beina og umgangast hundrað án- ægða stráka. -ATA Veðrið var ekki gott en samt vildu margir strákanna fara út á prammann á Eyrarvatni. Vatnið, siglingar á því, sund og silungsveiðar skipa veglegan sess á dagskrá strákanna í Vatnaskógi, einkum þegar veðrið er gott. DV-mynd ATA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.