Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988. 7 Fréttir ^ Ávísanir bókaðar samstundis: Afiall fyrir þá sem aldrei eiga innstæðu - segir Stefán Pálsson bankastjóri Erfitt að stöðva útflutninginn „Viö höfum ekki skoöaö þetta mál og það hefur engin formleg beiöni borist til okkar frá Norð- mönnum. Við munum sjálfsagt eiga erfitt meö að stöðva útflutn- ing á flökum þar sem við höfum skyldum að gegna gagnvart þeim kaupendum sem við erum samn- ingsbundnir," sagði Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra. Norðmenn haía nú ákveðið að hætta útflutningi á frystum flök- um þar sem verð er of lágt. Þeir ætla að safna birgðum þar til verðið hækkar. -gse Húsaleigahækkar Húsaleiga fyrir íbúðar- og at- vinnuhúsnæði hækkar um 8% frá 1. júh nk. Hækkunin snertir aðeins húsa- leigu sem breytist samkvæmt lögura nr. 62/1984. Leigan helst óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. ágúst og september 1988. -StB „Þetta er afls ekki mikil breyting því mönnum ber að eiga innstæöu fyrir þeim tékkum sem þeir gefa út. Þetta er einungis breyting fyrir þá sem alltaf eru með allt niður um sig,“ sagði Stefán Pálsson, banka- stjóri Búnaðarbankans og formaður Sambands viðskiptabanka. Að sögn Stefán hafa samtök við- skiptabanka veriö að ræða um að í haust verði ávisanir og ávísanainn- legg færð inn beint, strax og slíkt berst bankanum. „Þetta verður ekki ákveðiö fyrr en í haust og þá yröi slíkt kynnt. Tilgangurinn með því að gera þetta er aö nýta sér möguleika sem ekki hafa verið fyrir hendi fyrr en nú með tölvuvæðingunni. Það er mikið öryggi sem felst í því að gjald- kerar geti alltaf fullvissað sig um að innstæða sé fyrir tékka sem þeir taka viö,“ sagði Stefán. Eins og fyrirkomulagið er nú getur fólk borgað með ávísun að kvöldi og sé hún innstæðulaus getur fólk lagt inn fyrir henni að morgni, þar sem bókun fer fram að næturlagi og upp- gjör liggur ekki fyrir fyrr en á morgnana. Þegar breytingin hefur orðið mun bókun fara fram samtímis því sem tékkar eru leystir út eða lagðir inn. Með þessu móti geta því bankarnir nánast gulltryggt sig fyrir því aö taka ekki viö innstæðulausum ávísunum. Stefán sagði að hraöbankarnir hefðu ekki verið teknir inn í umræð- una en þeir hefðu fullt gildi sem af- greiðslustofnanir. „Þessi breyting á við gjaldkerana sem taka við ávísunum, til að þeir geti fullvissað sig um að innstæða sé fyrir hendi,“ sagði Stefán Pálsson. -JFJ Flugmannadeilan: Áhersla á annað en laun samdráttur hjá Flugleiðum í haust „Flugleiðir líta svo á að það séu engar samningaviðræður í gangi. Menn eru að ræða atriði varðandi kjarasamninga, vinnutilhögun og hugmyndir flugmanna um breyting- ar án þess að Flugleiðir ljái máls á launahækkun umfram það sem kveðið er á um í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar," sagði Steinn Logi Björnsson, forstöðumaður upp- lýsingadefldar Flugleiöa. Fundir hafa veriö milli samninga- nefndar flugmanna og Flugleiða, bæði í gær og fyrradag, þar sem far- ið hefur verið yfir ýmis atriði er lúta að kjarasamningum flugmanna, þó ekki sé sagt að um samningaviðræð- ur sé aö ræða. Flugleiðir hafa gert flugmönnum ljóst að fyrirtækiö muni ekki standa að kauphækkun umfram ákvæði bráðabirgðalaganna og því hefur umræðan beinst inn á að ræða önnur atriði. Rætt hefur veriö fyrirkomulag og framkvæmd leiguverkefna en inni í því er meðal annars rætt að rýmka dvöl erlendis vegna slíkra verkefna. Einnig er rætt um veikindaréttindi og vinnutímareglur. Um þær hafa komið fram hugmyndir um að minnka fjölda flugstunda í mánaðar- kaupinu og greiða meira fyrir um- framstundir en því hefur verið hafn- að af Flugleiðum. Um leiguverkefnin sagði Steinn Logi að það væru sameiginlegir hags- munir beggja að Flugleiðir væru samkeppnisfærar og gætu aflað sér leiguverkefna. „Þeir telja sig sjá fram á uppsagnir í haust og vilja því liðka til vegna slíkra verkefna sem gæti dregið úr þeim samdrætti,“ sagði Steinn Logi. - Kemur til uppsagna í haust? „Það verður einhver samdráttur í haust.“ -JFJ Hallvarður Einvarðsson um gagnrýni sakadómara: Segi ekkert fyrr en ég hef fengið dómsgerðina , JÉg get ekkert sagt um þetta fyrr en ég hef fengið dómsgeröina. Hún hlýtur að koma til embættisins inn- an skamms,“ sagði Hallvaröur Ein- varðsson ríkissaksóknari. 1 DV í gær var greint frá marg- þættri gagnrýni sem Ólöf Péturs- dóttir, sakadómari i Kópavogi, setti fram á ákæruvaldið í máli Her- manns Björgvinssonar. Haflvarður vildi ekki heldur tjá sig um aöra gagnrýni sem komið hefur fram á embætti ríkissak- sóknara aö undanfómu, svo sem í Kaffibaunamálinu. Hallvarður sagöi að hann ætti eftir að taka ákvörðun um hvort hann áfrýjaði dómi Sakadóms Kópavogs í okurmálinu til Hæsta- réttar. Ríkissaksóknari hefur þrjá mán- uöi, frá því að honum berast dóms- gerðir, til að ákveða áfrýjun. -sme A i V/SA OPIÐ LAUGARDAG 9-13 A { A VINNUFATABÚÐIN LAUGAVEGI76 — HVERFISGÖTU 26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.