Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1988, Síða 13
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988.
13
Lesendur
Gragrýkissvæði landsins:
Heppilegasta búsetan
Halldór Björnsson skrifar: mönnum saman á suðvestur-horn-
Þótt fréttir Qölmiðla snúist oft um inu, þar sem víðast hvar er mikið
slys, manndráp og hryðjuverk, móbergssvæði og lítið á náttúruöfl-
þykir mér þó sumt jákvætt í frétta- in treystandi. Þess vegna þóttu mér
flutningi undanfarið. - Nú fyrir það gleðitíðindi að frétta að byggja
skemmstu voru fréttir af því að ætti kaupleiguíbúöimar í stærstu
farið væri að byggja kaupleigu- bæjum á grágrýtissvæðunum.
íbúðir og í þetta sinn, sem betur „Búsetuhúmbúkk“ framsóknar-
fer, úti á landsbyggðinni. Ég tel það ■ manna á litið erindi, þarsemfram-
varasamt að hrúga öllum lands- takssemi Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra er annars veg-
ar. - Og nú ætlar hún, að þvi er
mér skilst, að veita miklu meira fé
í þetta á næsta ári. Vona ég að sem
mest af því fé renni til Akureyrar
og Neskaupstaðar, því þeir staðir
eru á grágrýtissvæöi, sem er hið
heppilegasta til búsetu.
t
Skagfirðinga skortir stöðvar
I.A.H. skrifar:
Ég er hérna með eina spurningu
sem mig langar að setja fram. Hún
er þessi; Hvenær ætla Stjarnan,
Bylgjan og Hljóðbylgjan á Akureyri
að liefja útsendingar i Skagafirði -
eða bara um allt land?
Nú geta Reykvíkingar og nærbúar
valið um 7-8 útvarpsstöðvar og Ak-
ureyringar og nærsveitir valið um 5
til 6 stöðvar. - Skagfirðingar hins
vegar geta aðeins vahð um rás 1 og
rás 2. Eg skora þess vegna á útvarps-
stjóra Stjörnunnar, Bylgjunnar og
Hljóðbylgjunnar að kippa þessu í lag,
eins fljótt og mögulegt er.
Lesendasíðan leitaði upplýsinga um
málið og kom þá eftirfarandi í ljós;
Pálmi Guðmundsson, útvarpsstjóri
Hljóðbylgunnar, sagði að vissulega
hefðu þeir mikinn áhuga á að sinna
stærra svæði en Akureyrarsvæðinu
og væri verið aö skoða það mál af
alvöru. - Hjá Stjörnunni fengust þær
upplýsingar að um þetta væri allt
óákveðið eins og stendur. - Ólafur
Njáll, flármálastjóri Bylgjunnar,
sagði aðspurður að þetta væri ein-
faldlega spurning um íjármagns-
kostnað og eins og mál stæðu nú
væri ekki fyrirhugað að leggja í þann
kostnað.
Hótel Ljósbrá í
Hveragerði
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
; Sigrún Sigfúsdóttir er hótelstýra
á Hótel Ljósbrá í Hveragerði en
hótel hennar er opið allan ársins
hring. Þar er gistirými fyrir 23
gesti. Góöur matur fram borinn og
ódýr. Hótelið tekur að sér veislur
og einnig sendir það mat og kaffl í
heimahús ef þess er óskað. Sigrún
hefur ^ rekið hótelið með miklum
myndarbrag í fimm ár og er búin
að gera mikið við gamla húsið, gera
það upp að miklu leyti á alllöngum
tíma eftir efhum og ástæðum, því
Sigrún segist ekki vilja lifa um efni
fram.
Hvergerðingar segja að Sigrún
hótelstýra sé mjög snjöll á sínu
sviði. Ekki má gleyma kaffihlað-
borðinu á sunnudögum á Hótel
Ljósbrá og þar er sjón sögu ríkari.
Vil ég ráðleggja öllum aö fá sér þar
kaöi og meðlæti.
Tapaði
páfagauki
Steinunn hringdi:
Ég tapaði páfagauki úr stofunni hjá
mér á mánudagsmorgun, 27. júní, úr
húsi við Hagamel. Páfagaukurinn er
ungur fugl, hvítur og ljósblár að lit.
Þeir sem kynnu að hafa séð til ferða
páfagauksins eru vinsamlega beðnir
að hafa samband í síma 18404 eftir
kl. 6 á kvöldin.
Uti á landsbyggðinni er góð reynsla fengin á dreifingu og sölu áfengis í almennri verslun. - Bréfritari leggur til
að matvöruverslanir annist sölu á bjór og léttum vínum.
Besta lausnin á bjórdreifingunni:
Selja hann í matvöruverslunum
Jóhann Pétursson skrifar:
Það hefur nokkrum sinnum verið
minnst á að vandræði kunni að skap-
ast þegar sala og dreifmg á hinu
áfenga öli hefst hér á landi. Fréttir
hafa spurst frá ÁTVR um að það sé
ekki gert ráð fyrir þessari viðbót á
þeirra athafnasvæði í verslunum og
þurfi því að gera einhverjar sérstak-
ar ráðstafanir varöandi dreifingu.
Nú hefur maður séö í fréttum sjón-
varps að úti á landsbyggðinni er
áfengi ekki endilega afgreitt í versl-
unum eða útsölum sem tilheyra
ÁTVR sérstaklega, heldur er það selt
og afgreitt í verslunum sem selja
annan varning, svo sem fatnað og
aðrar óskyldar vörur. Virðast engin
vandkvæði á þessu fyrirkomulagi og
enginn hefur gert athugasemd við
þessa lausn.
Mér finnst að hinn áfenga bjór eigi
að afgreiöa og selja, strax og hann
kemur í umferð, í almennum mat-
vöruverslunum, eins og gert er hvar-
vetna um hinn frjálsa heim. Einnig
ættu létt vín að vera þar til sölu.
Þetta myndi létta á útsölustöðum
ÁTVR og fólk myndi strax taka þessu
fyrirkomulagi eins og annars staðar
í heiminum og umgangast þessar
vörutegundir eins og aðra neyslu-
vöru. Eða hver er munurinn á þessu
fyrirkomulagi og því sem gerist á
landsbyggðinni, þar sem vínið, létt
og sterkt, er selt í almennri verslun?
Ég myndi hins vegar ekki vilja að
bjórinn eða létt vín yrði selt í sjopp-
um eða öðrum nætursölum, heldur
aðeins í matvöruverslunum þar sem
fólk kemur til að versla alla aðra
matvöru hvort eð er. Og er einhver
siðferðismunur á því að selja bjórinn
í matvöruverslun eða sérstökum út-
sölum ÁTVR? - Munurinn er aðeins
sá að fólki eru bökuð óþægindi með
hinum síðarnefndu.