Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. 7 Fréttir Þijú stórhýsi Öiyikjabandalagsins við Hálún: Brunavömum er mjög ábótavant - „steypan í lagi og þá er það upptalið" „Brunayörnum er mjög ábóta- vant í öllum þremur húsunum. Steypan er í lagi og þá er þaö upp- talið,“ sagði Guðmundur Gunnars- son byggingaverkfræðingur hjá Brunamálastofnun ríkisins. Guðmundur Gunnarsson hefur gert úttekt á húsunum aö fc'úðni Ríkisspítalanna. í Ijós kom að nán- ast ekkert er í lagi hvaö varðar brunavamir. „Það var lán í óláni að eldurinn varð laus á efstu hæð. Ef kviknað hefði í á neðri hæðum hússins heföi reykur komist óhindrað um allt húsið. Þama býr fólk sem á erfitt meö að bjarga sér ef eldur verður laus,“ sagði Guðmundur Gunnars- son. Húsin eru ekki í beinni tengingu við slökkvistöð. „Það er varla von þar sem ekkert brunavarnakerfi er í þessum húsiunsagði Guðmund- ur. Nýlega varð eldur laus í íbúð á áttundu hæð í Hátúni ‘0. Eldurinn var ekki mikill. Þrátt fyrir þaö var ein kona flutt á slysadeild vegna ótta um reykeitrun. í húsunum þremur eru rúmlega tvö hundmð íbúðir auk öldmnardeildar og geð- deilda. „Það er rekiö þarna elli- heimili án þess að lágmarksskil- yrði séu til staðar," sagði viðmæl- andi DV sem vel þekkir til í húsun- um. Slökkvitæki eru á göngum en ekki í íbúðum húsanna. Allir sem DV ræddi við voru sam- mála um aö íbúar í þessum húsum væm í.mikilli lífshættu yrði eldur laus og þá sérstaklega ef hann kæmi upp á neðri hæðunum. -sme Bogi Ágústsson, nýr fréttastjóri sjónvarps, kominn til starfa. DV-mynd GVA Það verður mikið um breytingar - segir Bogi Ágústsson Þrjátíu í fallhlrfar- stökki á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þaö voru um 30 stökkvarar sem voru hérna um helgina en það er stór hluti vönustu stökkvara hér á landi,“ sagði Sigurður Baldursson, fallhlíf- arstökkvari á Akureyri, í samtali við DV en um helgina var haldið svokall- að Twin-Otter mót fallhlífarstök- kvara á Akureyri. Ætlunin var að reyna við íslands- met að þessu sinni með því að 20 stökkvarar mynduðu stjörnu í því sem kallað er frjálst fall. Af því gat þó ekki orðið þar sem lágskýjað var og ekki hægt að stökkva úr nægilega mikilli hæö. „Það var þó mikið stokkið, eitthvað á annað hundraö stökk og við notuð- um þrjár vélar. Þótt svo lágskýjað væri reyndu menn að hafa gaman af þessu og ég held aö þetta hafi tek- ist vel,“ sagði Sigurður. Uppboðsrettur Vestmannaeyja: Fórst fyrir að bóka í dómabók - vinnubrögðin ámæíisverð að mati Hæstaréttar Jóni Ragnari ÞorSteinssyni, sem gegndi starfi bæjarfógeta í Vést- mannaeyjum, varð það á að láta ekki bóka úrskurði sem hann kvað upp í fjórum uppboösmálum. Jón Ragnar var uppboðshaldari i sjö uppboðsmálum á eignum Pálma Lórenssonar veitingamanns. Lög- maður Pálma kærði framkvæmd á sex uppboðum. Uppboðshaldari féllst ekki á kæru lögmannsins sem áfrýj- aði úrskurðum uppboðshaldara til Hæstaréttar. Hæstiréttur hefur nú kveðið upp dóma í málunum. Fjórir af úrskurðum uppboðshaldara voru ómerktir frá 3. desember 1987. Ómerkingarnar voru byggðar á því að forsendur vantaði fyrir úrskurð- unum í dómabók. Hæstiréttur segir aö vinnubrögð uppboðshaldara, Jóns Ragnars Þor- steinssonar, í þessum málum séu ámæhsverð. „Sjaldgæft að slíkt hendi“ Kristján Torfason, bæjarfógeti í Vestmannaeyjum, vildi ekkert tjá sig um gerðir uppboðshaldara, Jons Ragnars Þorsteinssonar, í þessum málum. Kristján gat ekki sagt til um hversu háar uppboðskröfurnar væru. Hann taldi víst að þær næmu tugum milljóna. „Ég held að ég sjái ekki ástæðu til að tjá mig um þetta mál. Það er sjald- gæft að slíkt hendi. Þetta lá ekki fyr- ir fyrr en í munnlégum málflutningi í Hæstarétti. Við sem fluttum máhö fyrir uppboðsbeiðendur höfðum ekki hugmynd um að ekki hefði verið fært i dómabók," sagði Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður. Gunnlaugur flutti máhð fyrir upp- boðsbeiðendur, ásamt hæstaréttar- lögmönnunum Baldvini Jónssyni og Jóni Hjaltasyni. Það voru margir lög- menn sem sóttu málið. Baldvin Jóns- son flutti málið fyrir fiórtán lögmenn í Hæstarétti. Björgvin Þorsteinsson hæstaréttarlögmaður flutti máliö fyrir Pálma Lórensson veitinga- mann. -sme Vinnuskóli Akureyrar: Hæsta tímakaup 151 króna Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Hæstu laun unglinga hjá Vinnu- skóla Akureyrar í sumar eru 151,73 krónur á klukkustund, og eru það 15 ára unglingar sem fá þá upphæð. Fjórtán ára unglingar fá 136,56 krónur á tímann og 13 ára ungling- arnir verða að láta sér nægja 106,21 krónu. Þeir sem eru 15 ára vinna í 7 klukkustundir á dag en hinir aldurs- flokkarnir aðeins í 3,5 klukkustund- ir. Þeir fá því innan við 2 þúsund krónur í laun á viku. Aö sögn Valdimars Péturssonar, forstöðumanns Vinnuskólans, eru um 350 unglingar í skólanum í sumar og vinna þeir að mestu við fegrun bæjarins og hreinsun. Einn fallhtíteStCkkvarinn lendir mjúklega á mótinu á Akureyri. DV-mynd GK „Það er gott að komast á gamla staðinn og tilhlökkunarefni að takast á við komandi verkefni. Við erum hvergi bangin hér á fréttastofunm." sagði Bogi Agústsson, nýr fréttastjóri Sjónvarpsins, viö DV í gær. Bogi hóf störf í gærmorgun og eftir 6 tíma vinnu sagði hann ekki ástæöu til annars en að vera ánægður. Þarna væri nýtt fólk og gamlir kunningjar, sem öll hafi skilað sínu hlutverki vel. „Það verður mikið um breytingar, en þær koma ekki sem bylting. Það mun fyrst fara fram ítarleg skoðun á fréttastofunni sem allir starfsmenn hennar taka þátt í og koma með hug- myndir. Þessir hlutir eru í stööugri þróun. Hvað mannabreytingar varð- ar, þá er ástæða til að taka fram að ekki er óeðlilegt þótt fólk fari héðan. Við þær breytingar, sem hafa orðið á flölmiðlun hérlendis, er ekki í mörg hús að venda fyfir þá sem leita að vönu fiölmiðlafólki. Loks má benda á að héöan hafa fréttamenn fariö án þess að fara á Stöð 2“. -hlh Reglubundnir sumartónleikar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Reglulegir sumartónleikar verða haldnir í Akureyrarkirkju, Húsavík- urkirkju og Reykjahlíðarkirkju á Mývatni fram í ágúst. Þessir tónleikar eru í Akurevrar- kirkju á sunnudögum kl. 17.00, í Húsavíkurkirkju á mánudögum kl. 20.30 og í Reykjahlíðarkirkju á þriðjudögum kl. 20.30. GARÐURIIMN ÞINN VERÐUR GÖTUPRÝÐI EF ÞÚ KLIPPIR LIMGERÐIÐ MEÐ JEEuSF Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16, s. 691600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.