Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. ' 29 LíGsstQl Fimmtán Svíar á ferð Komin til að kaupa hesta Á tjalds.tæðinu sátu nokkrir Svíar í kringum hlaðið morgun- verðarborð. Kátt var á hjalla og blaðamaður rauk á þessa saklausu Svía með spumingarflóð. Fyrst varð fyrir svörum Enger Karlstro- mer. Hún ætlaði að skorast undan spurningunum vegna þess að hún taldi sig venjulegan ferðamann. En hvað var hún þá að gera hér á landi? „Ég stunda hestasölu i Svíþjóð og sérhæfi mig í íslenska hestin- um,“ sagði Enger. „íslenski hesturinn er að verð æ vinsælli í Svíþjóð og er ég hingað komin til aö bæta viö hestaeignina. Ég hef ferðast um landið til að skoða og kaupa,“ bætir hún við. En hvers vegna er sá íslenski svona vinsæll úti? Dægradvöl Enger Karlstromer selur islenska hesta í Svíþjóð. Hún hefur verið að skoða og kaupa hesta hér á landi. Unnið er af fullum krafti við bygginguna. Á næstu dögum verður hún tekin i notkun. Fullkomin aðstaða fyrir tjaldferðalanga Þjónustumiðstöð í torfbæjarstíl Ný þjónustumiðstöð fyrir tjald- stæðið í Laugardal verður tekin í notkun á næstu dögum. Byggingin er hin glæsilegasta og veröur til prýði á staðnum. Hún er hönnuð í torfbæjarstíl þar sem nútíma bygg- ingarmáti og gamall stíll fer vel saman. Arkitekt byggingarinnar er Manfreð Vilhjálmsson en bygging- ardeild borgarverkfræðings sér um framkvæmdahliðina. Sigurður HaUdórsson sagði okk- ur hvaða þjónustu yrði boöið upp á. „I fyrsta lagi verður öll snyrti- og salernisaðstaða til staðar. Allt er hannað með tilliti til fatlaðra. Þvottavélar og eldunaraðstaða er einnig fyrir hendi og úti veröur glæsilegt grill. Upplýsingar verða á staönum og gæslumaður hefur þama afdrep. Þá er einnig aöstaöa til að þurrka fót,“ sagði Hann. Þama er á ferðinni glæsileg bygg- ing sem koma ætti ferðalöngum framtíðarinnar til góða. -EG. Hluti af þeim fimmtán Svium sem höfðu tjaldað i Laugardalnum. „Aöallega er það vegna þess hversu gæfur og góður hann er. Hann er mjög vinsæll sem alhliða heimilishestur. Fjölskyldur kaupa sér kannski einn til tvo hesta og er íslenski hesturinn heppilegur. Allir í fjölskyldunni geta notað hann. Hann er einnig skemmtileg- ur reiðhestur. Ég held að varla sé ástæða fyrir mig að lofa hestinn ykkar, þið þekkiö hann miklu bet- ur en ég,“ segir Engér. Með heilaæxli Ungur piltur meö hjálm kom út úr tjaldinu og settist í fangið á mömmu sinni. Þarna voru á ferð- inni Maria Lundqvist og sonur hennar, Ulf. Viö spurðum möm- muna um veru hennar á íslandi. „Við komum til að leyfa syninum aö fara á hestbak. Ulf er með heila- Maria og Ulf skelltu sér með i ferð- ina. Litli drengurinn er með heila- æxli og langaði að fara á hestbak. Aðeins íslenski hesturinn er nógu þýður fyrir Ulf. æxli og getur því ekki setið hvaða hest sem er. íslenski hesturinn er^ svo þýður aö hann getur setiö hann án þess aö þjást mikið. Hjálmurinn sem hann er með á höfðinu er vegna þess aö jafnvægisskynið er komið úr lagi og hann á það til að detta," segir Maria. Ulf var spurður hvað honum fyndist skemmtilegast við landiö. Sá stutti var dálítið feiminn en - sagði að hestarnir og sérstaklega hundarnir væru spennandi. Það var, einlæg ósk blaðamanns og ljósmyndara að ferðin hans Ulfs 4 litla til íslands yrði sem ánægjule- gust og við kvöddum þessa hestaá- hugamenn. -EG ísland fær flmmtán af tíu mögulegum Hvemig farið þið að að lifa? - spyrja tveir Englendingar Á tjaldstæðinu í Laugardal hittum viö hjónin Mavis og Bob Winter. Þau komu frá Englandi fyrir þrem- ur vikum og hafa veriö að ferðast um landið. Okkur lék hugur á að vita hvað þeim fyndist um land og þjóð. „Þetta er búið aö vera dásamlegt ferðalag," segir Mavis. „Ég hef skrifað í dagbók á ferðalaginu og ég var að segja við manninn minn að á hveijum degi hef ég skrifað að þessi dagur sé sá besti. Af tíu mögulegum fær ísland fimmtán," bætir hún viö. En hvers vegna ísland? „Við erum lítið gefin fyrir sólar- landaferðir og okkur finnst nátt- úruskoðun skemmtileg,“ segir Bob. „Þegar við sögðum vinum okkar frá því að við færum til íslands voru viöbrögðin „rpjög athyglis- vert“ en það er ein leið á ensku til aö segja aö maður sé klikkaður," segir hann og hlær. Ég kann einnig mjög vel við þjóð- ina. Allir eru svo hjálpsamir og elskulegir," segir Mavis og Bob samsinnir. „Mig langar að nota tækifærið og kvarta dálítið," segir hann. „Ég vil benda yfirvöldum á að merkingar eru í miklum ólestri hér á landi. Það er erfitt að finna á hvaða leið maður er og allar almennar merk- Verðlagið kom mest á óvart „Veðrið á leiðinni var leiöinlegt en viö bjuggumst heldur ekki við sólarlandaveðráttu, ‘ ‘ segir hún. „Verðlagið kom okkur hins vegar á óvart og er trúlega þaö neikvæð- asta við dvöUna," bætir hann við. „Mér er ómögulegt að skilja hvem- ig þið íslendingar farið aö því að halda lífi þegar svona dýrt er að kaupa í matinn. Annars er ferðin þess virði. Landið er gífurlega fall- egt og fjölbreytnin alveg ótrúleg. ingar eru varla til. Þaö var dálítið fyndið aö sjá til dæmis alla smáflugvelli úti á landi vel merkta. Flugvellir sem sáust alls staðar frá og enginn vandi var að finna. En í Reykjavik tók það okkur næstum klukkutíma að finna innanlandsflugvöllinn," seg- ir Bob Winter -EG. Bob og Mavis Winter voru að njóta morgunmatar við tjaldið sitt í Laug- ardal. Þau voru ákaflega fegin að sólin var farin að skína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.