Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLl 1988. LífsstOI Miðbær Reykjavikur fyllist af lifi og fólki þegar sólin lætur svo lítið að sýna sig. Skyndilega verða þessi gráu og blautu torg uppfull af glaðlegum andlitum, sumarldæddu og óstres- suðu fólki. Það hreinlega lifnar yfir miðbænum! Aðra daga einkennir regnfrakkaklætt fólk á harðahlaup- um götulífið. Og ölvaðir unglingar um helgar. Torgsala á miklum vinsældum að fagna á Lækjartorgi, sérlega þegar sólin skín. Þó er þetta tiltölulega nýtilkomið fyrirbæri í Reykjavík. Hins vegar hefur veður verið með albrigðum leiðinlegt á Reykjavíkur- svæðinu í sumar og því hafa tjöldin staöið niðurrignd og mannlaus allan júnímánuð. Svo gerðist það í síðustu viku, flest- um aö óvörum, að það stytti upp. Hinn sjaldséði en eftirsótti eldhnött- ur sást á lofti og sumarbragur færð- ist í einni svipan yfir höfuðborgina. Miðbærinn fylltist af ljósklæddu og lífsglööu fólki sem virtist nú skyndi- lega hafa tíma til að setjast niður og fá sér ís. Líf í torgsöluna Það lifnaði líka heldur betur yfir torgsölunum. Margir aðilar hafa greitt stórar fúlgur fyrir leigu á svæði undir tjöld og borð, en torgsala lá nánast algerlega niðri allan júní- mánuð. Nú viðruðu þeir tjöldin, lögðu fram vörur sínar og horfðu björtum augum til framtíðarinnar. Sú spuming hefur stundum skotið upp kollinum hvort veðurfar hafi áhrif á skap og sálarlíf fólks. Flestir sálfræðingar eru þeirrar skoðunar og margir einstaklingar segjast vera þyngri í skapi og eigi erfiðara með að vakna á morgnana þegar veðrið er leiðinlegt. Aðrir svara því geð- vonskulega neitandi þegar þeir eru spurðir eftir langvarandi rigningar- tíð hvort veðrið hafi áhrif á það. Fólkið verður fallegra Fullorðinn maður, sem DV hitti í miðbænum, sagði aö það væri með Mikid líf var í miðbænum fyrsta sólardaginn í heilan mánuð, eins og sjá má af myndinni. DV-mynd S ólíkindum hvað íslenskt kvenfólk, og þá sjálfsagt karlar líka, breyttist þegar sólin færi að skína. Hann sagö- ist koma við í miöbænum nánast á hverjum degi á sumrin og fengi sér sæti á bekk ef hann væri ekki of blautur. Hann hefði verið að velta fyrir sér í sumar þeirri staðhæfingu að íslenskt kvenlólk væri það falleg- asta í heimi. „Mér fannst það yfirleitt heldur púkalegt og óspennandi," sagði mað- urinn sem skiljanlega vildi ekki láta nafns síns getið. „I dag sé ég svo sömu konumar. Nú eru þær búnar að kasta af sér regnflíkunum, úlpunum og ólundar- svipnum. Fyrir framan mig sé ég því hverja þokkagyðjuna af annarri og er því sammála fullyrðingunum um fegurð íslenskra kvenna. Meira að segja strákamir eru miklu myndar- legri í dag!“ Skemmtikraftar! Það er ekki bara markaður og fall- egt fólk sem einkennir torgið á fall- egum sólardegi. Þar má iðulega sjá skemmtiatriði af ýmsu tagi. í sumum tilfellum hafa fengist leyfi til að fremja skemmtunina en í öðmm ekki. Það hefur því iðulega gerst að verð- ir laganna hafa komið og beðið við- komandi að láta af skemmtuninni. Það hafa þó verið skiptar skoðanir meðal torggesta hvort stöðva ætti skemmtikraftana þar sem þeir hafa þótt glæða líf og „stemningu" á Lækj- artorgi. DV kannaði lífiö í miðbænum dag- inn sem sólin ákvað að láta sjá sig á suð-vesturhomi landsins. -ATA Það lifnaði yfir miðbænum - þegar sólin lét loksins sjá sig Höftun beðið eftir sól frá sumar- degimim fVrsta - sögðu ísætumar Anna Melsteð og Birgir Magnússon „Við erum bara að pjóta þess að loksins er komin sól,“ sögðu þau Anna Melsteð og Birgir Magnússon sem sátu á Útvegsbankatröppunum og borðuöu ís í gríð og erg. „Við erum í matarhléi núna. Það er stutt að koma hingað af okkar vinnustöðum. Ég vinn í Sparisjóði Reykjavikur og Anna þjá Steinum hérna beint á móti,“ sagði Blrgir. „Maður er eiginlega búinn -aö bíða síöan sumardaginn fyrsta eför þvi að sólin láti sjá sig almennilega. En nú trú- um við þvi að sumarið sé komið. Maður er líka alltaf bjartsýnn þegar í sólin 8kin,“ sögðu þau EL_ Anna og Birgir. Anna Melsteð og Birglr Magnússon njóta þess að sltja í aól- -ATA Inni og gsða sér é ta. Skemmtilegast að skoða - sögðu þær Bryndís, Lise og Rakei „Það er gaman aö máta þessa hatta. Við erum bara að skoða núna og ætlum ekkert að kaupa,“ sögðu þær Bryndís Skaftadóttir, Lise Lotte Elmstrand og Rakel Bergmann, sem skörtuðu einstaklega skrautlegum höttum í sólinni á Lækjartorgi. „Við erum allar í ungl- ingavinnunni og notum matartímann okkar til að koma niður á torg að sjá mannlífið í sólinni og skoða vöruúrvalið. Ef við ættum peninga myndum við hugsanlega kaupa eitthvað því flest er ódýrara hér en í buð- um. En aðalskemmtunin er þó bara að skoða," sögðu vinkonumar, tóku ofan hattana og buðu ljósmyndaranum karamellu. -ATA Rakel Bergmann, Bryndis Skaftadóttir og Lise Lotte Elmstrand notuðu sér matarhléið I unglingavinnunn) til að máta hatta og sólgleraugu. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.