Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1988, Side 1
Tinna og hjólakeppnin
Tinna, mamma og pabbi fóru í hjólakeppni og Tinna vann bikar. Um nótt-
ina gat Tinna ekki sofnað því að hún var svo æst. Um morguninn, þegar
Tinna vaknaði, fór hún að pússa bikarinn sinn. Nanna, vinkona Tinnu,
vann líka bikar og þær fóru að pússa bikarana sína saman. Nanna og
Tinna eru svo miklar vinkonur.
Tinna Guðjónsdóttir, 7 ára,
Gaukshólum 2 (5-A), 111 Reykjavík.
Vélhjólakeppnin
Einu sinni fóru Hildur og pabbi hennar að horfa á vélhjólakeppni. Þar var
bróðir Hildar að keppa. Hann lenti í fyrsta sæti.
Drífa Kristín Sigurðardóttir og
Martin Ingi Sigurðarson,
Safamýri 77, 108 Reykjavík.
Torfærukeppnin
Einu sinni var stelpa sem hét Anna. Hún var úti í löndum á ferðalagi. Þar
fór hún og sá torfærukeppni með mömmu sinni og pabba. Þeim fannst
æðislega gaman. Þegar keppnin var búin fóru þau á hótelið sem þau dvöldu
á og borðuðu kvöldmat.
Helgi Guðlaugsson,
Álfheimum 66, 104 Reykjavík.
Kappaksturinn
Það var 31. júlí og kappaksturinn átti' að vera klukkan hálflimm. Núna
vantaði klukkuna fimm mínútur í fjögur. Magnús Örn átti að keppa í kapp-
akstrinum. Það voru allir að búa sig undir keppnina.
Magnús Örn var númer 4 og keppti við Sigga, Agnar, Steinar, Tryggva, Jón
og Garðar. Núna var keppnin hafin og það voru tíu erfxðar torfærur sem
þeir þurftu að fara yfir. Fjölskylda Magnúsar var komin og horfði á hann.
Magnús var fremstur og Jón rétt á eftir honum. Magnús var á 130 km
hraða og var alveg að komast í mark. Núna kom hann í mark. Fjölskylda
Wagnúsar öskraði af gleði því nú hafði Magnús unnið sér inn ferð fyrir
Qóra í þrjár vikur. Það var heppilegt því það voru bara fjórir í fjölskyld-
unni.
Eftir þijá daga ætluðu þau í ferðalagið. Það var auðvitað til útlanda, alla
leið til Flórída þar sem Disney-land er.
Svavá Ólafsdóttir,
Miðleiti 6, 103 Reykjavík.
Lísa
Lísa hafði mikinn áhuga á mótorhjólum. Einn dag sagði pabbi við Lísu að
nú skyldu þau fara og horfa á torfærukeppni. Um daginn klukkan þrjú
fóru þau frá Selfossi þar sem þau bjuggu og óku til Hellu.
Keppnin var æðislega spennandi og allt fór vel. Allt í einu benti pabbi Lísu
á að þarna væri heimsmeistarinn kominn. Síðar kom það í ljós að hann
lenti í öðru sæti.
Lísu dreymdi eintóm mótorhjól næstu nótt.
Sigríður Erla Hjálmarsdóttir,
Árbæjarhjálei^u,
851 Hellu.
Mótorhjólakeppnin
Einu sinni voru tveir strákar sem ætluðu í mótorhjólakeppní. Annar var
númer fjögur og hinn var númer níu. Svo komu mamma þeirra og pabbi
til aö horfa á þá. Þar var líka fullt af öðru fólki. Strákarnir þurftu að fara
yfir drullupolla og stökkva hátt á mótorhjólunum. Keppnin gekk bara vel.
Sigríður Sóley Hafliðadóttir,
Lækjargötu 6r
580 Siglufirði.
Halli og hjólið hans
Einu sinni var stákur sem hét Halli. Hann hafði lengi langað í vélhjól.
Mamma og pabbi höfðu alltaf neitað honum um það. En þegar Halli spurði
þau hvort hann mætti kaupa sér vélhjól þegar hann yrði 16 ára ef hann
yrði duglegur að vinna leyfðu þau honum það.
Halli fékk sér nóg að gera. Hann fór í unglingavinnuna og bar út blöð.
Hann vann líka í sjoppu á kvöldin. Loksins var hann búinn að safna nóg-
um peningum til að kaupa hjólið.
Einn daginn sá Halli auglýst í dagblaðinu að það ætti að verða vélhjóla-
keppni rétt hjá Bláfjöllum helgina. Hann dreif sig í keppnina á fína hjólinu
sínu. Mamma og pabbi komu til að horfa á Halla og litla systir hans fékk
líka að vera með. Halli varð ekki fyrstur en hann var duglegur samt því
hann varð í öðru sæti.
Um kvöldið hafði mamma rjómatertu handa þeim til að halda upp á það
hvað Halli hafði verið duglegur í keppninni.
(Höfundur gleymdi að skrifa nafnið
sitt og heimilisfang og er því beðinn
að skrifa aftur.)
Skrifið sögu um þessa mynd.
Sagan birtist síðan í 36. tbl.
og getur að sjálfsögðu
hreppt verðlaunin.
✓
/
/
✓
✓
*
*
s