Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1988, Side 4
LAUGARDAGUR 20. AGUST 1988.
®m
Hvert gætu krakkarnir veriö aö fara? Nefniö þijá
staöi. Sendið lausn til: BARNA-DV.
ELSKU AMMA!
Elsku amma!
Ég er mjög hrifinn af stelpu en ég veit ekki hvort hún
er hrifm af mér. Ég er mjög feiminn viö hana og er
alveg í vandræðum. Elsku amma, hjálpaöu mér!
Morten.
Kæri Morten!
Þú skalt gefa þig á tal við stelpuna næst þegar þú hitt-
ir hana. Þú getur alltaf rætt um skólann, sumarvinn-
una, áhugamál og fleira til aö byrja með. Þá finnur þú
íljótt hvort stelpan hefur áhuga á aö tala viö þig. Síöan
getur þú boðið henni 1 bíó og reyndu bara aö vera glað-
legur og skemmtilegur!
Amma.
Elsku amma!
Ég er nýbyrjuð meö strák sem var með vinkonu minni
en ég vissi ekk'ert af því. Ég er sko nýflutt í bæinn aft-
ur en ég og þessi vinkona mín höfum hist og verið í
bréfa- og símasambandi og verið góðar vinkonur síðan
ég man eftir mér.
Hún hefur alltaf verið hrifin af strákum og ég var
hætt aö taka eftir hverjum hún var með í það og það
skiptið. Hún var alltaf að skipta. Svo þegar ég kom í
bæinn byrjaði strákurinn sem hún var með að reyna
við mig og fyrr en varði vorum við byrjuð saman. Svo
sá hún okkur saman og þá varð hún brjáluð út í mig.
Hún sagði að ég hefði beðið strákinn um að segja sér
upp en það er ekki satt!
Hvað á ég.að gera? Ég vil ekki missa strákinn og ekki
heldur vinkonuna.
Ein ástfangin í vanda.
Kæra í vanda!
Þar sem þú ert komin á fast með stráknum hlýtur
hann að gera þér þann greiða að segja vinkonunni að
þú segir satt. Þú komst ekki upp á milli þeirra og það
verður strákurinn að segja henni.
Best væri að þú byðir vinkonunni til þín, hreinlega
bæðir hana að koma þegar strákurinn er í heimsókn
hjá þér. Þá getið þið öll spjallað saman og hreinsað
andrúmsloftið fyrir fullt og allt. Ef stráknum þykir í
raun og veru vænt um þig á hann að útskýra málið
fyrir vinkonunni.
Þín amma.
Geturðu fundið 6 atriði sem ekki eru
eins á báðum myndunum?
Sendið lausn til: Barna-DV,
Þverholti 11,
105 Reykjavík
KVEÐJUR
Okkur langar að senda kveðjur til
allra krakkanna sem voru með okkur
í sumarbúðum Þjóðkirkjunnar á
tímabilinu 20. júní-1. júlí. Og bráð-
hressa kveðju fær pennavinkona
okkar, Valgerður Dýrleif.
Elva Brá og Jóhanna (Jóa).
Ég ætla að senda kveðju til penna-
vinkonu minnar sem er búin að
skrifa mér lengst. Hún heitir Katr-
ín ög á heima á Hvammstanga.
Álfheiður H. Hafsteinsdóttir,
Breiðvangi 13 í Hafnarfirði.
Sendi frábærar stuðkveðjur til Olla,
Bjössa, Kidda og Jóa, sem ég hitti á
Laugarvatni um verslunarmanna-
helgina. Strákar, látið sjá ykkur sem
fyrst á rúntinum!
Ragna Ósk (Ragga).
Safnarar!
Kæru safnarar!
Vill einhver skipta á úrklippum, pla-
kötum, límmiðum, glansmyndum,
servíettum (munnþurrkum) eða
bréfsefnum?
Svava Ólafsdóttir,
Miðleiti 6, 103 Reykjavík.
P.S. Munið að senda heimilisfang
líka!
Gátur
1. Hvaða dýr hermir eftir manni?
2. í hvaða húsi býr enginn maður?
3. Einu sinni voru tvær hænur. Önn-
ur hét Fram og hin Aftur. Síðan
dó Fram. Hver var þá eftir?
4. Hvaða farartæki hefur bæði hjól
og fætur?
5. Hvað er það sem flýgur, hefur
fjóra fætur og segir bra-bra?
6. Hversu lengi sefur asninn á næt-
umar?
7. Hvað fer í gegnum skóginn án þess
að snerta hann?
8. Hve langir þurfa fætur mannsins
að vera?
9. Á hvað getur sólin ekki skinið?
Rakel Sif Gunnarsdóttir,
Krummahólum 4, Reykjavik.
(Svör aftast.)
Tveir eins
Aðeins tveir flskanna eru alveg eins.
Hvaða fiskar eru það?
Sendið lausn til: Barna-DV.
Litmynd
1 = svartur
2 = bleikur
3 = rauður
4 = gulur
5 = grænnr
G = hvítur
7 = blár