Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Síða 1
Heimshlaupið '88
Aðalviðburður helgarinnar er
Heimshlaupið ’88. Það er ekki
eingöngu aðalviðburður hér á
landi heldur úti um allan heim.
Mikið hefur vérið gert til að þetta
heimshlaup fari sem best fram
og hér á landi er búist við mikilli
þátttöku og verða skemmtikraft-
ar og annað þekkt fólk með í ráð-
um.
Markmið hlaupsins er að vekja
athygli á slæmri stöðu barna víða
í heiminum, sérstaklega í þriðja
heiminum, og að safna fé til að
bæta úr því.
Umfangsmikil fjársöfnun
Markmiðið er aö safna sem
mestum peningum til hjálpar
börnunum. Alþjóðlegt heiti söfn-
unarinnar er Sport Aid ’88. Búist
er við að þetta verði ein umfangs-
mesta íjársöfnun sem fram hefur
farið í heiminum. Ráðgert er að
þátttakendur verði milli 20 og 30
milljónir. Hlaupið er ekki keppni
milli einstaklinga heldur er sig-
urinn fólginn í því að sem flestir
taki þátt í hlaupinu.
Samkvæmt reglum samtak-
anna, sem að hlaupinu standa,
er gert ráð fyrir að 80% af því fé,
sem safnast hérlendis, renni til
aðstoðar börnum utanlands og
þá sérstaklega í þróunarlöndun-
um en 20% renni til áframhald-
andi þróunar á starfsemi Rauða-
krosshússins í Tjarnargötu og til
fíkniefnavarna á vettvangi barna
og unglinga.
Söfnunarfénu vegna erlenda
verkefnisms verður ráðstafað í
gegnum *,Child Alive“ verkefni
Alþjóða Rauða krossins sem
berst gegn barnadauða af völdum
niðurgangs og barnasjúkdóma.
Talið er að um 290.000 börn deyi
á viku hverri í heiminum af þess-
um sökum eða um 15.000.000 börn
á ári. Tekjuöflunin hér á landi fer
fyrst og fremst fram með sölu
þátttökunúmera sem seld eru um
allt land. í Reykjavík er hægt að
fá númerin á Esso bensínstöðv-
um, Kringlunni og á Lækjartorgi.
Fjölbreytt skemmtiatriði
Sjónvarp spilar stórt hlutverk í
þessu alheimshlaupi. Verður
sjónvarpað frá tuttugu og þremur
borgum og er Reykjavík eirl
þeirra. Hér verður bein útsend-
ing í ríkissjónvarpinu og byrjar
útsendingin kl. 14.09. Verður
Sjónvarpið með fjórar tökuvélar
og verður ein hreyfanleg.
Hlaupið sjálft hér heima byrjar
kl. 15.00. En áður verður mikiö
um að vera á Lækjartorgi. Útitaf-
lið verður í notkun með þátttöku
þekktra skákmanna, lúðrasveitir
leika, Valgeir Guðjónsson mætir
á staðinn, hljómsveitirnar Sálin
hans Jón- míns og Kátir piltar
mæta. Grínistinn Laddi sprellar
af sinni alkunnu list, handbolta-
landsliðið kemur og kveður áður
en haldið verið til Seoul. Kynnir
er Ómar Ragnarsson og verður
skemmtunin frá kl. 13.45-15.00.
Ræstfrá húsi
Sameinuðu þjóðanna
Þeir sem byrja hlaupið verða
með Evrópuflögg. Ætlunin er að
það verði eldri borgarar, fjölskyl-
dufólk, 14 ára unglingar, börn og
fatlað fólk. Ræst verður frá aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
New York. Þar verða fulltrúar
íslands tveir 14 ára unglingar,
Karl Guðmundsson og Sólveig
Þórarinsdóttir. Voru þau valin
úr hópi fjölmargra umsækjenda.
Fararstjóri þeirra í ferðinni er
Hólmfríður Karlsdóttir. Þá er
bara eftir að hvetja alla til að
styrkja gott málefni og helst að
hlaupa eða skokka.
-HK
Meðlimir hljómsveitarinnar Kátir piltar mættir í bol og með þátttökunúmer.
á Austurlandi
- sjá bls. 29
Veitingahús vikunnar
- sjá bls. 18
Mýrargata
Ananaust
Tryggvagata
Lækjar
Skothús-
vegur
Fríkirkjuv
Ganga 1 hring. 3,2 km
Skokk/
hlaup: A) 2 hring. 6,4 km
B) 3 hring. 9,6 km
Hringbraut
HEIMSHLAUPIÐ
Reykjavík
Rás-
mark
Á kortinu má sjá hringinn sem hlaupinn verður i Reykjavík.