Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Qupperneq 6
30
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
e
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Laugarásbíó
Vitni að morði
Aðalsöguhetjan í Vitni að morði
(Lady In White) er ungur drengur
sem Lucas Haas leikur. Hann hef-
ur gaman af að segja draugasögur
og hræöa bekkjarfélaga sína sem
mest. Einnig tekst honum aö hræða
kennarana. Gamanið gránar þegar
hann lokast inni á öskudaginn. Þá
fær hann að kynnast því sjálfur
hvað það er að vera hræddur. Hann
upplifií atburði sem gerðust á þess-
um stað fyrir löngu síðan.
Hinn ungi Lucas Haas, sem lék
eftirminnilega drenginn í Vitninu,
þykir sýna eftirminnilegan leik í
hlutverk drengsins. Hann hefur sér
við hliö hina reyndu leikara, Kat-
herine Helmont og Alex Rocco.
Stjömubíó
Sjöunda innsiglið
Demi Moore er kannski þekktust
sem eiginkona Bruce Willis. Hún
er samt ágæt leikkona og hefur
sýnt það í nokkrum myndum. í
Sjöunda innsiglinu (The Seventh
Sign) leikur hún Abby Quinn, ó-
fríska konu sem veit að hörmungar
sem dynja yfir mannsbyggðina
tengjast henni að einhverju leyti.
Dauða fiska rekur á land við strönd
Haiti, ísraelskt smáþorp leggst í
eyði vegna frosthörku og árvatn í
Nicargua verður að blóði...
Hvernig það tengist henni veit hún
ekki en það ætti að koma í ljós í
lokin. Leikstjóri er Carl Schultz.
Demi Moore leikur óttaslegna til-
vonandi móður.
Dennis Hooper ásamt Sean Penn við tökur á Klíkunum.
Sean Penn.
Háskólabíó
Klíkurnar
Klíkurnar er fyrsta kvikmynd
Dennis Hooper sem leikstjóri frá
því hann gerði The Last Movie sem
var nánasf dauðadómur yfir hon-
um í Hollywood. Margt hefur drifið
á daga hans síðan, fátt gott en því
meira af sukki og ólifnaði. Hann
hefur nú náð sér og hefur þegar
náð góðum árangri sem leikari. Því
biðu menn spenntir eftir Klíkunum
(Colors).
Hooper sýnir að hann hefur engu
gleymt. Myndin fjallar um götu-
flokka sem sýna enga miskunn og
tvo lögregluþjóna sem reyna að
koma á lögum og reglu á götunum.
Hooper hefur að vísu verið gagn-
rýndur fyrir að gera þessum óald-
arflokkum of hátt undir höfði og
þar með kynda'undir bardögum á
götum borgarinnar. Satt er það að
nokkur ólæti brutust út þegar
myndin var frumsýnd í stærstu
borgum vestanhafs. Þrátt fyrir
þetta þykir Dennis Hoope’r hafa
gért kröftuga spennumynd sem
flestir gagnrýnendur hafa hælt.
Aðalhlutverkin, lögregluþjónana
tvo, leika Sean Penn, sem eins og
Dennis Hooper hefur löngum verið
til vandræða, og Robert Duvall og
þykja þeir standa sig prýðilega.
-HK
Robert Duvall.
Háskólabíó
KLÍKURNAR
- sjá umsögn annars staðar á síðunni
Bíóhöllin
GÓÐAN DAGINN, VÍETNAM
Robin Williams hefur ekki verið heppinn með kvikmyndir hing-
að til. Enginn efasf um mikla hæfileika hans sem gamanleikari
en liann hefur verið frekar óheppinn með val á verkefnum þang-
að .til nú. í Góðan daginn, Víetnam slær hann í gegn svo um
munar í hlutverki útvarpsmannsins Adrian Cronauer sem hefur
ofan af fyrir hermönnum í Víetnam þegar stríðið stendur sem
hæst, 1965.
í FULLU FJÖRI
Justine Bateman, sem á vinsældir sínar að þakka sjónvarps-
þáttunum vinsælu, Fjölskylduböndum (Family Ties), leikur
Jenny Leeí í fuilu flöri (Satisfaction). Hún stofnar ásamt vinkon-
um sínum hljómsveit. Þær hafa ekki æft sig lengi þegar þær
telja sig fullboðlegar og sækja um vinnu í klúbbi. Kemur í ljós
að eigandi klúbbsins er fyrrverandi lagasmiður sem á að baki
frægðarferíl sem endaði snögglega: Mikið er um iónlist í mynd-
inni og eru lögin samin af þekktum lagahöfundum. í fullu fjöri
er mynd fyrir unglinga fyrst og fremst.
RAMBO III
Sylvester Stallone fer í þriðju myndinni um fyrrverandi Víet-
namhermanninn John Rambo til Afganistan í leit að yfirmanni
sínum og vini sem Rússar hafa tekið höndum. Eins og við er
að búast lendir Rambo í miklum og blóðugum átökum. Rambo
III, sem er ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið, svíkúr
engan sem á annað borð vill hafa spennumyndirnar dálítið
krassandi.
ÖRVÆNTING
- sjá umíjöllun undir Bíóborgin.
SKÆR LJÓS STÓRBORGARINNAR
Michael J. Fox, sem er um þessar mundir ein skærasta stjarna
á himni Hollywood, leikur aðalhlutverkið í gamanmyndinni
Skær ljós stórborgarinnar (Bright Lights, Big City). Leikur hann
Jamie Conway, ungan mann í New York sem hefur hvorki
sætt sig við að konan fór frá honum né dauða móður sinnar.
Til þess að græða sár sín dembir hann.sér út í næturlíf stórborg-
arinnar af fullum krafti.
BEETLEJUICE
Michael Keaton leikur aöalhlutverkið í þessari makalausu grín-
mynd sem fjallar að mestu um drauga, góða sem vonda, og við-
skipti þeirra við lifandi fólk. Titilpersónan, Beetlejuice, er feng-
in til að fæla fólk úr húsi sem ung, nýlátin hjón tileinka sér.
LÖGREGLUSKÓLINN 5
Þeir sem séð hafa fyrri myndir um hina snarrugluðu lögreglu-
þjóna, sem útskrifuðust í fyrstu myndinni, vita á hverju þeir
eiga von. Hugmyndin er orðin nokkuð útþynnt en ágætir brand-
arar inni á milh.
UNDRAHUNDURINN BENJI
Myndimar um hundinn Benji voru mjög vinsælar fyrir nokkr-
um árum. Nú hefur verið tekinn upp þráðurinn í The Hunted
en svo nefnist myndin á frummálinu. Það sem er ólíkt með
nýju myndinni og þeim eldri er að Benji fær mun meira að njóta
sín hér. Áður voru leikarar með stærri hlutverk. Ljúf kvikmynd
fyrir yngstu kynslóðina.
Bíóborgin
FOXTROT
Þá hefur fyrsta íslenska kvikmyndin á þessu árf verið frum-
sýnd. Er það spennumyndin Foxtrot sem lengi hefur verið beð-
ið eftir. Myndin fjallar um tvo bræður sem taka að sér að fara
með peningasendingu úr Reykjavík norður í land. Ekki gengur
sú ferð átakalaust. Lenda þeir bræður í miklum raunum sem
enda með harmleik. Foxtrot er ágæt afþreyingarmynd, atburða-
rásin hröð og spennandi. Leikstjóri er Jón Tryggvason. Kvik-
myndatöku annaðist Karl Óskarsson. í aðalhlutverkum eru
Valdimar Örn Flygenring, Steinarr Ólafsson og María Ellingsen.
ÖRVÆNTING
Eftir hina misheppnuðu sjóræningjamynd sína, Pirates, er Ro-
man Polanski kominn á góða ferð í nýjustu kvikmynd sinni,
Örvæntingu (Frantic), sem er hörkuspennandi og dularfull saka-
málamynd er gerist í París. Harrison Ford leikur Richard Wal-
ker, bandarískan lækni sem verður fyrir óvæntri lífsreynslu
þegar hann er í París ásamt eiginkonu sinni. Á óskiljanlegan
hátt hverfur hún. Örvæntingarfull leit hans leiðir hann inn í
undirheima Parísar þar sem hann hittir unga og fagra stúlku
sem kann að vera lykillinn að hvarfi eiginkonu hans. Örvænt-
ing bætist við þann hóp mynda Polanskis sem teljast með hans
betri.
BEETLEJUICE
- sjá umfjöllun undir Bíóhöllin.
HÆTTUFÖRIN
Hér er á ferðinni hörkuspennandi mynd sem fjallar um eltingar-
leik við morðingja og mannræningja í óbyggðum. Aðalhlutverk
leikur Sidney Poitier og er þetta fyrsta kvikmynd hans í mörg
ár. Tom Berenger, stjarnan úr Platoon, fer með hitt aðalhlut-
verkið. Þetta er mynd fyrir þá sem vilja hasar og spennu. Hættu-
fórin er einnig sýnd í Bíóhöllinni.
Laugarásbíó
VITNI AÐ MORÐI
- sjá umsögn annars staðar á síðunni
STEFNUMÓT Á TWO MOON JUNCTION
Ung og rík Suðurríkjastúlka tekur hliðarspor rétt fyrir brúð-.
kaup sitt. Hún fellur fyrir ungum farandverkamanni og er kom-
in á fremsta hlunn með að hlaupast á brott með honum og gefa
frá sér allan auð. Amma hennar veit hvað klukkan slær og reyn-
ir hvað hún getur að bjargaheiðri ættarinnar. Stefnumót á Two
Moon Juriction er dæmigerð Hollywoodframleiðsla þar sem
átakaleysið einkennir bæði söguþráð og leik.
SÁ ILLGJARNI
Sá illgjami (The Serpent and the Rainbow) er hryllingsmynd
sem gerist að mestu leyti á eyjunni Haiti þar sem menn hafa
náð þeim árangri að vekja menn upp frá dauðum með lyfi sem
þeir hafa fundið upp. Denis Allen er sendur til að komast yfir
þetta undralyf. Leikstjóri er Wes Craven sem frægastur er fyrir
þrjár kvikmyndir um martraðirnar í Álmstræti.
Regnboginn
HAMAGANGUR Á HEIMAVIST
Todd Barrett á í erfiðleikum með að borga skólagjöld sín. Hon-
um dettur því í hug að gera almanök með myndum af félögum
sínum sem flestir eru vel vaxin vöðvabúnt til að bjarga sér. Um
þetta fjallar gamanmyndin Hamagangur á heimavist (Campus
Man).
HELSINKI - NAPOLI
Helsinki - Napoli ijallar um fmnskan leigubílstjóra sem verður
fyrir þeirri reynsluað amerískir eiturlyfjasmyglarar drepa tvo
Frakka í bílnum hans. Situr hann uppi með mikla peningaupp-
hæð og tvö lík. Þetta er byrjunin á sérkennfiegri mynd sem er
á köflum allt of ruglingsleg en býr einnig yfir góðum atriðum.
Finnskar myndir eru sjaldséðar og því er Helsinki - Napoli
mjög svo forvitnileg mynd.
Á FERÐ OG FLUGI
Á ferð og flugi (Planes, Trains and Automobiles) er nýjasta
kvikmynd Steve Martins. Leikur hann hrakfallabálkinn Neal
Page sem er á heimleið frá New York til Chicago. Hann lendir
í ýmsum spaugilegum uppákomum á leiðinni. Sæti hans í flug-
véhnni er tekið af honum, hann lendir við hhðina á manni sem
hafði fyrr um daginn náð af honum leigubíl og elda þeir grátt
silfur lengri tíma heldur en ferðin tekur.
LEIÐSÖGUMAÐURINN
Þessi norska kvikmynd, sem gerist á Samaslóðum í Norður-
Noregi, hefur hvarvetna hlotið einróma lof og var tilnefnd til
óskarsverðlauna. Ekki skemmir það að einn aðalleikarinn er
Helgi Skúlason. Það verður enginn, sem ann góðum kvikmynd-
um, svikinn af Leiðsögumanninum.
KRÓKÓDÍLA-DUNDEE II
Paul Hogan er kominn aftur í hlutverki Michaels Dundee,.öðru
nafni Krókódíla-Dundee. Þessi sjarmerandi hetja, sem heillaði
alla í fyrra, lendir í nýjum ævintýrum þar sem hann þarf að
hverfa aftur á heimaslóðir í Ástralíu. Linda Kozlowski leikur
sama hlutverk og áður og leikstjóri er sá sami, John Comell.
Hinn létti húmor og ævintýrablærinn, sem einkenndu fyrri
myndina, eru hér. Sem sagt, góð skemmtun.
Þá má geta þess að allar helgar er gott úrval barnamynda í
Regnboganum.
Stjörnubíó
SJÖUNDA INNSIGLIÐ
- sjá kynningu annars staðar á síðunni.
BRETI í BANDARÍKJUNUM
Breti í Bandaríkjunum (Stars and Bars) er gamanmynd sem
fjallar um Breta einn, Henderson að nafni (Daniel Day Lewis),
sem.ákveður að flytja til New York í von um skjótari frama í
viðskiptalífmu. Hann fær starf hjá uppboðshaldara og á brátt
vingott við dóttur forstjórans og það spillir ekki fyrir skjótum
frama hans innan fyrirtækisins. Vandræðin byrja þegar hann
er í innkaupaleiðangri í Georgíu fyrir fyrirtækið til að kaupa
málverk. Þar kynnist hann hirini fríðu og föngulegu Irene. Kaup-
leiðangur hans gengur heldur ekki sem skyldi og áffur en Hend-
erson veit af er hann á kafi í alls konar vandræðum.
VON OG VEGSEMD
Sjálfsagt hafa margir beðið eftir hinni eftirminnilegu kvikmynd
Johns Boormans, Von og vegsemd (Hope and Glory), sem var
ein fimm mynda sem tilnefndar voru í vor til óskarsverðlauna
sem besta myndin. Boorman segir í myndinni frá æskudögum
sínum í stríðshrjáðu landi. Þykir honum hafa tekist vel að lýsa
mannlegu hliðinni á stríðinu. Myndin fjallar um Bill Rohan,
níu ára dreng sem sá heimsstyijöldina öðrum augum en flestir
aðrir. Honum fannst nefnilega skemmtilegt að lifa á stríðstím-
um. Skólinn var lokaður. Á nóttunni lýstu flugeldar upp himin-
inn. Hann þurfti sjaldan að fara snemma að sofa og í raun hafði
enginn tíma til að ala hann upp.