Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Qupperneq 8
40
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
Seoul
Úrslit 1 körfuknattleik:
„Stærsta
stundin í
lífi mínu“
- Sovétmenn unnu Júgóslava, 76-63
Sovétmenn sneru alveg viö úrslit-
unum úr fyrri viðureign sinni viö
Júgóslava í körfuknattleikskeppn-
inni í Seoul þegar þjóðirnar mættust
í úrslitaleiknum í nótt. Júgóslavar
sigruöu með þrettán stigum í fyrsta
leik riðlakeppninnar en í nótt áttu
þeir aidrei möguleika á að endurtaka
þau úrslit. Sovétmenn höfðu undir-
tökin allan tímann og nú var komið
að þeim að sigra með þrettán stiga
mun, 76-63.
Staðan í hálfleik var 31-28, Sovét-
mönnum í hag, og þeir náðu tíu stiga
forystu í upphafi síðari hálfleiks sem
þeir voru í litlum vandræðum með
að halda gegn reynsluminna liði
Júgóslava. Þetta eru önnur gullverð-
laun Sovétmanna í körfuknattleik
karla á ólympíuleikum frá upphafi.
Þeir unnu Bandaríkjamenn í frægum
leik í Múnchen árið 1972 en annars
hafa þeir bandarísku verið ósigrandi
þar til nú. Sovéska hðið fór rólega
af stað í Seoul en óx eftir því sem á
keppnina leið og kom verulega á
óvart með því að sigra Bandaríkja-
menn í undanúrslitunum.
Risinn Sabonis var Júgóslövum
erfiður. Hann lék vel í vöm og sókn
Sovétmanna og skoraði 20 stig en
félagi hans, Marchulionis, skoraði 21.
Drazen Petrovic var í aðalhlutverki
hjá Júgóslövum að vanda og skoraði
24 stig en næstur kom Vlade Divac
með 11 stig.
„Þetta er stærsta stundin í lífi
mínu,“ sagði Alexandr Gomelski,
þjálfari sovéska liðsins, eftir að hafa
verið „tolleraður" þrívegis af leik-
mönnum sínum í leikslok. „Strák-
arnir mínir léku betur og betur eftir
því sem á leið keppnina. Sabonis er
stórkostlegur leikmaður, hann er
besti miðherji í heimi,“ sagði Gom-
elski.
Bandaríkjamenn vora ekki í vand-
ræðum með aö tryggja sér brons-
verðlaunin í gær. Þeir sigruðu þá
Ástrali, 78-49, og voru aldrei í vand-
ræðum eins og tölumar bera með
sér. -VS
50 km ganga:
Sovéski kennarinn
bestur í göngunni
Vyacheslav Ivanenko, 27 ára
gamall kennari frá Sovétríkjunum,
hreppti gullverðlaunin í 50 km
göngunni í Seoul í morgun. Hann
labbaði fram úr Austur-Þjóöverj-
unum Ronald Weigel og Hartwig
Gauder á lokasprettinum og kom í
markið eftir 3 klukkustundir, 38
mínútur og 29 sekúndur og var 250
metrum og 27 sekúndum á undan
Weigel sem einnig fékk silfrið í 20
km göngunni á dögunum.
„Ég hefði getað veitt Ivanenko
harða keppni en fékk mína aðra
aðvörun í göngunni þegar nokkrir
kílómetrar voru eftir og þess vegna
varð ég að ganga af öryggi og ein-
beita mér að öðru sætinu,“ sagöi
Weigel eftir gönguna.
• Miloslav Mecir frá Tékkóslóvakíu sést hér I úrslitaleiknum gegn Tim
Mayotte frá Bandarikjunum í nótt. Mecir vann gullið og það er í fyrsta skipti
I 64 ár sem keppt er I tennis á ólympíuleikunum. Símamynd Reuter
„ÞGÍtð. VHF storkostlegt og það er mlkill helður að ná að vinna fyrstu gullverð-
laun Kanada á þessum ólympiuleikum," sagði Carolyn Waldo frá Kanada en hún vann I nótt fyrstu gullverð-
laun Kanadamanna á ólympíuleikunum er hún sigraðl af nokkru öryggi I elnstaklingskeppninnl I sundfim). Á
myndinnl sést Waldo fagna sigrlnum I nótt. Simamynd Reuter
Tennis í Seoul:
Mecir með fyrsta
gullið í 64 ár
„Þessi sigur veitir mér meiri gleði
en nokkur annar sigur á mínum ferli
hingað til. Það er stórkostleg tilfinn-
ing að leika þegar maður hefur svona
stóran hóp stuðningsmanna frá sínu
heimalandi," sagði Miloslav Mecir,
24 ára gamall Tékki, en hann vann í
nótt gullverðlaunin í einliðaleik
karla í tennis.
Ekki hefur verið keppt í tennis á
ólympíuleikum síðan árið 1924 og
Mecir er því fyrsti tennisleikarinn
sem vinnur gullverðlaun í tennis á
ólympíuleikum í 64 ár. Mecir lék
gegn Bandaríkjamanninum Tim
Mayotte og sigraði 3-6, 6-2, 6-4 og
6-2. Mecir hlaut því gullverðlaunin,
Mayotte silfrið og þeir Stefan Edberg
frá Svíþjóð og Brad Gilbert frá
Bandaríkjunum deildu bronsverö-
laununum. Þess má geta að úrshta-
leikurinn í einliðaleiknum í nótt tók
tvær klukkustundir og þrjátíu og níu
mínútur.
-SK
Tennis - tvíliöaleikur kvenna:
Pam og Zina unnu
Bandarísku stúlkurnar Pam
Shriver og Zina Garrison urðu í
nótt sigurvegarar í tvíhðaleik
kvenna á ólympíuleikunum. Þær
sigruöu 'Helenu Sukovu og Jönu
Novotna frá Tékkóslóvakíu í
hörkuleik, 4-6, 6-2 og 10-8. Þær
bandarísku era í efsta sæti á heims-
listanum en tékknesku stúlkurnar
í þriðja sæti og þvi kom sigur þeirra
Pam Shriver og Zinu Garrison ekki
svo rajög á óvart.