Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Qupperneq 6
34
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Regnboginn
Örlög og
Það er ekki oft sem nýjar fransk-
ar kvikmyndir rata í kvikmynda-
húsin hér á landi. Örlög og ástríður
(Les nouveaux tricheurs) er samt
ein slík og fjallar hún um unglinga
á aldrinum 16 til 19 ára.
Tekið er á vandamálum þeirra
af raunsæi. Myndin er spennandi,
enda lifa unglingarnir sem íjallað
er um hratt og myndin þakin
ástríður
augnablikum sem aðeins hinir
ungu geta notið eða tárast yfir. í lok
myndarinnar eru unglingarnir lífs-
reyndari en í byrjun og sum þeirra
tilbúinn að takast á við alvöru lífs-
ins.
Leikstjóri er Mickael Schcok og
eru aðalhlutverkin í höndum Va-
lerie Allain, Remi Martin, og Sop-
hie Malher.
Shakedown fjallar um spillingu innan lögreglunnar í New York.
Uppgjörið (Shakedown) er byggð
á sönnum atburðum og fjallar um
tvo menn, lögfræðing og lögreglu-
mann. sem l'enda í vef morða og
spillingar. Peter Weller leikur lög-
fræöinginn Roland Dalton og Sam
Elliott leikur lögreglumanninn
Ritchie Marks. Saman reyna þeir
að leysa mál þar sem koma við sögu
eiturlyfjasali og lögreglumaður.
Atburðirnir sem myndin er
byggð á eru á þann veg að eitur-
Laugarásbíó
Uppgjörið
lyfjasali er tekinn fyrir að drepa
lögreglumann. Eiturlyíjasalinn
sagði að það hefði verið í sjálfs-
vörn. Lögreglumaðurinn hefði
reynt að ræna sig og hótað að drepa
léti hann ekki peninga af hendi.
Þegar farið var að grafast fyrir
um málið kom ýmislegt í ljós um
aðfarir lögreglu sem ekki þótti
bæta orðspor hennar. Weller leikur
lögfræðing eiturlyflasalans og Elli-
ott lögreglumann sem vill að sann-
leikurinn komi í ljós.
Peter Weller og Sam Elliott eru
báðir þekktir spennumyndaleikar-
ar. Weller varð frægur fyrir leik
sinn í titilhlutverkinu í Robocop
og Sam Elliott á að baki langan fer-
il í stórkarlahlutverkum. Leikstjóri
er James Clickenhaus sem á að
baki nokkrar spennumyndir.
-HK
Unglingar eru viðfangsefni frönsku myndarinnar Örlög og ástríður.
Hvaö bjóða kvikmyndahúsin upp á um helgina?
Háskólabíó
HÚNÁVONÁBARNI
Hún á von á bami (She’s Having a Baby) er nýjasta kvikmynd
Johns Hughes en hann hefur náð ótrúlegum árangri í gerð kvik-
mynda sem beint er til ungu kynslóðarinnar. Hann leikstýrir,
framleiðir og skrifar handrit sjálfur. Kevin Bacon, sem áhorf-
endur ættu að muna eftir úr Footloose, leikur ungan mann sem
er dauðhræddur við hjónabandið og ábyrgðina sem því fylgir.
Hann leggur þó í hjónabandiö enda hrifinn af unnustu sinni.
Að sjálfsögðu, eins og í sannri gamanmynd, gengur hann í gegn-
um allar sínar martraðir.
Bíóhöllin
ÖKUSKÍRTEINIÐ
í annað skiptið á stuttum tíma leika táningarnir Corey Haim
og Corey Feldman saman í kvikmynd. í fyrra var þaö Lost Bo-
ys. Nú er það Ökuskírteinið (Licence to Drive). Þeir leika tvo
létta stráka sem þrá það eitt af fá ökuskírteini svo að þeir geti
húkkað stelpur. Þeir hafa sérstaklega eina stúlku í huga - ríka
stúlku sem lítur ekki við strákum nema þeir eigi bíl. Þetta er
létt gamanmynd sem aðallega er fyrir unglingana.
GÓÐAN DAGINN, VÍETNAM
Robin Wilhams hefur ekki verið heppinn með kvikmyndir hing-
að til. Enginn efast um mikla hæfileika hans sem gamanleikara
en hann hefur verið frekar óheppinn með val á verkefnum þang-
að til nú. í Góðan daginn, Víetnam slær hann í gegn svo um
munar í hlutverki útvarpsmannsins Adrians Cronauer sem
hefur ofan af fyrir hermönnum í Víetnam þegar stríðið stendur
sem hæst árið 1965.-
AÐ DUGA EÐA DREPAST
Að duga eða drepast (Stand and Deliver) er byggð á raunveruleg-
um atburðum þegar Jamie Escalante stærðfræðikennara tókst
þaö sem aðeins sést í kvikmyndum, að útskrifa með sæmd fyrir-
fram vonlausa nemendur í lélegum skóla. Skólinn var þekktur
fyrir eiturlyfjanotkun og afbrot og þótti afrek kennarans slíkt
að leikstjórinn, Ramon Menendez, ákvað að gera kvikmynd um
atburð þennan.
FOXTROT
- sjá Bíóborgin
BEETLEJUICE
Michael Keaton leikur aðalhlutverkið í þessari makalausu grín-
mynd sem flallar að mestu um drauga, góða sem vonda, og við-
skipti þeirra við lifandi fólk. Titilpersónan, Beetlejuice, er feng-
in til að fæla fólk úr húsi sem ung, nýlátin hjón tileinka sér.
UNDRAHUNDURINN BENJI
Myndimar um hundinn Benji voru mjög vinsælar fyrir nokkr-
um árum. Nú hefur verið tekinn upp þráðurinn í The Hunted
en svo nefnist myndin á frummáhnu. Það sem er ólíkt með
nýju myndinni og þeim eldri er að Benji fær mun meira að njóta
sín hér. Áður voru leikarar með stærri hlutverk. Ljúf kvikmynd
fyrir yngstu kynslóðina.
Bíóborgin
D.O.A.
Dimma óveðursnótt staulast maður inn á lögreglustöð og segir
varðstjóranum að hann ætli að tilkynna morð. Þegar varðstjór-
inn spyr hver hafi verið myrtur svarar háskólaprófessorinn
Cornell (Dennis Quaid): „Ég.“ Þetta er upphafiö að spennandi
sakamálamynd sem er endurgerð eldri myndar. Söguþráðurinn
er skemmthegur og leikur góður.
FOXTROT
Þá hefur fyrsta íslenska kvikmyndin á þessu ári verið frum-
sýnd. Er það spennumyndin Foxtrot sem lengi hefur verið beð-
ið eftir. Myndin fjallar um tvo bræður sem taka að sér að fara
með peningasendingu úr Reykjavík norður í land. Ekki gengur
sú ferð átakalaust. Lenda þeir bræður í miklum raunum sem
enda með harmleik. Foxtrot er ágæt afþreyingarmynd, atburða-
rásin hröð og spennandi. Leikstjóri er Jón Tryggvason. Kvik-
myndatöku annaðist Karl Óskarsson. í aðalhlutverkum eru
Valdimar Örn Flygenring, Steinarr Ólafsson og María Ellingsen.
ÖRVÆNTING
Eftir hina misheppnuðu sjóræningjamynd sína, Pirates, er Ro-
man Polanski kominn á góða ferð í nýjustu kvikmynd sinni,
Örvæntingu (Frantic), sem er hörkuspennandi og dularfull saka-
málamynd er gerist í París. Harrison Ford leikur Richard Walk-
er, bandarískan lækni sem verður fyrir óvæntri lífsreynslu þeg-
ar hann er í París ásamt eiginkonu sinni. Á óskhjanlegan hátt
hverfur hún. Örvæntingarfull leit hans leiðir hann inn í undir-
heima Parísar þar sem hann hittir unga og fagra stúlku sem
kann að vera lykillinn að hvarfi eiginkonu hans. Örvænting
bætist við þann hóp mynda Polanskis sem teljast með hans betri.
RAMBO III
Sylvester Stahone fer í þriðju myndinni um fyrrverandi Víet-
namhermanninn John Rambo til Afganistan í leit að yfirmanni
sínum og vini sem Rússar hafa tekið höndum. Eins og við er
að búast lendir Rambo í miklum og blóðugum átökum. Rambo
III, sem er ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið, svíkur
engan sem á annað borð vill hafa spennumyndirnar dálítið
krassandi.
Laugarásbíó
UPPGJÖRIÐ
- sjá umsögn annars staðar á síðunni
ÞJÁLFUN í BILOXI
Þjálfun í Biloxi (Bhoxi Blues) er nýjasta kvikmynd hins þekkta
leikstjóra, Mikes Nichols. Biloxi Blues er gerð eftir leikriti Nehs
Simon og byggist að hluta til á atburðum í lífi hans. Fjallar
myndin um Eugene Jerome (Matthew Broderick) sem býr í
Brooklyn og gerist myndin árið 1943. Lýsir hún á gamansaman
hátt þjálfun hans í herskóla og ævintýrum sem hann og félagar
hans lenda í.
VITNI AÐ MORÐI
Aöalsöguhetjan í Vitni að morði (Lady in White) er ungur dreng-
ur sem Lucas Haas leikur. Hann hefur gaman af að segja drauga-
sögur og hræða bekkjarfélaga sína sem mest. Einnig tekst hon-
um að hræða kennarana. Gamanið gránar þegar hann lokast
inni á öskudaginn. Þá fær hann að kynnast því sjálfur hvað það
er að vera hræddur.
Regnboginn
UPPGJÖRID
- sjá umsögn annars staðar á síðunni.
MARTRÖÐ Á HÁALOFTINU
Þegar eiginmaður Corrine (Victoriu Tennant) deyr snögglega
flyst hún heim til foreldra sinna með börnin sín fjögur. Faðir
hennar, sem afneitaði henni þegar hún giftist, er ríkur en mis-
kunnarlaus. Hún verður því að fela börnin fyrir honum, annars
missir hún af arfmum. Börnin eru lokuð inni í herbergi og
amma þeirra gætir þeirra ásamt brytanum. Húsið er stórt og
börnin þola illa inniveruna. Þau komast að því að ekki er allt
sem sýnist.
SÉR GREFUR GRÖF...
Sér grefur gröf... (Backfire) er sakamálamynd þar sem þijár
persónur, tveir karlmenn og ein kona, leika sér að eldinum:
eiginmaður í hjólastól, ótrú eiginkona sem ekki þolir eiginmann
sinn og elskhugi eiginkonunnar sem er tlækingur í leit að auðæf-
um. Peningarnir eru fyrir hendi en til aö nálgast þá verður að
drepa.
Á FERÐ OG FLUGI
Á ferð og flugi (Planes, Trains and Automobiles) er nýjasta
kvikmynd Steve Martin. Leikur hann hrakfallabálkinn Neal
Page sem er á heimleið frá New York til Chicago. Hann lendir
í ýmsum spaugilegum uppákomum á leiðinni. Sæti hans í flug-
vélinni er tekið af honum og hann lendir við hhðina á manni
sem hafði fyrr um daginn náð af honum leigubíl. Eiga þeir í
útistöðum hvor við annan lengur en þann tíma sem ferðin tekur.
LEIÐSÖGUMAÐURINN
Þessi norska kvikmynd, sem gerist á Samaslóðum í Norður-
Noregi, hefur hvarvetna hlotið einróma lof og var tilnefnd til
óskarsverðlauna. Ekki skemmir það að einn aðalleikarinn er
Helgi Skúlason. Það verður enginn, sem ann góðum kvikmynd-
um, svikinn af Leiðsögumanninum.
KLÍKURNAR
í Klíkunum sýnir Dennis Hooper að hann hefur engu gleymt.
Myndin fjallar um götuflokka sem sýna enga miskunn og tvo
lögregluþjóna sem reyna að koma á lögum og reglu á götunum.
Hooper hefur að vísu verið gagnrýndur fyrir að gera þessum
óaldarflokkum of hátt undir höfði og þar með kynda undir bar-
dögum á götum borgarinnar. Satt er það að nokkur ólæti brut-
ust út þegar myndin var frumsýnd í stærstu borgum vestan-
hafs. Þrátt fyrir þetta þykir Dennis Hooper hafa gert kröftuga
spennumynd sem flestir gagnrýnendur hafa hælt.
KRÓKÓDÍLA-DUNDEE II
Paul Hogan er kominn aftur í hlutverki Michaels Dundee, öðru
nafni Krókódíla-Dundee. Þessi sjarmerandi hetja, sem heillaði
alla í fyrra, lendir í nýjum ævintýrum þar sem hann þarf að
hverfa aftur á heimaslóðir i Ástralíu. Linda Kozlowski leikur
sama hlutverk og áður og leikstjóri er sá sami, John Cornell.
Hinn létti húmor og ævintýrablærinn, sem einkenndu fyrri
myndina, eru hér. Sem sagt, góð skemmtun.
Þá má geta þess að aílar helgar er gott úrval bamamynda í
Regnboganum.
Stjörnubíó
SKÓLADAGAR
Nú eru skólarnir að byija og því er ekki úr vegi fyrir væntan-
lega nemendur að kynnast háskólalífi í Bandaríkjunum eins og
Hollywood heldur að það sé. Skóladagar er gamanmynd um
erjur og ástir í háskóla. Eins og í flestum sams konar myndum
er mikið lagt upp úr tónlist. Leikarar eru nær óþekktir enda
ungir að árum.
SJÖUNDA INNSIGLIÐ
í Sjöunda innsiglinu (The Seventh Sign) leikur Demi Moore
Abby Quinn, ófríska konu sem veit að hörmungar, sem dynja
yfir mannsbyggðina, tengjast henni að einhverju leyti. Dauða
fiska rekur á land við strönd Haiti, ísraelskt smáþorp leggst í
eyði vegna frosthörku og árvatn í Nicargua verður að blóði...
Hvernig það tengist henni veit hún ekki en það ætti að koma í
ljós í lokin.
VON OG VEGSEMD
í Von og vegsemd (Hope and Glory), sem var ein fimm mynda
sem tilnefndar voru í vor til óskarsverðlauna sem besta mynd-
in, segir leikstjórinn, John Boorman, frá æskudögum sínum í
stríðshrjáðu landi. Þykir honum hafa tekist vel að lýsa mann-
legu hliðinni á stríðinu. Myndin fjallar um Bill Rohan, níu ára
dreng, sem sá heimsstyijöldina öðrum augum en flestir aðrir.
Honum fannst nefnilega skemmtilegt að lifa á stríðstímum.
Skólinn var lokaður. Á nóttunni lýstu flugeldar upp himininn.
Hann þurfti sjaldan að fara snemma að sofa og í raun hafði
enginn tíma til að ala hann upp.