Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Síða 2
38 LAUGARD^AGUR 8. OKTÓBER 1988. wm KRAKKAR! NAFN: Margrét Magnúsdóttir HEIMILI: Hjarðarslóö 2 E, 620 Dalvík FÆDD: 30. júlí 1977 SKÓLI: Dalvíkurskóli ÁHUGAMÁL: Fimleikar, frjálsar íþróttir og fleira ÓSKAPRINS: Hann er dökkhærður með brún augu og mjög sætur BESTU SÖNGVARAR: Michael Jackson, Madonna og Whitney Houston SYSTKINI: Linda Rós og Gunnar Már BESTI MATUR OG DRYKKUR: Hamborgarar, franskar kartöflur, ávextir, kók og pilsner NAFN: Elín Sveinsdóttir HEIMILI: Tjarnarlönd 13, Egilsstöðum BESTA HLJÓMSVEIT: A-ha og Model BESTU VINKONUR: Arnrún Þórey og Sóley BESTI MATUR OG DRYKKUR: Hrísgrjónagrautur, sam- lokur, grape og hreinn appelsínusafi ÁHUGAMÁL: Fimleikar, dans, frjálsar íþróttir og fleira Fjársjóðurinn Hvora leiðina á Bjössi að velja til að finna fjársjóðinn? Er það leið nr. 1 eða nr. 2? Sendið svar til: BARNA-DV. Halló krakkar! Að gefnu tilefni skal það enn tekið fram að PÓSTLEGGJA verður efni til BARNA-DV strax á MÁNUDEGINUM. Margar skemmtilegar sögur og vel unn- ar lausnir á þrautum berast oft allt að viku of seint. Sé ég iðulega á póststimpl- unum að bréfin hafa ekki verið póstlögð fyrr en á fimmtudegi eða jafnvel fóstu- degi. Sem dæmi má nefna um prýðisgóð bréf sem bárust of seint í síðasta blað. Þau voru frá eftirtöldum: Hönnu Jónsdóttur, Jaðri, 781 Suður- sveit. Karli Ferdinandssyni, Heiðarvegi 16, 730 Reyðarfirði. Nínu Björg, Hjallavegi 23, Súgandafirði. Bergdísi Örlygsdóttur, Borgarási 10, Garðabæ. Fríðu Birnu Þráinsdóttur, Smára- grund 5, Laugarbakka. Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur, Dæli, Víðidal, V-Húnavatnssýslu. Lovísu Gylfadóttur, Réttarholti II, Grýtubakkahreppi, 601 Akureyri. Mörtu Sigurðardóttur, Hofi, Öræfum, 785 Fagurhólsmýri. MIG DREYMDI... Halló BARNA-DV! Ég sendi bréf til BARNA- DV sem birtist í 32. tölu- blaði og þar spurði ég hvort þið gætuð lesið úr skriftinni minni. Þið gerðuð það og sögðuð að ég væri 11 eða 12 ára. Ég er bara 8 ára! Ég vissi ekki að ég skrifaði svona vel! En nú ætla ég að biðja ykkur um að ráða draum. Mig dreymir yfirleitt ekkert en einu sinni dreymdi mig stutt- an og skrýtinn draum: - Kári bróðir minn (við erum tví- burar) sat í einum sófa (það eru tveir í stofunni) en ég stóð á gólfinu og æpti á hann: „Hvers vegna gerðir þú þetta?“ Hann sat bara í sófanum og lét sem ég væri ekki þarna. Ég vona að þetta birtist fljótt. Halldór Svansson, 8 ára, Leirubakka 24, Reykjavík. Kæri Halldór! Okkur hefur heldur betur orðið á í messunni með aldur þinn! Þú skrifar bara svona vel! En drauminn ráðum við á þann veg að Kári verði ásakaður fyrir eitthvað sem hann hefur jafnvel EKKI gert. Hann mun eiga í nokkrum erfiöleikum með að sanna sakleysi sitt en tekst það að lokum. Þar sem hann situr rólegur í sófanum bendir allt til þess að allt fari vel. B.B.B! (Þetta er skammstöfun fyrir BESTA BARNABLAÐ!) Ég ætla að segja frá draumi sem mig dreymdi fyrir nokkru. Það var þannig að ég var að ganga úti og fór síð- an inn í hús sem var fullt af kaktusblómum. Það var karl þarna inni með alskegg. Skeggið var svart og sítt og hann sagði mér að koma og hann ætlaði kannski að gefa mér hest. Karlinn var blindur. - Svo vaknaði ég og sá að ég var hálfgul í framan. Freyja Guðrún Andrésdóttir Kæra Freyja! Á næstunni munt þú verða fyrir einhverjum óvæntum glaðningi. Þú munt vinna í happdrætti eða fá góða gjöf. En þessi gjöf eða vinningur verður til þess að einhver sem þú þ.ekkir verður öfundsjúkur. Hann/hún mun ekki þola þessa velgengni þína og gerir þér lífið leitt. Þú skalt ekki láta það spilla gleði þinni - því kunningi þinn mun kom- ast yfir afbrýðisemina!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.