Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1988, Page 3
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988.
19
Dansstaðir
Abracadabra,
Laugavegi
Bigfoot sér um tónlistina um helgina.
Amadeus, Þórscafé,
Brautarholti, simi 23333
Látúnsbarkamir, Amar Freyr og
Bjami Ara, stíga á stokk ásamt Bún-
ingunum um helgina. Benson á neðri
hæðinni.
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Bíókjaflarinn,
Lækjargötu 2, simi 11340
Diskótek um helgina.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavik, sími 77500
Diskótek fóstudagskvöld, Greifarnir
leika fyrir dansi á laugardagskvöld.
Casablanca,
Skúlagötu 30
„Hip-hop house acid“ danstónlist
fóstudags- og laugardagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Glæsibær,
Alfheimum
Hljómsveitin í gegnum tíðina leikur
gömlu og nýju dansana fóstudags- og
laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
Ball fóstudags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, sími
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar
öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland
í kvöld og á laugardagskvöld verður
skemmtunin Rokkskór og bítlahár,
svipmyndir úr sögu rokksins á árun-
um 1955-1970.
Hótel Saga,
Súlnasalur,
v/Hagatorg, Reykjavik, sími 20221
25 ára afmæhshátíð á Hótel Sögu á
laugardagskvöld. Vinsælustu söngv-
arar frá þessum tima. André Bach-
mann leikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld á Mimisbar.
Rétt hjá Nonna
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Tunglið,
Lækjargötu 2, sími 621625
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Vetrarbrautin,
Brautarholti 20, sími 29098
Hljómsveitin Boogie spilar um helg-
ina.
ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Zeppelin
„rokkklúbburinn“,
Borgartúni 32
Royal Rock, ný húshljómsveit, leikur
fyrir dansi um helgina.
Q,
Borgartúni 32
Diskótek á fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Kvennakabarett
á Hótel íslandi
Kvennakabarett verður á Hótel
íslandi á sunnudaginn og hefst
hann kl. 14. Þar munu konumar,
sem fóru á Norræna kvennaþingið
með ýmiss konar skemmtiatriði,
endurtaka þau og gefst þá þeim sem
ekki komust til Oslóar kostur á að
upplifa eitthvaö af stemningunni
sem þar var.
Að lokinni setningu og ávarpi
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra hefst kabarettinn
með ballettinum Skapanomir eftir
Auði Bjamadóttur, við tónhst Mist-
ar Þorkelsdóttur. Systumar Helga
og Elísabet Brekkan flytja leikþátt
sem þær sömdu fyrir Oslóarferðina
og nefnist Tante Norden og Flora
Danica. Hópur kvenna úr BSRB
flytur fjörugan söngleik um vinnu-
tíma og vinnuskilyrði fjögurra
kynslóða íslenskra kvenna. Dag-
skrá í samantekt og undir stjóm
Ásdísar Skúladóttur nefnist Und-
arlega ósköp að vera kona. Flytj-
endur með henni em Sigurður
Karlsson og Hanna María Karls-
dóttir. Lokaatriði verða tveir leik-
þættir leikhópsins Perlunnar en í
honum em þroskaheft ungmenni
úr Brautarskóla ríkisins.
Kabarettinn verður öllum opiunn
og em konur hvattar til að taka
með sér fjölskyldu og vini. Að-
gangseyrir er kr. 500 fyrir fullorðna
en ókeypis fyrir börn. í verðinu er
innifahð kaffi og meðlæti.
1 ™
Islenskar konur fjölmenntu á kvennaþingið i Osló.
Finnskur matur verður boðinn á Holiday Inn á finnskri viku.
Finnsk vika:
Fyrst og fremst finnskt
í dag hefst fmnsk vika hérlendis
og stendur hún til 29. október.
Verður lögð áhersla á finnskar
vörukynningar og víða verða
finnskar vömr á kynningarverði.
Aðallega verður kynntur fatnaður,
borðbúnaður, pappírs- og trévörur,
gler- og leirvörur, húsgögn og hst-
munir. Finnskar snyrtivömr verða
einnig kynntar en á sviði lyfja- og
snyrtivömgerðar standa Finnar
framarlega.
Finnska vikan verður formlega
sett af Jóni Sigurðssyni, viðskipta-
og iðnaðarráðherra, á Holiday Inn
í dag, en á Holiday Inn verður mið-
depill finnsku vikunnar. Þar verð-
ur vörusýning, ferðakynning og á
boðstólum verður finnskur matur.
Finnska ferðamálaráöuneytið, sem
hefur aðsetur í Kaupmannahöfn,
stendur fyrir kynningunni í sam-
vinnu við Flugleiði.
Finnski trúbatorinn Hákon
Streng mun skemmta á Holiday
Inn 21.-23. október. Hann er miög
vinsæll skemmtikraftur í heima-
landi sínu og er nýkominn úr tón-
leikaferð til Japan. Með honum
skemmtir 9 ára gamah sonur hans.
Leikfélag Mosfellsbæjar:
Dagbókin hans Dadda
Leikfélag Mosfehsbæjar mun í
kvöld hefja sýningar að nýju á
Dagbókinni hans Dadda. Þar sem
stór hópur leikara er skólafólk
þurfti að hætta sýningum í vor
vegna prófa.
Framhaldsþættir, sem sýndir
voru í sjónvarpinu fyrir fáum
árum, eru byggðir á verki þessu.
Eins og þeir sem fylgdust með sjón-
varpsþáttunum vita er Daddi eng-
inn venjulegur unglingur, en ungl-
ingur þó með mörg vandamál sem
fylgja aldrinum. Hann kýs heldur
að sinna andlegum vandamálum
en að stússast í veraldlegum hlut-
um. Þar að auki er hann ljóngáfað-
ur, sem getur verið félagslega erfitt
á þessum aldri.
Leikritiö hefur verið staðfært og
það gerði Guðný Hahdórsdóttir.
Leikstjórar eru Svanhhdur Jó-
hannesdóttir og Soffia Jakobsdótt-
ir. Sýningar hefjast í kvöld kl. 21.30
og er næsta sýning á sunnudag kl.
21.00. Sýnt verður í Hlégarði og
sitja gestir við dúkuö borð og geta
notið veitinga meðan á sýningu
stendur.
Daddi er enginn venjulegur ungl-
ingur.
Hótel ísland:
Stjómin leikur
fyrir dansi
Hótel ísland hefur haft sem hús-
hljómsveit frá 1. september nýja
hljómsveit sem nefnir sig Stjórn-
ina. Leikur hún íslenska og erlenda
stuðmúsík fyrir gesti staðarins og
leggur áherslu á fjölbreytni.
• Stjómina skipa Alda Olafsdóttir,
sem hóf söngferil sinn í Svíþjóð,
Einar Bragi Bragason, er leikur á
saxófón, Eiður Arnarsson, sem
leikur á bassa, Grétar Örvarsson,
sem sér um hljómborð og er hljóm-
sveitarstjóri, Jón Elvar Hafsteins-
son, sem leikur á gítar, og Matthias
Hemstock sem leikur á trommur.
Stjórnin leikur fyrir dansi á Hótel íslandi.
íslenskur tónlistardagur
Tónhstarbandalag íslands stend-
ur fyrir íslenskum tónhstardegi á
laugardaginn og er þetta í annað
sinn sem shkur dagur er haldinn.
Að þessu sinni verður tónhstardag-
urinn helgaður byggingu tónhstar-
húss og verður skrifstofa Samtaka
um byggingu tónlistarhúss að
Garðastræti 17 opin þennan dag.
Þeir sem vilja skrá sig í samtökin
geta gert það frá kl. 10-17. Á sama
tíma verður tekið við styrktar-
framlögum á skrifstofunni.
íslensk tónhst verður ahsráðandi
á öhum útvarpsstöðvunum og ungt
tónhstarfólk leikur á tónleikum í
beinni útsendingu. Á rás 1 verða
tónleikar nemenda tónhstarskól-
anna í Reykjavík frá kl. 14-16 og
kl. 16 hefjast tónleikar nemenda
tónhstarskóla FÍH á rás 2. Útvarp
Rót verður með maraþontónleika
íslenskra bhskúrsbanda.
Homaflokkur Kópavogs leikur í
Kringlunni kl. 14 og kl. 16.30 hefj-
ast hátíöartónleikar í íslensku
óperunni og eru þeir nánar kynntir
á næstu síðu. Ennfremur gefur
Félag tónskálda og textahöfunda
út nýja bók í thefni dagsins og hef-
ur hún að geyma 25 vinsæl íslensk
dægurlög frá síðasta ári.