Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1988, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988.
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988.
29
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastdæmi sunnudag 23.
okt.1988
Kirkjuþing hefst með guösþjónustu
í Bústaðakirkju, þriðjudaginn 25.
október kl. 14. Gunnlaugur Finnsson
kirkjuþingsmaður flytur stólræð-
una. Altarisþjónustu annast vígslu-
biskuparnir sr. Ólafur Skúlason og
sr. Siguröur Guðmundsson.
Árbæjarkirkja. Barnasamkoma í Folda-
skóla í Grafarvogshverfi, laugardag kl.
11 árdegis. Barnasamkoma í Árbæjar-
kirkju sunnudag kl. 10.30 árdegis. Guðs-
þjónusta í Árbæjarkrikju kl. 14. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Áskirkja. Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ámi Bergur Sig-
urbjömsson.
Borgarspítalinn. Guðsþjónusta kl. 10. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson.
Breiðholtskirkja. Barnaguðsþjónusta
kl. 11 í kjallarasal. Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Svanhildur Sveinbjömsdóttir
syngur einsöng. Organisti Sigríður Jóns-
dóttir. Ath. breyttan messutíma. Þriðju-
dag: Bænaguðsþjónusta kl. 18.15. Sr. Gísli
Jónasson.
Bústaðakirkja. Barnasamkoma kl. 11.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Guöni Þ. Guðmundsson.
Miðvikudag: Félagsstarf. aldraðra kl.
13-17. Æskulýðsfélagsfundur miöviku-
dagskvöld. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall. Bamasamkoma í
safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Vænst er þátttöku fermingarbama og
foreldra þeirra. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
Dómkirkjan. Laugardag: Bamasam-
koma í kirkjunni kl. 10.30. Öll börn vel-
komin. Egill og Ólafia. Sunnudag: Messa
kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa
kl. 14. Sr. Láras HaUdórsson. Dómkórinn
syngur við báðar messumar. Organleik-
ari Marteinn H. Friðriksson.
EUiheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Anders Josephsson.
FeUa- og Hólakirkja. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverris-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir. Prestur
sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Mánu-
dag: Fundur í æskulýðsfélaginu kl. 20.30.
Þriðjudag: Samvera fyrir 12 ára böm kl.
17. Miðvikudag: Guðsþjónusta og altaris-
ganga kl. 20.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bamaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Almenn guðsþjónusta kl.
14.00. OrgeUeikari: Pavel Smid. Sr. CecU
Haraldsson.
Grensáskirkja. Laugardagur: Bibhulest-
ur kl. 10. Sr. Halldór S. Gröndai. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma kl. 11. Hátíðar-
guðsþjónusta og orgelvígsla kl. 14. Organ-
istinn Ami Arinbjamarson leikur nokk-
ur orgelverk í guðsþjónustunni. Mánu-
dag: Orgeltónleikar kl. 20.30. Árni Arin-
bjamarson leikur á hið nýja orgel kirkj-
unnar verk eftir ýmsa hföunda. Miðviku-
dag: Hádegisverðarfundur sóknarfólks
70 ára og eldra kl. 11 f.h. Framsöguerindi
- umræður, léttur hádegisverður í boöi
sóknarinnar. Föstudag: Æskulýðshópur
Grensáskirkja kl. 17, 10-12 ára böm.
Laugardag: Bibliulestur kl. 10 á vegum
UFMH. Prestamir.
Hallgrímskirkja. Laugardag: Samvera
fermingarbama kl. 10. Sunnudag: Bama-
samkoma og messa kl. 11. Sr. Jón Bjar-
man. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Fimmtudag:
Hátíðarmessa á 314. ártíð sr. Hallgríms
Péturssonar kl. 20.30. Norski óbóleikar-
inn Brynjar Hoff og Ann Toril Lindstad
leika saman á óbó og orgel.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Sigurður
Pálsson.
Háteigskirkja. Morgunmessa kl. 10.
Bamaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Arngrímur
Jónsson. Messa kl. 14. Ferming. Fermdar
verða: Hjömý Snorradóttir, Þverási 55
og Margrét Berta Valsdóttir, Bollagötu
6. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir og
fyrirbænir em í kirkjunni á miðvikudög-
um kl. 18. Sóknarprestar.
Hjallaprestakall í Kópavogi. Bamasam-
koma kl. 11 í messuheimili Hjallasóknar,
Digranesskóla. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Kór Hjallasóknar syngur. Organisti
Solveig Einarsdóttir. Sóknarprestur.
Kárnesprestakall. Bamasamkoma í
safnaöarheimilinu Borgum kl. 11. Um-
Alþýðuleikhúsið:
Koss kóngulóarkonunnar
tekinn var fastur fyrir tæpum
þremur árum og bíður dóms. Þegar
leikritiö hefst hafa fangamir deilt
saman klefa í mjög skamman tíma.
Molina drepur tímann meö því
að segja Valentín frá bíómyndum
sem honum hafa fundist faUegar.
Valentín er pólitískur fangi sem
hefur orðið að þola pyntingar og á
þær stöðugt yfir höfði sér.
Höfundurinn, Manuel Puig, er
talinn í fremstu röð suöuramerí-
skra skálda. Eins og aðrir þekktir
höfundar frá sömu heimsálfu legg-
ur hann megináherslu á samskipti
fólks og sambönd í því umhverfi
sem það lifir og hrærist í.
Kvikmynd eftir Kossi kóngulóar-
konunnar hefur hlotið mikið lof og
fékk aðalleikarinn, William Hurt,
óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á
Molina. Leikstjóri sýningarinnar
hjá Alþýðuleikhúsinu er Sigrún
Valbergsdóttir. Ámi Pétur Guð-
jónsson leikur Molina og Guð-
mundur Ólafsson Valentin.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir í
Hlaðvarpanum á sunnudagskvöld
kl. 20.30 Koss kóngulóarkonunnar
eftir Manuel Puig.
Koss kóngulóarkonunnar gerist í
fangaklefa í Buenos Aires. Þar eru
saman í klefa Luis Alberto Molina,
sem setiö hefur inni í tæpt ár,
dæmdur fyrir að „afvegaleiða ungl-
inga“, og Valentin Arregui Paz sem
Valentin (Guðmundur Ólafsson) og Molina (Árni Pétur Guðjónsson)
deila saman fangaklefa í Buenos Aires.
Gallerí Svart á hvítu:
Högg-
myndir
unnar í
steinsteypu
Rósa Gísladóttir opnar á morgun
kl. 14 í Gallerí Svart á hvítu sýn-
ingu á höggmyndum, unnum í
steinsteypu.
Rósa hélt sína fyrstu einkasýn-
ingu á Kjarvalsstöðum 1984. Að
loknu námi við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands var hún við nám
í Akademie der Bildende Kunste í
Múnchen. Þar lagði hún stund á
höggmyndalist undir leiösögn Edu-
ardos Paolozzi.
Verk Rósu hafa verið á samsýn-
ingum á íslandi og erlendis. Af er-
lendum samsýningum má nefna
Kunst im DEC-park, 1984, Muc-
samok í Búdapest, 1987, og Big
scale í Malmö 1988.
Sýning Rósu Gísladóttur er opin
aUa daga nema mánudaga frá kl.
14-18. Síðasti sýningardagur er 6.
nóvember.
Rósa Gísladóttir við eitt verka sinna.
Brynjar Gauti
Rögnvaldur Sigurjónsson við nýja Steinway konsertflygilinn.
DV-mynd KAE
fslenska óperan:
Hátíðartónleikar
Á morgun verða hátíðartónleikar í ís-
lensku óperunni. Er það einn liður í íslensk-
um tónlistardegi sem veröur á morgun. Á
tónleikunum verður vígður nýr konsertf-
lygill sem Styrktarfélag íslensku óperunnar
og Tónlistarfélagið hafa sameinast um kaup
á.
Á tónleikunum leika flestir helstu píanó-
einleikarar landsins endurgjaldslaust og
verður ágóðanum varið til flygilskaupanna.
Píanóleikarar eru mjög ánægðir og til marks
um þetta má nefna að Rögnvaldur Siguijóns-
son kemur nú fram á tónleikum eftir margra
ára hlé og Halldór Halldórsson leikur þótt
handleggsbrotinn sé. Rögnvaldur veröur
fyrstur til þess að leika opinberlega á nýja
hljóðfærið en á eftir honum leika Guðríður
Siguröardóttir, Selma Guðmundsdóttir, Guð-
mundur Magnússon, Öm Magnússon, Halld-
ór Halldórsson, Gísli Magnússon, Jónas Ingi-
mundárson, Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
Brynja Guttormsdóttir, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Snorri Sigfús Birgisson og Lára
Rafnsdóttir.
listasafn ASÍ:
Veiðarfæri í fLmmtíu ár
Á þessu ári eru 50 ár frá stofnun Nótar,
félags netagerðarmanna, og 60 ár síðan neta-
gerð varð löggilt iðngrein. Af þessu tilefni
efnir Nót til afmælissýningar í Listasafni
ASÍ.
Sýningin er tvíþætt. Annars vegar er rakin
saga félagsins en réttinda- og kjarabarátta
skipa þar drjúgan sess. Hins vegar sýnir fé-
lagið ýmiss konar veiðarfæri nútímans,
áhöld og vinnubrögð til þess að kynna þá
þróun sem hefur átt sér staö.
Ennfremur verður á sýningunni ýmislegt
fræðsluefni um iðngreinina og nám í neta-
gerð og geta gestir fengið að spreyta sig á
netahnýtingu.
Sýningin verður opnuð kl. 17.00 á morgun.
Síðan verður hún opin kl. 14.00-20.00 um
helgar og kl. 16.00-20.00 alla virka daga. Sýn-
ingunni lýkur 30. október.
Hafhargallerí:
Sýning á skissum
I Hafnargálleríi stendur nú yfir
sýning á skissum nokkurra félaga
í FAT. Skissumar em hugmyndir
fyrir veturinn 1989-90.
FAT er félag 30 fata- og textíl-
hönnuöa. Það var stofnað 19. júní
1986 og hefur staðið fyrir einni sýn-
ingu félaga sinna í Islensku óper-
unni. Meölimir í FAT em allir með
sérmenntun, annaðhvort fata-
hönnuðir eða textíllistamenn úr
hinum ýmsu skólum hér heima eða
í útlöndum.
Sýningin í Hafnargalleríi, sem er
fyrir ofan Bókaverslun Snæbjam-
ar í Hafnarstræti, er opin á versl-
unartíma og lýkur henni 28. októb-
er.
Skissur á sýningu félaga í FAT.
Gallerí Borg:
Olíumálverk eftir
Helgu Egilsdóttur
Eitt olíumálverka Helgu Egilsdóttur
á sýningu hennar.
í gær opnaði Helga Egilsdóttir
sýningu á verkum sínum í Gadlerí
Borg. Helga Egilsdóttir er fædd í
Reykjavík 1952. Hún nam viö Ár-
hus kunstakademie 1969-1970,
Akademie for fri og merkantic
kunst í Kaupmannahöfn 1971-1972,
Myndlista- og handíðaskólann
1977-1978 og San Francisco Art
Institude.
Þetta er önnur einkasýning
Helgu. Áður sýndi hún í Hlaðvarp-
anum 1986. Auk þess hefur hún
tekið þátt í íjölda samsýninga í
Bandaríkjunum og hér á landi. Á
sýningu Helgu Egilsdóttur eru ol-
íumálverk. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 10.00-18.00 og um helg-
ar frá kl. 14.00-18.00. Henni lýkur
þriðjudaginn 1. nóvember.
Akranes:
Vatnslita-
myndir
- á Bæjar- og héraðsbókasafninu
Erla Sigurðardóttir opnar sýningu á
verkum sínum í sýningarsal Bæjar- og
héraðsbókasafnsins á Akranesi á morgun
kl. 14.00.
Erla er Kópavogsbúi, fædd á Akranesi.
Hún lauk námi frá Myndlista- og handíöa-
skólanum síðastliðið vor.
Þetta er önnur einkasýning Erlu. Sú
fyrri var á ísafirði í júní en að auki hefur
hún tekið þátt í tveimur samsýningum í
Hamragörðum.
Á sýningunni eru aðallega vatnslita-
myndir og er hún opin virka daga frá kl.
16.00-20.00 og um helgar frá kl. 14.00-
21.00. Henni lýkur 6. nóvember.
Eitt verka Erlu Sigurðardóttur sem hún sýnir á Akranesi.
sjón María Daðadóttir og Vilborg Ólafs-
dóttir. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund barnanna kl. 11.
Söngur - sögur - myndir. Þórhallur
Heimisson, cand. theol og Jón Stefánsson
sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14.
Örganisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Fermingarböm og
foreldrar þeirra em hvattir til að mæta.
Sóknamefndin.
Laugarnesprestakall. Laugardag 22.
okt.: Guðsþjónusta í Hátúni lOb kl. 11.
Sunnudag: Messa kl. 11. Altarisganga.
Bamastarf. Kaffi á könnunni eftir messu.
Orgeltónleikar kl. 17. Ann Toril Lindstad
organisti kirkjunnar leikur verk eftir
ýmsa höfunda. Þetta em styrktartónleik-
ar fyrir Laugarneskirkju. Framlögum til
kirkjunnar verður veitt móttaka við
kirkjudyr eftir tónleikana. Mánudag 24.
okt.: Æskulýðfundur kl. 18. Sóknarprest-
ur.
Neskirkja. Laugardag: Samvemstund
aldraðra kl. 15-17. Spilað bingó. Sunnu-
dag: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Gide-
onfélagið kynnt. Órgel- og kórstjóm
Reynir Jónasson. Sr. Olafur Jóhannsson.
Að lokinni guðsþjónustu flytur dr. Þórir
Kr. Þórðarson prófessor biblíuerindi um
Jónas spámann. Mánudag: Æskulýðs-
fundur fyrir 12 ára börn kl. 18. Æskulýðs-
fundur fyrir 13 ára og eldri kl. 19.30.
Þriöjudag: Æskulýðsfundur fyrir 10-11
ára kl. 17.30. Miðvikudag: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Ólafur Jóhannsson.
Þriðjudag og fimmtudag: Opið hús fyrir
aldraða kl. 13-17.
Seljakirkja. Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson prédikar. Sr. Valgeir Ast-
ráðsson þjónar fyrir altari. Organisti
Kjartan Siguijónsson. Mánudag: Æsku-
lýðsfimdur kl. 20. Seljasókn.
Seltjarnarneskirkja. Bamasamkoma kl.
11. Messa kl. 14. Kaffisopi eftir messu.
Organisti Sighvatur Jónasson. Sr. Guð-
mundur Öm Ragnarsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Bama- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Einar Eyjólfs-
son.
Stokkseyrarkirkja. Bamamessa kl. 11.
Sóknarprestur.
Eyrarbakkakirkja. Messakl. 14. Sóknar-
prestur.
Keflavíkurkirkja. Kirkjudagur eldri
borgara. Guðsþjónusta í sjúkrahúsinu kl.
10.30. Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl.
14. Böðvar Pálsson syngur einsöng.
Systrafélagið býður til kaffidrykkju í
Kirkjulundi eftir messu. Sóknarprestur.
Stuðningsmenn sr. Gunnars. Almenn
guðsþjónusta verður haldin í Háskóla-
kapellunni sunnudaginn 23. október 1988
kl. 14.00. Altarisganga. Ræðuefni: Þegar
hið undursamlega gerist. Sr. Gunnar
Bjömsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Organisti: Jakob Hallgrimsson. Sr.
Gunnar Björnsson.
Sýningar
Árbæjarsafn,
sími 84412
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 10-18.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Lokað um óákveðinn tíma.
Bókakaffi,
Garðastræti 19
Margrét Lóa sýnir í Bókakaffi. Myndim-
ar em flestar urrnar á þessu ári. Sýningin
er opin á venjulegum afgreiðslutíma
kaffihússins frá kl. 10-18.30 og á laugar-
dögum kl. 10-16.
FIM-salurinn,
Garðastræti 6
Bergljót Kjartansdóttir sýnir málverk i
FÍM-salnum dagana 12.-23. október nk.
Opið alla daga kl. 14-19.
Gallerí Gangskör
Anna Gunnlaugsdóttir sýnir málverk.
Sýningin er opin kl. 12-18 virka daga og
kl. 14-18 um helgar, lokað á mánudögum.
Sýningunni lýkur 24. október.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg 4a
í gallerí Gijót stendur yfir afmælissýning
í tilefni þess að 5 ár em liðin frá stofnun
þess. Meðlimir gallerísins, þau Gestur
Þorgrímsson, Jónína Guönadóttir, Ófeig-
ur Bjömsson, Magnús Tómasson, Páll
Guðmundsson, Ragnheiður Jónsdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg
Höskuldsdóttir og Öm Þorsteinsson,
sýna verk sín sem em olíumálverk, graf-
ík, skúlptúrar, unnir í jám, ál, grjót, leir
og fleiri efni, silfurskartgripir, leirmunir,
teikningar, vatnslitamyndir o.fl. Afmæl-
issýningin stendur til 28. október og verð-
ur opin virka daga kl. 12-18 og um helgar
kl. 14-18. ÖU verkin em fil sölu.
Grafíkdeild Gallerí Borgar,
Austurstræti 10,
Alexander VassÚiev leikmyndahönnuð-
ur sýnir búningateikningar við sýningu
Þjóðleikhússins á Ævintýri Hoffmanns.
Sýningin stendur tíl 26. október. Opiö á
venjulegum opnunartíma verslana.
Myndimar em til sölu.
Gallerí Borg
Helga EgUsdóttir sýnir olíumálverk í
gaUerí Borg. Þetta er önnur einkasýning
Helgu. Auk þess hefur hún tekið þátt í
(jölda samsýninga. Sýningin er opin
virka daga kl. 10-18 og um helgar frá kl.
14-18. Henni lýkur 1. rióvember.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textflgaUerí. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Svart á hvítu,
Laufásvegi 17
Á morgun kl. 14 verður opnuö í GaUerí
Svart á hvítu, Laufásvegi 17, sýning á
verkum Rósu Gísladóttur. Á sýningunni
verða höggmyndir unnar í steinsteypu.
Sýningin verður opin aUa daga nema
mánudaga kl. 14-18 og stendur hún tU 6.
nóvember. í listaverkasölu gaUerísins
(efri hæð) em tU sölu verk ýmissa mynd-
listarmanna.
Gallerí „Undir pilsfaldinum“,
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3
HaUdór Dungal sýnir málverk, unnin í
olíu, akrýl, lakk, pírrosít o.fl. og era verk-
in öU fil sölu. Sýningin er opin aUa daga
frá kl. 14-18 og stendur til sunnudagsins
30. október.
Hafnarborg,
Hafnarfirði
Gunnar Á. Hjaltason sýnir málverk. Sýn-
ingin er opm daglega kl. 14-22 og stendur
tU 23. október.
Hafnargallerí,
Hafnarstræti 4
Þar stendur yfir sýning á nokkmm skiss-
um félaga í FAT. Skissumar em hug-
myndir fyrir veturinn 1988/89. FAT er
félag 30 fata- og textílhönnuða. Sýningin
er opin á verslunartima og stendur hún
tU 28. október.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
í vestursal Kjarvalsstaða standa yfir
tvær sýningar. Guðrún Gunnarsdóttir
sýnir textUverk og Sigrún Eldjárn sýnir
oUumálverk. Þær hafa báöar haldið
nokkrar einkasýningar og tekið þátt í
íjölda samsýninga. Sýningamar em opn-
ar daglega kl. 14-22 og lýkur þeim 23.
október. Þá stendur einnig yfir sýning á
verkum bama á dagvistunarheimUum
Reykjavíkurborgar og stendur hún einn-
ig tU 23. október.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Á þessu ári em 50 ár frá -stofnun Nótar,
félags netagerðarmanna og 60 ár síðan
netagerð varð löggUt iðngrein. Af þessu
tilefni efnir Nót tU afmæUssýningar í
Listasafni ASÍ dagana 22.-30. október.
Sýningin verður opin virka daga kl.
16-20, en um helgar kl. 14-20. Skólahópar
em velkomnir utan almenns opnunar-
tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagaröurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar em til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðaUega eftir yngri
Ustamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Listasafnið er opið aUa daga nema mánu-
daga kl. 11-17. 10 ára afmæUs NýUsta-
safnsins er minnst í Listasafni íslands
og NýUstasafninu. Ýmsir islenskir og er-
lendir Ustamenn taka þátt í sýningunni.
Veitingastofa hússins er opin á sama
tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnestanga 70
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga
kl. 14-17. Tekið á móti hópum eftir sam-
komulagi.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna,
Neshaga 16
Robert Dell sýnir höggmyndir. Sýningin
er opin virka daga kl. 11.30-17.30 og um
helgar kl. 13-17.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Ásta Guðrún Eyvindsdóttir sýnir sjö nýj-
ar olíumyndir á Mokkakaffi. Myndimar
em tU sölu og stendur sýningin tU 13.
nóvember.
Myntsafn Seðlabanka
og Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Ólafur Sveinn Gíslason sýnir skúlptúra.
Sýningin stendur tíl 6. nóvember. og er
opin frá kl. 14-19 alla daga. í anddyri
hússins verður opnuð á morgun sýning
á ljósmyndum eftir sænska ljósmyndar-
ann Bruno Ehrs. Sýningin heitir Stokk-
hólmssvítan og em á henni 18 Ijósmynd-
ir, aUar teknar í Stokkhólmi. Sýningin
verður opin virka daga kl. 9-19 og sunnu-
daga kl. 12-19.
Nýhöfn
v/Hafnarstræti
BorghUdur Óskarsdóttur sýnir 11 verk,
unnin í leir og gler á þessu ári. Þetta er
fjórða einkasýning BorghUdar. Sýningin,
sem er sölusýning, er opin virka daga kl.
10-18 og um helgar kl. 14-18. Sýningunni
lýkur 26. október.
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum, kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8,
Hafnarfirði
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Þjóðminjasafn íslands
Safnið er opið alla daga vikunnar nema
mánudaga kl. 11-16.
Sýning Jóhannesar Geirs
Jóhannes Geir sýnir 20 málverk í nýju
útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur að ÁÍfa-
bakka 14. Sýningin, sem er sölusýning,
er opin mánudaga til fimmtudaga kl.
9.15-16 og föstudaga kl. 9.15-18. Sýningin
stendur til 25. nóvember og er aðgangur
ókeypis.
SYNINGAR A
LANDSBYGGÐINNI
Listkynning Alþýðu-
bankans á Akureyri
Að þessu sinni kynna Menningarsamtök
Norðlendinga og Alþýðubankinn hf. á
Akureyri myndlistarkonuna Dröfn Frið-
fmnsdóttur. Á listkynningunni em 12
verk, unnin með akrýllitum á striga.
Kynningin er 'í útibúi Alþýðubankans
hf., Skipagötu 14 á Akureyri, og lýkur
henni 4. nóvember.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
sýnir Ævintýri Hoffmanns í kvöld og á
sunnudagskvöld kl. 20.
Marmari, sýning á laugardagskvöld kl.
20.
Ef ég væri þú, sýning á Litla sviðinu,
Lindargötu 7, á laugardag kl. 20.30. Síð-
asta sýning.
Hvar er hamarinn? sýning í íslensku
óperunni, Gamla bíói, á sunnudag kl. 15.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Hamlet í kvöld kl. 20.
Gríniðjan hf.
sýnir N.Ö.R.D. í íslensku óperunni,
Gamla bíói, á fóstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30.
Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir Emil í Kattholti á laugardag og
sunnudag kl. 16.
Alþýðuleikhúsið
sýnir Elskhugann í Ásmundarsal við
FYeyjugötu á laugardagskvöld kl. 20.30
og á sunnudag kl. 16. Allra síðustu sýn-
ingar.
Leikfélag Akureyrar
sýnir Skjaldbakan kemst þangaö líka í
kvöld og á laugardagskvöld kl. 20.30.
Tilkyimingar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardag-
inn 22. október sem er 1. vetrardagur.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Eins og undanfarin ár gerir gönguklúbb-
urinn sér dagamun um vetumætur. Á
morgun verða pönnukökur með kaffinu.
Mætum vetri og skammdegi á bæjarrölti
Hana nú í skemmtilegum félagsskap. All-
ir velkomnir.
Kristniboðssambandið
heldur flóamarkað til styrktar starfi sinu
í félagsheimili KFUM og K við Holtaveg_
á morgim, laugardag 22. október, kl. 14.’
Auk fjölda nytsamlegra hluta verður
hægt að fá kaffi og vöfflur á vægu verði.
Hjón messa í Hafnarfjarðar-
kirkju
Sunnudaginn 23. október mun séra Þór-
hildur Ólafs, nývígður safnaðarprestur í
Hafnarfjarðarsókn, annast fyrstu messu-
gjörð sína í Hafnarfjarðarkirkju. Hún
mun þá predika og þjóna fyrir altari
ásamt eiginmanni sínum og sóknar-
presti, séra Gunnþóri Ingasyni. Að messu
lokinni býður safnaðarstjóm í kirkju-
kaffi í Álftafelli, íþróttahúsinu við
Strandgötu. Séra Þórhildur mun gegna.
störfum sóknarprests í námsleyfi hans
og taka síðan við safnaðarþjónustu í
Hafnarfjarðarsókn og þá einkum sinna
sálgæslu, öldrunarþjónustu og bama-
starfi.
Flóamarkaður FEF
Félag einstæðra foreldra heldur flóa-
markað laugardaginn 22. október kl.
13.30-17 í Skeljanesi 6. Fullt af nýjum og
notuðum fötum, gömlum sauma- og
prjónavélum og fleira á spottprís. Leið 5
að endastöð.
Borgfirðingafélag
Reykjavíkur
heldur vetrarfagnað laugardaginn 22.
október að Skipholti 50a. Byrjað með fé-
lagsvist kl. 20 og dansað að lokinni spila-
mennsku. _
SGT
í kvöld kl. 20.30 hefst þriggja kvölda spila-
keppni í Templarahöllinni. Vegleg verð-
laun. Hljómsveitin Tíglar leikur fyrir
dansi á eftir.
Vetrarfagnaður Húnvetninga-
félagsins
Hinn árlegi vetrarfagnaður Húnvetn-
ingafélagsins verður haldinn laugardag-
inn 22. október nk. kl. 21.30 í félags-
heimili Seltjamarness, Suðurströnd.
Skemmtidagskrá, hin vinsæla hljómsveit-
Upplyfting leikur fyrir dansi.
Dagskrá í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar verður
vigt og formlega opnað í dag, 21. október,
en þann dag heföi Siguijón orðið áttræð-
ur. Fyrst um sinn, eða fram að áramót-
um, verður safnið opið um helgar, laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14-17. Tekið
verður á móti hópum eftir samkomulagi.
í tilefni vigslunnar verða eftirtaldar dag-
skrár á vegum safnsins: Sunnudag 23.
okt. kl. 15: ljóðalestur og tónlist. Kl. 20.30:
tónleikar, flutt verða verk eftir Bach,
Schumann, Brahms og Kuhlau. Miðviku-
daginn 26. og föstudaginn 28. okt. kl. 20.30
verða tónleikar.
Brautskráning kandídata frá
Háskóla íslands
Afhending prófskirteina til kandídata fer
fram við athöfn í Háskólabíói laugardag-
inn 22. október kl. 14. Þar verður lýst
kjöri heiðursdoktors George P. L.
Walker. Athöfnin hefst með því að Sigrún
Hjálmtýsdóttir ópemsöngkona syngur
einsöng við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Háskólarektor, dr. Sig-
mundur Guðbjamason, ávarpar kandi-
data og síðan afhenda deildarforsetar
prófskírteini. Að lokum syngur Háskóla-
kórinn nokkur lög undir stjóm Árna
Harðarsonar. Að þessu sinni verða braut-
skráðir 98 kandídatar.
Breiðfirðingar
Vetrarfagnaður félagsins verður haldinn
í félagsheimili Kópavogs, 2. hæð, laugar-
daginn 22. október kl. 21.30.
Skagfirðingafélagið í Reykja-
vík
efnir til vetrarfagnaðar nk. laugardag.
Spiluð verður félagsvist. Jóhann Már
Jóhannsson stórsöngvari syngur og tríó
Þorvaldar leikur. Samkoman hefst kl. k
20.30 í félagsheimilinu Drangey, Siðu-
múla 35. t
Eskfirðingar og Reyðfirðingar
í ReyHjavík og nágrenni halda sitt árlega
síðdegiskaffi fyrir eldri sveitunga sunnu-
daginn 23. október kl. 15 í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a.
Neskirkja -félagsstarf aldr-
aðra
Samverustund á morgtm, laugardag, kl.
15 í safnaðarheimili kirkjunnar. Spilað
verður bingó. Sunnudaginn 23. október
kl. 15.15 flytur dr. Þórir Kr. Þóröarson
prófessor bibliuerindi um Jónas spá-
mann sem sagt er að hafi verið 3 daga í
kviði stórfisksins. Erindiö verður flutt í
safnaðarheimili Neskirkju. Öllum heim -
ill aðgangur.
t
|