Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988.
31
í öndvegi
- fimm leitór á döfinni um helgina í úrvalsdeild
Það er ekki ýkja margt á döfinni
um helgina á sviði íþróttanna.
Körfuknattleik er skipað í önd-
vegi að þessu sinni og eru fimm
leikir fyrirhugaðir í efstu deild. Þór
og Haukar mætast norðan heiða
og hefst viðureign þessara aðila
klukkan 20 á sunnudag. Á sama
tíma leika erkifjendur á Hlíða-
renda, Valsmenn glíma við KR-
inga, og í íþróttahúsi Kennarahá-
skóla íslands spila Stúdentar við
Breiðhyltinga. Þá fá Njarðvíkingar
lið Sauðkrækinga í heimsókn og
rriá ætla að baráttan verði þar hörð
en Valur Valsson, fyrrum þjálfari
og leikmaður Suðumesjaliðsins, er
nú við stjórnvölinn innan sem utan
vallar hjá Tindastóli.
Síðasti leikur helgarinnar, en
hreint ekki sá sísti, er viðureign
Grindvíkinga og Keflvíkinga. Má
gera ráö fyrir miklum átökum í
gryfjunni í Grindavík en rimma
þessara liða hefst klukkan 20 á
sunnudag á sama hátt og hinar sem
áður vora nefndar.
Þá má benda á að reginþing
íþróttahreyfingarinnar er haldið
um helgina. Þá koma saman til
ráðstefnu fulltrúar innan einstakra
þátta hreyfingarinnar á Héraði í
nafni íþróttasambands íslands.
Það verður hart barist undir körfunni um helgina en þá eru fyrirhugaðir fimm leikir i úrvalsdeildinni.
KILASALAS
HÖFÐHTÚnÍ IO /íITIÍ: 622177 111»
TIL SÖLU SUBARU STATION
ÁRG. 1987
ekinn 7.000 km, litur steingr., rafmagnsspeglar. Skipti
athugandi.
Okkur vantar allar gerðir
bíla á staðinn.
E
LANDSVIRKJUN
BLÖNDUVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í jarðstíflu-
gerð, gröft veituskurða og byggingu tilheyrandi
veituvirkja. Verkinu er skipt í tvo sjálfstæða verkhluta
og heimilt er að bjóða í annan hvorn verkhlutann
eða báða.
Útboð 9512: Verkið felur í sér byggingu Gilsárstíflu
ásamt veituvirkjun að meðtöldum frárennslisskurði.
Helstu magntölur eru:
Gröftur og sprengingar 1.100.000 m3
Fyllingar 1.100.000 m3
Steypa 8.000 m3
Útboð 9515: Verkið felur í sér byggingu Blöndustíflu
og Kolkustíflu ásamt veituvirkjum.
Helstu magntölur eru:
Gröftur og sprengingar 1.000.000 m3
Fyllingar 1.400.000 m3
Steypa 4.000 m3
Verktakar sem hafa hug á að kynna sér aðstæður á
virkjunarstað eru hvattir til að hafa samband við skrif-
stofu Landsvirkjunar sem fyrst.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjun-
ar, Háaleitirbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með 3.
nóvember 1988 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð
kr. 10.000,- fyrir fyrsta eintak, en kr. 3.000,- fyrir
hvert eintak þar til viðbótar af hvorum útboðsgögn-
um fyrir sig.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar í
Reykjavík fyrir kl. 14.00 föstudaginn 13. janúar 1989,
en þar verða þau opnuð opinberlega sama dag kl.
15.00.
Reykjavík, 20. október 1988
Landsvirkjun
' r
r
„Sjálfstæðisflokkurinn réttir ekki
við fyrr en við þöggum niður í
frjálshyggjumönnunum," segir
Matthías Bjarnason, alþingis-
maður og fyrrum ráðherra, í
helgarviðtalinu á morgun. Matt-
hías hefur nú ákveðið að hætta
afskiptum af stjórnmálum að
þessu kjörtímabili loknu. í við-
talinu liggur Matthías ekki á
skoðunum síðum fremur en fyrri
daginn þegar hann ræðir stöðu
flokksins og álit sitt á samherjum
sem og andstæðingum.
Síminn hringdi einn
morguninn hjá Haf-
steini Hafsteinssyni, 18
ára Verslunarskóla-
nema, og honum var
boðið að verða ungl-
ingastjarna á Stöð 2.
Og hverju svaraði
hann? Jú, hann sagði
já og kemur nú reglu-
lega fram í Pepsi-poppi
á Stöðinni. Helgar-
blaðið segir nánarfrá
krökkunum þará
morgun.
Úlfar Þormóðsson hef-
ur um árabil átt í úti-
stöðum við Þórð
frænda og þeirra við-
skiptum erekki lokið
enn. Úlfarsendir brátt
frá sér sögulega skáld-
sögu um Axlar-Björn
og Svein skotta, son
hans. Hvað það kemur
Þórði frænda við sést í
helgarblaðinu á morg-
un.