Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1988, Blaðsíða 1
Jóladagskrá Stöðvar 2:
Kvikmyndir og
barnaefni aberandi
- leikin heimildarmynd um Halldór Laxness
Mikið úrval kvikmynda er það sem
er mest áberandi í jóladagskrá
Stöðvar 2. Þá er bamaefni fjöl-
breytt og gott. Ekki er mikiö um
frumsýningar á innlendu efni. Þaö
innlenda efni, sem mesta forvitni
vekur, er leikin heimildarmynd um
Halldór Laxness. Er myndin í
tveimur hlutum. Sá fyrri er sýndur
á jóladag en sá seinni á nýársdag.
Aðfangadagur jóla
Eingöngu bamaefni er sjónvarp-
að á Stöð tvö aðfangadag jóla enda
stendur útsending aðeins til kl. 5.
Böm fá ríflegan skammt af fjöl-
breyttu efni með þekktum og
óþekktum ævintýrapersónum.
Mjallhvít, Rauðhetta, Gosi, Denni
dæmalausi og að sjálfsögðu afi em
meðai þeirra sem sjá um að stytta
spenntum barnshjörtum stundirn-
ar.
Það sem vekur mesta forvitni er
leikin útgáfa af ævintýrinu um
Rauðhettu þar sem hin þekkta leik-
kona Mary Steenburger fer með
hlutverk Rauðhettu. Og henni til
aðstoðar er ekki ómerkari leikari
en Malcolm McDowell. Er þetta
mynd úr myndaflokknum Ævin-
týraleikhúsið.
Þá fáum við að sjá ævintýrið um
Mjallhvíti í nýjum búningi og Jólin
hans Gosa.
Jóladagur
Hvorki meira né minna en fjórar
kvikmyndir eru frumsýndar á jóla-
dag - kvikmyndir ólíkar að uppr-
una og gerð. Það sem vekur samt
mesta eftirvæntingu er fyrri hluti
leikinnar heimildarmyndar um
Halldór Laxness. Leikstjóri er Þor-
geir Gunnarsson og handrit er eftir
Pétur Gunnarsson. Fyrri hfutinn
fjallar um æsku, uppvöxt og
þroskaár skáldsins og lýkur er
heimsfrægðin ber að dyrum. Guð-
mundur Olafsson fer með hlutverk
skáldsins þegar hann er orðinn
fullorðinn. Aðrir er leika skáldið á
ýmsum aldursskeiðum eru Lárus
Grímsson, Orri Huginn Ágústsson
og Halldór Halldórsson.
Fyrsta kvikmyndin, sem sýnd er
á jóladag, er hin klassíska jóla-
mynd Hvít jól - hugljúf kvikmynd
sem á frægð sína aö þakka sam-
nefndu jólalagi í myndinni. Tvær
gamanmyndir eru á dagskrá. Fyrst
ber að tefja Krókódíla Dundee sem
naut óheipjuvinsælda í kvik-
myndahúsum um allan heim í
fyrra og Vistaskipti þar sem Dan
Aycroyd og Eddie Murphy fara á
kostum. Þeim sem vilja drama-
tískari kvikmyndir ætti ekki að
leiðast yfir Nafni rósarinnar en
mikið hefur verið skrifað og fjallað
um efni þeirrar kvikmyndar.
Óperuunnendur geta glaðst yfir
nýstárlegri útfærslu á Rakaranum
í Sevilla. Þar er brugðið út frá hefð-
bundinni leikhúsuppfærslu og sum
atriði þessarar frægu óperu eru
gerð utandyra.
Óperuaðdáendur fá heimildarkvik-
mynd um Maríu Callas. Bömin fá
sinn skammt um morguninn og er
vert að benda á Dotta og jólasveinn-
inn, sem er kvikmynd þar sem
blandað er saman leiknum verum
og teiknimyndafígúrum.
Fyrsta kvikmyndin, sem sýnd er
á annan jóladag, er ástralska kvik-
myndin Maðurinn frá Fanná (The
Man from Snowy River) en hún
hélt titlinum vinsælasta kvikmynd
sem gerð hafði verið í Ástralíu þar
til Krókódíla Dundee kom á mark-
aðinn. Aðrar kvikmyndir eru
Greystoke - Goösögnin um Tarsan,
skemmtileg ævintýramynd sem
sýnir okkur konung frumskógar-
ins í nýju ljósi og Agnes, barn Guðs,
mynd sem engan svíkur. Hún er
byggö á samnefndu leikriti sem
sýnt hefur verið hér.
Þá hefur Stöð 2 sýningar á nýjum
framhaldsmyndaflokki, Napóleon
og Jósefína. Titilhlutverkin leilja
Armand Assante og Jacquelirít
Bisset. Þá er vert að nefna þáttinn
í slagtogi. Þar verður Jón Óttar
Ragnarsson í slagtogi með Ólafi
Jóhanni Ólafssyni, framkvæmda-
stjórahjáSonyogrithöfundi. -HK
Annar jóladagur
Dagskrá á annan dag jóla er lítið
frábrugðin þeirri á jóladag. Þrjár
kvikmyndir eru frumsýndar.
Halldór Laxness (Guðmundur Ólafsson) við skriftir á hótelsvölum í Ta-
ormínu.
Krókódíla Dundee er einhver allra vinsælasta kvikmynd sem gerö hefur
verið. Hér eru Paul Hogan og Linda Kozlowski.
Hljóðbylgjan
í Reykjavík
Á höfuðborgarsvæöinu tók til
starfa ný útvarpsstöð 1. desember.
Var þaö Hljóðbylgjan. Útvarpsstöðin
sjálf er ekki ný. Hún hefur verið
starfrækt á Akureyri í nokkurn tíma.
Nú hefur sem sé Reykjavík og höfuð-
borgarsvæðinu verið bætt við hlust-
endahóp Hljóðbylgjunnar.
Fram að áramótum verður einnig
starfrækt útvarpsstöð í Reykjavík.
Frá og með áramótum verða útsend-
ingar eingöngu frá Akureyri. Endur-
varpsstöð verður komið fyrir í
Reykjavík. Fjórir starfsmenn Hljóö-
bylgjunnar eru fyrir sunnan og sjá
um dagskrárgerð. Eru það Snorri
Sturluson, Pálmi Guðmundsson,
Hafdís Eygló Jónsdóttir og Linda
Gunnarsdóttir.
Dagskrárgerð í Reykjavík er með
líku sniði og fyrir norðan. Á morgn-
ana er spiluð létt tónlist og er tekið
á móti afmæliskveðjum milli kl. 8 og
12. Tónlistarþættir eru á daginn og
fram eftir kvöldi. Klukkan tiu taka
við ljúfir tónar fram undir eitt. Um
helgar eru auk þess spjallþættir og
þá er útvarpað til kl. fjögur um nótt-
ina.
-HK
Starfsmenn Hljóðbylgjunnar i Reykjavík, Snorri Sturluson, Pálmi Guðmunds-
son, Hafdís Eygló Jónsdóttir og Linda Gunnarsdóttir.
—
Baráttan
fyrir
sairai-
ingsrétt-
inum
- sjá Útvarp Rót
laugardag kl. 14.00
Sunset
Boulevard
-sjáStöð2sunnu-
dag kl. 22.50
Dagbók
herbergis-
þemu
- sjá Stöð 2 mánu-
dag kl. 22.25
Deleríum
Búbónis
-sjá rás 1 þriöjudag
kl. 22.25
Land og
synir
-sjáSjónvarpmið-
vikudag kl. 21.50
Meðan
skynsemin
blundar
- sjá Sjónvaip
ílmmtudag kl. 22.05.
Milljóna-
þjófar
-sjá Stöð 2 föstudag
kl. 23.10