Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 4
20 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988. Nýjar bækur GRÆNA HJÓLIÐ Dr. Gunnar Kristjánsson Þýddar úrvalssmásögur eftir ýmsa er- lenda höfunda sem skrifaöar eru á mjög auöskiljanlegu máli og gefa tilefni til umflöllunar. Þessar sögur eru ekki inni- haldslausar afþrej’ingarsögur. heldur er tekið á tilvistarlegum spurningum barna og annarra í fullri alvöru. Sumar sögurn- ar eru skrifaöar í léttum dúr án þess aö skerða alvörugildi þeirra. 100 bls. Tákn - Bókaútgáfa. Verö: 1590 kr. HEIÐA FER AÐ HEIMAN og HEIÐA HEIMSÆKIR AFA Bækumar um Heiðu og Pétur eftir Jó- hönnu Spyri eru meðal þekktustu barna- bóka. sem nokkru sinni hafa verið ritað- ar. Hér eru tvær sögur endursagðar á góðu máli og með skýru letri. í fyrri bók- inni má lesa um það þegar Heiða fer til borgarinnar og verður leiksystir Klöru, fatlaðrar stúlku. En í hinni síðari segir frá heimsókn og dvöl hjá afa uppi í fjöll- unum og kynnum Heiöu af Geita-Pétri. Óskar Ingimarsson þýddi. Setberg. Verð: 575 hvor bók. .6 JÓRA OG ÉG Guðlaug Richter Jóra vár unghngur á Suðurlandi árið 1104 í Heklugosi og lendir í baráttu upp álífog dauða við að komast undan eldin- um. Sögu þessarar stúlku fmnur reyk- vísk stelpa í gömlu handriti og ákveður að skrá hana. Þetta er skáldsaga um ást og örlög beggja söguhetjanna, 12. aldar stúlkunnar og nútímaunglingsins. 107 bls. Mál og menning. Verð: 1575 kr. RÁÐGÁTAN Á ROFABÆ Enid Blyton Hrekkjalómurinn Snúður heimsækir Reyni og Dóru. Róbert afabróðir er líka í heimsókn - og Snúður telur honum trú um að leynifélagið Græna höndin sé á hælunum á sér. Þegar fréttist af furðuleg- um ránum er sá gamli ekki í vafa um aö þar sé Græna höndin að verki. Svo er brotist inn - og þjófurinn skilur eftir grænan hanska. Hver var hér á ferð? 199 bls. Iðunn. Verð: 1180 kr. ANNA í GRÆNUHLÍÐ L. M. Montgomery Anna er munaðarlaus stelpa sem send er í fóstur til gömlu systkinanna í Grænu- hlíð og vinnur með tímanum hug þeirra og hjörtu þrátt fyrir skakkafóll í upp- hafí. Sagan hefst er Anna er lítil stúlka, en endar þegar hún er fullvaxin. Axeí Guðmundsson þýddi þetta sígilda verk. 190 bls. Mál og menning. Verð: 975 kr. Kilja: 775 kr. 'htaeía S^wmty'rJjof/e/iéufji klukKubókin Þetta er harðspjaldabók með klukku og hreyfanlegum vísum. Klukkan átta fer ég á fætur og klukkan niu borðum við öll morgunverðinn. Klukkan þrjú leikum við okkur i sandkassanum og byggjum kastala og mjög falleg hús. Klukkan sjö fer ég í bað og borða kvöld- matinn. Klukkan átta fer ég að hátta og sofa. Vilbergur Júlíusson skólastjóri endur- sagði. Setberg. Verð: 475 kr. DRAUGAHÚSIÐ Zilpha Keatley Snyder Gamla Vesturhúsið fyllist lifi á ný þegar Davíð, systkini hans, pabbi og Mollý flytja þangað - og svo kemur Amanda sem er engum lík! Fyrr en varir hefur hún leitt krakkana inn í dularveröld sína. Höfuölausi engillinn á stigahandriðinu er sönnun þess að ærsladraugur hafi gist húsið foröum. En svo fara óútskýranlegir hlutir að gerast - jafnvel um hábjartan daginn. Er nýr ærsladraugur kominn á kreik eða er sá gamli snúinn aftur? 170 bls. Iðunn. Verð: 1180 kr. Litla vampíran flytur Bókaútgáfan NáHn LITLA VAMPÍRAN (1) Angela Sommer-Bodenburg Litla vampíran, sem kom út í lok síðasta árs, er fyrsta bókin af sjö sjálfstæðum sögum sem fjalla um uppátæki og ævin- týri þeirra félaga, Runólfs Hrollberg, sem er lítil vampíra, og Antons Túliníuss. 156 blaðsíður, innbundin og myndskreytt. Nálin, bókaútgáfa. Verð: 995 kr. LITLA VAMPÍRAN (2) Angela Sommer-Bodenburg Litla vampíran er sett í grafarbann og leitar á náðir vinar síns, Antons Túli- níuss! 157 blaðsíður, innbundin og myndskreytt. Nálin, bókaútgáfa. Verð: 1195 kr. STAÐFASTUR STRÁKUR Kormákur Sigurðsson Fáar barna- og unglingabækur hafa notið annarra eins vinsælda meðal íslenskra bama og Staðfastur strákur eftir Kormák Sigurðsson. Nú er hún endurútgefin með nýjum myndum eftir Bnan Pilkington. Þetta er sagan af Jóni Óskari sem var foreldralaus og ólst upp hjá ömmu sinni. Jón Óskar var einþykkur og gjarn á að fara sínu fram hvort sem gömlu konunni líkaði betur eða verr. Hann er hjálpar- hella þeirra sem minnimáttar eru. 117 bls. Iðunn. Verð: 1280 kr. KormákurSigurðsson smMsruR STRÁKUR SÖNG- OG PÍANÓBÓK BARNANNA Árni Elfar útsetti og valdi lögin. í þessari bók em tólf þekkt lög sem allir geta spilað og sungið. Bókin er meö hljómborði sem hægt er aö leika á. Lögin em: Máninn hátt á lúmni skin, Nú er sumar, Litlu andamngarnir, Fyrr var oft í koti kátt, Heims um ból, Gó'ngum, göngum, Kibba, kibba, komiö þið greyin, Allir krakkar, Nú er frost á Fróni, Meist- ari Jakob, Fijálst er í fjallasal, Hann Tumi fer á fætur. Sem sagt: lög sem allir þekkja. Setberg. Verð: 950 kr. SKOTTA EIGNAST NÝJA VINI . Margrét E. Jónsdóttir Sjálfstætt framhald af sögunni um Skottu og vini hennar sem kom út í fyrra. Nú fara húsamýsnar Skotta og Bolla í ferða- lag. Þær fela sig í bíl og ætla til borgarinn- ar en lenda í litlu koti við sjóinn. Dvölin þar verður viðburðarík og þær koniast oft í hann krappan. Anna V. Gunnars- dóttir myndskreytti. 116 bls. Selfjall. Dreifing: Mál og menning. Verð 980 kr. STÓRA UNDRABÓKIN ÆVINTÝRAFERÐIN Þessi bók er stærsta sögubók fyrir böm sem út hefur komið á íslandi, hvorki meira né minna en 35x50 sm að stærð og 70 síöur. Spennandi söguþráður, ógleym- anlegar persónur, einstakar litmyndir. Vaka-Helgafell Verð: 3.860 kr. FRIÐÞJÓFUR FORVITNI/ FRIÐÞJÓFUR FORVITNIÁ HJOLI H. A. Rey. Þýðandi: Þórarinn Eldjárn Friðþjófur er api sem á heima í Afríku. Hann er hræðilega forvitinn og lendir því i ýmsum óvæntum ævintýrum og skemmtir sér rosalega vel. Þórarinn Eldjárn þýddi þessar bækur. Mál og menning. Verð: 775 hvor bók. frUiMurftnHni •tjUt frUþjifur fonitai Frá uppnina lifs tii núúnuunaims RISAEÐLUR OG FLEIRI FURÐUDYR John Stidworthy Risaeðlur, fljúgandi skriðdýr og aðrar furðuskepnur - undraheimur sem eitt sinn var. Þessi fyrirbæri vekja ótalmarg- ar spurningar. Hvernig leit fyrsti fiskur- inn út? Hvers vegna urðu risaeðlurnar aldauða? Hver er uppruni mannsins? Vísindamenn veita hér svör við ýmsum þessara spmninga með hjálp litríkra mynda, korta og línurita. Óskar Ingimarsson þýddi bókina. 144 bls. Iðunn. Verð: 1480 kr. Myiidir Eya Brikssoa Híins Petersoii Anna og leyndarmálið Mvndir: íion VV iklancl Myndir: Uon 'WíkJand Gunnel Linde Goggur, kisa og gamli maðurinn Myndir Tord 'Nygrcn tbm% Peterson LESTRARBÆKUR IÐUNNAR: Anna 7 ára, Anna og leyndarmálið, Gogg- ur, kisa og gamli maðurinn, Stjáni og Stubbur Þetta eru fjórar litlar bækur, sérstaklega ætlaðar byrjendum í lestri. Letrið á bókunum er stórt og setningar stuttar og auðveldar. Allar bækurnar skiptast í marga stutta kafla. Þær henta þess vegna mjög vel fyrir böm sem em að byija að lesa sjálf. Þorsteinn frá Hamri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.