Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 14; DESEMBER 198». 28 . Nýjar bækur DAGAR HEFNDARINNAR Birgitta H. Halldórsdóttir Birgitta Halldórsdóttir sendir nú frá sér sina sjottu bók. Áöur eru út komnar: Inga, Háski á Hveravöllum, Gættu þín Helga, í greipum elds og ótta og Áttunda fórnarlambið. Birgitta er spennubóka- höfundur, einn af fáum hér á landi. 174 bls. Skjaldborg. Verð: 1888 kr. BRÉFBATARIGNINGIN Gyrðir Eliasson Fjórar samtengdar sögur sem láta lítið yftr sér en geyma ótal furður þegar að er gáð. Höfundur vekur óvænta spennu og tekur lesandann með sér inn í sérstæð- an söguheim. Gyrðir hefur vakið athygli fyrir myndrænan og ljóörænan texta. 142 bls. Mál og menning. Verö: 2375 kr. SNÆBJÖRG í SÓLGÖRÐUM Ingibjörg Sigurðardóttir Þetta er 28. bók Ingibjargar Sigurðardótt- ur. í þessari nýjustu skáldsögu sinni leið- ir hún lesandann á vit vina og elskenda í gleði og sorg. 201 blaðsíða. Bókaforlag Odds Björnssonar. Verð: 1500 kr. LEITIN AÐ DÝRAGARÐINUM Einar Már Guðmundsson í þessu sagnasafni Einars er að finna átta sögur. Þær nefnast: Sending að sunnan, Malbikunarvélin, Garðyrkjumennimir, Austrið er rautt, Regnbogar myrkursins, Þegar örlagavindamir blésu, Æðahnútar og eiturlyf og Leitin að dýragarðinum. Sagan berst víða og koma margar eftir- minnilegar persónur við sögu. 223 bls. Almenna bókafélagið. Verð: 2670 kr. MÍN KÁTA ANGIST Guðmundur Andri Thorsson Fyrsta skáldsaga Guðmundar Andra Thorssonar um ungan mann í leit að sjálfum sér og einhverju æðra - ástinni. Egill hefur nám í íslensku en í fyrsta tím- anum kemur hann auga á Sigríði. Eftir það fara öll áform úr skorðum, ástin breytir öllu og fyllir tilveru hans af kæti - og angist. Sagan er full af spaugilegum atvikum en hka nærfærnum lýsingum á hinni einu sönnu ást æskunnar. 154 bls. Mál og menning. Verð: 2375 kr. ÁSTIN SIGRAR - þessi gamli djöfull Guðmundur Björgvinssön Ungur maður flýgur vestur um haf til náms, kemur heim aö ári. í millitíðinni gerist sitthvað. Hann kynnist öðrum heimi, annarri þjóð og ástinni í öllu sínu djöfullega veldi. Hann heldur hér áfram að þróa stílinn sem einkenndi Næturflug í sjöunda himni. 157 bls. ' Lífsmark. Verð: 2380 kr. Ölaíiif Jóhaim Ölafsson r \ i ; S. ■ ■> J 1 *;i? i . i\ l 1 ,/ i- i V | ‘i i \ 1 i 1 i i 1 | i 1 J M í I •t MARKAÐSTORG GUÐANNA Ólafur Jóhann Ólafsson Glæpur - sakleysi; trúmennska - svik; nægjusemi - allsnægtir; sannleikur - lygi; Guð - Mammon. Þessum andstæð- um fléttar Ólafur Jóhann Ólafsson inn í þessa fyrstu skáldsögu sína sem jafn- framt er spennusaga. Hér er sleginn nokkuð sérstæður tónn í íslenskum bók- menntum. Sagan gerist jöfnum höndum á íslandi, í Bandaríkjunum og Japan. Aðalpersóna bókarinnar, Friörik Jóns- son, er maður nútímans, einn af okkur. 940 hl<5 . Vaka-HelgafeU. Verð: 2480 kr. HÆTTULEGT HLUTVERK Soffia Jóhannesdóttir Soffia Jóhannesdóttir er 29 ára að aldri, búsett á Blönduósi. Hún sendi frá sér sína fyrstu bók, Örlagarík ákvörðun, á sl. ári. Bókin fékk góðar viðtökur hjá lesendum og varð þaö hvatning til höfundarins um að skrifa aðra spennu- og afþreyingar- bók. 160 bls. Skjaldborg. Verð: 1888 kr. Þýddar skáldsögur KÓLFUR Dick Francis Ein Regnbogabókanna. Þegar veðreið- aknapinn Kit Fielding kemst að því að Casilía prinsessa, eigandi hestanna sem hann ríður, er í vanda stödd bregst hann skjótt við henni til hjálpar. Hvorugu þeirra er þó ljóst hvaða ógnir og átök það á eftir að hafa í for með sér. Ragnheiður Óladóttir þýddi. 216 bls. Svart á hvítu/Birtingur. Verð kr.590. ÓVÆNT ENDALOK Robert Ludlum Frammi fyrir byssukjöftum hermdar- verkamanna bíða 236 konur, karlar og böm dauða síns uppi á þaki bandaríska sendiráðsins í arabísku borginni Mas- qat... í utanríkisráöuneytinu i Was- hington býður Evan Kendrich, friðsamur fulltrúadeildarþingmaður, vel kunnugur arabalöndum, fram hjálp sína við að leysa máhð. Martröð ofbeldis og ógna fylgir í kjölfarið. 470 bls. Setberg. Verð: 2375 kr. HEFND JARLSFRÚARINNAR Georgie Sheldon Eftir sama höfund er Systir Angela. Þetta er ástarsaga sem fjallar um andstreymi vonsvikinnar eiginkonu og fórnfúsrar móður. Hún lætur ekki bugast gegn grimmum örlögum og sigrar að lokum í tvísýnum hildarleik. 156 bls. Sögusafn heirhilanna. Verð: 1550 kr. DUMBRAUÐI FÁLKINN Sara Hilton Sara Hilton er mjög víðlesinn höfundur í hinum enskumælandi heimi, auk þess sem bækur hennar hafa verið gefnar út á flölmörgum öðrum tungumálum. í þessari bók sækir Sara efnivið sinn til glæsilífs og skurðgoðadýrkunar aðalsins í Mið-Evrópu á árunum fyrir heimsstyrj- öldina fyrri. 239 bls. Bókaútgáfan Hildur. Verð: 1875 kr. EIGN AÐALSMANNS Catherine Gaskin Joanna Roswell er send á vegum upp- boðsfyrirtækis til Thirlbeck, hins af- skekkta ættarseturs jarlsins af Askew. Setriö minnir hana á ævintýrahöll, fulla af gersemum sem enginn hefur fengiö að lita. En Thirlbeck býr yfir fleiri leyndar- málum og bölvun hefur hvílt yfir nafni ættarinnar um aldir. Áður en Joanna veit af togast óttinn og ástin á um líf hennar. Spenna og rómantík. 250 bls. Iðunn. Verð: 1680 kr. SILFURSVERÐIÐ Phyllis A. Whitney Saga um ástir og afbrot. Caroline kemst skyndilega að því að nánir ættingjar á Hawaii, sem hún hélt löngu látna, eru á lífi. En henni verður brátt ljóst aö ham- ingjustundir bemskunnar koma ekki aft- ur. Og harmleikurinn, sem batt á þær enda, er óráðin gáta. Var faðir hennar myrtur? Allir sem þekkja sannleikann era þögulir sem gröfin. Hún ákveður að láta ekki staðar numið fyrr en hún hefur rifið sundur blekkingavefmn... 250 bls. Iðunn. Verð: 1680 kr. hvorki MEIRA né HVORKI MEIRA NÉ MINNA Jeffrey Archer Björn Jónsson þýddi. Jeffrey Archer er einn af kunnustu rithöfundum Breta og hefur mikiö verið í sviðsljósinu. Hann var t.d. um tima varaformaður breska íhaldsflokksins. Gerðir hafa verið sjón- varpsþættir eftir sumum bóka hans. Þetta er önnur bókin eftir Archer sem kemur út á íslensku en Frjálst framtak gaf út bók hans, Heiður í húfi, i fyrra. 252 bls. Frjálst framtak. Verð: 1780 kr. ÁSTIN ER EILÍF ÁSTIN ER EILÍF Bodil Forsberg Sonja Thorsen missti foreldra sína í bíl- slysi þegar þeir óku út af kröppum fjall- vegi. Hún var einkabam og erfði millj- ónaeignir. Viktor Hauge fékk þau fyrir- mæli frá föður sínum að giftast henni og ná þannig eignum hennar... 165 bls. Hörpuútgáfan. Verð: 1680 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.