Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 23
39
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
HANN ER Á!
Þröstur Elliöason
Bókin hefur að geyma frásagnir af 8
landskunnum laxveiðiám. Þar segja 13
veiðimenn, sem þekkja vel þessar ár, frá.
í bókinni eru einnig viðtöl við fjóra
stangaveiðimenn: Aðalstein Pétursson,
Dag Garðarsson, Jón Jónasson og Þór
Nielsen. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda
af slóðum veiðimanna og viðureignum
þeirra við lónbúann.
144 bls.
Bókaútgáfan Strengir.
Verð: 2600 kr.
RAFTÆKNIORÐASAFN I
Þráðlaus fjarskipti
Orðanefnd RVFI
Fyrsta bindi nýs orðasafns meö íðorðum
ýfir hugtök úr þráðlausri fjarskiptatækni
og tengdum fræðum, svo sem á sviði út-
varps og síma, senditækja og viðtækja,
rása, útbreiðslu útvarpsbylgna, loftneta,
þráðlausra staðarákvaröana og leiösögu.
lðorðin eru tilgreind á íslensku og átta
öðrum tungumálum en skilgreiningar
þeirra birtar á frönsku og ensku.
286 bls.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: innbundin 3000 kr. - kilja 2750 kr.
STÓRU STUNDIRNAR
Siðir og venjur
á merkum tímamótum
Hermann Ragnar Stefánsson
Ljósmyndir: Jóhannes Long
í bókinni er fjallað um flest sem máli
skiptir hjá fólki varðandi siði og venjur
viö fæðingu, skím, fermingu, trúlofun,
giföngu, áfangapróf, gestaboð, afmæh og
útfarir. Einnig almennar siðareglur.
Fjöldi stórra litmynda prýðir bókina sem
er jafht ætluð ungum sem öldnum.
94 bls.
Hörpuútgáfan.
Verð: 2488 kr.
LiTimm pínm
litxwt í fotum o<i fxrðu
Mebólubókin .Color Me Beautiful'
eftir Caiole Jackson
LITIRNIR ÞÍNIR
- Litaval í fötum og farða
„Color me beautiful"
Carole Jackson
Bókin fjallar um litgreiningu og gefur
hagnýt ráð um litaval í fotum og farða.
Bent er á hvemig unnt er að spara sér
umtalsverðar fjárhæðir i fatakaupum.
Þá em ekki síður mikilvæg hin jákvæðu
lífsviðhorf sem þar em boðuð. Litimir
þínir er bók sem gefur þér tækifæri til
að uppgötva eigin fegurð með hjálp lita.
153 bls.
Hörpuútgáfan.
Verð: 2780 kr.
STANGAVEIÐIN1988
Gunnar Bender og Guðmundur Guðjóns-
son
Bókin fjallar um stangaveiðina sl. sumar,
prýdd flölda ljósmynda.
140 bls.
Sportveiðiblaðið.
Verð: 2600 kr.
LÆKNISRÁÐ MUNSTERS
2. bindi
Almenn kynlifsfræðsla
Erik Múnster
Almenn og auðskiliri heilræði mikilsmet-
ins læknis sem koma allri fjölskyldunni
að notum. Áður var komið út hjá
Fjölva/Vasa 1. bindið um smitsjúkdóma
öndunarfæranna, alls kyns vetrarslen,
allt frá kvefi og hálsbólgu og niður í
lungnabólgu. Nú í 2. bindi er almenn
kynlífsfræðsla. Það á ekki að vera feimn-
ismál heldur er það hinn sjálfsagði, gagn-
kvæmi unaður.
192 bls.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 595 kr.
GÁRILITLI
Ritröð: Fjölskylduvinimir
Annetta Wolter
Fjölskylduvinirnir er ný ritröð um gælu-
dýr frá Fjölva/Vasa. Fyrsta bókin er Gári
Uth en svo kallast litlu, áströlsku páfa-
gaukarnir sem em viöa hér. Allar upp-
lýsingar um val, kaup, meðferð og upp-
eldi. Kennt að gera fuglinn að besta vinin-
um. Þeir verða þá furðuduglegir að tala
mannamál. Næst kemur svo út bók um
búrfiska. Mikil þörf er fyrir gælu-
dýrabækur.
72 bls.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 595 kr.
Ýmsar bækur
RIPPLES FROM ICELAND
Amaha Lindal-Webb
Höfundur þessarar bókar er fædd og upp-
alin á austurströnd Bandaríkjanna en
giftist íslenskum námsmanni og bjó hér
á landi í 23 ár. í bókinni segir hún frá
kynnum sínuiri af landi og þjóð. Hún er
rituð á ensku og er þvi tilvalin gjöf til
vina erlendis.
256 bls.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Verð (kilja): 625 kr.
MÝVATN - A Paradise for
Nature Lowers
David Wihiams
Bókin er rituð á ensku og ætluð til gjafa
út úr landinu. j henni em 133 'litmyndir
og kort sem tengjast efninu. Bókinni fylg-
ir sérprentuð teikning, viðmynd, af öhum
fjallahringnum við Mývatn með nöfnum
fjallanna. Einnig er fjallaö um sögu lands
og þjóðar.
144 bls.
Örn og Örlygur.
Verð: 1995 kr.
UM HJARNBREIÐUR Á
HJARA HEIMS
Monica Kristensen
Höfundurinn dvaldi á Svalbarða 1976-78.
Þar vaknaði áhugi hennar á heimskauta-
svæðunum. Bók þessi segir frá leiðangri
er hún, fyrst kvenna, stjómaði til suður-
skautsins og nefndur var „í slóð Amund-
sens“. 212 bls.
Skjaldbörg.
Verð: 2494 kr.
ÍSLANDSFERÐ
John Coles
John Coles ferðaðist um landið sumariö
1881. Hann gerði sér sérstakt far um aö
kynnast alþýðu manna. íslandsferð kom
fyrst út hér á landi 1961 og seldist þá upp
á skömmum tíma. Bókina þýddi Gísh
Ólafsson og formála skrifar Haraldur
Sigurðsson bókavörður. Bókinni fylgir
kort af þeim leiðum sem Coles fór hér á
landi.
208 bls.
Bókaútgáfan Hildur.
Verð: 1995 kr.
W. G. Coiimwood -
FEGURÐ ISLANDS OG
FORNIR SÖGUSTAÐIR
- Svipmyndir og sendibréf W.G. Colling-
woods 1897
W.G. Collingwóod
Þetta er merk lýsing á landi og þjóð í lok
síðustu aldar. Collingwood fór um aht
land til fornra sögustaða. Hann tók tugi
ljósmynda, ritaði Qölda sendibréfa og
málaði mörg hundruð vatnshtamyndir.
Haraldur Hannesson þýddi sendibréfin
og ritar ævisögu Cohingwoods. Björn Th.
Bjömsson ritar formála.
324 blaðsíöur.
Örn og Örlygur.
Verð í öskju: 7850 kr.
GÖNGULEIÐIR Á ÍSLANDI
1. Suðvesturhomið
Einar Þ. Guðjohnsen
Bókin tekur að sér hlutverk fylgdar-
mannsins um svæðið umhverfis Reykja-
vik ffá Þyrli í Hvalfirði austur fyrir Ing-
ólfsfjaU. I bókinni er lýst helstu göngu-
leiðum á þessu svæði. Glöggt kort fylgir
hverri gönguleiö og auk þess litmynd af
merkisstöðum. Bókin er fyrsta hefti af
mörgum sem fyrirhugað er að gefa út um
gönguleiðir landsins og verði í heUd eins
konar íslandslýsing göngumannsins.
74 bls.
Almenna bókafélagið.
Verð: 1450 kr.
REYKJAVÍK
Sögustaður við Sund
Þriðja bindi R -Ö.
PáU Líndal
Með þessu bindi er stafrófinu lokið og
fólk hefur í stafrófsröð aðgang í bindun-
um þremur að gífúrlegum fróðleik. Bókin
er sneisafuU af gömlum og nýjum ljós-
myndum, málverkum, teikningum, kort-
um og uppdráttum.
Ritstjóri er Einar Arnalds og myndarit-
stjóri Örlygur Hálfdánarson.
208 bls. ,
Öm og Örlygúr.
Verð: 4975 kr.
NEW YORK NAFLI
ALHEIMSINS
Ritröð: Leiösögurit Fjölva
Jónás Kristjánsson
Ljósmyndir: Kristín Halldórsdóttir
í þessari ritröð hefur Jónas Kristjánsson,
ritstjóri DV, fengið vettvang til aö fræða
okkur landa sína um ýmsar stórborgir.
Nú kemur út New York, nafli alheims-
ins. Hún inniheldur ráðleggingar um
hótel, veitingahús og verslanir og um
merkustu skoðunarstaði. Áður eru
komnar út bækur um Kaupmannahöfn,
London, Amsterdam og París.
96 bls.
Fjölvi.
Verð: 1150 kr.
GENGIÐ
IGUÐSHÚS
GENGIÐ IGUÐSHUS
Sr. Gunnar Kristjánsson
Myndir: Páh Stefánsson
Efni bókarinnar snertir flesta þætti kirkj-
unnar á íslandi: sögu, húsagerð og hst.
Páll Stefánsson tók myndirnar. Bókin
skiptist í tvo meginþætti: annars vegar
ritgerð höfundar um kirkjuna að fomu
og nýju í íslensku samfélagi. Hins vegar
era valdar 24 kirkjur og þeim gerð skil í
myndum og texta. Hún fæst einnig í
enskri útgáfu: THE CHURCHES OFICE-
LANÐ.
112 bls.
Almenna bókafélagið.
Verð: 3580 kr.
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
ÍICU dU^l lílUlLTdllU £),
um fjarlæg lönd
VAKA-HELGAFELL
FÍLADANS OG FRAMANDI
FÓLK
Jóhanna Kristjónsdóttir
Hún byggir frásögnina meðal annars á
dagbókum sínum og speglast þar sér-
kenni þjóöa og landa, svo sem Óman,
Djibuti, Burma, Sri Lanca, Norður-
Jemen og Bangla-desh. Sandbyljir geisa,
fílar dansa og Jóhanna lendir óvænt í
kúlnahríð, svo aö fátt eitt sé nefiit. 210 bls.
Vaka-HelgafeU.
Verð: 2480 kr.
llndir augliti klukkunnar
Christopher Holan er lamaður og
mállaus en braust út úr þögninni.
Fyrir bókina hlaut hann ein virtustu
bókmenntaverðlaun Breta. Ótrúleg
bók sem lætur engan ósnortinn.
Fálkinn flýgur
Þriðja bókin í flokki sögulegra skáld-
sagna Wilbur Smith. Safarík og
spennandi skáldsaga - með sögu-
legu ívafi.
Anders Hansen
S\AÐ,4SD\ÐAf IROSSlN
uppruni og saga
IBINDI
Svaðastaðahrossin - Uppruni og
saga -1. bindi
Anders Hansen rekur sögu þessa
frægasta hrossakyns aldarinnar. Jóla-
bók hestamannsins.
ÍSAFOLD
Fjórargóðar
ÍSAFOLD
Ninna - engin venjuleg mamma
Helga Thorberg birtir óvenjulegar
endurminningar móður sinnar og
fyllir í eyðurnar. Einlæg bók sem
vekur áleitnar spurningar um heil-
brigðiskerfið.