Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Blaðsíða 20
36
íu Sá&MsföSt! fttjr\3AtiiJMV'dim
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
Nýjar bækur
KENNARATAL Á ÍSLANDI
Alls eru komin út 5 bindi af Kennaratali
í tveimur útgáfum. í fyrri útgáfunni eni
^æviágrip kennara allt aftur aö aldamót-
"unum 1800 til 1960. Aftur var svo hafist
handa við nýtt Kennaratal 1977 og spann-
ar þaö allt stafrófiö frá A-Ö og eru í því
æviágrip kennara sem útskrifast hafa
eftir útgáfu fyrra talsins. Ritstjóri seinna
talsins er Sigrún Harðardóttir.
Prentsmiðjan Oddi.
Verð: 3900 kr. á þessu nýjasta bindi.
SIR CHRISTOPHER WREN -
Kirkjusmiður og arkitekt
Hreggviður Stefánsson
Prentþjónustan Metri.
Verð: 1429 kr.
ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR
OG SAGNIR SIGFUSAR
SIGFÚSSONAR
8. og 9. bindi
Árið 1982 hóf Bókaútgáfan Þjóðsaga end-
urútgáfu á þjóðsögum og sögnum Sigfús-
ar. A árunum 1982 til 1986 voru 7 bindi
af safni hans gefin út og nú koma tvö til
viðbótar. í þessum nýju bindum eru
margar afreks- og afburðamannasögur
og útilegumannasögur. Hafa Grímur M.
Helgason og Helgi Grímsson búið þau til
prentunar.
Bókaútgáfan Þjóðsaga.
Verð: 3075 kr. hvort bindi.
STEINARÍKIÐ
Heillandi veröld í
máli og myndum
Stórfróðleg og glæsileg fjölfræðibók um
steinaríkið, uppruna berg- og steinteg-
unda, útlit þeirra og hagnýtt gildi. Bókin
er gefin út samtímis í nokknim Evrópu-
löndum en íslensku útgáfuna önnuðust
jarðfræðingarnir Ari Trausti Guðmunds-
son og Halldór Kjartansson. Fyrsta bókin
í nýjum flokki bóka sem ber heitið Heim-
ur í hnotskurn. Nýstárleg og myndræn
innsýn í heillandi ríki steinanna.
64 bls.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1890 kr.
ÍSLENSK
SAMHEITAORÐABÓK
Ritstjóri Svavar Sigmundsson
Ómissandi handbók fyrir alla þá sem
vilja tjá sig betur á íslensku. Það voru
hjónin Þórbergur Þórðarson og Margrét
Jónsdóttir sem stofnuðu sérstakan sjóð
til að gefa út þessa bók. Hún bendir á orð
sem kæmu til greina eða hjálpar til við
að muna eftir oröi sem notandi kann en
man ekki eftir í svipinn.
582 bls.
Háskóli íslands.
Dreifing Mál og menning.
Verð: 4875 kr.
ULL VERÐUR GULL
- Ullariðnaður íslendinga á síðari hluta
19. aldar og á 20. öld.
Magnús Guðmundsson
450 bls.
Hið ísl. bókmenntafélag.
Verð: 3.500 kr.
GAELIC INFLUENCEIN
ICELAND
Gísli Sigurðsson
Studia Islandica, 46. hefti. Bókin er samin
á ensku og meginviðfangsefni að gefa
yfirlit um og meta kenningar fræði-
manna um keltnesk áhrif á íslandi.
Helstu efnisþættir fjalla um kynni vík-
inga af írum, Kelta á íslandi, blóðflokka-
rannsóknir, keltnesk áhrif og keltnesk
minni í bókmenntaverkum, svo sem
Fornaldarsögum, Eddukvæðum,
Snorra-Eddu og íslendingasögum og um
keltnesk áhrif í dróttkvæðum.
172 bls.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 900 kr.
Bílamarkaður
á laugardögum
Fjöldi bílasala og bílaumboöa auglýsir
fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum
og öllum veröflokkum.
Auglýsendur athugið !
Auglýsingar í DV-Bílar þurfa að berast
í síöasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum.
V X f) It /> V B fi Ó I. I> f) V U A N N A
UNDRAVERÖLDDÝRANNA
6. bindi. Spendýr, III.
Fjölfræðisafn um dýr í alls 18 bindum. i
þessu bindi er fjallað um hunda, refi, ís-
birni og fleiri af þeim frændum. Margar
litmyndir. íslenskir samstarfsmenn: Þor-
steinn Thorarensen og Óskar Ingimars-
son
Fjölvi og bókaklúbburinn Veröld
Tryí®¥i EmilssoE
Sjómenn
og sanðabændnr
SJÓMENN OG
SAUÐABÆNDUR
Tryggvi Emilsson
Bókin er í senn ættarskrá og aldaspegill.
Hér rekur Tryggvi Emilsson ættir sínar
og segir sögu forfeðra sinna allt að þrjár
aldir aftur í tímann. í bókinni er að finna
ágrip af byggðasögu Grímseyjar og fjallað
um ættingja Tryggva í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslum. -
410 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2875 kr.
LÍFRÍKINÁTTÚRUNNAR
Mark Carwardine
Þessi fallega bók fjallar um fjölbreytt
úrval þeirra þúsunda dýrategunda sem
lifa víðs vegar í veröldinni. Hún greinir
frá hinni athyglisverðu tilbreytni í útliti
og atferli og furðulegri aðlögunarhæfni,
frá tengslum lífsins við vistsvæðin, frá
hinum frjósömu regnskógum hitabeltis-
ins til hinna harðbýlu freðmýra og heim-
skautasvæða. Höfundurinn nam dýra-
fræði við Lundúnaháskóla og starfaði
sem ráögjafi hjá Alþjóða dýraverndar-
samtökunum.
164 bls.
Skjaldborg.
Verö: 2.475 kr.
ÁRIÐ1987
STÓnvtBBUHÐtR t MYNOUM OG MÁU
MEÖ ÍSLENZKUM SÉRKAFLA
ÁRIÐ1987
Stórviðburöir í myndum og máli með ís-
lenskum sérkafla
Þetta er fjölþjóðaútgáfa sem kemur út á
8 tungumálum. Bókinni má efnislega
skipta í þrjá kafla: annál ársins þar sem
helstu atburðir liðins árs eru raktir í
tímaröð í myndum og máli, greinar um
ýmis svið mannlífs og menningar eftir
sérfræðinga frá ýmsum löndum og loks
íslenskur sérkafli þar sem helstu við-
burðir ársins í íslensku þjóðlífi eru rakt-
ir í myndum og máli. í bókinni eru nærri
600 myndir, þar af yfir 300 litmyndir.
344 bls.
Bókaútgáfan Þjóðsaga.
Verð: 4400 kr.
ALMANAK HINS ÍSLENSKA
ÞJÓÐVINAFELAGS1989
Umsjónarmaöur Jóhannes
Halldórsson
115. árgangur Þjóðvinafélagsalmanaks-
ins og aðalhluti þess, Almanak um árið
1989, sem dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjarnfræðingur hjá Raunvísindastofnun
Háskóla fslands, hefur reiknaö og búið
til prentunar. Annaö efni almanaksins
er Arbók fslands 1987, sem Heimir Þor-
leifsson menntaskólakennari tók saman.
216 bls.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 975 kr.
SJÁVARBYGGÐ UNDIR
JÖKLI
Fyrri hluti
Eiríkur Guðmundsson, Jón Árni Frið-
jónsson og Ólafur Ásgeirsson
Bókin er fyrri hluti sögu Fróðárhrepps á
Snæfellsnesi og greinir frá byggð, mann-
lífi og atvinnuvegum frá landnámi til um
1800 og verslunarháttum fram um 1900.
í henni er einnig ítarleg örnefnaskrá,
fiöldi litmynda og litprentað örnefnakort.
Bókin fæst hjá bóksölum en einnig er
hægt að panta hana í síma 93-61233.
544 bls.
Átthagafélag Fróöhreppinga.
Verð: 4960 kr.
NÝJA TESTAMENTIÐ
- í þýðingu Odds Gottskálkssonar Með
aðgengilegri nútímastafsetningu. Þýð-
ingin kom fyrst út í Hróarskeldu árið
1540 en hefur aldrei fyrr veriö gefin út á
íslandi. Hún er gerð í samvinnu viö Bibl-
íufélagið, Kirkjuráö og Orðabók Háskól-
ans. Undirbúningur hefur staðið yfir sið-
an árið 1981.
Lögberg.
Kynningarverö til janúarloka 3750 kr.,
síöan 4500 kr.
Glæsilegar enskar og amerískar bækur til jólagjafa
Bókabúð Steinars, Bergstaðastræti 7.