Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 24
,40
Nýjar bækur
n RIŒARDT RYEL
i
J' / frásögur
f / færandi
^ * ferdaþa.’ttir og hugleidittgar
í FRÁSÖGUR FÆRANDI
■Richardt Ryel
í þessari bók eru feröaþættir og hugleiö-
ingar íslendings sem hefur veriö búsettur
erlendis um áratuga skeiö. Bókin skiptist
í 31 kafla: ferðaþætti til Egyptalands og
Marokkó og víðar, hugleiöingar um dui-
ræn efni, drauma, trúmál og hið daglega
líf. Fyrri bók höfundar var Kveðja frá
Akureyri.
181 bls.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Verð: 2250 kr.
Kristirin Reyr
SEXTÁN SÖNGVAE
ÚMPtmag: Ej-þór íwiáb»>n
SEXTÁN SÖNGVAR
Kristinn Reyr.
Útsett af Eyþóri Þorlákssyni.
Eigin útgáfa.
64 bls. í stóru broti.
,-------------Itefti------
25 ÍSLENSK DÆGURLÖG
í þessu nótnahefti eru 20 vinsæl lög frá
liönu ári og 5 gamlir „gullmolar" að auki.
Skrifuð er út laglina og bókstafahljómar.
í bókinni eru lög eins og Lóa Lóa Lóa,
Fröken Reykjavík og Braggablús. Dreif-
ingu annast Skífan hf.
32 bls.
Félag tónskálda og textahöfunda.
Verð: 953 kr.
20 SÖNGLÖG, I.
Ólafur I. Magnússon
Flest lögin eru útsett af Eyþór Þorláks-
syni.
44 bls. í sióru broti *
Eigin útgáfa.
MEIRATIL SÖNGS
Jónas Ámason
í bókinni eru um 60 textar, frumsamdir
eða þýddir af Jónasi Árnasyni við ýmis
lög. Þriðjungur laganna er eftir Jón Múla
úr ýmsum söngleikjum þeirra bræðra.
Karl Sighvatsson hefur skrifað einfaldar
laglinur þeirra í.g-lykli og gítarhljómum.
Myndskreytingar eftir sex myndlistar-
konur.
130 bls. í stóru broti.
Imbusteinn.
Verð: 2682 kr. 1
UM ÓVÍGÐA SAMBÚÐ
Guðrún Erlendsdóttir
Alls konar upplýsingar um lögfræðileg
atriði sem máli skipta í óvigðri sambúð
og einnig um réttindi og skyldur hvors
aðila um sig ef til þess kemur að sambúð
sé rift.
184 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 2500 kr.
KRABBAMEIN
(viðbrögð, ábyrgð, angist, sorg)
Heidi Tuft
Þýðandi: Eiríkur Brynjólfsson
Höfundur bókarinnar skrifar um eigin
upplifun og reynslu þess að fá krabba-
mein, um samskipti við sína nánustu, um
einmanaleikann, um angistina og óttann
við dauðann og viðhorf krabbameins-
sjúklings til lífsins. Höfundur lýsir sam-
skiptum fólks við krabbameinssjúklinga
og hvernig henni fannst hún einangrast
vegna klaufalegrar framkomu.
192 bls.
Tákn - bókaútgáfa.
Verð: 1980 kr.
ÁSTVINAMISSIR
Guöbjörg Guömundsdóttir
skráði
Bókin fjallar um sorg og sorgarviðbrögð
fólks vegna andláts nákomins ættingja
eöa vinar. Ellefu íslendingar rifla upp
sárar tilfmningar. Tilgangur bókarinnar
er sá aö hugga þá sem þurfa aö þola þung-
bærar sorgir vegna ástvinamissis. Ein-
lægar frásagnir viðmælenda gefa bókinni
gildi. 200 bls.
Tákn - bókaútgáfa.
Verð: 2495 kr.
í NAFNIJAFNRÉTTIS
Helga Sigurjónsdóttir
Greinasafn um kvennasögu. Helga Sigur-
jónsdóttir hefur um árabil ritað greinar
um kvennasögulegt efni í blöð og tíma-
rit. Hér er úrval þeirra gefiö út í kilju.
Fróðlegt efni og handhægt meðal annars
til verkefnavinnslu í námi og félagsstarfi.
175 bls.
Bókrún hf.
Verð: 1.350 kr.
KÆRLEIKUR - LÆKNINGAR
-KRAFTAVERK
Dr. Bernie S. Siegel
Hér er sagt frá sjúklingum sem hafa svo
sterkan vilja til að sígrast á sjúkdómum
sínum að þeim tekst að lifa af. Hægt er
að ná undraverðum árangri með því að
beita kærleik, skilningi og innsæi. Ef sál-
arlífið er í jafnvægi eykst líkamanum
styrkur. Helga Guðmundsdóttir þýddi.
240 bls.
Forlagið.
Verð: 2575 kr.
HARMSÖGUR OG HILDAR-
LEIKIR
Á 20. ÖLD
N. Blundell og R. Boar
Eftir blaðamennina Nigel Blundell og
Roger Boar í íslenskri þýðingu Björns
Jónssonar. Meöal frásagna má nefna
Titanic-slysið, eldgosin í Monte Pelée árið
1902 og St. Helen 1980 og flugslysin miklu
á Tenerife 1977 og við Potomac-fljótið
árið 1982. Margar myndir.
212 bls.
Frjálst framtak.
Verð: 1780 kr.
A SHORT HISTORY OF
ICELAND
Jón R. Hjálmarsson
Bókin fjallár um sögu íslands, allt frá því
landnámsmenn settust hér aö fyrir meira
en ellefu öldum og fram til nútímans.
Bókin svarar öllum helstu spurningum
sem leita á erlenda ferðamenn sem koma
til landsins og getur einnig reynst hagnýt
íslenskum gestgjöfum.
144 bls.
Almenna bókafélagið.
: 1250 kr.
BÖRNIN SVIKIN
Tortímingarmáttur siflaspella
Þýðandi: Guðrún Einarsdóttir sálfræð-
ingur.
Sifiaspell hafa lengi viðgengist á Islandi
en upp á síðkastið hefur gifurleg umræða
orðið um þessi mál víðast á Vesturlönd-
um. í þessari bók kemur skýrt fram
hvernig og á hve margvíslegan hátt þetta
óeðli birtist í fari gerenda og þolenda.
238 bls.
Tákn - Bókaútgáfa.
Verð: 1980 kr.
ÍSLENSKIR
UTANGARÐSUNGLINGAR
- Vitnisburður úr samtimanum
Sigurður Á. Friðþjófsson
Rætt er við tíu unglinga og þá sem vinna
ráðgjafar- og hjálparstarf meðal íslenskra
ungmenna sem af einhverri ástæðu hafa
kiknað undan ofurálagi í lífinu. Rætt er
við heimilislausa unglinga, komunga
vímuefnaneytendur, fómarlömb kyn-
ferðisofbeldis, samkynhneigða unglinga,
fómarlömb eineltis í skólum, fatlaða
unglinga og ungt og ógæfusamt fólk.
160 bls.
Forlagið.
Verð: 2475 kr.
«89
MINNISBOK BOKRUNAR
1989
Ritstjóri: Valgerður Kristjónsdóttir
Minnisbókin 1989 er með atriðum við
hvern dag um konur og viðfangsefni
þeirra. Fimm konur rita um hugðarefni
sín. Heilsíðuljósmynd viö hvern mánuð.
Auk þess er greint frá uppbyggingu
Kvenfélagasambands íslands, hlut
kvenna í bókaútgáfu 1984 og ýmsum töl-
fræðilegum upplýsingum. Þægileg til
daglegra nota.
250 bls.
Bókrún hf.
Verð: (kilja) 600 kr.
BEÐIÐ EFTIR KAFFINU
Claire Bretecher
Teiknimyndasaga fyrir fullorðna. Claire
Bretecher er frönsk og þekkt fyrir teikni-
myndasögur sem gera grín að nútímalífi
á kaldhæðinn hátt. Bókaforlagið Litla
gula hænan sérhæfir sig í teiknimynda-
sögum fyrir fullorðna.
48 bls.
Litla gula hænan.
Verö: 659 kr.
BÆTUR FYRIR
UMFERÐARSLYS
Arnljótur Björnsson. •
Lýsing á ákvæðum laga frá 1. mars 1988
um bætur fyrir tjón sem hlýst af umferð
vélknúinna ökutækja. Reglur hafa breyst
mjög, sem og vátryggingaskilmálar. En
leitast er við að svara sem flestum spurn-
ingum varðandi bótarétt og bótaskyldur.
192 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Verð: 2500 kr.
ÁRIN OKKAR
Ásdís Skúladóttir
Meginefni er réttindi fólks samkvæmt
almannatryggingum, lögum um málefni
aldraðra og til lífeyris. Ennfremur veittar
upplýsingar um skattamál, fasteignavið-
skipti. Þá eru ýmsar nytsamar ábending-
ar varðandi heilsuvernd og lífshætti.
112 bls.
Alþýðusamband íslands og MFA.
Verð: 2425 kr.
HREMMINGAR - VIÐTOL UM
NAUÐGUN
Sigrún Júlíusdóttir
Höfundur átti sæti i nefnd á vegum dóms-
málaráðuneytisins þar sem hún vann að
athugun á reynslu og viðhorfum kvenna
sem orðið hafa þolendur nauðgunar.
Bókin er byggð á viðtölum við 24 konur
og er ætlað að vera framlag til umræðu
um þessi efni hér á landi.
119 bls.
Mál og menning.
Verð: 1690 kr.
FRAMHALDS-YOGAFRÆÐI
Yogi Ramacharaka
Yogaheimspekin, fræðastundir spekings-
ins Ramacharaka hafa notið hylli hér á
landi í þýðingu Steinunnar Briem, Undir-
stað^ dulvísindanna. Nú gefur Fjölvi/-
Vasa út næsta rit í rööinni Framhalds-
Yogafræði í þýðingu Önnu Maríu Þóris-
dóttur. Rætt er ítarlega um þroskaleiðir
sálarinnar og um tilveru æðsta guödóms,
- hins „Algjöra".
256 bls.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 680 kr.
NÚERKOMINN TÍMITIL
- leiðarvísir fyrir konur í stjórnmálum
Drude Dahlerup
Um aðferðir og aögerðir kvenna á Norð-
urlöndum til að ná markmiðum jafnrétt-
isbaráttunnar. Safn upplýsinga og hag-
nýtrar reynslu sem norrænar konur
miðla með sér. Fjölmörg dæmi víða af
Norðurlöndum, m.a. margt frá íslandi.
Hildur Jónsdóttir þýddi.
288 bls.
AB í samvinnu við ráðherranefnd Norð-
urlandaráðs.
Verð: 1250 kr.
HVAÐ ER HEYRNARLEYSI?
R. D.Freeman, C.F.Carbin og R.Boe'se.
Handbók um heyrnarleysi og afleiðingar
þess. Bjallað er um byggingu eyrans,
samskipti heyrnardaufra við annað fólk,
hjálpartæki, skólagöngu, uppeldis og fé-
lagsmál. Hugsuð fyrir foreldra, og eitt af
fáum fræðiritum á íslensku fyrir fatlaða.
Ólafur Halldórsson og Þuríður J. Kristj-
ánsdóttir þýddu, en Þuríður og Ásgeir
S. Björnsson sáu um útgáfuna.
298 bls,
Verð 2500 kr.