Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989.
Fréttir________________________________
Úreldmgarsjóöurinn:
Halldór breytir
tillögum sínum
- sjóðurinn mun
„í upphaflegu tillögunum var gert
ráö fyrir því aö úreldingarsjóðurinn
hefði yfir nokkrum aflakvóta aö ráöa
strax í byrjun. Frá því hefur veriö
fallið. Aftur á móti er gert ráð fyrir
aö hann hafi síðar yfir að ráða afla
þeirra skipa sem hann kaupir upp,
sem síðan komi til úthlutunar til
heildarinnar smátt og smátt. Segja
má að þetta sé helsta breytingin frá
fyrstu drögum," sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra í
samtali við DV í morgun.
Hann sagði að sumir heföu haldið
að til stæði að sjóðurinn tæki til sín
aflaheimildir og hefðu þær að eilífu.
engan aílakvóta hafa
Þaö hefði verið misskilningur. Það
hefði alltaf verið gert ráð fyrir að
sjóðurinn inni fyrir flotann í heild.
Halldór sagði aö hugmyndirnar
hefðu ekki veriö fullmótaðar þegar
hann lagði þær fram fyrst og hefðu
síðan verið að mótast smám saman.
Nú væri unnið að drögum aö laga-
frumvarpi sem yrði lagt fyrir hags-
munaaðfla til frekari-vinnslu.
Halldór sagði að úreldingarsjóður-
inn myndi til að byrja með hafa til
ráðstöfunar 80 milljónir króna frá
gamla úreldingarsjóðnúm, eignir
aldurslagasjóðsins, sem eru 250
milljónir króna, tekjur aldurslaga-
til aö byrja með
sjóðsins, sem eru 50 milljónir króna
á ári, og loks verðmæti þeirra afla-
heimflda sem hann fengi við að
kaupa upp skip.
„Við höfum einnig hugsað okkur
að sjóðurinn geti aldrei haft til ráð-
stöfunar nema ákveðið hámark af
aflaheimildum, svona 3 til 5 prósent.
Það sem umfram það verður muni
koma sjálfkrafa til úthlutunar til
annarra skipa. Með þessu móti
myndi sjóðurinn vinna fyrir heild-
ina,“ sagði Halldór Ásgrimsson sjáv-
arútvegsráðherra.
-S.dór
Stykkjavöruflutnlngar Sambandsins frá Bandarlkjunum:
Vörurnar til Evrópu með
bandarísku skipafélagi
„Þar sem áður var um að ræða
siglingar með stykkjavöru á þriggja
til fjögurra vikna fresti frá höfnum
í Bandaríkjunum verður nú um að
ræða vikulegar siglingar með banda-
rísku skipafélagi til hafna í Evrópu
og þaðan með skipum Sambandsins
heim tfl íslands. Flutnirigstími vör-
unnar styttistjiannig um allt að hálf-
an mánuð og þjónusta okkar eykst,“
sagði Stefán Eiríksson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri skipadeildar
Sambandsins, í samtali við DV þegar
hann var spurður hvort Sambandið
hygðist hætta siglingum til Banda-
ríkjanna.
Stefán sagði aö Jökulfellið, frysti-
skip Sambandsins, myndi eftir sem
áður sigla með frystivöru tfl Banda-
ríkjanna. í bakaleiðinni tæki skipið
frystivöru frá höfnum í Bandaríkj-
unum, Kanada og á Nýfundnalandi
og sigldi með hana til meginlands
Evrópu með viökomu á íslandi. Þetta
nýja fyrirkomulag hefur verið reynt
síðastliðnar vikur með ágætum ár-
angri.
- Nú er samningsbundið verð fyrir
flutning á vörum fyrir ÁTVR frá
Bandaríkjunum 175 dollarar á tonn-
ið. Er eitthvaö eftir af þeirri upphæð
þegar bandaríska skipafélagið hefur
flutt vöruna yfir Atlantshafið og tek-
ið sitt flutningsgjald?
„Við höfum náð mjög hagstæðum
samningum við flutningsaðila vest-
anhafs. Ef ekkert væri eftir af þess-
ari samningsbundnu upphæð vær-
um við ekki að þessu.“
Stefán vildi ekki að svo stöddu
segja hvaða bandaríska skipafélag
þetta væri. En skýtur það ekki
skökku við að láta erlent skipafélag
annast þessa flutninga?
„Við reynum aö halda Jökulfellinu
úti í stað þess að leggja því og bætum
á það verkefnum. Atlantshafssigling-
arnar auka síðan verkefni þeirra
skipa sem sigla til Evrópu. Stykkja-
vöruflutningurinn er ekki mjög stórt
dæmi en við höfum lifað þokkalega
af honum og þá meðal annars með
ágætum sainningum viö ÁTVR.
-hlh
Forstjóri Amarflugs:
Flugleiðir síðasti kosturinn
Kristinn Sigtryggsson, forstjóri
Arnarflugs, segir aö félagið kanni
nú ýmsa möguleika við að afla nýs
íjármagns í fyrirtækiö. Hann
kveðst hvorki vera bjartsýnn né
svartsýnn á það aö félaginu takist
aö fá nýtt hlutafé.
„Það er grundvallarskoöun eig-
enda og stjómenda Arnarflugs að
halda úti samkeppni í islensku
flugi og þess vegna er saraeining
viö Flugleiöir síöasti kosturinn,“
segir Kristinn.
- Em nýir aðilar að koma inn sem
hluthafar?
„Það er verið að skoða alla mögu-
leika í öflun nýs hlutafjár.“
- Er KLM enn inni í myndinni
sem nýr hluthafi?
„Það er mál sem enn er veriö aö
skoöa."
- Hvaö gaf samgönguráöherra
ykkur langan frest til aö afla fjár-
magns?
„Hann er ekki tíraasettur. Heldur
á aöflýta málinueinsogkostur er.“
- Hversumikiðhlutaféþurfiðþiö
aö útvega?
„Ég gef þaö ekki upp.“
- Eru þjónustuaðilar að loka á
ykkur erlendis vegna skulda?
„Talsverður hluti af kostnaöi
okkar er erlendis. Þjónustuaðilar
eru ekki að loka á okkur.“
- Það féll um 80 milljóna afborg-
un ykkar á ríkiö í haust. Er búið
að leysa þaö mál?
„Nei, það er enn óleyst.“
Kristinn segir loks að mistakist
allar leiðir til að afla nýs hlutafjár
á næstunni telji hann að niðurstað-
an verði sú aö Arnarflug og Flug-
leiöir sameinist.
-JGH
Búnaðarbanki hækkar ekki vexti
- segir Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðsins
„Það verða ekki hækkaðir vextir
í Búnaöarbankanum núna og það
kom aldrei tilgreina enda ekki rök
fyrir þvi,“ ságði Stefán Valgeirs-
son, formaður bankaráðs Búnaðar-
bankans, í samtali viö DV í morg-
un. Stefán sagöist ávallt hafa verið
talsmaður þess að allt væri gert til
þess að halda niðri vöxtum og hann
hefði hingað til staðið á móti vaxta-
hækkunum eins og hann hefði get-
að. Það væri hins vegar alltaf tak-
mörk fyrir því hvað unnt væri að
ganga á eigið fé bankans.
- En telur þú bankana vera með
óeðlilegt samráð í vaxtamálum?
„Það er sennilega hægt að vísa í
lög um að bankarnir megi ekki
hafa samráö um vaxtaákvarðanir
en hins vegar er mönnum ekki
bannað að tala saman. Þarna er um
túlkunaratriði að ræða.“
-SMJ
Rútan er mikið skemmd. Farþegarnir átta og bílstjórinn voru fluttir á slysa-
deild. Flestir sluppu með minni háttar meiðsli. DV-mynd S
Rúta út af Vesturlandsvegi:
Níu á slysadeild
Rúta frá Mosfellsleið fór út af Vest-
urlandsvegi í gærdag. Átta farþegar
voru í rútunni. Þeir voru allir fluttir
á slysadeild, sem og bílstjórinn.
Flestir slösuðust lítillega. Tveir far-
þegar hlutu slæm beinbrot. Rútan er
mikið skemmd.
Fyrir tæpu ári fór önnur rúta frá
sama fyrirtæki út af Vesturlandsvegi
nærri þeim stað þar sem rútan fór
út af í gær og við svipaðar aðstæður.
-sme
Hættulegt blys finnst
m
I
Merkiblys fiá Varnarliöinu
fannst i ijörunni neðan við frysti-
hús Heimaskaga á Akranesi um
helgina. Þaö var vélstjóri í frysti-
húsinu sem fann blysið. Hann lét
lögreglu vitaafþvl Lögreglan hafði
strax samband við Landhelgis-
gæslu sem mun eyöa blysinu.
Merkiblysiö er hættulegt ókunn-
ugum. Ef þaö er geymt í hita á þaö
til aö gefa frá sér eitruð efni. Eins
er einhver sprengihætta af blysum
sem þessum.
Jóhann Hjartarson ásamt Margeir Péturssyni á blaðamannafundinum i
gær. Jóhann heldur utan á morgun. DV-mynd: BG
Jóhann Hjartarson fer utan á morgun:
Ætti að tapa einvíginu
4:2 miðað við stig
„Ég vil ekki segja til um hvað er
viðunandi árangur, en miðað við
skákstig okkar Karpovs ætti ég að
tapa einvíginu með ijórum vinning-
um gegn tveim," segir stórmeistar-
inn Jóhann Hjartarson.
Jóhann heldur utan á fimmtudag
við sjötta mann til aö tefla við fyrrum
heimsmeistara, Anatoly Karpov, í
fjórðungsúrslitum heimsmeistara-
keppninnar í skák. Einvígið fer fram
í Seattle í Bandaríkjunum og hefst
laugardaginn 28. janúar.
Á blaðamannafundi í gær sagði
Jóhann að sex skáka einvígi væri lík-
lega of stutt til aö skera afgerandi
daúr um styrkleika skákmann'a.
Hann telur að í stuttum einvígum
geti margt óvænt gerst og tilviljanir
haft úrslitaáhrif.
Um möguleika sína á sigri vildi
Jóhann ekki fjölyrða. „Korsnoj sagði
fyrir einvígi okkar í St. John í
Kanada fyrir ári að sá stæði upp sem
sigurvegari sem ynni fyrstu skákina.
Það gekk eftir,“ sagði Jóhann í gær.
Jóhann á að baki fjórar skákir viö
Karpov, tveim lyktaði með jafntefli
og tveim tapaöi Jóhann.
Aðstoðarmenn Jóhanns í Seattle
veröa Helgi Ólafsson stórmeistari,
Margeir Pétursson stórmeistari, Jón
L. Árnason stórmeistari og Elvar
Guðmundsson. Meö í för verður Þrá-
inn Guðmundsson forseti Skáksam-
bands íslands.
Einvígið stendur yfir frá 28. janúar
til 8. febrúar og vegna tímamismunar
verða úrslit í hverri skák kunn í
morgunsárið að íslenskum tíma.
-pv