Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989. 5 Fréttir Lögin banna framleiðslu og innfiutning bjórs fyrir 1. mars: Bjórhallæri 1. mars? „Það er ekki hægt að flytja inn bjór eða framleiða til innlendrar neyslu fyrr en 1. mars. í þessu máli sjáum við ekki lagaheimild fyrir neinu fyrr en 1. mars. Það þýðir ekki að ræða undanþágu frá þessum lögum þar sem undanþáguheimild er ekki fyrir hendi,“ sagði Jón Thors í dómsmálaráðuneytinu við DV. Mikill viðbúnaður virðist vera meðal bjóráhugamanna fyrir 1. mars næstkomandi, þegar áratuga bjórbanni verður aflétt hér á landi. En getur hugsast að 1. mars, þessi hátíðisdagur í augum ófárra, verði bjórlaus dagur eftir allt saman? Ef hannað er að flytja inn bjór og framleiða hér á landi til innlendrar neyslu fyrr en 1. mars, verða áfeng- isútsölurnar og veitingahúsin þá í stakk búin til að bjóða viðskipta- vinum sínum alvöru bjór til sölu þennan dag? Lagaákvæðin eru skýr „Þeim bjórframleiðendum sem hefur verið sent tilboð hefur verið sagt aö fullur vilji sé fyrir hendi hjá okkur að selja bjór hér á landi 1. mars. En það er rétt að sam- kvæmt núgildandi lögum má hvorki brugga bjór til innlendrar sölu né flytja inn fyrr en 1. mars. Dómsmálaráðuneytið og fjármála- ráðuneytið vita af þessu vandamáli og það mun ráðast hvemig við verður brugðist. Ef lögunum er fylgt er ljóst að innlendir bjórfram- leiðendur mega ekki leggja í fyrr en 1. mars og þá verða þeir á eftir Með tóma ölkrús á lofti: Verður bjórhallæri 1. mars? erlendum framleiðendum á mark- aðnum,“ sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, við DV. - Þið segist verða tilbúnir með lag- erpláss fyrir bjór í kringum 18. fe- brúar. Verður nokkur bjór settur inn á lagerinn fyrr en 1. mars? „Við verðum tilbúnir með lager á þessum tíma en það er háð því hvort lagaleg skilyrði eru fyrir hendi eða ekki hvort við tökum á móti bjór þar. Við ætlum ekki að flytja inn bjór fyrir 1. mars ef ein- hver lagaleg hindrun er í vegin- um.“ - Menn hafa nefnt sem möguleika að kaupa upp fríhafnarlagerinn? „Við verðum einungis með 30 sentilítra dósir til sölu svo það er ekki hægt þar sem þar eru hálfs lítra dósir.“ Innlendir framleiðendur tilbúnir Innlendir bjórframleiðendur brugga bjór til útflutnings, meðal annars í gegnum fríhafnir, og Jón Thors í dómsmálaráðuneytinu sagði að ekki væri hægt að sjá hvort innlendir framleiðendur legðu í til innlendrar neyslu eða ekki. „Það er framleiðenda og ÁTVR að glíma við þetta vanda- mál. Hvernig það verður gert veit ég ekki.“ - Ráðuneytið hefur þá ekki tekið neina skýra afstööu til þessa máls? „Nei, ekki enn.“ Einn innlendu framleiðendanna sagði við DV að þeir yrðu tilbúnir með bjór 1. mars, en hafa þeir spáð í lagalegu hliðina? „Nei, það höfum viö ekki gert. Það sem háir okkur er að hafa dós- irnar tilbúnar." Fulltrúi Carlsberg verksmiðj- anna sagði við DV að ef fyrirtækiö yrði eitt hinna útvöldu myndi það gera allt sem í þess valdi stæði til að vera með 1. mars. Jón Thors segir að það megi „taka þá áhættu" að panta bjór fyr- ir 1. mars þar sem allt geti gerst fyrir þann tíma. Viljinn er fyrir hendi en lögin standa óhögguð. Það er því útlit fyrir að handagangur verði í öskj- unni þann 1. mars, viö uppskipun og afgreiðslu til útsölustaða og veit- ingahúsa. -hlh Stefnir í „öltröð“ á íslenskum öl- stofum 1. mars miMl ásókn 1 að panta borð Eftir viðtölum við eigendur veit- ingahúsa eða kráa í Reykjavík að dæma verður mikil örtröð hjá þeim 1. mars næstkomandi. Er mikil ásókn í að fá bókað pláss þennan fyrsta dag sem áfengt öl verður selt almenningi hér á landi. Á Gauki á Stöng var DV tjáð að miðvikudagskvöldið 1. mars væri allt upppantað. Hefði verið uppselt frá því snemma í haust. Þórður Pálma- son hjá Fógetanum sagði að hann tæki ekki nein borð frá 1. mars en ef marka mætti ásókn fólks í að panta yrði húsfyllir þetta kvöld. Bjarni Marteinsson, sem mun reka Bjór- kjallarann í Pósthússtræti, sagði að fólk hringdi mikið í sig og vildi panta. Bjórkjallarinn verður opnaður 1. mars og er verið að vinna að innrétt- ingu staðarins þessa dagana. Allir viðmælendur DV voru þess fullvissir að þeir myndu bjóða upp á áfengt öl þennan dag. Það er því út- lit fyrir að fólk ætli almennt að kneyfa öl miðvikudaginn 1. mars. Að tímarnir breytast sést á því að miövikudagur gekk ekki alls fyrir löngu undir nafninu „þurr dagur". Fulltrúi Carlsbergverksmiðjanna: Afgreiðum fyrir 1. mars verðum við með „Við bíðum mjög spenntir eftir því aö tilboðin verði opnuð þann 19. jan- úar og í ljós kemur hvort við verðum inni í myndinni eða ekki. Við erum spenntir fyrir að komast inn á ís- lenska markaðinn. Viö erum kannski ekki ódýrastir en um leið með eitt af þekktustu merkjunum," sagði Bent Söberg hjá Carlsberg- verksmiðjunum við DV en hann hef- ur ísland á sinni könnu. „Það er afgerandi fyrir okkur að ÁTVR taki sem fyrst ákvörðun um hvaða erlendir framleiðendur verða með. Við erum tilbúnir með útht dósanna og eigum að geta afhent 300 þúsund lítra af bjór fyrir 1. mars ef hlutirnir ganga hratt fyrir sig á ís- landi. Við getum gert allt klárt á tveimur til þremur vikum og munum gera allt til að íslendingar geti drukk- ið einhvern af okkar bjórum verðum við með. Okkur skilst að þetta verði mikill hátíðisdagur hjá mörgum ís- lendingum." Bent Söberg var á íslandi í desemb- er og það sem vakti einna helst at- hygli hans var hið litla lagerpláss sem áfengisútsölurnar hafa. „Ég get engan veginn ímyndað mér hvemig þær þrjár útsölur, sem ég sá í Reykjavík, ætla að koma fimm teg- unda bjórlager fyrir á lagernum sem þærhafa." -hlh ^^0R‘SUMAR l989,y0ff 1989*VOft- FjÖRÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.