Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989. ’ll Utlönd Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, hefur neitað að taia við stjórnvöld nema þau samþykki að ihuga lögleið- ingu samtakanna. Simamynd Reuter Jaruzelski vill leyfa Samstöðu Auglýsing um framlagningu kjörskrár við biskupskosningu Kjörstjórn við biskupskosningu hefur í samræmi við lög um biskupskosningu nr. 96/1980 samið kjörskrá vegna biskupskjörs er fram fer á þessu ári. Kjörskráin liggur frammi til sýnis á biskupsstofu og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu til 14. febrúar 1989. Kærurtil breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist formanni kjörstjórnar í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu fyrir 15. febrúar 1989. Reykjavík, 16. janúar 1989. SKRWOFUTMM Sigríður Kristjánsdóttir skrifstofutæknir, útskrifuð cles '88. „Skrifstofutækni er stutt, fjöl- þætt og mjög hagnýtt nám í notalegu andrúmslofti. Náms- greinarnar koma sér vel hvort sem er í atvinnu- eða daglega lífinu. Ég fékk líka vinnu strax. Skelltu Joér í höpinn". Nám í skrifstofutækni opnar þér nýja möguleika í starfi. Kenndar eru allar helstu viðskipta- og tölvugreinar, sem gera þig að úrvals starfskrafti. Innritun og uþplýsingar í símum 68 75 90 & 68 67 09. Tölvufræðslan Borgartúni 28 Leiðtogar pólska Kommúnista- flokksins börðust í gær við harð- línumenn í flokknum um áætlanir um að leyfa lún bönnuðu verka- lýðssamtök, Samstöðu. Sögðu leið- togarnir að ef ekkert yrði að gert myndi ný óróaalda ríða yflr landið. Það voru óvenjulegar opinberar umræður í miðnefnd flokksins eftir að stjórnmálaráðið bað nefndina að leggja blessun sína yflr áætlun um að veita takmarkaö frelsi verkalýðsfélaga í landinu og gera samning við Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu. Nú hafa pólsk stjórnvöld velt því fyrir sér í marga mánuði hvernig bregðast eigi við kröfum um að sjö ára löngu banni við starfsemi Sam- stöðu verði aflétt. Greinilegt þykir nú að flokksforystan hafi ákveðið að breyta í anda umbótastefnu Gorbatsjovs. Ekki hægt án Samstöðu Jaruzelski hershöfðingi, leiðtogi Kommúnistaflokksins, varaði mið- nefndina við því að ef ekki yrði gengið til samninga við Samstöðu væri nær öruggt að neyðarástand skapaðist í landinu. Svo virtist sem einungis örfáir miðnefndarmenn væru honum sammála. Ottast stjórnleysi Samkvæmt fregnum opinþerra fjölmiðla studdu aðeins flórir af fyrstu nítján ræðumönnum á fundi miðnefndarinnar í gær tillöguna um að breyta flokksstefnunni varð- andi frelsi verkalýðsfélaga. Nokkrir ræðumenn sögðu að þeir óttuðust að endurreisn Samstöðu gæti valdið stjórnleysi í pólskum verksmiðjum og ógnað stjórn kommúnista á sviðaðan hátt og gerðist árin 1980-81 þegar Sam- staða var leyfileg. Stjórnmálaráðið hefur lagt til að gerður verði samningur við Sam- stöðu og verði hann hornsteinninn í áður óþekktri samvinnu við hóf- sama stjórnarandstæðinga um nauðsynlegar aðgerðir í efnahags- málum. Ekki er hægt að gera þær aðgerð- ir nema stjórnin geti unnið á and- stöðu fólksins í landinu gegn þeim. Eina leiðin til þess, að mati leiðtoga flokksins, er að gefa fólkinu eitt- hvað í staðinn, lögleiða Samstöðu á nýjan leik. Samstaða setur skilyrði Samstaða hefur að undanfornu algerlega hafnað öllum viðræðum við stjórnina fyrr en stjórnin hefur samþykkt að ræða við samtökin um lögleiðingu þeirra. Stjórnmálaráðið hefur gert það ljóst aö lögleiðing á Samstöðu verði einungis þannig að tryggt sé aö samtökin muni ekki ógna stjórn Kommúnistaflokksins í Póllandi. Reuter Jaruzelski hershöfðingi hefur nú lagt til að Samstaða verði gerð leyfileg. Simamynd Reutei SALA Síðasti dagur á morgun Opið frá kl. 10-16 Austurstræti 14 - sími 12345 Kringlunni 4 - sími 689-789

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.