Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Michael Fox
bíöur nú i ofvæni eftir
aö eignast sitt fyrsta
barn meö eiginkonu
sinni. Tracy Pollan.
Unginn á víst aö koma í
heiminn einhvern tím-
ann á sumarmánuðum.
Þau hjón velta nú vöng-
um yfir því hvort barnið
veröi piltur eöa stúlka.
Mike Tyson
er þess fullviss aö hér í
heimi finnist margar
skarpgáfaöar ungar
konur þótt eina slíka
hafi ekki rekiö á fjörur
hans. Annars kveðst
kappinn ætla að leggja
ofurkapp á aö fmna sér
nýja eiginkonu á árinu.
Svo er bara að vona aö
honum takist betur upp
en þegar hann gifti sig
síðast.
Raquel Welch
heldur því statt og stöð-
ugt fram aö hún muni
halda áfram aö elska
André Weinfelds þó svo
aö þau séu aö skilja.
Hún kveöst þess einnig
fullviss að hann elski
sig. Þá er þaö bara
spumingin hvers vegna
þau eru aö skilja fyrst
þau elska hvort annað
svo heitt.
Alfakóngurinn heldur ræðu að viðstöddu miklu fjölmenni sem kom saman á þrettándahátíð Akureyringa. Sá hvítskeggjaði er enginn annar en Þorsteinn
Ólafsson fyrrverandi landsliðsmarkvörður i knattspyrnu. Álfadrottningin fylgist með á bakvið og Hemmi Gunn. notfærir sér aðstæður og gerir sér dælt
viðhana. DV-myndirgk
Akureyri:
Jólin kvödd á þrettándahátíð
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyn:
Það er gamall og góður siður á
Akureyri að kveðja jólin á þrettánda-
hátíð hjá íþróttafélaginu Þór, með
brennu, dansi og öðrum skemmtiat-
riðum.
Það er ekki alltaf sem norðanbálið
fær íslendinga til að skjálfa á bein-
unum - þrettándabrennan á Akur-
eyri hlýjaöi a.m.k. mörgum.
Um 2000 manns mættu á þrettánda-
hátíð sl. föstudagskvöld og fór hún
vel fram í góðu veðri. Skemmtunin
hófst með því að álfakóngur og
drottning hans gengu inn á svæðið
með fóruneyti sínu og mátti þar sjá
álfa, púka, tröll og fleiri furðuverur
og jólasveinamir voru ekki langt
undan.
Kynnir á skemmtuninni var hinn
eldhressi Hermann Gunnarsson og
af skemmtikröftum má nefna Pál
Jóhannesson söngvara og Bjartmar
Guðlaugsson sem „tók svæðið með
trompi". Bjartmar gat m.a. leyft sér
þann lúxus að einbeita sér að undir-
spilinu í lögum sínum því krakk-
arnir kunnu texta hans og sungu
hástöfum. Skemmtuninni lauk síðan
meö hefðbundinni flugeldasýningu
og því að jólasveinar kvöddu með
virktum áður en þeir héldu „upp á
Súlutind" eins og Hemmi Gunn orö- Margir hressir Akureyringar og fröll skemmtu sér hið besta á þrettándahá-
aði þaö. tíðinni. Á myndinni má m.a. sjá Sigfús Jónsson bæjarstjóra með dóttur sinni.
Vestmannaeyjar:
Hugmyndaflug á þrettándakvöldi
Verðlaunahafar á grímudansleiknum.
DV-mynd Ómar
Tröll á þréttandakvöldi Týrara.
DV-mynd Ómar
Ómar Garðaisson, DV, Vestmarmaeyjum:
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri fylgst með
þrettándagleði Knattspyrnufélagsins Týs en í
ár - veðurguðirnir Týrurum hagstæðir. Aust-
ankaldi um kvöldið en jólasveinaranir voru
varla búnir aö slökkva á blysunum þegar
skollið var á foráttuveður, austanrok og rign-
ing. Skemmtunin hófst kl. 20 með flugeldasýn-
ingu af fjallinu Molda og jólasveinar héldu
niður af íjalli. Þar biðu þeirra tröll, álfar og
púkar og meö bömum var haldið í bæinn.
Skrautsýningar voru á malarvellinum og
tókst allt hið besta.
Grímudansleikur.
Á þrettándakvöld héldu Eyveijar sinn ár-
lega grímudansleik fyrir börn og unglinga í
samkomuhúsinu. Að venju var húsið troð-
fullt og mátti sjá þar marga skrautlega og
frumlega búninga. Brá fyrir metsölubókum
síðasta árs, pylsu með öllu, Heineken-bjór,
vita, jarðkringlunni og litlum senjórítum. 20
verðlaun voru veitt fyrir búninga og komu
verðlaunahafarnir upp á svið einn af öðrum.