Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Side 3
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989.
3
dv Fréttir
Manneldismál:
Viðamikil neyslu-
könnun á döfinni
Ríkisstjómin hefur samþykkt, að
tilhlutan menntamálaráðherra, til-
lögu um mótun manneldis- og
neyslustefnu.
í flárlögum ársins 1989 er fjárveit-
ing til að hefja neyslukönnun og er
gert ráð fyrir að um verði að ræða
mun viðameiri og nákvæmari könn-
un en áður hefur verið gerð hér á
landi.
Frá og með 1. janúar hefur Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræðingur
verið ráðin til að sjá um neyslukönn-
unina. Hún er ráðin tímabundið í
starfið og eingöngu til að sinna þessu
verkefni. Laufey er doktor í næring-
ar- og lífeðlisfræði.
Gert er ráð fyrir að neyslukönnun-
in verði undirbúin á þessu ári og þá.
fari fram tilraunakönnun til undir-
búnings. Aðalkönnunin á að fara
fram á næsta ári en úrvinnsla gagna
fer fram árið 1991. Auk þess sem
könnunin verður unnin í samvinnu
við Manneldisráð er gert ráð fyrir
náinni samvinnu við Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins um gagna-
öilun og gagnavinnslu. -SMJ
Innkaupsverð
hátt á gler-
augnagleri
Innkaupsverð á gleraugnagleijum
er að meðaltah 2,5 sinnum hærra til
íslands en til Finnlands og 2,3 sinn-
um hærra en til Svíþjóðar. Þar sem
minnstu munaði var innkaupsverðið
50% hærra til íslands en þar sem
mestu munaði var það 240% hærra.
Þetta kemur fram í verökönnun
sem Verðlagsstofnun gerði í sam-
vinnu við verðlagsyfirvöld í Svíþjóð,
Finnlandi og Danmörku. Tilgangur
hennar var meðal annars sá að
kanna verð og verðmyndun á gler-
augnaglerjum.
Liðurinn álagning og vinna var að
jafnaði um 35% hærri í Finnlandi en
á íslandi en í Svíþjóð var þessi liður
20-30% lægri en hér á landi.
Smásöluverðið var í flestum tilfell-
um hærra í Finnlandi en hér á landi
en í Svíþjóð var það í flestum tilvik-
um 25-30% lægra.
Verðdreifing á gleijum er allnokk-
ur hérlendis og getur munurinn orð-
ið allt að 50%. Það getur því borgaö
sig fyrir neytendur að gera verðsam-
anburð áður en þeir kaupa sér gler.
-J.Mar
Akureyri:
Templarar seldu
Hótel Varðborg
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Ferðaskrifstofa Akureyrar, Flugfé-
lag Norðurlands og fleiri aðilar á
Akureyri hafa keypt Hótel Varðborg
af templurum í bænum og hyggjast
reka hótehð áfram en undir nafninu
Hótel Norðurland.
Hinir nýju eigendur hafa þegar tek-
ið við hótelinu en lokuðu því strax
og hafa hafið vinnu við gagngerar
endurbætur og breytingar innan-
húss þar sem m.a. verður skipt um
gler í öllum gluggum, herbergi teppa-
lögð og búin nýjum húsgögnum svo
eitthvað sé nefnt.
Höldur kaupir
flugskóla
Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri;
Nýtt fyrirtæki hefur tekið við
rekstri flugskólans Flugtaks í
Reykjavík en það er fyrirtækið Höld-
ur sf. á Akureyri sem hefur keypt
flugskólann.
Skóhnn hefur hlotið nýtt nafn og
heitir nú Höldur sf. - Flugtak. Fyrir
utan flugnám, sem þegar er hafið
undir stjóm hinna nýju eigenda,
mun fyrirtækið einnig annast leigu-
flug. Alls verða 7 flugvélar notaðar
við kennsluna og að auki verða þrjár
stærri vélar notaðar í leiguflugið.
SONY XO-D20
Hljómtækjasamstæða 2x30 watta m/skáp og
KEF hágæðahátölurum.
Kr. 49.700,- stgr.
SONY CCD-F330
Videomyndavél 8 mm alsjálfvirk
fjölskyldumyndavél sem hefur
hlotið frábæra dóma.
Kr. 69.920,- stgr.
SONY CDP-450
Geislaspilari m/fjarstýringu, 20 laga minni
og fjórföldu leiðréttingakerfi. "
Kr. 18.690,- stgr.
Bjóðum nýjar vörur ó sérstöku kynningarverði.
Takmarkað magn.
SONY CFS-210
Ferðatæki steríó m/segulbandi.
Kr. 6.980,- stgr.
SONY CFS-D20
Ferðatæki steríó m/segulbandi (auto reverse)
og „megabass".
Kr. 9.950,- stgr.
SONY ICF-750
Ferðaútvarp mónó m/LW, FM, MW.
Fyrir rafmagn og rafhlöður.
Kr. 3.450,- stgr.
PANASONIC NVM-C6
Videómyndavél VHS-c kerfi. Lítil
og nett. Ljósnæmni 10 lux.
Kr. 69.920,- stgr.
SONY IOxHF-60
Hljóðkassettur 60 mín. (normal)
10 kassettur í kassa.
Kr. 995,- stgr.
PANASONIC NVM-7
Videómyndavél VHSkerfi. Tilvalin
fyrir félagasamtök og þá sem vilja
nota VHS spólu í fullri stærð.
Kr. 99.900,- stgr.
JAPISS
BRAUTARHOLTI 2, KRINGLUNNI, AKUREYRI
OG STUDEO KEFLAVÍK
Umboðsaðilar: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi, Einar Guðfinnssonn hf. Bolungarvík, Póllinn ísafirði, Radíólínan
Sauðárkróki, Radíóvinnustofan Akureyri, Tónabúðin Akureyri, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Seyðisfirði og Eskifirði, Mosfell Hellu, Vöruhús
KÁ Selfossi, Kjami Vestmannaeyjum, Bókaverslun Þórarins Stefánssonar Húsavík.