Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989.
Fréttir
fynrliM
Þegar verslunarkeðjan Aldi í
Þýskalandi hefur hætt aö kaupa
niöurlagða rækju M íslandi liggur
íyrir aö tapaður er markaður upp
á 430 milijónir króna. í Þýskalandi
hafa þá tapast markaöir vegna
hvalveiðisteöiu okkar upp á 600
milljónir króna, að því er Theodór
S. Halldórsson, Mmkvæmdastjóri
Sölustofhunar lagmetis, sagöi í
samtali við DV.
Sjávarafurðadeild Sambandsins
segist hafa tapaö mörkuöum fyrir
frystan fisk í Bandaríkjunum sem
nemur 600 miljjónum króna og sem
nemur 200 milljónum króna i
Þýskalandi vegna þessa sama máls.
Talsmenn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna segja tapið hjá þeim
vera álíka og hjá Sambandinu.
Þama er því um að ræða markað-
stap upp á 2,4 milljarða króna.
Útflutningsverðmæti hvalaaf-
uröa áriö 1987 námu samkvæmt þvi
sem Hagstofa íslands skýröi DV M
í gær 301,1 milfjón króna. Fyrstu
11 mánuði ársins 1988 nam útflutn-
ingsverðmætiö 21,1 milljón króna.
Ijóst er aö þar eru ekki öll kurl
komin tfl grafar. Eftir er aö senda
út kjöt og rengi tfl Japans úr fram-
leiöslu síðasta árs.
Þama er um aö ræöa beinar út-
flutningstölur. Sjávarútvegsmála-
ráöherra, Halldór Ásgrímsson, hef-
ur hafnað því aö dæmið sé sett
þannig upp. Hann heldur því fram
að meta verði gildi þeirra hvalar-
annsókna sem í gangi eru. Ámi
Gunnarsson alþingismaður hafnar
því og spyr hve miklum verömæt-
um menn ætli aö fóma fyrir hval-
veiöarnar?
-S.dór
Þrjár konur tóku sæti sem varamenn á Alþingi þegar þing hófst að nýju eftir jólaleyfi. Þær hafa ekki tekið sæti á
þingi áöur. Auöur Eiriksdóttir, t.v., kemur inn fyrir Stefán Valgeirsson, Sigríður Hjartar fyrir Guðmund G. Þórarins-
son, Framsóknarflokki, og Jóhanna Þorsteinsdóttir, t.h., fyrir Málmfriöi Siguröardóttur, Kvennalista. DV-mynd GVA
Neytendasamtökin óska rannsóknar:
Lögbrot við verð-
lagningu á kartöflum
„Það er furðulegt aö kartöflufram-
leiöendur skuli komast upp með aö
haga sér á þennan máta,“ sagöi Jó-
hannes Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, en þau hafa nú
óskaö rannsóknar á meintu lögbroti
heildsöluaðfla og framleiðenda kart-
aflna. Gengið var á fund landbúnað-
arráöherra fyrr í vikunni og þessi
ósk lögð þar fram. Mun þetta vera í
fyrsta skipti að Neytendasamtökin
beita þessari aöferö.
Aðdragandi þessa máls er aö á síð-
asta ári óskuðu kartöfluframleiðend-
ur eftir aö sex manna nefnd ákveddi
verð á kartöflum tfl framleiðenda,
samkvæmt lögum um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvönun. Sex
manna nefndin ákvaö þann 3. októb-
er aö verö á 1. flokks kartöflum til
framleiðenda skyldi vera 42,37 kr. á
kiló.
Segja fulltrúar Neytendasamtak-
anna aö sumir heildsöluaðilar kaupi
kartöflur frá framleiðendum á hærra
veröi en sex manna nefndin ákvað.
Það sé því Ijóst að sumir kartöflu-
franfleiðendur hafi notað verð nefnd-
arinnar eingöngu sem grundvöll tfl
að semja um enn hærra verð við
heildsöluaðila. Teija samtökin að
verð á kartöflum sé óvenju hátt og
hafi hækkað óeðlilega mikið á síð-
ustu árum. Verð á einu kílói af kart-
öflum frá stærstu hefldsöluaðilum sé
nú á bilinu 110 tfl 145 kr. í smásölu.
Hefur það samkvæmt framfærslu-
vísitölu hækkað um 88,3% á undan-
íornum 12 mánuðum á meðan fram-
færsluvísitalan hefur í heild hækkað
um 18,3%.
Samtökin hvetja ráðherra til að
rannsaka hvort heildsölu- og dreif-
ingarkostnaður þessarar nauðsynja-
vöru sé óeðlilega hár. Jafnframt er
ráðherra beðinn um að hraða rann-
sókn á þessu meinta broti á áður-
nefndum lögum og að þeir sem hafi
gerst brotlegir verði látnir sæta
ábyrgð. -SMJ
Fjórði varamaður
tók sæti Kristínar
- þingforseti g
Kristín Einarsdóttir, þingkona
Kvennalistans, óskaði eftir leyfi á
Alþingi í gær vegna opinberra ferða-
laga. I stað hennar settst á þing Sig-
rún Helgadóttir líffræðingur. Hún er
fjóröi varamaður Kristínar en fyrsti,
annar og þriðji varamaður sóttu all-
ar um leyfi vegna þess að þær væru
uppteknar við önnur störf. Það voru
þær Guðrún Halldórsdóttir, Sigríöur
Lflý Baldursdóttir og María Jóhanna
Lárusdóttir.
Eftir að kjörnefnd hafði samþykkt
kjörbréf Sigrúnar gerði forseti sam-
einaðs þings, Guðrún Helgadóttir,
athugasemd. Guðrún sagði að engar
annir aðrar gætu komið í veg fyrir
að kjömir fulltrúar gegndu störfúm
sínum á Alþingi. Sagði Guðrún að
það væru kjósendur hverju sinni
sem tækju ákvörðun um það hveijir
sætu á Alþingi en ekki þingflokkar.
-SMJ
athugasemd
Sigrún Helgadóttir liffræðingur tók
sæti Kristínar Einarsdóttur, sem
einnig er líffræðingur, á Alþingi í
gaer. DV-mynd GVA
I dag mælir Dagfari
Nagaðir blýantar
Sérkennileg deila kom upp á Al-
þingi um daginn. Friðrik Sophus-
son vfldi leggja fram fyrirspum tfl
viðskiptaráðherra um hvort hann
væri sammála utanríkisráðherra
um þá fullyröingu að hundrað og
fimmtíu starfsmenn Seðlabankans
hefðu ekki annað að gera en naga
blýanta. Guörún Helgadóttir þing-
forseti vísaði þessari fyrirspum á
bug á þeirri forsendu að fyrir-
spumin væri fyrir neðan virðingu
Álþingis. Friðrik mótmælti þessum
úrskurði forseta og vísaði málinu
tfl atkvæðagreiðslu. Svo fór að
meirihluti þingheims tók undir þá
skoðun Guðrúnar að fyrirspumin
væri ósamboðin virðingu Alþingis
og vísaði henni frá.
Nú er það eitt hvort hér sé rétt
með farið hjá utanríkisráðherra að
starfsmenn Seðlabankans hafi ekki
annað fyrir stafni en að naga blý-
anta. Það er líka annað hvort við-
skiptaráðherra sé sammála utan-
ríkisráðherra. Og enn er það hvort
þingheimur hafi annað betra að
gera en ræða einmitt um vinnutfl-
högun i Seðlabankanum. En aöal-
spumingin er þó hvað það sé sem
stefnir virðingu Alþingis í voða.
Er það klám og kjaftaæði sem
virðulegur utanríkisráðherra læt-
ur út úr sér? Eða er þaö ekki virð-
ingu viðskiptaráðherra ósamboðið
að ræöa um það sem kollegi hans
segir? Er starfsfólki Seðlabankans
sýnd óvirðing með því að Alþingi
telji þá starfsmenn sem naga blý-
anta? Og síöast en ekki síst hlýtur
sú spuming aö vakna hvar mörk
velsæmis og vanvirðu liggja í þing-
inu.
Sagt er að hundraö sextíu og sex
starfsmenn vinni í Seðlabankan-
um. Þegar Jón Baldvin utanríkis-
ráðherra telur hundrað og fimmtíu
þeirra naga blýanta em sextán eft-
ir sem ekki naga blýanta. Þaö væri
nógu fróðlegt að vita hverjir þessir
sextán em sem mega ekki vera að
því að naga blýanta. Er þaö vegna
þess að þeir em að gera eitthvað
annað af sér eða er það vegna þess
að þeir mæta alls ekki tfl vinnu?
Engum kemur á óvart að obbinn
af starfsmönnum Seðlabankans
skuli naga blýanta. Það sem vekur
mesta athygli er að þar skuli
finnast sextán sem ekki gera það.
Hvemig hefur utanríkisráðherra
haft uppi á þeim? Lá hann á gægj-
um í fjármálaráðuneytinu og eyddi
tíma sínum í að telja þá í Seðla-
bankanum handan götunnar sem
nöguðu blýantana?
Dagfari er enginn sérstakur
aðdáandi Seðlabankans en telur
það þó ómaksins vert að starfs-
menn bankans fái tækifæri tfl að
hreinsa mannorð sitt, sérstaklega
þeir sextán sem ekki em taldir meö
hjá ráðherra. Hvers eiga þeir að
gjalda að fá ekki að bera hönd fyrir
höfuð sér og sanna að þeir mæti í
vinnuna líka tfl að naga blýanta?
Þingheimur á rétt á því aö fá þess-
ar upplýsingar og ef þetta er skoð-
un Jóns Baldvins sem formanns
Alþýöuflokksins þá er auðvitað rétt
og skylt að fá úr því skorið hvort
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
er sammála þessari flokksstefnu.
Og era aðrir flokkar ósammála
þessari starfsaðferð í Seðlabankan-
um? Ef starfsmenn Seðlabankans
hafa ekki annað aö gera en naga
blýanta og mega það ekki lengur
vegna afskipta ráðherra, hvaö eiga
þeir þá að gera? Sofa eða spfla
bridge? Tfl hvers ætlast ráðherrar
af samviskusömu fólki í bankakerf-
inu sem ekkert hefur aö gera og
telur betra að naga blýantana sína
heldur en aö slæpast og gera ekki
neitt?
Miðað við ýmislegt sem rætt er á
Alþingi mætti ætla að spumingar
og svör um Seðlabankann og blý-
antana þar væm jafnáríðandi og
hvað annað. Þingheimur á ekki að
taka sig svo alvarlega aö hann geti
ekki einu sinni rætt um algengustu
afþreyingu opinberra starfsmanna
í vinnutímanum sem greidd er af
hinu opinbera. Þótt þingforseti hafi
ekki mikið álit á utanríkisráðherra
og telji sig ekki varða um þaö hvað
viðskiptaráðherra finnst um skoð-
anir utanríkisráöherra þá snýst
þetta mál ekki um ráðherrana
heldur þá sextán sem fullyrt er að
ekki nagi blýantana sína. Þetta
varðar starfsheiður þeirra og enda
þótt alþingismönnum þyki lítið tfl
almennra kontórista koma þá eiga
þeir ekki að telja það fyrir neöan
sína virðingu að ræða um þá. Allir
vita að Guörún þingforseti er ekki
venjulegur kontóristi en hún getur
aö minnsta kosti haldið áfram að
tala niður til þeirra.
j. Dagfari