Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989.
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara
án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda en ábyrgð
Gjaldheimtunnar að átta dögum liðnum frá birtingu
auglýsingar þessarar fyrir eftirtöldum gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 14.
gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1 -12. greiðslutímabil 1988
með eindögum 15. hvers mánaðar frá febrúar 1988
til janúar 1989.
Reykjavík 7. febrúar 1989
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Til eru sagnir um barnshvörf af
völdum arna.
Eru þessar sagnir byggöar á
íraustum grunni eða tóm
imyndun?
TÍMARITIÐ
HULINN
HEIMUR
Á næsta blaðsölustað
- Áskriftarsími: 97-11800
Lausar stöður
Eftirtaldar hlutastöður (37%) í læknadeild Háskóla
Islands eru lausar til umsóknar.
Lektorsstaða í barnasjúkdómafræði.
Lektorsstaða í fæðingar- og kvensjúkdómafræði.
Lektorsstaða í lyflæknisfræði. Staðan er bundin við
Landakotsspítala.
Dósentsstaða í líffærameinafræði.
Dósentsstaða í sálarfræði.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði. Staðan er bundin við
Borgarspítalann.
Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar til fimm
ára frá 1. júlí 1989 að telja.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir svo og náms-
feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 8. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. febrúar 1989
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarfræðings við heilsugæslustöðina
á Djúpavogi.
2. Staða hjúkrunarforstjóra og hálf staða hjúkrunar-
fræðings við heilsugæslustöðina í Ólafsvík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðina
í Hólmavík.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðina
á Þórshöfn.
5. Staða hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðina
í Neskaupstað.
6. Staða hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðina
á Egilsstöðum.
7. Staða hjúkrunarfræðings við heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
8. Staða hjúkrunarfræðings við heilsugæslustöðina
á Isafirði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
viö hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráöuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
6. febrúar 1989
Útlönd
Fyrrum herforingi
gagnrýnir ofbeldid
ísraelskir hermenn skutu í gær til
banafjóra araba á herteknu svæðun-
um og ísrelskur landnemi lést eftir
aö Palestínumenn höföu kastaö
bensínsprengju að bifreið hans.
ísraelska herlögreglan skaut til
bana einn arabískan fanga og særði
nítján er þeir mótmæltu þeirri
ákvörðim yfirvalda að leyfa ekki
heimsóknir fjölskyldna fanganna.
Hundruð ættingja fanganna, sem
biðu fyrir utan fangelsið, grýttu her-
mennina þegar þeir fréttu af heim-
sóknarbanninu. Um tvö hundruð
manns voru handtekin í óeirðunum.
Embættismenn segja að þeir hafi
bannað heimsóknir eftir að ættingjar
hafi reynt að draga fána Palest-
ínumanna að húni auk þess sem þeir
hafi hrópað ókvæðisorð að ísraelsk-
um yfirvöldum.
í dag eru fimmtán mánuðir frá þvi að uppreisn Patestínumanna á herteknu
svæðunum hófst. Þessir palestinsku unglingar efndu til mótmæla í gær á
Vesturbakkanum. Hermenn skutu á þá með þeim afteiðingum að einn
særöist. Simamynd Reuter
Fyrrum yfirmaður ísraelska her-
aflans, Rafael Eitan, kvaðst í gær
taka undir gagnrýni bandarískra
stjómvalda varðandi skýrslu þéirra
um mannréttindabrot í ísrael. Eitan,
sem nú er þingmaður fyrir hægri
sinnaðan stjórnmálaflokk, sagði að
það kæmi sjaldan fyrir að hermenn
neyddust til að skjóta á óvopnaða
Palestínumenn í sjálfsvöm. Sagði
hann brottvísanir og aörar aðgerðir
heppilegri en ofbeldi.
V-Þjóðverjar smíðuðu
eldflaug á laun
GfaoBr Helgason, DV, Reexsnæss:
Vestur-Þjóðverjar hafa nú hætt
smíði á eldflaug sem átti að geta
dregið allt að 500 kílóraetra vega-
lengd. Þetta gerðist eftir að vestur-
þýsk sjónvarpsstöð afhjúpaði eld-
flaugaframleiösluna sem vestur-
þýsk sljómvöld höfðu haldið vand-
lega leyndri, Sjónvarpsstöðin hélt
því og fiam að eldflaugamar gætu
flutt kjamaodda.
Áður en sjónvarpsstöðin sendi
þáttinn um eldflaugaframleiðsluna
hafði hún birt tilkynningu um efiú
þáttarins. Talsmaður Bonnstjóm-
arinnar og fulltrúi vamarmála-
ráðuneytisins neituðu því að vænt-
anlegt sjónvarpsefni hefði við rök
að styQjast. Um 21 leytið í fyrra-
kvöld hófst svo þátturinn og þar
vom framlögö ítarleg skjöl sem
sýndu svo ekki var um villst aö
vestur-þýsk stórfyrirtæki hefðu í
áraraðir unnið aö framleiðslu há-
þróaðrar eldflaugar.
Helmut Kohl, kanslari og vamar-
málaráðherra hans, tóku þann
kostinn aö stöðva málið á bytjun-
arstigi. Bonnsfjómin og sér í lagi
kanslarinn og varnarmálaráðherr-
ann mega ekki við fleiri hneykslis-
málum í augnablikinu. Á fundi i
gærmorgun ákváðu þeir að hætta
við verkefnið en það hefúr gengið
undir nafninu Teknex. Síðdegis í
gær tilkynnti síöan talsmaður
Bonnstjórnarinnar að könnun
verkefhisins heföi verið hætt og að
engin firamleiðsla yrði á eldflaug-
um.
Talsmaðúrinn rökstuddi ákvörð-
un stjómarinnar með tilvísun til
niðurskuröar Varsjárbandalags-
ríkjanna og fyrirhugaðra samn-
inga um fækkun og niðurskurð á
heröflum Evrópu 1 heild. Ejölmiðl-
ar vom á engan hátt ánægðir með
þessar yfirlýsingar og reyna nú að
kanna málið frekar en Bormstjórn-
in segir að hér sé um eölilega þróun
mála að ræöa og málinu sé lokið.
Þetta hafi verið hrein rannsóknar-
verkefni í náinni samvinnu við
bandaríska fyrirtækiö sem hann-
aði Pershingeldflaugamar en þaö
era einmitt þær eldflaugar sem nú
á að fjarlægja samkvæmt samning-
um Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna.
í sjónvarpsþættinum var fúllyrt
að hér væri um eldflaugar að ræða
sem ættu aö leysa af hólmi Pers-
hingeldflaugamar og því væri um
að reeöa ieynda eldflaugauppbygg-
inga Þessu neitar Bonnstjómin og
segir aö hér hafi eingöngu verið
um að ræða miðunartæki á fjand-
samlega lendingarstaöi. Um hafi
verið að ræða hefðbundin vopn en
ekki eldflaugar sem gætu flutt
kjamavopn eins og sjónvarpið full-
yrti.
Talsmaður Bonnstjómarinnar
vísaöi einnig á bug þeim fúllyrðing-
um sem austur-þýska málgagniö
Neues Deutschland flutti í gær þess
efiús að íhaldsöfl í V-Þýskalandi
reyndu nú aö útvega V-Þjóðverjum
kjamorkuvopn.
V-þýska stjómarandstaðan er
fremur óhress með þessar upp-
ijóstrarúr. Sósíaldemókratar krefi-
ast þess nú aö málið veröi rætt á
þinginu í Bonn í næstu viku.
Fangaverðir í verkfalli
Bjami Hiniikssan, DV, Bordeainc
Verkfall franskra fangavarða
breiðist út og tekur á sig harðari
mynd eftir að stjómvöld hafa tvær
nætur í röð sent sérstakar óeirða-
OeirAalögregla i átökum viA verkfallsverAi franskra fangavarAa. MeA verk-
fallinu eru fangaverAir að mótmæla endurbótum sem þeir segja aA komi
ekki til móts viA kröfur þeirra. Símamynd Reuter
sveitir lögreglunnar í fangelsin til
þess að tryggja eðlilegan flutning
fanga til og frá þeim.
Þetta verkfall, sem þó getur varla
tahst eðlilegt því fangaverðir eru
opinberir starfsmenn og lögum sam-
kvæmt skyldugir til að inna af hendi
ákveðna vinnu, hófst fyrir nokkrum
dögum og virtist í fyrstu ekki mjög
alvarlegt. En atburðir síðustu daga
hafa hleypt hörku í fangaverðina
sem hafa þurft að horfa á eftir nokkr-
um félaga sinna særðum eftir áhlaup
lögreglunnar. Og viðræður í dóms-
málaráðuneytinu milh verkalýðs-
leiðtoga og fulltrúa ráðherra féhu
niður um tíma eftir að þær höfðu
lofað góðu í byrjun vikunnar.
Réttarhöld á Parísarsvæðinu hafa
tafist vegna verkfallsins sem nú
snertir 120 fangelsi um aht land. Þaö
var birting opinberrar skýrslu um
úrbætur í fangelsismálum sem upp-
haflega hleypti ihu blóði í fangaverði
og varð til þess að þeir hófu aðgerðir.