Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1989, Qupperneq 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1989.
Smáauglýsmgar - Sími 27022 Þverholti 11___ Fréttir
DV
Snow Track til sölu, skemmdur eftir
veltu. Uppl. gefur Benni í síma
96-23213 fyrir kl. 19. Tilboð sendist
fyrir 1. maí nk. til Hjálparsveita skáta.
Ákureyri, pósthólf 443, 602 Akurevri.
Sími 96-24675.
Subaru 1800 4x4 árg. '86 til sölu, ekinn
56 þús. km, verð 670 þús. Uppl. í síma
91-672065.
_ M. Benz 230E ’82 til sölu. Góður bíll.
* Uppl. í símum 98-64401 og 985-20124.
Þjónusta
NÝJUNG
1 * /-- '
iEERGVÍK
Bergvík, Eddufelll 4, Reykjavík, kynnir
nýjung í markaðstækni með aukinni
notkun myndbanda. Hér á íslandi sem
og annars staðar færist það í vöxt að
fyrirtæki notfæri sér myndbandið til
kvnningar á vörum og þjónustu ýmiss
konar. Við hjá Bergvík höfum full-
komnustu tæki sem völ er á til fjölföld-
unar og framleiðslu myndbanda á Is-
landi. Við hvetjum ykkur, lesendur
góðir. til að hafa samband við okkur
og við munum kappkosta að veita
vkkur allar upplýsingar varðandi fjöl-
földun og gerð slíkra myndbanda.
Við hjá Bergvík höfum bæði reynslu
og þekkingu á þessu sviði og okkar
markmið er að veita sem fjölþættasta
þjónustu á sviði myndbanda. Bergvík,
Eddufelli 4.111 Reykjavík, s. 91-79966.
Tek að mér alla almenna gröfuvinnu,
allan sólarhringinn. Uppl. í síma 75576
eða 985-31030.
Sumarhús blaðamanna
í Þýskalandi
Enn eru nokkrar vikur lausar í húsi og íbúð.
Mjög gott verð. Hafið samband strax í síma 39155
eða 31233.
Smókingaleiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tækifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 91-16199.
Loftastoðir
BYGGINGA-
MEISTARAR
Eigum nú á
lager loftastoðir
á mjög
hagstæðu
verði.
★
Stærðir
2,39-3,80 m
og 2,50-4,40 m
■k
Góðir greiðslu-
skilmálar.
★
Leigjum einnig
út
loftastoðir.
Fallar hf.
Áskrifendur
Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim spv _
Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna.
Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti.
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnst margt:
• bær losa askrifendur
vlðónæðivegnainn-
helmtu.
• Þæreruþægilegur
grelðslumáti sem
tryggir skilvísar
gralðslur þrátt fyrir
annireðaqarvlstir.
0 Þær létta blaðberan-
umstörfinenhann
heldurþóóskeitum
tekjum.
0 Þæraukaóiyggi.
Blaðberareruti!
dæmisoftmeðtólu-
verðar Qárhæðlr sem
geta glatast
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga,
laugardaga kl. 9-14
i síma 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.
Sameinlng úr sögunni:
Við verðum að
sópa hjá okkur
- segir forstjóri Bilaborgar
Sameining Bílaborgar hf., Mazda-
umboðsins, og Sveins Egilssonar hf.,
Fordumboðsins, eru úr sögunni - í
bili. Þórir Jensson, forstjóri Bíla-
borgar, segir að hætt haíi verið við
sameininguna þegar ljóst var að
staða beggja fyrirtækja var lakari en
menn bjuggust við þegar ákveðið var
að sameina fyrirtækin síðastliðið
haust.
„Menn verða núna eitthvað að sópa
hjá sér og spara með því að grípa til
aðhaldsaðgerða,“ segir Þórir Jens-
son um það hvað taki við hjá fyrir-
tækjunum.
Ársuppgjör beggja fyrirtækjanna
lá fyrir i síðustu viku. „Þar sem staða
heggja var lakari en gert var ráð fyr-
ir náðist ekki sá ávinningur af sam-
einingunni sem átti að verða. Þess
vegna er sameiningin úr sögunni - í
bili,“ segir Þórir.
- En eru bæði fyrirtækin þá að
rúlla?
„Svo er ekki. En þau þurfa þæði
að krumpa sig eitthvað saman og
selja eitthvað af eignum. Bílaborg á
fleiri eignir en þetta nýja hús hér við
Fosshálsinn sem verða líklegast seld-
ar. Enn fremur kemur til greina að
við leigjum hluta húsnæðisins hér
við Fosshálsinn út frá okkur. Þá vil
ég árétta að eiginfjárstaða Bílaborgar
er jákvæö."
Að sögn Þóris var síðasta ár fyrsta
árið af sautján sem Bílaborg er rekiö
með tapi. „Fjármagnskostnaðurinn
við byggingu nýja hússins hér er
okkar stærsti skelfir og helsta ástæð-
an fyrir tapinu." -JGH
Nýtt hlutafélag
kaupir rækjuverk-
smiðju Sæbliks
Hólmfrídur Friðjónsdóttir, DV, Rauíarhö&t;
Á sunnudag var stofnað nýtt hluta-
félag, Geíla hf„ um rekstur rækju-
verksmiðju á Kópaskeri. Hluthafar
eru einstaklingar og sveitarfélögin á
Kópaskeri og Raufarhöfn auk Jökuls
hf„ útgerðarfyrirtækis á Raufarhöfn,
sem jafnframt er stærsti hluthafmn.
Að sögn Hólmsteins Bjömssonar,
framkvæmdastjóra Jökuls, er verið
að ganga frá kaupum á rækjuverk-
smiðju Sæbliks á Kópaskeri sem tek-
in var til gjaldþrotaskipta á síðasta
ári.
Varðandi hráefnisöflun fyrir hið
nýja fyrirtæki er gert ráð fyrir að fá
afla af aðkomubátum í sumar en með
haustinu er reiknað með veiði á
rækju í Öxarfirði.
Aöalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf.:
Hagnaður síðasta árs
tæplega 6 milljónir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Miðað við allt og allt þá er ég
nokkuð sáttur við útkomuna. Mark-
miðið hlýtur alltaf að vera það að
vera réttum megin við strikið og það
tókst okkur á síðasta ári þrátt fyrir
mjög versnandi rekstrarskilyrði,“
sagði Sverrir Leósson, stjórnarfor-
maður Útgerðarfélags Akureyringa
hf„ en aðalfundur félagsins var hald-
inn í gærkvöldi.
Það hefur löngum verið litið til
Útgerðarfélags Akureyringa sem fyr-
irmyndarfyrirtækis hvað varðar all-
an rekstur. Það hlýtur því að vekja
athygli að félagið, sem skilaði um 130
milljóna króna hagnaði árið 1987,
kom nú út með tæplega 6 milljóna
króna hagnað íluttan á höfuðstól og
er þetta geysileg sveifla. Velta fyrir-
tækisins á sl. ári var 1330 milljónir
króna.
„Þetta er gífurleg breyting. Ef
nefna á eitthvað til sem veldur þessu
má nefna verðlækkun á afurðum,
gífurlegan flármagnskostnað og
hækkun tilkostnaðar innanlands. Þá
var aflakvóti á milli ára mun minni
og það kemur fram í svona rekstri."
Sverrir sagði að sífellt væri rætt
um að endurnýja skipaflota félags-
ins. „Þetta fyrirtæki hefur ávallt
reynt að vera í takt við tímann bæði
hvað varðar skipastól og annað og
endurnýjun er því alltaf til umræðu.
Það slær hins vegar í seglin þegar
svona árar. Svo er horft fram á frek-
ari samdrátt í veiðum. Við þurfum
verðhækkun á afurðum okkar er-
lendis, annars aukast tekjur okkar
ekki, við erum með allt of mikil gjöld
miðað við tekjurnar,“ sagði Sverrir.
íslensku bamabókaverðlaunin afhent 1 dag:
Fyrsta bók nýs höfundar
íslensku barnabókaverðlaunin
verða afhent í fjórða sinn í dag kl. 16.
Að þessu sinni hlýtur ung kona
þessi verðlaun fyrir fyrstu bók sína.
Rúmlega tuttugu rithöfundar
sendu handrit í samkeppnina og eru
verðlaunin 100.000 krónur og verð-
launaskjal. Auk þess mun sigurveg-
arinn taka við fyrsta eintakinu af
verðlaunabókinni sem verður gefin
út í dag á vegum Vöku-Helgafells.
-J.Mar
7 kærðir vegna hraðaaksturs
Sjö ökumenn voru kærðir í gær-
kvöldi og nótt fyrir of hraöan akstur.
Tveir þeirra urðu að sjá á eftir öku-
skírteinum sínum. Annar var tekinn
fyrir aö aka á 105 kílómetra hraða á
Sætúni og hinn fyrir að aka á 114
kílómetra hraða á Reykjanesbraut.
Þá voru tveir ölvaðir ökumenn
teknir í Reykjavík í nótt.
•sme