Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1989, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGCJR 25. APRÍL 1989.
25
LífsstOl
upp í loftiö og þarfnast ekki annars
en nokkurra sólskinsstunda til aö
opna krónur sínar.
Verkamenn hjá Reykjavíkurborg
eru fyrir nokkru farnir að hreinsa
rusl og sópa sand af gangstéttum en
borgin er þakin rusli eftir veturinn
og ekki vanþörf á aö taka ærlega til
hendinni.
Nemendur framhaldsskólanna
hafa heldur ekki sleppt því aö dimm-
itera í ár þrátt fyrir aö enn sé ekki
ljóst hvort þeir fá aö taka vorprófin
og setja upp hvítu kollana á þessu
vori vegna kennaraverkfallsins.
Krakkarnir i leikskólum borgarinnar eru að drullumalla innan um síðustu leifar af sköflum vetrarins.
Vorboðamir
nánast engum sem dettur í hug aö
sýna sig í slíkum fatnaöi á götum úti.
Þegar fer að vora trylla mótorhjólalöggurnar á fákum sinum um alla borg.
DV-mynd GVA
Raunar var nú búiö að klæöa gín-
urnar i glæsilega rósótta kjóla, ljósar
buxur og skyrtur og peysur í pastel-
litunum, einhvern tímann í febrúar,
svo að þaö má kannski segja aö það
hafi verið fyrsta teiknið um að vorið
léti sjá sig einhvern tímann á næst-
unni.
Verslunareigendur telja að salan
hafi ekki verið neitt sérstaklega
dræm á vor- og sumarfatnaðinum,
ekki minni en undangengin vor þó
þaö væri eins og fólk væri oft á tíðum
aö kaupa fatnað sem það hengdi inn
í skáp og geymdi þangað til sólin léti
sjá sig.
Það geta hins vegar verið skemmti-
legar andstæður þegar kappklætt
fólk stendur dreymandi í nepjunni
fyrir framan búðargluggana og virð-
ir fyrir sér örþunnan sumarfatnað-
inn.
Það kemur vor í dal
Um langt skeið hefur verið talin
fylgni á milli veðráttunnar og ásókn-
ar í sólarlandaferðir, það virðist hins
vegar ekki vera upp á teningnum
Kostir snjóaveturs
Það geta fylgt því nokkrir kostir
að hafa snjóavetur, skíðafíklar geta
til dæmis verið enn lengur á skíðum
en ella og skálavörður í Bláfjöllum
lýsti því yfir í viðtali ekki alls fyrir
Vorverkin í garðinum geta víst líka
unnist á auðveldari hátt sé garðurinn
þakinn snjóalögum. Á Vestur- og
Norðurlandi, þar sem garðar eru enn
á kafi í snjó, geta menn nú, í stað
þess að klippa runnana, rennt garð-
sláttuvélinni yfir þá. Fljótleg og auð-
veld leið til að snyrta til runna!
Og þá er bara að bíða og vona að
sumarið fari nú loksins að láta sjá
sig. Þrátt fyrir verkfall veðurfræð-
inga hafa borist af því fregnir víða
að af landinu að sumar og vetur hafi
frosiö saman og samkvæmt þjóð-
trúnni á það víst að boða gott sumar.
-J.Mar
Úti á Seltjarnarnesi eru strákarnir farnir að leika golf.
Stúdentsefnin dimmitera og lífga óneitanlega upp á miðborgina.
Trillukarlarnir við Ægissiðuna eru
komnir á grásleppuveiðar.
Það er ekki vanþörf á að hreinsa rusl og sand af götum borgarinnar eftir
veturinn.
núna því að bókanir hafa gengið treg-
lega það sem af er ferðaárinu og sam-
dráttur virðist vera fyrirsjáanlegur.
Almenningur virðist ætla að halda í
vonina um að einhvern tímann komi
sól og sumar á Fróni.
Eða eins og einn veðurfræðingur
orðaði það þegar hann var að því
spurður hvort þetta væri ekki lengsti
og þyngsti snjóavetur sem hefði dun-
ið yfir þjóðina lengi. Þá sagði hann
að svo væri ekki og það væri næsta
víst að einhvern tímann kæmi vor í
dal.
löngu að það yrði jafnvel hægt að
hafa lyfturnar opnar þar fram til
sautjánda júní svo framarlega sem
ekki snarhlýnaði í veðri og kæmi
ausandi rigning.
Það er víst líka gott fyrir jarðar-
gróður að fá aö sofa undir þykkum
snjóalögum því að þá verður minna
frost í jörðu og tré og runnar fara
ekki eins illa út úr vetrinum eins og
þegar þurrakuldi er. Bændur geta
því hafið vorverkin mun fyrr. Bænd-
ur á Suðurlandi eru alltént farnir að
plægja og búa sig undir að sá korni
og vænta þess að í kjölfarið verði
uppskeran fyrr á ferðinni en undan-
gengin sumur. Það eina sem gæti
sett strik í reikninginn er að sumarið
yrði rigningarsumar.
Kappklædd kona virðir fyrir sér vor-
og sumartískuna i búðarglugga.
Sumariö er komið samkvæmt al-
manakinu þó að raunar séu fá teikn
á lofti um að svo sé því að enn er
tæpast fariö að vora og enn spyr fólk
hvert annað: Heldurðu aö það snjói
í dag? Sumir eru nú raunar svo svart-
sýnir að þeir spá snjókomu sautj-
ánda júní.
Vorboðarnir eru samt sem áður
nokkrir, margir farfuglar eru þegar
komnir til landsins og undanfarnar
vikur hafa verið að birtast af þeim
myndir, hálfræfilslegum, norpandi í
vorkuldunum
Á einstaka stað í bænum eru vor-
blómin farin aö skjóta upp kollinum,
til dæmis er víða orðið hægt að finna
útsprungna krókusa. Páskaliljurnar
eru líka farnar að teygja knúppana
Rauðmaginn kom óvenjusnemma
fyrir norðan land og trillukarlarnir
kættust en sá rauöi er einn af þessum
klassísku vorboðum. Raunar eru nú
trillukarlarnir hættir að veiða þann
rauða en hafa snúið sér að gráslepp-
unni. Og loks má nefna mótorhjóla-
löggumar sem eru farnar að þeysa
um borg og bí fyrir löngu en þær eru
ekki á ferðinni yfir háveturinn.
Andstæður
Þrátt fyrir að í gluggum tiskuversl-
ana sé búið að stilla út gínum í næf-
urþunnum vor- og sumarfatnaði er
Þegar fer að vora eru margir sem
draga fram reiðhjólin sín.
DV-myndir KAE
Tíðarandi