Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989. Fréttir Pálmi Steingrímsson, bílstjóri hjá Landleiðum: Þeir börðu mig og reyndu að ræna peningatöskunni - annar bílstjóri fyrir árás sama kvöld „Eg var suður í Hafnarfirði þegar þrír ungir menn komu inn. Þegar mér varð Ijóst að þeir ætluðu að ræna peningatöskunni stóð ég upp. Þeir börðu mig þannig að ég datt í gólfið. Við höggið skáru gleraugun mín mig á nefinu. Mér blæddi tals- vert en tókst að verjast þeim og koma í veg fyrir að þeir næðu peningunum. Þegar ég lá á gólfinu tókst mér að sparka í þann sem ætlaði að taka peningana. Eftir að gleraugun höfðu dottið af mér var ég tilbúinn að verj- ast þeim - þó að ég sé enginn slags- málamaður. Bílstjórinn á hinum vagninum varð líka fyrir árás á föstudagskvöldið. Hann fékk hnefa- högg í andlitiö," sagði Pálmi Stein- grímsson strætisvagnabílstjóri hjá Landleiðum. Ólafur Jensson, yfirlæknir Blóöbankans: Skipulag neyðarvakta gengur sæmilega „Það hefur gengið sæmilega aö skipuleggja neyðarvaktimar hér í Blóðbankanum. Við höfum notið góðs samstarfs við undanþágunefnd og því náð í náttúrufræðinga sem kunna til starfa hér. En ástandið er eftir sem áður uggvænlegt," sagði Ólafur Jensson, yfirlæknir í Blóð- bankanum, í samtali við DV. Náttúrufræðingar neituðu fyrir um viku aö ábyrgjast skipulag neyð- arvakta í Blóðbankanum. Ákvaö heilbrigðisráðuneytið því að Blóð- bankinn skyldi sjá um skipulag vak- tanna. Millidekkið á Hoffelli, allt fuHt af fiski. Fáskrúðsbörður: DV-mynd Ægir Mokafli togaranna Ægir Kiistinsson, DV, Fáskróðsfiiði; Pálmi sagðist hafa haldið áfram aö aka vagninum þó að hann heföi verið blóðugur í framan. „Það er ágætt að farþegamir sjái hvemig fólk getur látið,“ sagði hann. „Eftir að mér haföi tekist að koma þeim út stóðu þeir við vagninn. Það var eins og þeir kynnu ekki að skammast sín. Ég talaði við lögregl- una en mér virðist sem hún sé hræddari við þessa grishnga en við hin,“ sagði Pálmi. Pálmi er á sextugsaldri og hefur ekið strætisvagni lengi. Hann sagði að framkoma fólks heföi versnað mikið frá því sem áður var. „Það er orðið stórhættulegt að vera á ferh á föstudagskvöldum. Ég tala nú ekki um ef fólk er með peninga á sér.“ Pálmi sagði að það væri ekki aðeins í Breiðholtsvögnunum sem krakkar væru með ólæti. Hann sagði að fyrr í vetur heföi vagn frá Landleiðum verið stórskemmdur, sæti skorin og annað eftir því. „Tveir náttúrufræðingar hafa get- að sinnt neyðartilvikum til þessa en auk þess hefur verið náttúrufræð- ingur til að sinna sérverkefnum tvi- svar th þrisvar í viku. Loks hefur þurft enn einn náttúrufræðing til að sjá um smitvarnaprófanir. Ef góðs samstarfs við þá náttúrufræðinga, sem geta gengið inn í störf í Blóð- bankanum, nyti ekki við væri neyð- arþjónustan óvirk. Miðað við álagið eins og þaö hefur veriö hingað til hefur tekist að bjarga hlutunum.“ -hlh Geldþorskurinn í BreiðaJBrði: Slæm lífsskilyrði geta verið orsökin segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofiiunar „Manni dettur fyrst í hug að or- sökin fyrir þessu sé sú aö þessi fisk- ur hafi ahst upp við slæm skilyrði. Hrogn og svil heföu átt að fara að þroskast í haust er leið en geröu það ekki vegna þeirra slæmu skil- yrða sem fiskurinn hefur alist upp víð. En svo gerist það hka aö mað- ur heyrir alveg þveröfugt frá Vest- mannaeyjum. Þar er smár fiskur úttroöinn af hrognum og svipaöar sögur bárust £rá Grímsey og Seyð- isfirði í vetur. Sennilegahefur þessi bráðþroska fiskur ahst upp við allra bestu skilyrði í hafinu og orð- iö kynþroska svona snemma lyrir bragðiö,“ sagöi Jakob Jakobsson, forsljóri Hafrannsóknastofiiunar, í samtali viö DV þegar leitað var skýringa hans á geldþorskinum í Breiðafírði. Jakob sagöi að sjór heföi verið mjög kaldur fyrir Norðurlandi síð- ustu 12 til 14 mánuðina. Trúlega heföi geldfiskurinn í Breiðafirði ahst upp í köldum sjó og þá ef til vhl við takmarkað æti. Hann sagð- ist ekki telja að þetta væri svokah- aður Grænlandsþorskur því sam- kvæmt lýsingum væri hann of stór th þess. Grænlandsþorskurinn, sem mest er af núna, væri um 50 sentímetrar að lengd en Breiða- tjarðarþorskurinn væri lengri en þaö. En þar sem máhö væri eön órannsakað sagðist Jakob vfija taka fram aö þetta væru getgátur hjá sér. Þar sem margir bera ugg í bijósti um að hrygning og nýhöun mis- farist í Breiöafirði í ár vegna þess hve stór hluti þorsksins er geldur var Jakob spuröur hvort hann teldi að svo gæti farið. ,JÞað er engin leið að segja til um það. Ef hrygningin tekst vel fyrir Suöurlandi þarf þaö ekki aö hafa alvarleg áhrif þótt minna af fiski hrygni i Breiöafiröinum. Þorsk- merkingar, sem mikið voru stund- aðar hér á árum áður, sýndu að mikhl samgangur er hjá þorskin- um mihi svæða. Þaö hefur ekki sannast að þorskur sæki endhega aftur á þau miö sem hann klekst út á þegar hann stækkar,“ sagði Jakob Jakobsson. S.dór Kjararannsóknanefnd: Kaupmáttur rýmaði um 3 prósent í fyrra .. um eftir þriggja daga veiðiferö og Hoffeh fékk 240 tonn. Hluta aflans Mokafli hefur veriö hjá togurun- var landað hér en um 200 tonn voru um hér, Ljósafehi og Hofiehi, að und- seld í Hull 3. og 4. maí. anfömu. Ljósafeh landaði 140 tonn- í nýútkomnu fréttabréfi Kjarar- annsóknanefndar er skýrt frá því aö kaupmáttur tímakaups landverka- fólks í Alþýðusambandinu hafi rým- að um 3 prósent frá 4. ársfjórðungi 1987 th 4. ársfjóröungs 1988. Á þessu tímabhi hækkuðu laun að meðaltah um 18,1 prósent en framfærsluvísi- talan hækkaði um 22,1 prósent á sama tíma. Ef miðað er við hækkun mánaðar- tekna, en það er hækkun heildar- launa með yfirvinnu, á sama tíma- bili er kaupmáttarrýrnunin heldur meiri eða um 4 prósent. Skýringin á því er minni aukavinna. Aftur á móti kemur í Ijós aö ef tek- ið er út úr tímabihð sem veröstöðv- unin stóð í fyrra hækkaði tímakaup að meðaltah um 1,9 prósent. Hækkun framfærsluvísitölu á því tímabili var 1,2 prósent þannig að kaupmáttur mjakaðist örlítið upp á viö meðan verðstöövunvaríghdi. s.dór Verkfall dýralækna: Erfiðleikar svínabænda eru að verða miklir - dýravemdunarsjónarmið ræður undanþágum til slátrunar Sklpverjar ó Hoffelli aö isa flsk á bryggjunni, sklpstjórinn lengst til hægri. _________ DV-mynd Æglr „Astandið hjá okkur er langt frá því að vera gott. Nú fyrst er verkfah dýralækna farið að segja til sín af fuhum þunga,“ sagði Kristinn Gylfi Jónsson, talsmaður svínaræktenda, í samtali viö DV um það ástand sem dýralæknaverkfalhð hefur skapað. Kristinn sagði að dýravemdunar- sjónarmið réðu því alfarið hve miklu bændur fengju að slátra af svínum. Dýralæknar veita undanþágur sam- kvæmt því. Þar aí leiðir aö bændur hafa lítið getað sett á markað og fyr- ir bragðið misst sölu. Þá blasir þaö vandamál við að þegar ekki er hægt að slátra grísum hrannast upp svína- kjöt. Þegar verkfalhð leysist er því ljóst aö of htið verður th af grísa- kjöti en of mikið af svínakjöti. Grísum er yfirleitt slátraö 6 mán- aða gömlum. Þegar þeir eru orðnir það gamlir þyngjast þeir um 20 khó á mánuði eftir þaö og senn er höinn mánuöur síðan > dýralæknar hófu verkfall sitt. „Þótt við höfum fuha samúð með verkfalh dýralækna, sem fyrst og fremst eru að knýja á um aukinn frítíma, enda er vinnutími þeirra óhóflega langur, auk þess sem þeir eru ahtaf á bakvakt, þá er því ekki aö neita að verkfallið er farið að íþyngja okkur mikið,“ sagði Kristinn Gylfi. S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.