Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989. Utlönd Eldflaugadeilur Agreiningurinn um skamm- drægu kjamorkueldílaugarnar í Evrópu er nú að verða hitamál milli Georges Bush Bandarikjafor- seta og bandaríska þingsins. Marg- ir þingmenn eru óánægöir með af- stöðu sfjómarinnar og ekki minnst með þann kulda sem Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, hefur mætt. Gro Harlem Brundtland, forsætis- Gro Harlem Brundtland, forsæt- ráðherra Noregs. isráðherra Noregs, sagði í gær eftir viöræður sínar við fulltrúa utanríkis- nefnda öldungadeildarinnar og fulltrúadeildarinnar að hún hefði ekki mætt andstöðu er hún kynnti afstööu sína til eldflaugamálsins og nauð- syn þess að komast að samkomulagi á toppfundi Nato í Brussel í maílok. Formaður varnarmálanefndar öldungadeiidarinnar, Sam Nunn, hefur komiö fram með tiiiögu um samninga við Sovétríkin meö því skilyrði að stjómin í Bonn samþykki nýjar skammdrægar kjamorkuflaugar í Evr- ópu. Nunn leggur þó áherslu á aö ekki verði af neinum samningum við Sovétríkin fyrr en vitað verði um árangur af samningaviðræðum um fækkun hefðbundinna vopna. Gíslar látnir lausir Óþekktir byssumenn hóta að myrða v-þýskan gísl ef arabískur fangi á Kýpur veröur ekki látinn laus. Fréttimar af morðhótuninni koma frá tveimur öðrum V-Þjóðverjum sem látnir voru lausir í morgun eftir að hafa veriö í haldi hjá mannræningjum í tólf klukkustundir. Þeim var rænt í gærkvöldi í hafnarborginni Sidon í Líbanon í gærkvöldi. Ekki er vitað hvort mannræningjarnir em líbanskir eða palestínskir. V-Þjóöveijamir hafa unnið fyrir hjálparstofhun sem aðstoðað hefúr palestinska flóttamenn í Líbanon. Thatcher í hátíðarskapi ASiaroret prinsessunnar Fyrrum þjónustustúlka Önnu Bretaprinsessu kvaðst í viðtali í gær vera eyðilögð yfir blaðafréttum þess efnis að hún hefði stolið bréfum sem kom- iö hafa þeim orðrómi af stað að hjónaband prinsessunnar sé fallvalt. Bresk blöð beindu spjótum sínum aö þjónustustúlkunni þegar hún var ásamt öðrum starfsmönnum prinsessunnar yfirheyrð af lögreglunni í sambandi við þjófhað á fjórum bréfum. Bresku kvöldblöðin komust heldur betur í feitt þegar tilkynnt var frá höiiinni að aðstoðarmaður drottningarinnar, Timothy Laurence, sjóliðs- foringi, hefði skriíáð bréfm sem stolið var. Spekúleruðu blöðin mikiö í því hvort hjónaband Önnu og Marks væri nú komið að því að springa. Þjónustustúlkan, sem enn var í vinnu hjá Önnu þegar lögreglan yfir- heyrði hana, segist hafa sagt upp störfum áður en máliö með bréfin komst á kreik þar sem hún hafl verið óánægð með vinnuna. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, með sonarson sinn Michael í fanginu. Hún stendur milli sonar síns, Marks, og Diönu, tengda- dóttur sinnar. Simamynd Reuter Annasamt var hjá Margaret Thatcher, forsætisráöherra Bretlands, í gær er hún hélt upp á að tíu ár voru liðin frá því að var kjörin forsætisráö- herra. Gestir komu til þess að fagna með járnfrúnni sem einnig var á þönum um borgina til þess aö halda ræður og veita viðtöl. Arafat sagður svikari Bjami Hinrikssan, DV, Bordeaux: Frakkar telja heimsókn Arafats til Parísar, sem lauk í gærmorgun, hafa tekist vel og að frönsk utanrík- isstefna hafi unnið sigur. Roland Dumas utanríkisráðherra lýsti því yfir aö hann mundi bráðlega fara til ísraels til viðræðna við ráðherra og leiðtoga Verkamannaflokksins. Orö Arafats þess efiús aö stofii- skrá PLO sé ógild hafa oröiö til þess að hann hefur veriö kallaöur svikari af sumum meðlima sam- takanna og hafa þeir óskað honum dauða. Arafat faðmar arabísku stúlku í Paris. Faðir hennar var myrtur þar 1973. Símamynd Reuter Risastórt vopnabúr fannst í íbúð Lögreglumaður með hluta vopnabúrsins sem fannst í ibúð í Kaupmanna- höfn á þriðjudaginn. Simamynd Reuter Danska lögreglan kveöst hafa sannanir fyrir því aö nokkrir þeirra sem handteknir voru í sambandi við hinn mikla vopnafund í íbúö á Ama- ger í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn séu sérþjálfaöir hryðjuverkamenn sem hlotið hafl menntun sína í Mið- austurlöndum. Lögreglan heldur því jafnframt fram aö nota hafi átt vopn- in til hryðjuverka. Þaö var í sambandi við rannsókn á mörgum banka- og póstránum und- anfarin ár sem lögreglan fann hiö risastóra vopnabúr í íbúðinni. Nær hundraö kíló af sprengiefni voru í íbúðinni og hefði öll húsasamstæðan jafnast við jörðu ef eldur hefði komið þar upp, að sögn lögreglunnar. Tutt- ugu og sex flugskeyti, flest sænsk, fundust einnig í íbúðinni, sextíu handsprengjur, nokkrar jarð- sprengjur, fjórar vélbyssur, tólf skammbyssur, skotheld vesti ogþús- undir skotfæra. Ekki er talið ólíklegt að hryðjuverkamennirnir hafi kom- ist yfir vopnin í ránsferðum. Að því er lögreglan fullyrðir hafa hryðjuverkamennirnir unnið fyrir palestínsku hreyfmguna PFLP. Hreyfmgin hefur á síðari árum for- dæmt hryðjuverk en sennilegt þykir samt að hún hafi átt aðild að ýmsum hryðjuverkum undanfarin ár, þar á meðal sprengjutilræðinu sem grand- aði bandarískri farþegaþotu yfir Skotlandi í desember síðastliðnum. PFLP klofnaði frá PLO, Frelsissam- tökum Palestínumanna, og hafa liðs- menn hreyfmgarinnar nýverið hótaö að myrða Yasser Arafat, leiðtoga PLO. Það var bílslys snemma á þriðju- dagsmorgun sem reyndist vera hlekkurinn sem vantaði í rannsókn lögreglunnar á ránunum. Ökumaður missti vald á bíl sínum í hægri beygju og keyrði á ljósastaur. í bílnum fann lögreglan peninga, vopn og miða með heimilisfangi. Þegar lögreglan kom á staðinn fann hún vopnabúrið. Á þriðjudagskvöld voru fjórir menn til viðbótar þeim sem lenti í bílslysinu handteknir og síðar sjö aðrir. Allir hinir gripnu eru Danir nema einn. Að því er lögreglan telur hefur PFLP fengið talsverðan hluta af ránsfengnum, samtals sautján millj- ónum danskra króna í fimm ránum. Verið er nú að rannsaka númerin á vopnunum sem fundust. Árið 1986 var rán framið í vopnageymslu hers- ins í Járna í Svíþjóð og miklu magni vopna stolið. Númerin segja til um hvort vopnin, sem fundust í Kaup- mannahöfn, koma frá Svíþjóð. RB og TT North fundinn sekur um þrjú ákæruatriði af tólf Oliver North, fyrrum embættismað- ur þjóðaröryggisráðs Bandaríkjafor- seta og einn sakborninga í íran- kontra vopnasöluhneykshnu, var í gær fundinn sekur um þrjú af þeim tólf ákæruatriðum sem hann var ákærður um. Kviðdómur, níu konur og þrír karlar, fann North sekan um að hafa hindrað þingrannsókn um vopnasöluhneykslið, fyrir að hafa eyðilagt opinber skjöl og fyrir að hafa þegið að gjöf öryggiskerfi fyrir hús sitt, að verðmæti um 14 þúsund dollarar, á meðan hann var enn starfsmaður ríkisstjórnarinnar. Kviðdómur taldi ekki aö North hefði gerst sekur um níu þeirra ákæruatriða sem hann átti yfir höfði sér vegna aðildar sinnar að leyni- legri sölu bandarískra vopna til ír- ans, þ.ám. að ljúga að löggjafarþing- inu. Vopnasalan, sem stóð yflr 1985- 1986, var í þeim tilgangi að fá lausa vestræna gísla í haldi mannræningja í Líbanon. Hluti ágóðans rann á laun til kontraskæruliðanna í Nigaragua á þeim tíma er löggjafarþingið hafði bannað frekari aðstoð við þá. Verjendur Norths sögðust í gær mundu áfrýja dómnum fyrir 23. júní nk. en þá mun dómarinn í réttar- höldunum yfir North ákveða refs- Oliver North og eiginkona hans, Betsy, koma út úr réttarsal í Washington í gær eftir að North hafði verið fundinn sekur um þrjú af tólf ákæruatriðum í tengslum við vopnasölu til írans á árunum 1985-86. Engin svipbrigði sáust á North þegar úrskurður kviðdóms var lesinn. North við þingyfirheyrslurnar í fyrra- sumar. ingu. North getur átt von á 10 ára fangelsisdómi og 750 þúsund dollara sekt. Réttarhöldin tóku 12 vikur og þurfti kviðdómur 12 daga til að ráða ráðum sínuni. North sagðist í gær mundu halda áfram að berjast þar til hann hefði fengið uppreisn æru. North hefur ætíð haldið því fram að hann hafi verið aö hlýða skipun- um yfirboðara sinna í vopnasölumál- inu, þar á meðal Reagans, fyrrum forseta. í gær tjáði Bush Bandaríkja- forseti og varaforseti Reagans sig opinberlega um málið í fyrsta sinn eftir að hann tók við forsetaembætt- inu. Bush sagði ekkert hæft í því sem komið hefur fram við réttarhöldin að hann hefði séð um samninga viö yfirvöld í Honduras árið 1985 um að aðstoða kontraskæruliðana á þeim tíma er bandaríska þingið hafði tekiö fyrir frekari aðstoð. North er fyrsti sakborningurinn í þessu máli sem kemur fyrir rétt. Búist er við að John Pondexter, fyrr- um öryggisráðgjafi Reagans, fyrrum fQrseta^komi fyrir rétt.í. september. Réúter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.