Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989.
íþróttir__________________
Frétta-
stúfar
Stórsigur Marseilles
Fyrri leikirnir í 8-liða
úrslitum frönsku
bikarkeppninar í
knattspyrnu voru
leiknir á þriðjudag og miðviku-
dag, og úrslit urðu þessi:
Beauvais-Auxerre.....1-2
Orleans-Monaco.......1-2
Sochaux-Mulhouse.....3-1
Marseille-Rennes.....5-1
Ballesteros ekki með?
Spænski golfmeistarinn Sever-
iano Ballesteros er uggandi um
að hann geti ekki tekið þátt í
heimsmeistarakeppninni sem
fram fer í heimalandi hans un
miðjan nóvember á þessu ári.
Hann á að keppa á tveimur sterk-
um mótum í Japan á sama tíma
og haföi skuldbundið sig til þess
áður en dagsetning var ákveðin
fyrir heimsmeistarakeppnina.
Ballesteros segist ekki skilja
hvers vegna mótiö fari fram í
nóvember en ekki í desember
eins og venjan sé. Mótshaldarar
hafa til þessa neitað öllum beiðn-
um frá honum og spænska golf-
sambandinu um aö færa mótiö
aftur á venjulegan tíma.
Jafnt hjá Real
Osasuna og Real
Madrid skildu jöfn,
1-1, í 47 mínútna leik
í spænsku 1. deildar
keppninni í fyrrakvöld. Fyrri
43 mínútumar voru leiknar í
janúar en þá var leiknum hætt
vegna óláta áhorfenda. Osas-
una hafði þá 1-0 forystu en
Hugo Sanchez tókst aö jafna
leikinn, rúmum þremur mán-
uðum eftir Osasuna hafði kom-
ist yfir! Leikið var á heimavelli
Real Zaragoza, fyrir luktum
dyrum. Úrslitin þýða að Real
hefur nú fjögurra stiga forskot
á Barcelona á toppi 1. deildar-
innar.
Eftirmaöur Koemans ódýr
Michel Bœrebach heitir sá sem á
að leysa Ronald Koeman afhólmi
í vöm hollensku meistaranna
PSV Eindhoven, en Barcelona
hefur fest kaup á Koeman fyrir
um 500 milljónir íslenskra króna.
Boerebach er 25 ára og kemur frá
Roda, og PSV greiðir um 25 millj-
ónir fyrir hann.
Þá hefur svissneska 1. deOdar
liöið Young Boys gert þriggja ára
samning víð sænska landsliðs-
manninn Rober Ljungfrá-Malmö
FF og greiðir um 23 milljónir fyr-
ir hann.
Johnson meö brjóst?
Kanadíski læknirinn
Jack Sussman skýrði
frá því í gær að árið
1987 heföu verið farin
að vaxa brjóst á spretthlaupar-
ann Ben Johnson. Sussman
sagði aö Johnson hefði komið
til sín í október það ár, rúmum
mánuði eftir aö hann setti
heimsmet í 100 metra hlaupi,
og kvartað undan verkjum í
btjósti. Fram hefur komiö viö
rannsókn að um þetta leyti var
Johnson á ströngum lyfjakúr
sem George Mario Astaphan,
læknirinn umdeildi, skipu-
lagði. Astaphan hefur verið
ákæröur fyrir að hafa hvatt
Johnson til neyslu ólöglegra
lyfia en eins og kunnugt er var
Johnson sviptur ólympíugulli
sínu á síðasta hausti þegar
hann féll á lyfjaprófl í Seoul.
„Ég spuröi hann hvort hann
heföi tekið einhver lyf því ein-
kennin bentu til þess en Jo-
hnson neitaði því aífarið. Hann
sagðist hafa tekiö mikiö af víta-
mínum, og það gat verið full-
nægjandi skýring,“ sagði Suss-
man við vitnaleiöslur 1 máli
Johnsons sem hafa staðíð yflr
í 47 daga.
UEFA-bikarkeppnin:
Stuttgart á
möguleika
- þrátt fyrir ósigur gegn Napoli
Ásgeir Sigurvinsson og félagar
hans í Stuttgart máttu bíða ósigur
gegn ítalska félaginu Napoli í fyrri
úrslitaleik hðanna í Evrópukeppni
félagshða (UEFA) í fyrrakvöld. Na-
poli sigraði í leiknum, 2-1, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 0-1 fyrir
Stuttgart. Síöari leikur liðanna verð-
ur í Stuttgart 17. maí þannig að
möguleikar Stuttgart á að sigra í
keppninni eru enn fyrir hendi.
Maurizio Gaudino kom Stuttgart
yfir á 17. mínútu. Ásgeir Sigurvins-
son renndi knettinum fyrir Gaudino
eftir aukaspyrnu en markvörður
Napoli náði ekki að veija fast skot
Gaudino. Jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik
sótti Napoli án afláts. Maradona var
í strangri gæslu Júrgens Hartmanns
og sást Maradona sáralítið í leiknum.
Jöfnunarmark Napoh skoraöi
Maradona úr vítaspyrnu en leik-
menn Stuttgart mótmæltu víta-
spymunni harðlega og ekki nema
von. Eftir hamagang í vítateignum
barst knötturinn til Maradona sem
lagði knöttinn greinilega fyrir sig
með vinstri hendi. Maradona gaf síð-
an sendingu fyrir markið en Schmál-
er, vamarmaður Stuttgart, varð fyrir
boltanum. Af sjónvarpsmyndum frá
atvikinu kom ekki glöggt í ljós hvort
boltinn hafði farið í hendi Schmáler
en dómari leiksins var á öðra máh
og dæmdi vítaspymu. .
Vestur-þýskir fjölmiðlar fóra hörð-
um orðum um gríska dómarann í
umsögnum sínum um leikinn í gær
og voru þá sérstaklega með víta-
spymudóminn í huga. Þetta er ekki
í fyrsta skiptið sem Maradona notar
höndina innan vítateigs, frægt er at-
vikið sem átti sér stað í leik Englend-
inga og Argentínumanna í heims-
meistarakeppninni í Mexíkó 1986.
Þetta umdeilda atvik setti síðan
sinn svip á leikinn. Leikmenn Stutt-
gart börðust þó hetjulega áfram en
undir lok leiksins skoraði Careca sig-
urmark Napoh við gífurlegan fognuð
83 þúsund áhorfenda sem troðfyhtu
San Paulo leikvanginn í Napoli.
Ásgeir Sigurvinsson átti mjög góð-
an leik í fyrri hálfleik, sýndi mikla
yfirferð og átti að auki gullfallegar
sendingar sem gerðu usla. Stuttgart
á góðan möguleika í seinni leiknum
sem fer fram á Neckar leikvanginum
í Stuttgart. Þá kemur Júrgen Klins-
mann að nýju inn í liðið en hann tók
út leikbann í Napoli. Varnarmaður-
inn Bucwald fékk gula spjaldið í
leiknum og leikur ekki síðari leikinn
og veröur þar skarð fyrir skildi.
-JKS
• Careca, sem skoraði sigurmark Napoii í leiknum gegn Stuttgart, sést hér í bai
gangi mála. Síðari leikur liðanna verður í Stuttgart 17. maí.
i 4p .... SsgLjj r : ■ibimt Bk Sr * £
• Snjótroðarinn úr Hliðarfjalli ryður snjó af einni flötinni á golfvellinum á
Akureyri. DV-mynd gk
Golívöllurinn á Akureyri:
Snjótroðarinn
ruddi flatimar
Gylfi Kristjánsaan, DV, Akureyii
Eins og fram kom hér í DV fyrr í
vikunni angra snjóþyngsh á golf-
velhnum á Akureyri kylfinga þar
mjög þessa dagana.
I fyrradag var brugöið á það ráð
að fá snjótroðara úr Hhðarfjalh til
að ryöja snjónum að flötunum, en á
þeim var víða mjög mikill snjór. Fé-
lagar í klúbbnum vopnuðust síðan
skóflum og öðrum tólum í gær og
réðust á klakahehuna sem snjótroð-
arinn skildi eftir á flötunum, auk
þess sem þeir grófu rásir í snjóinn
víða á velhnum th að veita vatninu
í skurði. Vonast þeir th þess að með
þessum aðgerðum hafi þeir flýtt tals-
vert fyrir því að hægt verði að leika
á velhnum.
Bröndby bikarmeistari
Bröndby varð í gær danskur bikar-
meistari í knattspymu eftir 6-3 sigur
á Ikast í framlengdum úrslitaleik á
Idrætsparken í Kaupmannahöfn. Þar
í landi er bikarúrshtaleikurinn jafn-
an geymdur til vorsins.
Ikast komst tvívegis yfir í leiknum
en Bröndby náði að jafna og tók síöan
öh völd í framlengingunni. Lands-
liðsmennimir Kim Vilfort og Brian
Laudrup voru mennimir á bak við
sigur Bröndby því Vilfort gerði 3
mörk og Laudrup 2. Leif Nielsen
skaut einu inn á mhli en fyrir Ikast
skoraði Klaus Granlund öh þrjú
mörkin.
-VS
Golfmót á Hellu:
Hannes
sigraði
' Hið árlega vormót Golfklúbbsins á
Hellu á Rangárvöllum var haldið í
vikunni á Strandarvelh í sól og blíðu,
12-14 stiga hita. Þátttakendur í mót-
inu voru 208 og komust færri aö en
vildu. Þátttakendur voru mjög á-
nægðir með mótið sem fór í aha staði
hið besta fram.
Keppendur voru víösvegar af
landinu og sem dæmi má nefna kom
sautján manna hópur frá Akureyri.
Hópurinn kom í flugi og lenti á flug-
velhnum á Hehu. Öh verðlaun í mót-
inu voru gefin af fyrirtækjum á
Hellu.
í keppni án forgjafar sigraði Hann-
es Þorsteinsson, GL, á 72 höggum.
Hjalti Nhsson, GL, hafnaöi í öðru
sæti á 74 höggum og Tryggvi
Traustason, GK, lenti í þriðja sæti á
75 höggum. Með forgjöf sigraði Frið-
finnur Hreinsson, GK, á 64 höggum.
Þorsteinn Marteinsson, GR, varð í
öðru sæti á 65 höggum og Sævar
Jónatansson, GA, varð í þriðja sæti
á 66 höggum. -JKS
Finnar lágu
í Stokkhólmi
Svíar unnu öruggan sigur á Finn-
um, 83-76, í vináttulandsleik í körfu-
knattleik sem háður var í Stokk-
hólmi í gær. Eins og menn muna
unnu Svíar nauman sigur þegar
þjóðimar léku th úrshta á Polar Cup
hér á landi um síöustu helgi. Mattias
Sahlström skoraði 19 stig fyrir Svía
en Kari-Pekka Khnga 26 fyrir Finna
en þessir tveir voru einmitt nvjög
áberandi á Polar Cup. -VS
• Daníel Hilmarsson.
Annaoi
hlutsk
- spermandi keppit
Um helgina var samhhðasvig Ár-
manns haldið í Bláfjöllum í góðu veðri
og við ágætis aðstæður. Margt af besta
skíöafólki landsins var meðal þátttak-
enda og í mörgum feröum var keppni
jöfn og spennandi.
í kvennaflokki sýndi Anna María
Malmquist frá Akureyri mikið öryggi,
vann hveija ferðina af annarri og stóö
f lokin uppi sem sigurvegari eftir úr-
shtaviðureign viö Heiðu B. Knútsdóttur,
KR. í þriöja sæti varð Gunnlaug Gis-
surardóttir, Víkingi, en hún sló út ís-
landsmeistarann frá því í fyrra, Þórdísi
Hjörleifsdóttur, sem einnig er í Víkingi.
Daníel Hilmarsson er enn
I fremstu röö skíðamanna
Daniel Hilmarsson frá Dalvík sannaði
það enn einu sinni að hann er í fremstu