Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Síða 28
44
Andlát
Sveinn H. Jónsson andaðist á sjúkra-
deild Rauða krossins 4. maí.
Hólmfríður Guðmundsdóttir frá Pat-
reksfirði, Dalbraut 27, lést í Land-
spítalanum þriðjudaginn 2. maí.
Halldór Ari Björnsson múrarameist-
ari, Fannborg 1, Kópavogi, lést í
Landakotsspítala aðfaranótt 3. maí.
Krístín Vilhjálmsdóttir frá Þuríðar-
stöðum í Fljótsdal, lést á Elliheimil-
inu Grund 2. maí.
Karitas Pálsdóttir lést 3. maí á Hrafn-
istu, Hafnarfirði.
Guðmundur Ólafsson frá Króki, Ása-
hreppi, Kaplaskjólsvegi 37, Reykja-
vík, andaðist í Landakotsspítala 2.
maí.
Júlíus Karlsson, Mýrarbraut 23,
'Blönduósi, andaðist á heimili sínu
3. maí.
Jarðarfarir
Hjálmar S. Thomsen múrari, Mána-
götu 25, Grindavík, verður jarðsung-
inn frá Grindavíkurkirkju laugar-
daginn 6. maí kl. 14.
Hjörtur Eiríksson, Valhöll, Hvamms-
tanga, verður jarðsunginn frá
Hvammstangakirkju í dag, 5. maí,
kl. 16.
Guðbjörg Björnsdóttir frá Efstu-
Grund, Breiðvangi 1, Hafnarfirði,
sem lést í St. Jósefsspítala, Hafnar-
firði, verðúr jarðsungin í dag, 5. maí,
kl. 13.30 frá Víðistaðakirkju.
Kristmundur Ágúst Andrésson,
Hellukoti, Stokkseyri, verður jarð-
settur frá Stokkseyrarkirkju laugar-
daginn 6. maí kl. 14.
Ágústa Guðrún Jensen, fædd Jóns-
dóttir, lést þann 19. apríl sl. í Kaup-
mannahöfn. Minningarathöfn verð-
ur í Mosfellskirkju laugardaginn 6.
maí kl. 11.
Björn Jónsson, fyrrum hreppstjóri
og bóndi, Bæ, Höfðaströnd, sem lést
í Sjúkrahúsi Sauöárkróks þann 24.
’ apríl, verður jarðsunginn frá Sauð-
árkrókskirkju laugardaginn 6. maí
kl. 14. Greftrun fer fram í heimagraf-
reit að Bæ.
Guðrún S. Bergmann, Sólvallagötu
6, Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 6.
maí kl. 14.
Ágústa Kristinsdóttir lést 25. apríl.
Hún var fædd í London á gamlársdag
1953. Hún flutti með foreldrum sín-
um, Kristni Hallssyni og Hjördísi
Sigurðardóttur, til íslands u.þ.b. sex
mánaða gömul. Ágústa starfaði um
árabil sem fulltrúi hjá Ríkissjón-
varpinu. Hún lætur eftir sig dóttur.
Útför hennar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Guðmundur S. Hannesson lést 27.
apríl sl. Hann fæddist í Dalasýslu 25.
júní 1906, sonur Arnbjargar Sigurð-
ardóttur og Hannesar Einarssonar.
Guðmundur starfaði lengst af við sjó-
mennsku. Hann giftist Ragnheiði
Ólafsdóttur en hún lést árið 1985. Þau
hjónin eignuðust fjögur börn og er
ein dóttir þeirra á lífi. Síðustu árin
bjó Guðmundur á Hrafnistu í Hafn-
arfirði í sambýli við Sveineyju Guð-
mundsdóttur. Útfór Guðmundar
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
í dag kl. 15.
Tilkyimingar
Einherjar í golfi
verðlaunaðir
Á laugardag kl. 17 verða svokallaðir
einherjar verðlaunaðir. Einherjar
eru þeir sem í golfi hafa farið holu í
höggi. Þeir sem verða verðlaunaðir
að þessu sinni eru golfarar sem fóru
holu í höggi í fyrra og þar með hafa
þeir náð inngöngu í hinn eftirsótta
Einherjaklúbb. Verðlaunaafhend-
ingin fer fram að Síðumúla 35 og
stendur athöfnin frá 17-19.
Háskólafyrirlestur
Belgisk-franski rithöfundurinn Hubert
Nyssen flytur opinberan fyrirlestur í boöi
heimspekideildar mánudaginn 8. mai
1989 kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlest-
urinn úallar um útgáfustarfsemi í
Frakklandi og verður fluttur á frönsku.
Helstu upplýsingum um útgáfustarfsemi
Nyssens verður dreift í úölriti og umræð-
ur aö fyrirlestrinum loknum fara fram á
ensku. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Sýningar
Myndlistarsýning á
Hótel Selfossi
Myndlistarsýning verður haldin í Hótel
Selfoss frá 6.-15. maí. Þetta er iiður í lista-
hátíö eða listavakningu sem Hótelið beit-
ir sér fyrir. Sýningin verður opnuð laug-
ardaginn 6. maí kl. 14. í tilefni af opnun-
inni, býður Hótel Selfoss upp á kafFihlað-
borð og listamennimir verða til viðræðu
um verk sín.
Alúðarþakkir fyrir samúðarkveðjur og vinsemd,
við lát Stefáns Ögmundssonar, prentara.
Elín Guðmundsdóttir
Ingibjörg Björn og Elísabet, Ragnar, Elín
Steinunn og Jón Thor Stefán
Bergljót Elín, Karl
Sigríður Sunna, Drífa, Ögmundur
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989.
Fyrirvari
vegna verkfalls
Tólf félög háskólamenntaðra
manna í störfum hjá ríkinu eru í
verkfalli. Það hefur nú staðið hátt
á fiórðu viku. Þetta er orðin löng
og ströng barátta, og guð má vita
hve lengi hún kann að standa enn.
Verkfallsbrot
1 þessu verkfalli hafa verið fram-
in verkfaílsbrot. Engum kemur
slíkt á óvart. Það gerist í öllum
verkföllum. Slík brot eru oftast
ekki mjög alvarleg - sem betur fer.
Um er að ræða í mörgum tilvikum
einstök afmörkuð tilvik sem gerast
fyrir vangá eða misskilning. Oftast
tekst að koma í veg fyrir shk brot
eða sjá til þess að þau verði ekki
endurtekin.
Verkfallsmönnum er það miklu
erfiðara viðfangs þegar reynt er
með ýmsu móti að fara í kringum
verkfallið, gerðar tilraunir til þess
með skipulegum hætti að láta sem
ekkert verkfall sé, án þess þó að
eiginlegt verkfallsbrot sé framið.
Þá er ekki gengið inn í störf verk-
fallsmanna heldur er látið sem
störf þeirra skipti litlu eða engu
máli og þannig reynt að láta svo
líta út sem áhrif verkfallsins séu
alls ekki þau sem þau þó raun-
verulega eru.
Lögfræðingar í ríkisþjónustu eru
í verkfalli. Það tekur m.a. til lög-
lærðra fulltrúa bæjarfógeta og
sýslumanna víða um land og í
Reykjavík t.a.m. til fulltrúa hjá
embætti borgarfógeta. Þar starfar
vænn hópur lögfræðinga sem nú
eru í verkfalli. í þinglýsingadómi
einum, sem heyrir undir þetta
embætti, starfa að jafnaði ekki
færri en sex lögfræðingar og fimm
þeirra eru nú í verkfalli. Einn þess-
ara sex ber dómaratitil, heitir
reyndar borgarfógeti. Hann er sá
eini sem nú vinnur.
Það gefur augaleið að seint geng-
ur þessum eina dómara að vinna
sex manna verk. Þinglýsingar veð-
skjala hafa því að mestu leyti stöðv-
ast. Bunkar innlagðra skjala hrúg-
ast upp. Þetta þýðir að nánast eng-
in - eða a.m.k. tiltölulega mjög fá
- veðbönd hafa verið færð inn í
veðmálabækur eða tölvu þá er
geymir veðmálaskrár síðan verk-
fall lögfræðinga hófst 6. apríl sl.
Þetta gildir um veðsetningar á
fasteignum og einnig um lausafé,
svo sem bifreiöar. Og þetta á jafnt .
við um svokölluð samningsveð og
aðfararveð, þ.e. fiárnám oglögtök.
Menn gætu tapað
Mikill fiöldi manna þarf á degi
hverjum að leita til þinglýsinga-
dóms til þess að fá öruggar upplýs-
ingar um veðbönd á eignum. Við-
skipti - kaup og sala - á fasteignum
geta ekki orðið og mega ekki verða
nema slíkar upplýsingar liggi fyrir.
Kaupandi húss eða íbúðar verður
t.d. að geta vitað með öruggri vissu
hvaða lán eða aðrar veðsetningar
hvíla á eigninni sem hann ætlar
að fara að kaupa. Viti hann ekki
vissu sína um þetta getur það vald-
Kjallarinn
Finnur Torfi Hjörleifsson
lögfræðingur
tjamarnesi, Kíósarsýslu, Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og Gull-
bringusýslu var útgáfu vottorð-
anna hætt strax og ekki var unnt
að skrá þau svo örugg væru.
Tilraun til að sniðganga
En hjá þinglýsingadómaranum -
embætti borgarfógeta í Reykjavík
- var ekki brugðist við með eðlileg-
um hætti. Þar var haldið áfram að
gefa út veðbókarvottorð eins og
ekkert hefði í skorist. Þó var sú
breyting gerð á, eftir að verkfall
hófst, að vottorðin em stimpluð
með þessum orðum: „Fyrirvari um
nýinnlögð skjöl vegna verkfalls." -
Að svo stöddu er réttast að hafa
sem fæst orð um lagagildi slíks fyr-
irvara.
Áhtamál kann að vera hvort yfir-
„Verkfallsmenn mega hugsa til þing-
lýsingadómarans og yfirborgarfóget-
ans með mátulegu þakklæti fyrir að
gera sitt til að lengja verkfallið með því
að draga úr áhrifum þess.“
ið honum ófyrirséðu tjóni. Hann á
það á hættu að á eigninni, sem
hann er aö kaupa, hvíli veð sem
hann gæti þurft að borga til að
halda eigninni. Ef hann ræður ekki
við að aflétta slíku veði gæti hann
tapað eigninni.
Upplýsingar um veðbönd á eign-
um eru gefnar út í formi veðbókar-
vottorða. Þetta eru opinber skjöl.
Strangt til tekið mun það sam-
kvæmt þinglýsingalögum vera
dómsathöfn að gefa út þessi vott-
orð. Lengi mun þó hafa tíðkast að
ólöglært starfsfólk þinglýsinga-
dóms skrái og undirriti þau. En
hvað sem því líður þarf ekki að
fara um það mörgum orðum að það
er afar mikilvægt að vottorð þessi
séu áreiðanleg.
Rangt veðbókarvottorð kann að
fella bótaábyrgð á viökomandi
embætti og þar með á ríkissjóð. Því
miður er þaö þó ekki víst nú aö
þeir sem yrðu fyrir tjóni vegna
rangs vottorðs gætu krafist bóta
úr ríkissjóði. Eftir að verkfall hófst
hefur þinglýsingadómarinn í
Reykjavík - í samráði við yfirmann
embættisins, yfirborgardómara -
látið stimpla vottorðin með fyrir-
vara sem brátt skal vikið að.
Það er deginum ljósara að örugg
veðbókarvottorð er ekki unnt að
gefa út þegar þinglýsingar hafa
stöðvast. Veðskjöl hafa ekki verið
færð í þær bækur eða á þær skrár
sem vottorðin eru gerð eftir. Af
þessum sökum var ekkert eðlilegra
en að útgáfa veðbókarvottorða
stöðvaðist þegar er verkfall var
hafið, 6. apríl sl.
Svo varð þetta líka hjá þinglýs-
ingadómurum vítt og breitt. um
iandið. Mér er t.d. kunnugt um að
við embætti bæjarfógeta í Kópa-
vogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Sel-
höfuð er löglegt að gefa út veð-
bókarvottorð með slíkum fyrir-
vara. En ef við gerum ráð fyrir að
svo sé gætu alvarlegustu afleiðing-
ar fyrirvarans orðið þær að þeir
sem hafa látið eða láta glepjast til
að nota slíkt vottorð í viðskiptum
missa bótarétt vegna tjóns sem þeir
bíða af því að vottorðið reynist
rangt.
Ákvörðun þinglýsingadómarans
í Reykjavík og yfirborgardómara
með þeim hætti sem hér hefur ver-
ið lýst er ekki beinlínis verkfalls-
brot, en hún er tilraun til að snið-
ganga verkfallið, komast fram hjá
áhrifum þess, láta sem ekkert verk-
fall sé. - Og til þess að gera þetta
er ekki skirrst við aö stofna fiár-
hagsmunum hrekklauss fólks í
hættu.
í stað þess að þau viðskipti, sem
veðbókarvottorð þarf til, hefðu
stöðvast - svo sem víðast varð -
halda þau nú áfram með vottorðum
sem enginn veit með vissu hvort
eru rétt eða röng. Við þessu væri
e.t.v. ekki margt að segja, ef ekki
væri verið að stofna hagsmunum
ótiltekins fiölda manna í voða.
Hve stór hundraðshluti manna
skyldi átta sig á því að fyrirvara-
veðbókarvottorð borgarfógetaemb-
ættisins í Reykjavík geta verið hon-
um tjónsgildra, valdið honum
skaða sem hann fær e.t.v aldrei
bættan, einmitt vegna fyrirvarans?
Hér hefur ófagur leikur verið leik-
inn.
Verkfallsmenn mega hugsa til
þinglýsingadómarans og yfirborg-
arfógetans með mátulegu þakklæti
fyrir að gera sitt til að lengja verk-
fallið með því að draga úr áhrifum
þess. Lagagildið eitt sker ekki
ávallt úr um réttmæti gerða
manna.
Finnur Torfi Hjörleifsson
Hugsum fram á veginn!
... V T X -"1 . ...ifí'#' .V#
r '"tL
- . "'• " ■ ' /</
Hraðakstur
er orsök margra
slysa. Miðum hraða
alltaf við aðstæður,
m.a. við ástand vega,
færð og veður.
Tökum aldrei
áhættu! ||u^fefiðar