Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Síða 32
F R ETTAS KOTIÐ
mimsgmk'''ámmaa»t. mmmm ' mmmm
____________________________________________________
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989.
Krian er komin á Reykjavíkurtjörn.
Árrisulir borgarbúar vöknuðu við
gargið í henni og fögnuðu þessum
~f;ma flugfugli. Lúin eftir langt flug
settist kría á Ijósastaur, svona rétt
fyrir Ijósmyndarann meðan hann
mundaði græjurnar. DV-mynd S
Togaraflotinn:
Grálúðan
undir ís
Togaraflotinn hefur ekki getað
"Veitt grálúöu síðustu sólarhringa
vegna hafíss sem er yfir gráluðumið-
unum út af Vestfjörðum. Lítilla
breytinga er að vænta næstu daga
þar sem allt útlit er fyrir að suðvest-
anáttin verði ríkjandi næstu dægrin.
Það gæti komið sér illa fyrir togar-
ana ef ekki verður breyting á - þar
sem grálúðuveiðar eru árstíða-
bundnar. Venjulegast lýkur þeim
seint í mai og í síðasta lagi í byrjun
júnímánaðar. -sme
Nauðlentu
í Noregi
Lítil tveggja hreyfla einkaflugvél
nauðlenti í sjgnum fyrir utan Krist-
ianssand í Noregi á miðvikudags-
kvöld. Tveir menn voru í vélinni,
Stefán Ámason og Gunnar Þorvalds-
son. Vélin átti ekki langt eftir að flug-
brautinni þegar slokknaði á báðum
hreyflunum. Áttu mennirnir ekki
annars úrkosti en að nauðlenda vél-
inni á sjónum. Var þeim bjargað
fljótlega um borð í báta og síðan flutt-
ir á sjúkrahús.
Stefán mun vera rifbeins- og hand-
leggsbrotinn en Gunnar slapp með
skrámur og fer af sjúkrahúsi í dag.
Vélin mun vera mikið skemmd en
hún var dregin á land í gær.
Ekki er fullkomlega vitað um orsök
slyssins. Leiða menn getur að því að
eldsneytið hafi þrotið af ókunnum
ástæðum. -hlh
LOK!
Kennarar eru tæpast
í sókn!
Kjaradeila háskólamarma:
Nýtt tilboð kom
frá ríkinu í nótt
- sem byggir á samningum háskólákennara
I nótt er leið lagði samninga-
nefnd ríkisins fram tilboö í kjara-
deilunni við háskólamenn. Þá var
sáttafundi frestað og samninga-
nefnd háskólamanna mun halda
fund um tillöguna fyrir hádegi í
dag.
Tilboðið, sem ríkið lagöi fram í
nótt, byggir á sömu saraningura og
háskólakennarar gerðu á dögun-
um. Gert er ráð fyrir um 8 pró-
senta kauphækkun og að samning-
urinn gildi til 30. júní á næsta ári.
Þá eru í tilboðinu nokkrar breyt-
ingar varðandi starfsaldur og fleira
er færir fólk upp ura launaflokka.
Samninganefnd háskólamanna
hefur ekki til þess ljáð raáls á samn-
ingum í þessa veru og hefur viljað
fá allmiklu meira en þeir bera í
sér. Gangi þeir aftur á móti að
þessu tilboði sem samningsgrund-
velli ættu samningalok ekki að
vera langt undan. Ef þeir hafna til-
boðinu verða þeir að koma með
skriflegt gagntilboð. Þar raeð hefur
sáttasemjari skrifleg tilboð frá báð-
um aöilura en það hefur hann ekki
haft fram til þessa.
Fari samningaraálin enn í strand
er búist við að sáttasemjari leggi
fram sáttatillögu sína. Það er talin
líklegri neyðarlausn en að vísa
raálinu til gerðardóras. Til þess
þarf samþykki beggja deiluaðila
nema að ríkisstjórnin setji lög þar
um. Hluti ríkisstjórnarinnar er
sagöur hlynntur því að setja lög
um að vísa málinu til gerðardóms
en aðrir ráðherrar segja það aldrei
koma til greina.
-S.dór
Kennurum sagt upp hús-
næðinu í Sóknarhúsinu
Hið íslenska kennarafélag hefur
frá því verkfall þess hófst haft að-
stöðu fyrir verkfadlsvöku, eins og það
er kallað, í húsi Starfsmannafélags-
ins Sóknar. Nú hefur kennurum ver-
ið sagt upp þessu húsnæði og eiga
þeir að rýma þaö í dag.
Að sögn Hjördísar Antonsdóttur,
starfsmanns Sóknar, er sú móðgun
sem Sóknarfólk telur sig hafa orðið
fyrir á fundi kennara með fjármála-
ráðherra á dögunum ekki eina
ástæðan. Húsvörðurinn í Sóknar-
húsinu þarf að fara frá og þar af leið-
andi er ekki hægt að leigja húsnæðið
út eins og verið hefur.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formað-
ur Sóknar, sagði að búið hefði verið
að tilkynna kennurum að þegar hús-
vörðurinn færi í frí gætu þeir ekki
haft húsnæðið áfram.
Þær viðurkenndu báöar að við-
brögð félaga í Sókn við ummælum
sem féllu á fundi kennara og fjár-
málaráðherra hefðu verið vægt sagt
hörð. Margir heíðu, eftir þann fund,
krafist þess að kennurum yrði vísað
úr húsinu. En sem fyrr segir tóku
þær Þórunn og Hjördís það skýrt
fram að frí húsvarðarins væri aöal-
ástæðan fyrir því að kennurum var
sagt upp húsnæðinu. -S.dór
Eimskip tapar 3 millj-
ónum á hverjum degi
Eimskip tapaði rúmum 3 milljón-
um króna á dag fyrstu þrjá mánuði
ársins eða alls 100 milljónir þrátt fyr-
ir að félagið hafi flutt meira af vörum
en áður. Vegna þessa hefur Eimskip
sett ráðningabann og stefnt er að
fækkun fastra starfsmanna. Þá verð-
ur helmingsfækkun í sumarafleys-
ingum frá fyrra ári.
Þessi slæma afkoma stafar af lækk-
un flutningsgjalda og hækkunar
veigamikilla kostnaðarþátta í skipa-
rekstrinum, að sögn Eimskips.
Flutningsmagn félagsins jókst um
33 prósent á árunum 1984 til 1988 á
meðan heildartekjur á fóstu verði
hafa aukist um 2 prósent.
-JGH
Meðaltalsfegurð farþega með flugvél Flugleiða til Akureyrar í hádeginu á
miðvikudag hefur að öllum líkindum verið talsvert meiri en gengur og ger-
ist, enda voru meðal farþega stúkurnar sem keppa um titilinn „ungfrú ís-
land 1989“ með sjálfa alheimsfegurðardrottninguna, Lindu Pétursdóttur, í
broddi fylkingar. Stúlkurnar fengu blómvönd frá Sjallanum við komuna
norður og í Sjallanum sýndu þær sig um kvöldið og sýndu einnig föt við
fögnuð viðstaddra. DV-mynd gk
Kveikt í vinnuskúrum
Slökkvihð Reykjavíkur var kallað
að bækistöðvum Vegagerðarinnar
við Vesturlandsveg í gærkvöldi. Þar
var eldur í tveimur vinnuskúrum.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en
hann hafði ekki náð að breiðast mik-
iö út.
T T
í Á
M K
a ORIENT
BÍIALEJGA
Veörið:
Ekki bjart
framundan
Ekki er von til þess að landsmenn
baði sig í sólinni næstu daga. Suð-
vestanátt ætlar að ríkja á og við
landið. Ekki verða sterkir vindar
og hætt er á að súld verði víöa.
úrDVwuiAkl
fslands. *.
fengnar arlandls
v/Flugvallarveg
91-61-44-00