Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. Fréttir ölduselsskóli: Enn er deilt um hver eigi að stjórna skólanum. Ölduselsskóli: Enn deilt um skóla- stjórastöðu Deilur um stööu skólastjóra við Ölduselsskóla í Reykjavík virðast ekki afstaðnar. Fræðsluráð klofnaði í afstöðu sinni til um- sækjenda um stöðuna og greiddi meirihluti ráösins Valgerði Selmu Guönadóttur atkvæði sitt en minnihluti Reyni Daníel Gunnarssyni Atkvæði sitt fékk Reynir Daníel frá Þorbirai Broddasyni lektor. „Ég rainnist þess að þegar Val- gerður Selma sótti um stöðu skólastjóra Ártúnsskóla taldi Þorbjörn Broddason það vald- niðslu af hálfu annarra fræðslu- ráðsmanna aö greiða henni ekki atkvæði," sagði Ragnar Júlíusson skólastjóri í viðtali við DV en Ragnar er einn þeirra fræðslu- ráðsmanna sem greiddu Valgerði Selmu atkvæði nú. „Ég veit ekki af hverju afstaða Þorbjarnar hef- ur breyst nú,“ sagöi Ragnar enn- fremur. Þorbjöra Broddason segir hér um tvö óskyld mál aö ræða. „Af- staða min til Valgerðar Selmu hefur ekkert breyst,“ sagði hann í viötali viö DV. „í bókun minni kemur fram að ég tel alla um- sækjenduma hæfa til starfsins. Hins vegar þrautþekkir Reynir Daníel Ölduselsskóla, eítir starf sitt sem yOrkennari þar, og nýtur slíkrar hylli þar meðal kennara og foreldra nemenda að fágætt hlýtur að teijast. Ég teldi það því fásinnu að hafna þessum manni úr því hann gefúr kost á sér. Þetta hefur ekkert með álit mitt á Valgerði Selmu aö gera enda tel ég hana hina hæfustu mann- eskju.“ Svavar Gestsson menntamála- ráðherra, sem endanlega mun skipa í stööu skólastjóra Öldu- selsskóla, vildi í gær ekki tjá sig um málið. Veð fyrir 24 milljónum í hugbúnaði í skýrslu ríkisendurskoðunar um kaup fjármálaráðherra á skuldabréfi Svarts á hvítu til lúkningar skattaskuldum fyrir- tækisins kemur fram aö stofnun- in treystir sér ekki til að meta verðmæti þeirra trygginga sem eru að baki bréfinu. Tryggingam- ar eru upplýsingabanki og hug- búnaðarkerfi sem ætlunin er að selja afnot af. í skýrslu ríkisend- urskoðunar kemur fram aö enn þarf að leggja fram vinnu áður en þessi banki getur farið að skila tekjum. Skuldabréf Svarts á hvítu hJjóö- ar upp á 24 milljónir króna og er til 8 ára. Upplýsingabankinn og hugbúnaöurinn eru trygging rík- issjóös fyrir greiðslu þessa bréfs. Það var gefiö út til aö greiða upp söluskatts- og launaskattsvanskil fýrirtækisins frá árinu 1985 til 1988. Bandalag háskólamanna hjá ríkinu: Fékk rúmar 5 milljónir króna í verkfallssjóð - Hið íslenska kennarafélag hefur fengið styrki frá öllum Norðurlöndunum Bandalag háskólamanna hjá rík- inu fékk 100 þúsund dollara, eða rúmar 5 milljónir króna, í verkfalls- sjóð frá danska háskólasambandinu í fyrradag. Þessu fé er dreift til félag- anna, sem eru í verkfalli, eftir félaga- fjölda. Þá hefur Hið íslenska kennarafélag fengið styrki í verkfallssjóð frá öllum Norðurlöndunum. Auk þess veitti Kennarasamband íslands því í byrj- un verkfalls eina milljón króna en síðan 2 milljói -óna á viku. Þá hafa grunnskóla... .marar, sem eru að störfum, verið með safnanir í hverjum skóla fyrir sig og hafa bor- ist 10 til 60 þúsund krónur á viku frá skólunum í verkfallssjóð. Frá kenn- arasamböndum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Færeyjum hafa Hinu íslenska kennarafélagi borist rúm- lega 7 milljónir króna í verkfallssjóð. Verkfallssjóðir hinna ýmsu félaga háskólamanna, sem eru 1 verkfalli, Þorsteinn (t.h.) og Eirikur að lokinni vel heppnaðri veislu. Tveir íslenskir námsmenn: Sáu um veislu fyrir Bandaríkjaforseta Tveir íslenskir námsmenn, þeir Þorsteinn Kragh og Eiríkur Valdi- ■ mar Friðriksson, sáu nýlega um eitt þúsund manna veislu í Bandaríkjun- um þar sem George Bush, forseti Bandaríiyanna, var meöal gesta. Þeir Þorsteinn og Eiríkur eru við nám í Florida International University þar sem þeir leggja stund á hótelrekstur. „Þetta kom til vegna þess að við höfum starfað aðeins fyrir veislu- þjónustu sem heitir Joy Wallace Cat- ering Service," sagöi Þorsteinn þegar DV forvitnaðist um aðdraganda málsins hjá honum. „Þegar við vorum fyrst beönir að sjá um þetta héldum við að um grín væri að ræða. Fljótlega varð þó ljóst að málið var alvara, að við áttum að elda fyrir Bandaríkjaforseta þann 27. apríl. Þetta var eitt þúsund manna veisla þannig að við urðum að elda fyrir um tólf hundruö. Það tók okkur þrjá eru misöflugir. Náttúrufræðingar standa sennilega einna best að vígi. Sum litlu félögin eiga enga verkfalls- sjóði, nema þá styrki sem nú berast. Greiöslur úr verkfallssjóðum fara eftir heimilisástæðum fólks. Hið ís- lenska kennarafélag hefur úthlutað tvisvar úr sínum sjóði. Einstæðir for- eldrar með fleiri en 3 böm hafa feng- ið 60 þúsund krónur. Einhleypir fé- lagar geta verið búnir að fá 36 þúsund krónur. Kvæntir félagar, sem eru eina fyrirvinna heimilis, geta verið búnir að fá 52 þúsund krónur. Greiðslur úr verkfallssjóði Félags náttúrufræðinga eru með svipuðum hætti. Um næstu mánaðamót fara kenn- arar aftur á laun þótt verkfallið standi þá enn. Þar er um að ræða laun sem þeir ávinna sér yfir allt kennslutímabilið. í júlí er svo orlof greitt út. S.dór daga að setja upp kalt, skreytt borð fyrir þann fjölda. Við vorum þrír, það er viö tveir og einn bandarískur fé- lagi okkar, og svo höfðum við átta stúlkur til aðstoðar. Tilefni veislunnar var opnun nýrr- ar ratsjárstöðvar strandgæslunnar í Flórída en þar á aö fylgjast með öll- um feröum skipa og flugvéla inn á Flórídaskaga, meðal annars til að hefta innflutning á eiturlyfjum.“ Þeir Þorsteinn og Eiríkur urðu að sjálfsögðu aö ganga í gegnum mikið öryggiseftirlit. Að sögn Þorsteins tók upphafleg rannsókn á þeim hálfan dag. Þegar á veislustað kom, um klukkan þrjú aðfaranótt veisludags, gengu þeir félagar í gegnum vopnale- it, auk þess aö sprengjuleit var fram- kvæmd á veislusvæöinu. Um hádeg- isbilið, skömmu áður en forsetinn kom á svæðið, var það rýmt og sprengju- og vopnaleit framkvæmd að nýju. George Bush, forseti Bandarikjanna, ávarpar veislugesti í Flórída. ísfisksölur í Bretlandi fyrstu fjóra mánuöi hvers árs Samtals [~| Þorskur [|| Ýsa 25 20 10 1986 1987 1988 A Magn í þúsundum tonna 1989 Minna af ísfiski til Englands en í fyrra Heldur minna hefur verið sent af ísfiski til Bretlands fyrstu fjóra mánuöi þessa árs en var á sama tíma í fyrra. Þá voru seldar í Bret- landi 22.647 lestir en í ár 19.848 lest- ir. Aftur á móti var heldur meira selt til Þýskalands eða 13.034 lestir í ár á móti 10.905 lestura í fyrra. Við samanburð á því verði sem fengist hefur fyrir ísfisk síöustu flögur árin kemur í ljós að fis- kverð, hvort heldur er í Bretlandi eða Þýskalandi, hefúr sama og ekk- ert hækkað. Meðalverð fyrir ísfisk í Englandi fyrstu 4 mánuðina áriö 1986 var 89 penný, árið 1987 var það 95 penný, árið 1988 var þaö 93 penný og í ár er þaö 92 penný fyrir kílóið. í Þýskaiandi var þar 2,49 mörk áriö 1986. Áriö 1987 var það 2,39 mörk, árið 1988 var þaö 2,43 mörk og í ár 2,60 mörk fyrir kílóið. i ár voru seldar 10.046 lestir af þorski til Bretlands, 5194 lestir af ýsu og 2.003 lestir af kola. Til Þýskalands hafa verið seldar 9.379 lestir af karfa og 1.503 lestir af ufsa. S.dór ísfisksölur í Þýskalandi fyrstu fjóra mánuöi hvers árs |Samtals Karfi Bj ufsi 25 20 10 - Verö í ísl.kr. á kg. 77,47 60,80 1986 1987 1988 Magn í þúsundum tonna 1989 Skáru hjólbarða á fjórum greiðabílum Fimm bílstjórar á greiðabílum hafa kært skemmdarverk, sem unnin voru á bílum þeirrra, til lög- reglunnar. Bílarnir, sem allir voru skemmd- ir að næturlagi, voru á nokkrum stöðum í Breiðholtinu, flestir viö Þórufell og Æsufell. Á íjórum bílanna voru hjólbarðar skornir og á fimmta bílnum var lakk skemmt. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.