Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989.
7
Fréttir
Hirtu hundi^cií^ ldciiiflis|3i^)lur
Lögreglan á Húsavlk, Þórshöfn aðila. niálið er hjá fulltrúa sýslumanns á málið eða ekki. tölvubókhald yfir leigu á þessu
og Vopnafirði lagði fyrir nokkru Sá rekur myndbandaieigu á Húsavík og verður þar þar til verk- Lögreglan átti ekki í vandræðum bönnuðu myndböndum.
hald á rúmlega 100 klámspólur eða Húsavík og hefur útibú á Þórshöfn falli háskólamanna lýkur. með að rannsakar hvar klám- -sme
svokallaðar bláar spólur. Spólurn- og á Vopnafirði. Hann mun taka ákvörðun um myndimar voru niðurkomnar þar
ar reyndust aliar vera í eigu sama Lögreglurannsókn er lokið og hvort ríkissaksóknara verður sent sem eigandi þeirra hafði mjög gott
Samgönguráðherra:
Jarðgöng
næsta stór-
verkefni
vestra
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði í erindi um
samgöngumál á fjórðungsþingi Vest-
firðinga, sem haldið var fyrir stuttu,
að samkvæmt fyrirliggjandi vegaá-
ætlun væru jarðgöng undir Breiða-
dals- og Botnsheiði næst í rööinni á
nýjum lið áætlunarinnar sem nefnist
stórverkefni. Þessi liður mun verða
fjármagnaður sérstaklega.
Vegaáætlun hefur ekki verið af-
greidd frá Alþingi en Steingrímur
kvaðst bjartsýnn á að samstaða
næðist um að jarðgöng hér vestra
yrðu næst í röðinni þegar fram-
kvæmdum við jarðgöngin í Ólafs-
fjarðarmúla lýkur. Vinnu þar miðar
vel.
Brú yfir Dýrafjörð fellur einnig
undir liðinn stórverkefni og sagði
Steingrímur nauðsyrdegt að séð yrði
til þess að fjármagn fengist til áfram-
haldandi framkvæmda við hana.
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á
Þingeyri, var i Reykjavík fyrir
skömmu og átti þar viðræður um
brúarmálin við ráðherra og þing-
menn. Hann sagði í samtali við DV
að ómögulegt væri að segja nokkuð
um árangur þessara viðræðna fyrr
en vegaáætlun hefði farið í gegnum
lokaumræðu á Alþingi.
Margir vilja
aka banda-
ríska sendi-
herranum
Bandaríska sendiráðið í Reykjavík
auglýsti nýlega stöðu bifreiðarstjóra
sendiherrans lausa til umsóknar. ís-
lendingum virðist þykja það vænn
kostur að aka sendiherrum um götur
bæjarins því um sextíu umsóknir
bárust sendiráðinu um starf þetta.
Einn starfsmanna sendiráðsins
sagðist að vísu ekki skilja hví svo
margir sæktust eftir bifreiðarstjóra-
stöðunni. Taldi viðkomandi líklegt
að umsækjendur gerðu sér ofvaxnar
hugmyndir um kosti þess að starfa
fyrir sendiráð erlends ríkis.
Starfsmenn erlendra sendiráða
njóta margir sérstakra fríðinda í inn-
kaupum á áfengi og tóbaki. Ef til vill
er það ódýri sopinn sem freistar allra
þessara bílstjóra, þótt áfengi og akst-
ur teljist fara illa saman.
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Þótt gengío hafí hækkað
tim 24%*,
þótt 11,25% vörtxgjaldi
hafí verið bætt ofan á,
þótt þetta hafí allt gerst
heftxr þessi stóll lækkað
um21%, úr 1.150Í
950 stgr.
íslenskar króntxr frá því
xfyrra.
Alla leið frá Costa Rica.
Nýtt í Evrópu og á ís-
landi.
Glæsíleg plasthúsgögn
með púðum sem mega
standa úti allt árið.
Vorum að fá ný plast-
húsgögn, furuhúsgögn.
Aldrei meíra úrval.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Gengi maí 1988 20,6811
maí 1989 25,0000
Opíð um helgína
Laugardag 11—16 Sunnudag 12-16
SEGLAGERÐIN________
ÆGIR
EYJARSLÓÐ 7 - SÍMI 621780
EINNIG ERU V0RUR 0KKAR TIL SÖLU í FERÐAMARKAÐINUM, BÍLDSH0FÐA 12, SIMI 674100
ósazJslA