Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. 13 Lesendur Gróöureyöingm á Islandi: Girðum veðurfarið af P.S. skrifar: Fyrir skömmu var sýnd í sjón- varpinu mynd sem Landgræðsla ríkisins hefur látiö gera um upp- blástur og gróöureyöingu hér á landi. Var hér um lofsvert framtak aö ræða og sýndi svart á hvítu þaö sem fram kom hjá þulinum, Áma Gunnarssyni, aö ekkert land í víðri veröld er jaíhila farið sökum of- beitar og áníðslu. Umræðurnar sem á eftir fóm voru ekki jafhmerkilegar og mynd- in og raunar sýnikennsla í því hvernig hægt er að kæfa brýn mál- eíhi með kurteisishjali. Um myndina þarf ekki að hafa mörg orð. Á síðustu árum hafa augu almennings í þessu landi ver- ið að opnast fyrir því að landið er ekki jafnfagurt og frítt og okkur hefur verið kennt í skóla - þvert á móti. Hér er varla unnt lengur að finna óspillta náttúru eða land sem bú- fénaðurinn hefur ekki nagað niður í rót. Það er því ekki að undra þótt almenningur vilji spoma viö fótum og reyna að snúa vöm í sókn. Gróð- ur- og landvemdarmenn hér á landi eiga hins vegar við ramman reip að draga þar sem eru hagsmu- nagæslumenn landbúnaðarins í landinu, einkum sauðfjárræktar- innar. í umræðuþættinmn vöktu helst athygli kjánaleg ummæli Jónasar Jónssonar búnaðarmálastjóra. Sagði hann m.a. aö ósnortin nátt- úra væri ekki fógur og til að full- komna myndina yrðu grasbítamir aö vera þar á ferð! Gaf hann í skyn Frá Hornströndum. Fossinn Drífandi t.h. á myndinni. að helsta ástæða uppblástursins væru jöklamir og framburður þeirra. Er svona rugl samboðiö manni í opinberri þjónustu? Þá hafa vakið athygh og raunar nokkra kátinu líka þær greinar sera að undanfómu hafa verið að' birtast í nokkrum dagblaðanna eft- ir suma talsmenn ofbeitarinnar. Þar er því haldiö fram - þvert ofan í allt sem staðfest er hér á landi og annars staðar - að veðuifarið sé sökudólgurinn! Er oft langt seilst í röksemdafærshumi. En það vill hins vegar gleymast að það er hæg- ur vandi að „girða veðurfarið af‘, þótt undarlegt sé. Innan girðinga, þar sem gras- bítamir fá ekki aö leika lausum hala, sprettur upp birki- og víðikj- Laxveiði á íslandi alltof dýr: Ódýrt í Skotlandi Ragnar skrifar: Það er flestra manna mál að við íslendingar séum nú komnir langt út yfir öll takmörk í verölagningu fyrir laxveiði í ám okkar. Það skiptir ekki nokkru máh þótt verið sé að ræða um einhverjar „heimsþekktar" ár hér innanlands. Þegar verðið er komið upp í þetta 140 til 160 þúsund krónur fyrir daginn hlýtur hugarfar- ið að vera orðið „sjúkt“ einhvers staðar! Ég var að lesa í DV fyrir nokkru grein um veiðimál undir yfirskrift- inni „Veiðieyrað". Þar var eins og oft áður margt fróðlegt, bæði innlent og erlent. - En nú var það hið er- lenda efni sem fékk mig til að opna augun að fullu. Þess var getið að. svo virtist sem veiöiferðir út fyrir land- steinana væru farnar að færast í aukana. Ein slík ferð væri t.d. til arr og alls kyns blómjurtir dafna. Gaman væriefþessirveðurfarssér- fræöingar efndu til hópferðar á Hornstrandir þar sem sumrin eru styst og veðráttan hvað höröust. Síðan gætu þeir reynt að finna skýringu á gróskunni sem þar er orðin. ð 7304 '88 BMW 730i ’88, tjósblár, metailic, ekinn 11.000, vökva- stýri, 4ra þrepa sjálfskipting, ABS hemlakerfi, sól- lúga, rafdrifnar rúður, útvarp og segulband, þjófa- varnarkerfi, aksturs- og viðvörunartölva, auk fjölda annarra aukahluta. Til sýnis og sölu hjá Bílaumboð- inu hf. Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1, 110 Reykjavík sími 686633 Hljóöfæri Skotlands nú á næstunni eða hinn 20.-27. maí. í þessari ferð sem kostaði ekki nema kr. 62.500 fyrir manninn var innifaliö - og takið nú eftir: flugfarið, hótelgisting á mjög góðu hóteli, mál- tíðir allar og veiðileyfi. Auk þessa voru innifaldar leiðbeiningar í flugukasti hjá hinum þekkta lax- veiðimanni og flugukastkennara, Arthur Oglesby. - Ég segi nú bara eins og sagði í fréttinni; ótrúlegt. Þetta stenst samt allt saman. Hverjum dettur svo í hug að kaupa einn veiöidag hér á landi í misjöfnum veðrum og öllu sem því fylgir fyrir hátt á annað hundraö þúsund krón- ur? Ekki mér. Kannski þér, lesandi góður, en þú hefur þá bara dottið í lukkupottinn peningalega séð - eða á höfuðið! "Spilaðu músik sem aldrei hefur veriö skrifuð og aldrei hefur heyrst - sem betur fer ! SMÁAUGLÝSINGAR SÍIVII 27022 Stundvísi, þœgindi, þjónusta - alla dago vikunnar til Evrópu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.