Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. 35 Afmæli María Benediktsdóttir María Benediktsdóttir frá Ljósa- landi í Skagafirði, Digranesvegi 54, Kópavogi, er sjötug í dag. María er fædd í Skálholtsvík í Hrútafirði og ólst upp á Óspakseyri í Strandasýslu frá því að hún var þriggja ára. Hún var í námi í Kvennaskólanum á Blönduósi 1938-1939 og var vimiu- kona á Mælifelli 1939-1941. María giftist 12. janúar 1941 Jóhanni Hjálmarssyni, f. 27. nóvember 1919, fyrrv. b. á Ljósalandi í Lýtingsstaða- hreppi og húsverði í Menntaskólan- um við Hamrahlíð. Foreldrar Jó- hanns voru Hjálmar Jóhannesson, b. á Grímsstöðum, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Synir Maríu og Jóhanns eru Sigurgeir Jens, f. 27. október 1940, bifreiöarstjóri hjá Bílanausti hf. í Rvík, kvæntur Fríðu Sigurðardóttur; Jóhann Pétur, f. 27. nóvember 1943, bifreiðarstjóri hjá Strætisvögnum Akureyrar, kvænt- ur Ingiríði Valdísi Þórðardóttur; Snorri, f. 17. janúar 1945, húsvörður Grunnskólans á Sauðárkróki, kvæntur Stefaníu Sigfúsdóttur, rannsóknarmanni á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, foreldrar Lilju Maríu Snorradóttur gullverðlaunahafa í sundi á ólympíuleikum fatlaðra í Seoul; Ingimar, f. 9. október 1949, trésmiður og skrifstofumaður hjá Byggingafélaginu Hlyn hf: á Sauðár- króki, kvæntur Kristínu Helgadótt- ur hjúkrunarfræðingi; Frosti, f. 27. apríl 1952, þjóðháttafræðingur, kvæntur Steinunni Guðnýju Jóns- dóttur lækni; Jökull Smári, f. 27. apríl 1952, trésmiður og bifreiðar- stjóri hjá Strætisvögnum Uppsala- borgar, kvæntur Guðnýju Jóhönnu Sveinsdóttur, matreiðslumanni við Kungsgardets-sjúkrahúsið í Uppsöl- mn; Hjálmar Rúnar, f. 19. nóvember 1959, trésmiður í Rvík, kvæntur Erlu Dagnýju Stefánsdóttur, og Benedikt Emil, f. 19. nóvember 1959, byggingameistari í Rvík, kvæntur Valgerði Mörtu Gunnarsdóttur. Systkini Maríu eru Emma, gift Ás- geiri Bjamasyni, alþingmanm í Ás- garði; Haraldur, iðnaðarmaður í Rvík, og Benedikt Ragnar, bifreiðar- stjóri i Rvík. Systur Maríu, sam- mæðra, em Ingibjörg, gift Guðlaugi Sæmundssyni, og Guðborg, gift Ey- þóri Einarssyni, b. á Kaldbak í Hrunamannahreppi. Foreldrar Maríu voru Benedikt Ingimundarson, b. í Skálholtsvík í Hrútafirði, og kona hans, Lilja Magnúsdóttir. Benedikt var sonur Ingimundar, b. á Staðarhóli í Saurbæ, Jónssonar, b. í Fjósakoti, Sigmundssonar, b. á Fremri- Brekku, Andréssonar. Móðir Sig- mundar var Sigríður Jónsdóttir, b. á Breiðabólstað á Fellsströnd, Guö- mundssonar. Móðir Benedikts var Jakobína Magnúsdóttir, b. í Þurra- nesi í Saurbæ, Einarssonar, b. á Kvenhóh, Einarssonar. Móðir Magnúsar var Helga Sigurðardóttir, b. á Frakkanesi, Einarssonar og konu hans, Kolfinnu Magnúsdóttur. Móðir Jakobínu var Guðný Jóns- dóttir, b. á Þurranesi, Jónssonar og Guðrúnar Jóhannesdóttur. Móðursystir Maríu er Guðný, móðir Brands Jónssonar, fyrrv. skólastjóra Heyrnleysingjaskólans. Önnur móðursystir Maríu var Ragnheiður, amma Þorgeirs Ást- valdssonar. Lilja var dóttir Magnús- ar, b. í Miðhúsum í Hrútafirði, Jóns- sonar, b. í Skálholtsvík, Þórðarson- ar, b. í Heydal, Jónssonar, b. á Kirkjubóh í Tungusveit, Þórðarson- ar, föður Knstínar, langömmu Magnúsar Óskarssonar borgarlög- manns. Móðir Magnúsar var Guðný Magnúsdóttir, b. í Skálholtsvík, Magnússonar. Móðir Magnúsar Magnússonar var Sigríður Jóns- dóttir, b. í Tjaldanesi, Sveinssonar og konu hans, Elínar Einarsdóttur, móður Gríms Thorkelíns leyndar- skjalavarðar. Móðir Guðnýjar var Guðrún Andrésdóttir, b. á Kol- beinsá, Guðmundssonar, ogkonu hans, Guðrúnar Björnsdóttur, b. í Guðlaugsvík, Ulugasonar. Móðir Lilju var Ólöf Magnúsdóttir, b. á Óspakseyri, Jónssonar, alþingis- manns í Ölafsdal, Bjarnasonar á Hraunum í Skagafirði, Þorleifsson- ar. Móðir Magnúsar var Anna, syst- ir Einars, föður Indriða rithöfundar. Anna var dóttir Magnúsar prests í Glaumbæ, Magnússonar, ogkonu hans, Sigríðar, systur Benedikts, María Benediktsdóttir. langafa Einars Benediktssonar skálds. Sigríður var dóttir Halldórs Vídalíns klausturhaldara á Reyni- staö. Móðir Halldórs var Hólmfríður Pálsdóttir, Vídalíns, lögmanns í Víðidalstungu. Móðir Páls var Hild- ur Arngrímsdóttir lærða, vígslu- biskups á Melstað, Jónssonar. Móð- ir Ólafar var Guðrún Jónsdóttir, alþingismanns í Keldudal í Skaga- firði, Samsonarsonar, og konu hans, Guörúnar Sigurðardóttur. María verður að heiman í dag. Páll B. Oddsson Páll Björgvin Oddsson bygginga- meistari, til heimihs að Espigerði 18, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára ídag. Páll fæddist að Hóh í Hjaltastaöa- þinghá og ólst upp á Jökuldalnum. Barnaskólafræðslu sína fékk hann í farskóla en stundaði síðar nám við Iðnskólann í Reykjavík 1925-28 og hefur verið trésmíðameistari frá 1941. Páll hefur lengst af starfað við húsasmíði en síðustu starfsárin hef- ur hann stundað líkkistusmíði hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur. Hann hefur verið búsettur í Reykjavík í rúmsextíuár. Páll hefur verið félagi í KFUM sl. fimmtíu ár og starfað með Gídeonfé- laginu frá stofnun. Hann starfaði og æfði á sínum yngri árum með íþróttafélaginu Ármanni. Þá hefur hann verið félagi í Landsmálafélag- inu Verði í fjölda ára. Páll er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Alda Jenný en þau slitu samvistum eftir átta ár. Páll og Alda Jenný eignuðust tvær dætur. Þær eru Oddný Þorgerður, f. 27.6.1932, húsmóðir í Reykjavík, á þrjú börn, og Sigrún Hanna, f. 22.6.1934, d. 1987, húsmóðir í Grindavík, átti fjögur börn. Páll kvæntist 20.11.1942 Margréti Theodóru, f. 13.5.1907, d. 13.8.1967. Eignuðust þau einn son og eina dótt- ur. Þau eru Elín, f. 28.5.1944, hús- móðir í Noregi og á hún fjögur börn; og Jón, f. 1.3.1947, vélvirki í Reykja- vík og á hann tvö börn. Langafabörn Páls eru nú fjögur talsins. Systkini Páls urðu sex talsins og eru tvö þeirra á lífi. Þau eru Gísli, f. 1895, lengi vinnumaður á Jökuldal og að Hofi í Vopnafirði, nú til heimil- is að elliheimilinu á Vopnafirði, og Guðrún, f. 3.12.1907, lengstafverka- kona í Reykjavík og þar búsett nú. Foreldrar Páls voru Oddur Guð- mundsson, lengst af vinnumaður í Fljótsdal og Jökuldal, f. 9.4.1862, d. 5.11.1922, og kona hans, Þorgerður Bjarnadóttir frá Valþjófsstað, f. 1868. Bróðir Odds var Guðmundur kík- ir. Faðir Odds var Guðmundur, b. á Hraunbóli, Erlendsson, b. á Gríms- stöðum, Sigurðsson, b. á Grímsstöð- um, Hákonarson Sigurðssonar. Móðir Erlends var Hallfríður Er- lendsdóttir. Móðir Guðmundar var Ingibjörg Þórarinsdóttir. Móðir Odds var Þorbjörg, dóttir Bjarna, b. á Suður-Fossi í Mýrdal, Jónsson- ar, og konu hans, Sigríðar, systur Magnúsar, langafa Helga, föður Jóns, alþingismanns í Seglbúðum. Systir Sigríðar var Þórunn, amma Jenetta Bárðardóttir Páll B. Oddsson. Jóhannesar Kjarvals. Önnur systir Sigríðar var Guðríður, langamma Sveins á Fossi í Mýrdal, afa Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra og Brynju Benediktsdóttur leikstjóra. Þriðja systir Sigríðar var Guðný, amma Eldeyjar-Hjalta, afa Hjalta Geirs Kristjánssonar, fyrrv. for- manns Verslunarráðs. Þórunn var dóttir Jóns, b. og hreppstjóra á Kirkjubæjarklaustri, Magnússonar. Móðir Sigríðar var Guðrún Odds- dóttir, systir Guðríðar, langmömmu Helga Bergs bankastjóra. Bróðir Guðrúnar var Sigurður, langafi Guðbrands, föður Ingólfs forstjóra, og langafi Þorfinns, afa Ómars Ragnarssonar. Ti\ hamingju með daginn __—Ólafur Sigurlinnason, nr ' Sogavegi 112, Reykjavík. 93 ara Fjóla Bárðdal, Páfl Jónasson, Stlghúsi við Eyrargötu, Eyrarbakka. ívressunom, DK.arusure|jtu. Jóhanna B. Austtjörð, Ránargötu 16, Akureyri. 85 ára 50 ára Magnúsína Vilhjálrasdóttir, Hólmgarði 56, Reykjavik. Bjarni Hólm Fríraannsson, Sólheimum, Bessastaöahreppi. Sigurjðn Birgir Ámundason, 80 ára Heiðarási 15, Reykjavík. Jónína Jónsdóttir, Velli 1, Hvolhreppi. Ingimundur Gunnarsson, Þórðarstöðum, Hálshreppi. Elísabet Kristjánsdóttir, Hrepphólum, Hrunamannahreppi. Guðrún Magnúsdóttir, Stekkium 7, PatreksfirðL Einar Einarsson, Hraunbæ 15, Reykjavík. 40 ára Hafdís Laufdal Jónsdóttir, 75 ára Drápuhlíð 47, Reykjavík. Ásgeir E. Sigurðsson, Norðurgötu 49, Akureyri. Snœfríður Njálsdóttir, Árbót, Aðaldælahreppi. Jóhanna Jóhannsdóttir, Lúðvik Geirsson, Melabraut 5, Seltjamamesi. 70 ára Fálkagötu 6, Reykjavik. Ingvar Vagnsson, Hlíðarenda, Bárðdælahreppi. Guðjón Einarsson, Mýnesi n, Eiðahreppi. Páll A. Finnbogason, Háteigsvegi 52, Reykjavík. 60 ára Einholti 14B, AkureyrL Eyjólfur Magnússon, Skildinganesi 4, Reykjavik. Bára Garðarsdóttir, Garðavegi 11, Hvammstanga. Arnfinnur Scheving Arnfinnsson, Vesturgötu 157, Akranesi. Jenetta Bárðardóttir, innheimtu- stjóri hjá Gámaþjónustunni hf. í Reykjavík, til heimilis að Jakaseli 2, Reykjavík, er fertug í dag. Jenetta fæddist í Ólafsvík og ólst þar upp. Hún flutti til Reykjavíkur 1965 og starfaði þar við verslunar- og þjónustustörf til 1974. Hún flutti síðan til Ólafsvíkur 1975, tók við Hótel Sjóbúðum 1976 og rak þær til 1980. Jenetta flutti aftur til Reykja- víkurijanúar 1981 og hóf störfþar sem rekstrarstjóri hjá Aski. Hún var síðan dehdarstjóri hjá SÍS í verslun- inni Torginu en hefur starfað hjá Gámaþjónustunni frá 1986. Jenetta giftist 2.11.1985 Benóný Ólafssyni, framkvæmdastjóra hjá Gámaþjónustunni hf., f. 25.4.1955. Foreldrar Benónýs: Ólafur Guð- mundsson, f. 23.6.1920, fulltrúi hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og kona hans, Elín Elíasdóttir, f. 12.11. 1913, d. 13.3.1971. Börn Jenettu eru Áslaug Arnar- dóttir, f. 15.3.1968, d. 7.4.1986; Elsa Lára Arnardóttir, f. 31.10.1970; Ás- laug Dagbjört Benónýsdóttir, f. 28.5. 1986, og Benóný Jens Benónýsson, f. 11.10.1988. Systkini Jenettu er Auður, f. 11.4. 1942, gift Eyþóri Lárentínussyni verkstjóra en þau búa í Stykkis- hólmi og eiga þrjú börn; Friðrik Bergmann, f. 25.7.1943, d. 5.5.1981, en kona hans var Þórdís Hjálmars- dóttir, bjuggu þau á Dalvík og eign- uðust fimm börn; Garðar Eyland, f. 28.2.1945, gjaldkeri hjá Steintaki, kvæntur Guðbjörgu Sveinsdóttur skrifstofustjóra en þau búa í Garðabæ og eiga þrjú börn; Sigurð- ur Skúli, f. 1.9.1950, hótelstjóri við Jenetta Bárðardóttir. Hótel Stykkishólm, kvæntur Jó- hönnu Hauksdóttur hár- greiðsludömu og eiga þau þrjú börn, auk þess sem Sigurður á barn frá því fyrir hjónaband; og Jóhanna, f. 13.6.1954, gift Lárusi Hólm verk- fræðingi en þau eru búsett í Reykja- vík og eigatvöbörn. Foreldrar Jenettu eru Bárður Jensson, f. 16.10.1918, formaður Vérkalýðsfélagsins Jökuls í Ólafs- -ít vík, og Áslaug Aradóttir, f. 6.8.1924, húsmóðir. Bárður er sonur Jens Guðmunds- sonar, sjómanns frá Ögri í Helga- fellssveit, og Mettu Kristjánsdóttur frá Búðum á Snæfellsnesi. Foreldr- ar Jens voru Guðbjörg og Guð- mundur Jónsson. Áslaug er dóttir Ara Bergmann Einarssonar sjómanns og Friðdóru, dóttur Friðriks Friörikssonar og Alfífu Jónsdóttur. Foreldrar Ara Bergmann voru Einar Kristjánsson og Guðbjörg Dagsdóttir. Andlát Kristján Friðsteinsson Kristján Friðsteinsson Kristján Friðsteinsson, löggiltur endurskoðandi, til heimilis að Faxa- túni 23, Garðabæ, er sextugur í dag. Hann og kona hans, Emilía Emils- dóttir, hafa opið hús fyrir vini og vandamenn að Síðumúla 35,3. hæð, milli klukkan 17 og 19 í dag. Halldór Ari Bjömsson Halldór Ari Björnsson múrara- meistari andaðist í Reykjavík 3. maí sl. Halldór Ari fæddist í Bolungarvík 17. ágúst 1910. Foreldrar hans voru Björn Halldórsson, b. að Hamri í Nauteyrarhreppi, ogÁgústína Margrét Aradóttir frá Uppsölum í Álftafirði vestra. Halldór var kvæntur Clöru Guð- rúnu Isebarn en þau skildu. Börn þeirra: Ehn, gift Birni Skafta Björnssyni; Margrét Ágústína, gift Pétri Maack, og Björn Halldór, kvæntur Ólöfu Ásgeirsdóttur. Halldór læröi múrsmíði hjá Guð- mundi St. Gíslasyni múrarameist- ara og lauk sveinsprófi í iðninni 1936. Hann gekk í Múrarafélag Reykjavíkur sama ár en meistara- réttindi öðlaðist hann 1939. Halldór Ari Björnsson. Halldór verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 12.5., og hefst athöfnin klukkan 15:00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.