Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Page 32
F R E T
/\ S l< O T i Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrlft - Dreifingr Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
FOSTUDAGUR 26. MAI 1989.
Hjólabrettalist er þekkt fyrirbæri úti i hinum stóra heimi en lítið hefur sést
til slíkrar snilldar hér á landi. Á sýningunni Vorið 1989 í Reiðhöllinni sýna
fjórir enskir hjólabrettakappar listir sinar. Leikurinn fer þannig fram að
þátttakendurnir renna sér á brettunum inni í hálfhring. Hraðinn verður
mikill en listin er fólgin í því að snúa sér á alla kanta í háloftunum en
'««amt halda sig við hjóiaborðið og auðvitað lenda aftur á öllum hjóium. Á
'myndinni er einn á fullum snúningi á leið niður aftur en félagi hans fylgist
með. DV-mynd KAE
Strokufanginn:
Fannst í nótt í
kjallaraherbergi
Lögreglan fann í nótt strokufang-
ann af Litla-Hrauni. Hann var í kjall-
araherbergi í vesturbæ Reykjavíkur.
Fanginn strauk af Litla-Hrauni á
>sjg*iðjudag. í morgun var ekki farið
' ■' að yfirheyra hann um hvar hann
hefði verið og hvað hann hefði að-
hafst þá daga sem hann var utan
muranna.
Fanginn er rétt innan við tvítugt.
Hann er að afplána um eins árs fang-
elsisdóm - auk viðbótarrefsingar
vegna innbrots sem hann framdi síð-
astliöið haust - en hann hafði þá
strokiö frá Litla-Hrauni.
Forsætisráðherra líst miklu betur á álver fyrir austan:
Gott lands
byggðarmal
jarðgöng gera Fljótsdalsvirkjun ekki ódýrari
„Það virðist vera að koma skrið-
ur á hugsanlega stækkun álvers-
ins. Ef þaö yrði niðurstaðan er
mjög líklegt að áætlunin yrði byggð
á virkjun fyrir austan, á grundvelli
Fljótsdalsvirkjunar, eftir nokkur
ár,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra en umræða
um álver hefur öðlast nýtt líf í kjöl-
far breyttrar verkhönnunar á
Fljótsdalsvirkjun. Er þá talað um
að jarðgöng leysi aðrennslisskurði
af hólmi og mun það flýta fram-
kvæmd verksins. Einnig er taliö að
þetta geft færi á pólitískri lausn í
ríkissljóminni en afstaða Alþýðu-
bandalagsins til álvers hefur verið
neikvæð hingað til.
Steingrímur J. Sigfússon sám-
gönguráðherra tók fram að engar
viðræður hefðu verið nýlega í rík-
isstjóminni um álver og engar
ákvaröanir teknar. „Þó að það
kunni að vera álitlegir kostir að
grafa jarögöng þar sem áður vora
áformaðir skurðir þá hélt ég að það
væru þannig hlutir sem væra
þannig vaxnir að það tæki langan
tíma að gera á þeim fullnægjandi
kannanir. Jarðgangagerð er flókin
líka og mér kærai á óvart að það
væri hægt að slá því fóstu að þarna
væri hægt að fara út í jarðgöng
bara af því að einhver verktaki segi
það. Ég er þó ekkert að kasta rýrð
á þann möguleika. Það er vel lík-
legt að það sé álitlegt,“ sagði sara-
gönguráðherra.
Með þessum hugmyndum er rætt
um að stækka álverið í Straumsvik
um 120 þúsund tonn. Það yrði þá
185 þúsund tonn. Síðan er rætt um
að reisa nýtt álver á Austurlandi
upp á annað eins. Álframleiðsla í
landinu myndi þá þrefaldast.
,JVIér líst miklu betur á þessa
hugmynd um nýtt álver fyrir aust-
an en stækkun hér fyrst. Það yrði
að sjálfsögðu gott landsbyggðarmál
að dreifa þessu dálítið,“ sagði for-
sætisráðherra.
Að sögn Jóhanns Más Maríus-
sonar, aöstoðarforstjóra Lands-
virkjunar, er ekki gert ráð fyrir því
að Fljótsdalsvirkjun veröi ódýrari
þó að jarðgöng verði grafin. Það
sem fengist með því væri fyrst og
fremst tímaspamaöur og aukíð ör-
yggi við rekstur. Auk þess yrðu
umhverfisspjöll minni. Þá má geta
þess að kostnaður við Fljótsdals-
virkjun, sem er dýrasti virkjunar-
kostur sem Landsvirkjun á, var
talin 17 milljarðar við síðustu ára-
mót
-SMJ
fyrir 200
tonn af
grálúðu
Togarinn Víðir fiá Hafnarfirði
seldi 200 tonn af grálúðu á Fisk-
markaðnum í Hafnarfirði í fyrra-
dag fyrir 10 milljónir, Fyrir grá-
lúðuna fengust að jafiiaði 50
krónur fyrir ktíóið.
Víðir var alls 6 daga í túmum
og fóru þar af 2 sólarhringar í
siglingu en grálúðan er veidd í
Víkurálnum fyrir vestan, nánar
tiltekið á svokölluöu Hampiðju-
torgi en það dregur nafii Sitt af
úfnum botni sem skemmir veiö-
arfæri. Skipstjóri á Víði er Gísli
Ambergsson. -Pá
Urðun sorps í Kópavogi:
Formleg umsókn
hefur boríst
„Við höfum verið á einum fundi
með Kópavogsmönnum um þessi
mál og þeir hafa skilað inn formlegri
umsókn um uröun sorps í Leirdal.
Áður en ákvörðun verður tekin þarf
að leita umsagnar aðila eins og Nátt-
úravemdarráðs, skipulagsyfirvalda
og heilbrigðisnefnda. Þetta mál er
þannig vaxið að við verðum einnig
að fá umsókn fleiri aðila,“ sagði Ólaf-
ur Pétursson, forstöðumaður meng-
unardeildar Hollustuverndar, í sam-
tah við DV.
Eins og DV skýrði frá í gær hafa
stjórnvöld í Kópavogi uppi áform um
urðun sorps í Leirdal, rétt við Fífu-
hvamm í Kópavogi. Staðurinn er
milli 300 og 500 metra frá byggð í
Seljahverfi í Breiðholti. Þaö gerir
málið sérstakt að sögn Ólafs.
„Við hefðum helst kosið að ekki
hefði þurft að koma til þess að stofna
nýja sorphauga á höfuðborgarsvæð-
inu, þótt til bráöabirgða séu. En það
er spuming ef ekki verður hjá því
komist." -hlh
41 á of miklum hraða
Lögreglan í Reykjavík kærði 41
ökumann fyrir of hraðan akstur á
miðvikudag. Einn ökumaður missti
ökuréttindin. Hann var tekinn á
Kringlumýrarbraut á 116 kílómetra
hraöa. -sme
LOKI
Mér sýnist Davíð vera að
moka Kópavogssorpinu
yfir bæjarmörkin!
Veörið á morgun:
Væta og
lítill hiti
Á morgun verður norðan- og
norðvestanátt og víða skúrir um
vestanvert landið en suðvestan-
átt og rigning á Austur- og Norð-
austurlandi. Hitinn verður 4-7
stig.
a ORIENT
BÍIALEIGA
v/FIugvallarveg
91-6144-00