Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Qupperneq 2
20 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989. Hús og garðar Mikill gróður, heilur og steinar. Lengst til vinstri er göngustígur með stökum hellum og völusteinum. Fjærst má sjá stóra, óreglulega, hraunsteina sem eru hlaðnir í lágan vegg til að afmarka garðbeðið. DV-mynd JAK Hönnun garða: Hellur, gijót og gróður í fallegu samspili Hægt er að velja um ótrúlega mik- iö af hellum og steinum. Mjög mis- jafnt er hvað hentar best og taka þarf tillit til umhverfisins við valið. Úrvalið er þó það mikið aö allir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi. Varast skal þó að þlanda of mörgum tegundum af hellum og steinum sam- an því þá næst ekki heildarsvipur. í innkeyrslur oggróðurbeð Fyrir innkeyrslur er talið hentug- ast að nota litlar hellur sem þola mikinn þunga. Svokallaðir I-steinar eru gjarna notaðir þar en.bæði er að auðvelt er aö leggja þá og einnig er minni hætta á að þeir brotni undan þungum bílum. Sandur og vikur henta velígróð- urbeð þar sem þessi efni halda betur hita en gróðurmold. Vikurinn dregur í sig raka þegar blautt er í veðri en gefur hann frá sér í þurrviðri. Ígöngustígaog til skreytingar Stærri steinar eru gjarnan notaðir til skreytinga og í göngustíga. Sigur- steinar eru smáir og dreifast um. Þeir eru því ekki mjög góðir þar sem umgangur er mikill en afar fallegir í skreytingum. Göngustígar eru oft hannaðir þannig að stakar hellur eða plankar eru settir niður með hæfilegu milli- bili sem passa gönguhraða og svo er völusteinum dreift á milli. Margir hafa náð að gera mjög fall- ega garða sem minna helst á villta náttúruna með því að hafa stór björg og plöntur sem passa við svo sem loðvíði eða einitegundir. Semlausn áhæðamismun Hæðamismunur í görðum veldur fólki oft miklum heilabrotum. Skemmtileg lausn á þessu vandamáli eru hinar svokölluðu stoðveggjaein- ingar eða U-steinar sem hægt er að raða á ótal vegu. Til dæmis má raða þessum steinum upp í síhækkandi blómaker og leysa þannig hæðarmis- muninn. Einnig má leysa hæðar- vandamál með aflíðandi grjóthleðslu eða grasflöt á nokkrum hæðum með blómabeðum á milh. -BÓl Hönnun og skipulagning garða fer nú fram á allt annan hátt en áður. Algengt var að mold væri dreift um garðinn, grasfræi síöan sáö eða þök- ur lagðar. Svo um leið og grasið var vaxið og byrja þurfti að slá var gam- anið búið. Varanlegt ogviðhaldsfrítt Það færist þvi sífellt í vöxt að fólk leggi hellur í garöa sína og losni þannig að einhverju leyti við garð- sláttinn. Lítil grasflöt, hellur, blóma- beð og möl í fallegu samspili er tónn- inn í garðahönnun í dag. Mörgum vex í augum vinnan við hellulagningar en hellur eru varan- legar. Þegar búið er að leggja þær þarf ekki að gera neitt meira og við- hald þeirra er sáralítið ef nokkurt. í flestum tilvikum sjá fagmenn um hellulögn en ef pyngjan er létt og sumarfríið framundan þá er tilvalið að spara sér peninginn með því að taka til hendinni sjálf/ur. Ráðlegast er að byrja verkið á því að fá góð ráð hjá garðyrkjumönnum eða skrúð- garöyrkjumeisturum. Svo er bara að skella sér í vinnugallann, bretta upp ermarnar og af stað. Frostþolinn jarðvegur nauðsynlegur Undirvinnan er afar mikilvæg. Það þarf að fjarlægja allan jarðveg sem þenst út í frosíi svo sem mold eða leir. Ef þetta er ekki gert munu hell- umar skríða til í fyrsta frosti og verða ójafnar. Þess vegna er mikil- vægt að setja gott lag af frostþolnum jarðvegi undir. Fyrst er lagt 40-50 cm þykkt lag af malarsandi eða svokallaðri grús. Ef mGARDENA Turbo-sláttuorf Fyrir vandláta garðeigendur. Með öryggishlíf og sjálfvirkri þráðarstillingu. GARDENA Turbo sláttuorf 250 Verð GARDENA Turbo sláttuorf 300. Verð 7310.- Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík - Sími 91-680 780 i£' GARDENA samhæfð garðverkfæri ....................... ■ ■ - ,LI' Til að losna við garðsláttinn: Nýjungar úr steini jarðvegurinn er mjög rakur, til dæm- is mýrarmold, þarf grúsarlagið að vera þykkara. Ofan á grúsina er svo sett 5-7 cm þykkt lag af sandi. Undir- lagiö er svo jafnað út, bleytt og þjapp- að, helst með vélþjöppu. Undirlagiðverður aðvera slétt Línur era nú strengdar á nokkram stöðum yfir sandinum, í þeirri hæð sem hellumar eiga að vera. Til að fá yfirborðið nákvæmlega slétt er best að leggja tvö rör eftir sandinum og mæla svo þykkt hellnanna frá röran- um og upp í linurnar. Þannig er hæð sandsins ákvörðuö og þá er bara eft- ir að jafna hann endanlega með rétt- skeið og hallamáli. Nú er aðeins hellulögnin sjálf eftir. Hellumar era lagðar alveg upp að næstu hellu og látnar skella snöggt og ákveðið niður. Það þarf að gæta þess að hellurnar komi jafnt niður svo að yfirborð sandsins raskist ekki. Ef það gerist verður aö taka helluna upp aftur, jafna sandinn og reyna aftur. Þó að hellumar skekkist örlítið eða Hellunum er skellt snöggt niður og þess er gætt að þær komi jafnt niður svo að yfirborð sandsins undir raskist ekki. Þetta eru l-steinar sem eru þægilegar í lagningu og henta vel í innkeyrslur. DV-mynd JAK færist til þá er auðvelt að laga það með því að slá þær á sinn stað með gúmmíhamri eða trékubb. Ef ein- hverjar hellur standa hærra að af- loknu verki má reyna að ýta þeim niöur með því að stappa á þeim eða pressa með trékubb. Gangi ekki að jafna helluna svona verður að taka hana upp og minnka sandinn sem er undir. Allarrifurfylltar Þá er allt á lokastigi og aðeins eftir að sópa yfir stéttina með sandi til að fylla í allar raufar. Ef stærri rifur hafa myndast, til dæmis upp við hús- veggi, er best að fylla þær með se- mentsblönduðum sandi þvi að se- mentið heldur aftur af grasvexti. -BÓl Klakkar eru notaðir til þess að afmarka svæði og takmarka bílaumferð. Um helgina verður haldin sýning á hellum og steinum á sérstöku sýningarsvæði BM Vallár við Breiðhöfða 3. DV-myndir Brynjar Gauti Um þessar mundir era að koma á markaðinn svokallaðir klakkar. Þeir era hannaöir í þeim tilgangi að tak- marka umferð við heimili og víðar. Einnig eru þeir heppilegir til þess að afmarka reiti og bílastæöi. Það er BM Vallá sem framleiðir steinana og era þeir til í þremur stæröum. Auk þess er mögulegt að fá þá með keðjufestingum eða með ísteyptu rafmagnsröri fyrir ljósker. Fyrirtækið framleiöir einnig svokall- aða setklakka sem sameina notagildi áðumefndra klakka og sæti þar sem hægt er að tylla sér á. Um næstu helgi verður haldin sýn- ing á sýningarsvæðinu að Breiðhöfða 3. Þar mun gefa að líta hellur og steina á sérstaklega hönnuðu svæði. Sýnd verða ýmis sýnishorn af nýleg- um sem eldri vörum sem henta til að prýða garða og víðar. -ÓTT Hellulagning er lausnin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.