Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Side 10
28 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLl 1989. Hús og garðar Grétar Helgason og Erla Jónsdóttir í garðinum sem eitt sinn var aðeins vinnuport. Með þeim á myndinni eru dæturnar Linda Rún, Hildur Edda og Helga Lára. Stóru trén voru gróðursett á síðasta ári og þola þau vel breytt- ar aðstæður. Hægra megin er steinabeðið góða þar sem skuggþolnu fjöl- æru plönturnar og yllistrén eru staðsett og þrifast vel. DV-mynd JAK Vinnuporti við Laugaveginn breytt í sælureit Við aðkomu hússins (norðurhlið) eru m.a. gljávíðir, birkikvistar, baunatré og garðahlynur. Hvíti litur- inn framkallar stílbrigði trjánna. DV-mynd BG Húsið hleypur ekkert frá manni „Eftir hádegi verður mjög sólríkt á flestum stöðum við suður- og vestur- hliðina,“ segir Grétar. Reyndar kem- ur aldrei sólskin í steinabeðið á suö- urhliðinni þar sem veggur skyggir á frá suðri. Þar þrífast skuggþolnar fjö- lærar plöntur mjög vel - gróðurinn þarf ekki endilega sólskin - birtan er nægileg. í einu skuggahominu gróðursettum við tvær ylhsplöntur og þær hafa tekið mjög við sér frá því í fyrra. Við gróðursettum svo tvö 15 eða 20 ára gömul reynitré í fyrra og þau spjara sig prýðilega. Ég hef lagt möl að stofnum tijánna - þá er maður laus við mosa cg gras. Við aðkomu hússins, við norður hliðina, settum viö gljávíði sem myndar skjól, nokkur baunatré, ösp og svo garðahlyn og birkikvistar sem verða mjög snotrir. Við vesturhliðina reistum við hvítan skjólvegg sem framkallar mjög stílbrigði tijánna. Þar var áður gamall steinveggur sem gjarnan mátti missa sig - sólarinnar nýtu þar meirihluta dagsins." Á lóðinni hafa verið lagðar hellur í stærðunum 40x40 og 20x20. Auðsjá- anlega er hægt aö aðlaga steininn vel að gönguleiðum, leiksvæði og gróðri með því að nota tvær stærðir. „Það er hægt að ná fram skemmtilegu mynstri með því að nota stórar og litlar hellur saman,“ segir Grétar. Seinna meir, þegar við flytjum okkur líka niður á neðri hæðina, sem enn er ófullbúin, ætlum viö að tengja íbúðina við garðinn með því að setja tröppur út, annaðhvort úr eldhúsinu eða borðstofunni. Það er best að framkvæma hlutina dálítið eftir hendinni. Það liggur ekkert á. Húsið hleypurekkertfrámanni. -ÓTT Stoðveggjakerfið leysir margvísleg vandamál á auðveldan hátt. Horneiningar gefa mikla mögúleika við hinar ýmsu hleðslur. Stoðve B.M. Vallá kynnir nýtt kerfi steinsteyptra ein- inga sem gefa garðinum þínum stílhreint og glæsilegt yfirbragð Með Stoðveggjaeiningum færð þú stílhreinan og fallegan garðvegg og leysir hæðarmismun auðveldlega. Einnig er hægt að útbúa stærri blómaker með Stoðveggjaeiningum svo og ýmsar aðrar skemmtilegar hleðslur. Stoðveggjaeiningarnar eru framleiddar úr járnbentri, veðrunarþolinni steinsteypu. Uppsetning er einföld og festingar fylgja með. jakerfið * Óteljandi möguleikar á útfærslum Stoðveggjakerfið býður upp á ótæmandi möguleika við lausn margvíslegra vandamála við skipulagningu garða og svæða í kringum einbýlishús, fjölbýlis- hús, fyrirtæki, stofnanir o.s.frv. Pantanasími er (91) 68 50 06. Hafðu samband við okkur,við munum með ánægju veita þér allar frekari upplýsingar. B.M. VALLÁf TT Steinaverksmiðja Söluskrifstofa Breiðhöfða 3 Sími (91) 68 50 06 Aðalskrifstofa Korngörðum 1 104 Reykjavík Sími (91) 680 600 Við bakhús nokkurt við Laugaveg- inn, sem byggt var árið 1905, ríkir sannkölluö útiverustemning og gróðursæld. Þar hafa hjónin Grétar Helgason úrsmiður og Erla Jóns- dóttir sannreynt að hægt er að breyta hálfgerðu „njólaporti" í fallegan gróður- og útivistarreit. Við breyt- ingarnar á lóðinni hefur nú skapast mjög ákjósanleg aðstaða fyrir börn við húsið. Nokkuð sem ýmsir eiga erfitt með að ímynda sér að sé mögu- legt við stærstu verslunargötu ís- lands. „Árið 1920 bjuggu 14 fullorðnir í húsinu og ekki veit ég hvað mörg börn - það er synd að eigendumir hafi ekki tekið til hendinni fyrr,“ segir Grétar sem hyrjaði á að skipta um jarðveg í lóðinni árið 1984. „Við höfum verið að færa til plönt- ur og finna út heppilegustu staðina fyrir þær. Þannig hafa t.d. tegundir sem blómstra snemma verið settar fyrir aftan þær sem blómstra seint. Með því móti njóta þær sín jafnt yfir sumarið. Ég held að það sé komið nokkuð mikið jafnvægi á gróðurinn núna. Grasflötin er laus við mosa enda held ég að við höfum verið heppin með þökur. Auk þess er sleg- ið oft og krakkarnir leika sér á flöt- inni. Hleðslur sem gefa görðum, svo og umhverfi fyrirtækja og stofnana glæsilegt yfirbragð. Hæðarmismunur leysist auðveldlega með Stoðveggjaeiningum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.